Morgunblaðið - 14.03.1981, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.03.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981 13 börn eins og grunnskólar hér, en enginn skóli er þar eins og Haga- skóli, þ.e. aöeins meö hluta grunn- skólans. í þessu sveitarfélagi er tómstundaráö og íþróttaráö, sem starfa undir stjórn fraeösluráös og hafa sameiginlega skrifstofu. í þess- um ráöum eru einnig fulltrúar hinna frjálsu félagasamtaka, íþróttafélaga, skáta, KFUM o.fl. Þessi sameiginlega skrifstofa hefur þannig yfirumsjón meö öllu skóla- og tómstundastarfi. Þangaö snúa þeir sér, sem þurfa afnot af húsnæöi, hvort sem er sundlaug, (þróttahús eöa herbergi fyrir saumaklúbb eöa bridge og allt þar á milli. Á þessari skrifstofu voru sl. vetur t.d. skráöir yfir 400 sjálf- boöaliöar, sem hægt var aö kalla til, ef vantaöi leiöbeinendur í félags- og íþróttastarfi. Þá skuium viö líta aöeins á skóla í þessu bæjarfélagi. Undanfarin ár hafa Danir komiö á fót mörgum tómstundaheimilum við skólana. Þessi tómstundaheimili eru opin frá kl. 7 á morgnana til 5 síödegis og þjóna fyrst og fremst þeim tilgangi aö vera nokkurs konar barnaheimili. Þá hafa 7—14 ára börn aögang og þar geta börnin komið, leikiö sér, lært, sinnt áhugamálum sínum o.s.frv. Þaö, aö opna þessa staöi kl. 7, þjónar þeim tilgangi að foreldrar koma meö börn sín áöu> en þeir fara til vinnu. Þarna hafa því börnin sitt annaö heimiii aö deginum og fara í frítímum, matartíma og svo eftir kennslu. Þar þarf aö skrá börnin og borga fyrir þessa þjónustu líkt og á barnaheimilum. Þessi þjónusta er lítiö notuö af eldri börnum og fannst mér þessir staöir minna mig á barnaheimili, sem þjónuöu þörfum yngri barnanna fyrst og fremst. Eins og ég sagði, eru þessi tómstunda- heimili viö skólana yfirleitt, en þó er á nokkrum stööum nokkur vegalengd á milli (hálfrar klukkustundar gang- ur). Þá er kl. oröin 17 og hvaö er þá í boöi fyrir börn og unglinga. Jú, nú taka viö svokallaöir áhugahópar eöa klúbbar um hin ýmsu áhugamál, eins og klúbbstarfsemin hér hjá ÆR. Þessi starfsemi er i skólunum yfirleitt á timabilinu 4—8 á kvöldin. Þetta er ókeypis og opiö öllum börnum á aldrinum 7—14 ára og lágmarks- þátttaka er 10 í hóp. Þarna notar fræösluskrifstofan sér listann með sjálfboöaliöunum, sem ég gat um áöan, þannig aö kostnaður viö þetta er lítill, þar sem húsnæöiö er fyrir hendl. Þá eru þaö kvöldin. Yfirleitt er alls ekki félagslrf í skólunum sjálfum aö kvöldi eftir kl. 8. En þá eru í hverfunum unglingaklúbbar fyrir 14—18 ára yfirleitt, en þó sums staöar frá 12 ára. Þessir klúbbar eru alls ekki stórir, þeir eru frekar haföi fleiri og mismunandi. Unglingarnir eru skráöir í þessa klúbba, sem eru t.d. í viöbyggingum skólanna. Ungl- ingar greiöa fyrlr þátttökuna í eitt skipti fyrir öll. Þessir klúbbar eru það sem hér er oftast kallaö „opiö hús“. Þarna er sjónvarpshorn, leiktæki, diskótek o.s.frv., en allt lítiö og yfirleitt aöeins um þaö bil 50 ungl- ingar í sínum kiúbbi. Þessir unglinga- klúbbar skipuleggja ferðalög, heim- sóknir o.fl. Þessir klúbbar eru opnir frá 19—22 eða 23. Aö flytja tómstunda- heimilin inn í skólana Eftir því sem ég hef hér stiklaö á, mætti ætla, aö vel væri séö fyrir tómstundum unglinga í danska skólakerfinu, en miklu fleira er þarna um aö ræöa og langar mig aö minnast á eitt í viöbót. Gerö hefur veriö tilraun í einu sveitarfélagi til að flytja tómstunda- heimilin, sem ég talaði um áöan og eru opin frá 7—17, inn í skólana. Þetta hefur gefist misjafnlega, því aö þaö viröist auka skólaleiöa barna aö vera alltaf í skólanum, bæöi viö nám og leik. Foreldrar og skólayfirvöld eru aftur á mótl hrifnust af þessari hugmynd og könnun meöal foreldra sýnir, aö æskilegast sé aö skóli, tómstundaheimili og ungiingaklúbb- ar séu í einni og sömu byggingunni, þannig aö þar sé opin leiö til aö geyma börn og unglinga frá kl. 7 á morgnana til 23 á kvöldin, ef svo vill vera. Mér sýnist, aö þessi stefna sé aö veröa ofan á. Þaö er mín persónulega skoðun, aö Danir séu komnir of langt í þessari „samfélagsgæslu" á börnum og ungl- ingum á kostnaö eðlilegra fjölskyldu- tengsla. Vandamálið snýr að þeim áhugalausu Á kynnisferöum mínum hef ég mikiö reynt aö finna út hvernig aðilar leysa mál þeirra, sem alls ekki hafa áhuga á því sem býöst, því aö þaö er það sem ég hef mest fundiö fyrir í mínu starfi aö þessum málum, hvaö þaö er erfitt að ná til vissra nemenda og virkja þá í tómstunda- og félags- lífi. Yfirleitt eru þetta þeir aöilar, sem eru útundan í bekkjunum, oft vegna minni námsgetu og finna til minni- máttarkenndar í félagslífi einnig. Enda er þaö mín reynsla, aö virkustu nemendur í námi veljast oftast til forystu í félagslífi og taka virkari þátt í því. Hvernig náum viö þá tii þeirra, sem eru útundan og af hverju verða þeir útundan? Þetta er meira mál en svo, aö ég ræöi þaö nú, en vil vekja athygli á þessu, því aö margir þessara aöila lenda oft í miöur hollri tómstundaiöju og veröa virkir þar. Þaö eru þessir unglingar, sem búa til oröiö unglingavandamál og þeir eru ekki stór hluti af hópnum, en ég tel þaö mikilvægast í starfi skólanna og allra, sem aö þessum málum starfa, aö ná meö einhverju móti til þessa hóps í námi og/eða tómstundastarfi, áöur en þaö er um seinan. Unglingur, sem hefur nóg fyrir stafni, er aldrei vandamál, þaö er aögeröaleysiö, sem kallar á uppfyll- ingu í tómarúmiö sem skapast og á þetta tómarúm spila ýmsir viöskipta- aöilar vtöa erlendis og jafnvel hér á landi og aögeröalausir unglingar bíta á agniö og fylla upp í tómarúmiö meö vímugjöfum o.fl. Þaö eru þessir aögeröalausu unglingar, sem eru bestu viöskiptavinir á kúluspila- stööum og eyða oft dögum í verzlun- armiöstöövum og í bæjarráp. Þaö er oft mjög erfitt fyrir skólann aö ná til þessara unglinga. Þeir, og e.t.v. heimili þeirra, hafa af einhverj- um ástæöum misst trúna á þaö, aö nokkuö gott komi frá skólum. Því miöur gat ég hvergi á leið minni séö neina lausn á þessu máli. Mjög margir sjálfum sér nógir Ég vil undirstrika þaö, aö stór hluti unglinga þarf alls ekki á neinni fyrirgreiöslu frá skólum aö halda til aö fylla upp í tómstundir sínar. Mjög margir eru sjálfum sér nógir (íþrótt- um, t.d. skíðaiökun, lestri, tónlist o.s.frv. og hafa lítiö til okkar aö sækja annaö en samneytiö viö jafn- aldra sína. í framhaldi af þessu, ætla ég aö ræöa nokkuö um könnun, sem gerö var sl. vetur á vegum ÆR og Fræösluráös á tómstunda- og félags- lífi unglinga í Reykjavík og þá sérstaklega niöurstööur varöandi Vestur- og Miöbæ, sem var eitt hverfi í könnuninni. Þaö, sem vekur fyrst athygli, er, að heimilin viröast enn aö minnsta kosti vera vettvangur mikils hluta tóm- stundaathafna, annaöhvort eigið heimili eöa heimili vina og kunningja. Aftur á móti vantar nær algjörlega í könnunina, hvað það er sem ungl- ingarnir gera á heimilum, nema Ijóst er, aö þau eyöa verulegum hluta af frítíma sínum til fjölmiðlanotkunar. Magnúa Oddsson Hjólreiðabraut og skíðaaðstaða Utan heimilis ber mest á íþrótta- iökun og er þar efst á blaöi skíöaiök- un (könnun gerö í febr ). Meira en annar hver unglingur í hverfinu fer reglulega á skíöi og er áberandi, að yngri hóparnir eru haröari viö þessa iökun, svo aö þetta er aö færast upp. í þessu hverfi eru unglingarnir næst- harðastir viö skíðaiökun, aöeins Breiöholtiö skákar okkur hér. Enn eitt, sem bendir til aö íþróttir séu vinsælasta tómstundagaman hér, er, að þegar spurt var hverju unglingar vildu aö komiö yröi upp í hverfinu, svöruöu Vesturbæingar: Hjólreiöa- braut nr. 1 og skíðaaöstöðu nr. 2. Hvernig bregöast svo yfirvöld og frjáls félagasamtök í hverfinu við þessu? Ja, sjálfsagt finnst ÆR þaö vera í verkahring borgarinnar aö koma þeim á og öfugt. Eöa eru íþróttafélögin bara fyrir keppnir e.t.v.? Margir flosna upp vegna keppninnar Stundum finnst mér örla svolítiö á því aö þeir, sem ekki eru góðir í íþróttum, en hafa gaman af þeim, flosna fljótlega upp vegna áherslu á keppnisíþróttir í íþróttafélögum. Er e.t.v. litiö svo á, aö íþróttafélögin skuli sjá um keppnisíþrótt, en svo skuli borgin sjá um almennings- íþróttir? (Trimmbrautir, sundaö- stööu, skautasvæöi o.s.frv.?) Komiö hefur veriö upp skíöaaö- stööu fyrir borgarbúa fyrir fjármuni borgarbúa, en svo veröa íbúarnir aö borga sama fyrir not af þessari aöstööu eins og allir aörir, sem nota hana, hvort sem þeir eru frá Húsavík eöa héöan. En þetta er ekki gagn- kvæmt, því aö þessi aöstaöa er ókeypis, t.d. á Húsavík er litiö á þetta sem framlag til æskulýösmála. Væri nú ekki rétt aö reyna að nýta þennan áhuga og gera þetta heilbrigöa félagslíf varanlegt meö því aö gera öllum unglingum kleift aö nota þessa aöstööu án tillits til efnahags? Heilbrigð æskulýösstarfsemi borgar sig sjálf Þar sem ég hef skoöaö svipaö, t.d. í Austurríki, var feröin ókeypis fyrir skólabörn og lyftukostnaöur niöur- greiddur. Þaö á aldri aö hugsa um þaö aö láta uppeldis- og æskulýös- starf borga sig peningalega. Þaö borgar sig í heilbrigöri æskulýös- starfsemi. Aö sameina kraftana og stjórna vel Nú í mars munum við fara meö tvo árganga í skiöaskála, sem er í eigu íþróttafélags í borginni. Viö höfum skálann á leigu í 10 daga, þ.e. svefnpokapláss á gólfi. 50 nemendur veröa í einu, tvo og hálfan dag hver hópur. Lágmarksgjald sem börn veröa aö borga er 2,4 millj. gamalla króna, en Ifklega borgum viö á fjóröu milljón, sem þýöir, aö mánaöarleigan er um 7—8 milljónir. Þetta íþróttafélag, eins og önnur, hefur fengiö ýmsa fyrirgreiöslu frá opinberum aöilum og úr sjóöum og þetta allt leiöir hugann aö því sem ég gæti rætt um í alla nótt. Hvernig fjármagni til æskulýös- og íþrótta- starfa er skipt og hvernig barist er um þaö. Og þá kem ég alltaf aö því sama. Aö mínu mati á aö sameina kraftana sem mest ( staö þess aö dreifa öllu. Heilbrigöasta félagslíf sá ég í félags- og íþróttamiöstöðvum, þar sem fjármagn hins opinbera var lagt í eina stóra félagsmiöstöö í hverju hverfi í staö þess að dreifa þvf án nokkurra yfirstjórna. Draumur um fjölbreytta aðstööu undir einum hatti Hér í Vesturbæ er t.d. félagsstarf á vegum klrkjunnar, skátahreyfingar, íþróttafélags, ríkisins og borgarinnar. Ég get lýst fyrir ykkur mínum draumi, sem ég get ekki séö neitt til fyrirstööu aö væri framkvæmanlegur í nýjum hverfum, en því miöur er nú ekki raunin á. Hugsiö þiö ykkur aö þar sem nú er aö rísa þjóöarbók- hlaða heföi veriö íþrottahús meö 3 sölum, notaö af Melaskóla, Haga- skóla og Háskóla aö deginum, en íbúum hverfisins síödegis og aö kvöldi. Þarna væri aö sjálfsögöu sundlaug og í þessari sambyggingu væri svo tómstundaver; starf á veg- um borgarinnar og frjálsra félaga- samtaka í hverfinu. Þarna væri einnig haegt að fá sali til afnota fyrir einstaka áhugahópa, t.d. bridge, skák, saumaklúbba, pólitísk félög, málverkasýningar o.fl. Sföan væri Melavöllur á sumrin til íþróttaiökana, en skautaiökana aö vetrinum. Þetta hef ég séð víða, misjafnlega útfært eftir aöstæöum, en heilbrigt félagsstaf án kynslóöa- bils. Ég fullyröi, aö svona miöstöövar eru ódýrari „lausnir" en að byggja sérsaka aöstööu fyrir skáta eins og gert var hér, 3 íþróttahús og svo allt svæöi KR, sem er styrkt verulega af almannafé, án þess aö mér sé kunnugt um, aö nokkrar kvaöir hvíli á þessum aöilum gagnvart íbúunum og því síður, aö nokkur samræming sé í störfum þessara aöila eöa yfirleitt nokkuö eftirlit meö því að styrkir og fjármunir séu nýttir til aö skapa heilbrigöa æsku í hverfinu. Þaö sem mér finnst mest vanta á, er heildarstefna og heildarstjórn á þessum málum. Lítum t.d. á ný hverfi eins og Breiðholt sem er allt nýtt. Þar er sundlaug viö einn skóla, byggö á vegum Fræösluráös og undir þeirra stjórn, íþróttahús viö annan á vegum Fræösluráös og félagsmiöstöö f 3. skólanum á vegum Æskulýösráös. Sföan er kirkja í byggingu, sem hefur óskaö eftir samstarfi viö ÆR til að hafa félagsmiöstöö þar, þannig aö ÆR fjármagni hluta af kirkjubygging- unni. Þessi dreifing kailar á fjórfalda stjórnun, fjórfalda gæslu o.s.frv. Sama er aö gerast í Árbæjarhverfi. Hvers vegna eru ekki reist íþrótta- og æskulýöshús með aöstööu fyrir frjálsa félagsstarfsemi í hverfunum, sem þau hafa aögang aö, ef þau sýna sig þess verö? Vísir að fyrirmyndinni í Vestmannaeyjum í Vestmannaeyjum er vísir að slíkri aöstööu, sem þeir geta svo útfært á ýmsa vegu. Sú bygging er flutt inn frá Noröurlöndum, en svona hús hafa oft komiö til umræðu, en margar yfirlýs- ingar veriö gefnar um þaö, aö svona miöstöðvar hentuöu ekki ísl. aöstæö- um. En sl. vor fóru borgarfulltrúar til Vestmannaeyja til aö skoöa þessa miöstöö og kynna sér möguleika hennar. Hvaö skyldu margar ferölr hafa veriö farnar á vegum hins opinbera til aö skoöa svona mann- virki? Hvet til helgar- samveru fjölskyldna Allra síöast verö ég aö fá aö láta í Ijós skoðun mína á þeirrl beiöni, sem komiö hefur frá samstarfsnefnd ÆR og Fræösluráös um skemmtanahald í skólum. Nefndin gerir þaö aö tillögu sinni (þaö skal tekiö fram aö starfs- fólk skólanna var ekki spurt), aö skemmtanahaldi veröi beint á föstu- dags- og laugardagskvöld og einnig hefur þessi beiöni, nú fyrir nokkrum dögum, veriö gerö aö umræöuefni í Mbl. Tilgangur meö þessari ósk er sá, aö koma í veg fyrir vandræöi í miöborginni um heigar. í fyrsta lagi vil ég segja þetta: Þaö má vera meira en góö skemmtun í skólanum, sem hefur meira aödrátt- arafl en Planiö fyrir þá sem á annaö borö ætla þangaö. Þeir fara bara þangaö á eftir. í ööru lagi er þaö ósk nemenda, aö hafa skemmtanir ekki um helgar. Viö reyndum þaö, en aösókn var dræm. Unglingar eru margir uppteknir í barnapössun og svo eru þau mjög oft bundin um helgar ( (þróttakapp- leikjum o.s.frv. í þriöja lagi hefur komiö í Ijós, aö stór hluti unglinga í miöbænum um helgar er ekki frá Reykjavik, svo aö þetta er ekki lausn. í síðasta lagi er svo þaö aöalatriöi, aö ég lít svo á, aö þaö eigi aö hvetja til þess aö helgar séu notaöar til samveru fjölskyldu og skólarnir eigi ekki aö keppa viö heimilin um helgar, því aö þaö er svo, að sumum ungllngum finnst þeir veröa aö taka þátt (öllu, sem skólinn býður þeirn." -á.j.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.