Morgunblaðið - 14.03.1981, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981
Frá fundi prófastanna með biskupi i Reykjavik i sl. viku.
Prófastar af öllu landinu
voru á fundi með biskupi
íslands i Reykjavík í sl.
viku. Er fundinum lauk
ræddi blm. við þrjá pró-
fastanna, þá sr. Braga
Friðriksson úr Kjalar-
nesprófastsdæmi, sr. Lár-
us Guðmundsson frá Holti
í önundarfirði og sr. Sig-
mar I. Torfason úr Múla-
prófastsdæmi.
„Kirkjusókn er
vaxandi“
Séra Bragi Friðriksson er próf-
astur í Kjalarnesprófastsdæmi og
hefur aðsetur í Garðabæ. í Kjal-
arnesprófastsdæmi búa um 40.000
manns, þjónandi prestar eru 10 en
sóknirnar 18. Kaupstaðirnir Vest-
mannaeyjar, Hafnarfjörður,
Garðabær, Grindavík og Njarðvík
tilheyra m.a. þessu prófastsdæmi.
„Þetta er mjög áhugavert svæði
vegna þess hve fjölbreytilegt það
er,“ sagði sr. Bragi. „Þar má finna
mikið þéttbýli, þorp og sveitir."
— A kirkjan mikil ítök í próf-
astsdæminu?
„Ef ég á að svara þessari
spurningu út frá reynsiu minni í
starfinu þá verð ég að segja að
áhuginn er mikill. Eg starfa með
prestum, sóknarnefndum og öðr-
um sem veita forstöðu í söfnuðin-
um. Og ef ég miða við þann hóp,
sem er nokkuð stór, þá verð ég að
svara þessari spurningu játandi.
Það er jákvæður áhugi hjá þeim
sem vinna að safnaðarmálum.“
— En meðal almennings?
„Kirkjusókn er víða mjög vax-
andi. Annar þáttur safnaðarlífs-
ins gefur líka til kynna áhuga
fólks á kirkjunni. Það er rækt þess
við viðhald og búnað kirkna, bæði
hvað varðar útlit og muni og
annað sem á að verða til að auka á
fegurð athafna. Bygging safnaðar-
heimila er einnig stöðugt vaxandi
þáttur safnaðarlífsins. Ymsir aðil-
ar hafa hafið eða eru með áætlan-
ir um byggingu safnaðarheimila.
Þetta er mjög athyglisverður þátt-
ur í safnaðarlífi því í þessum
heimilum fer fram mjög margvís-
leg félagsstarfsemi."
— Hvað hyggist þið gera í
Kjalarnesprófastsdæmi til að
minnast kristniboðsársins?
„Við munum án efa gangast
fyrir héraðshátíð. Þessi mál voru
tekin fyrir á prófastafundinum
sem lagði á það megin áherslu að
hátíðahöld færu fram í héruðun-
um en að ekki yrði boðað til einnar
landshátíðar. í mínu prófasts-
dæmi verður sennilega um tvennt
að ræða. í fyrsta lagi verður
kristniboðsársins minnst í öllum
kirkjum einn sérstakan dag. í
öðru lagi verður efnt til héraðs-
hátíðar sem verður væntanlega í
tengslum við héraðsfund í haust.
Sennilega verður einkum treyst á
kirkjukórana sem núna æfa sam-
eiginlega fyrir hátíðina.“
— Að lokum ræddum við við
Braga um stöðu kirkjunnar meðal
landsmanna nú, 1000 árum eftir
að þjóðin heyrði boðskap kristn-
innar í fyrsta sinn.
„Ég held að staða kirkjunnar
eigi sér djúpa vitund í hugum
almennings. Undir niðri er gert
ráð fyrir henni. Hún snertir líf
meiri hluta landsmanna á ákveð-
inn hátt við ákveðin tækifæri allt
frá vöggu til grafar. Ég hygg líka
að sem betur fer fari sú hugsun
þverrandi að kirkjan sé bara
prestarnir. Vaxandi kirkjusókn og
mikil þátttaka í félagsstarfi kirkj-
unnar bendir til þess að mjög
margir séu fúsir til að taka þátt í
kirkjulegu starfi, vinna undir
merki kirkjunnar. Ég tel að kirkj-
an sé raunverulega lifandi stofn-
un. Mér finnst það vera sannað að
hún hafi miklu hlutverki að gegna
og ég held að fólk líti til hennar í
vaxandi mæli, hinn kristni boð-
skapur hennar er raunveruleg
vörn í einkalífi fólks gegn ýmsu
válegu í samtíðinni."
„Megum aldrei
vera ánægð“
Séra Lárus Guðmundsson frá
Holti í Önundarfirði er prófastur í
Isafjarðarprófastsdæmi og þjón-
andi prestur í Holts- og Núps-
prestaköllum. Hann var fyrst
spurður að því hvort kirkjan ætti
mikil ítök á hans svæði.
„Já, hún á það eins og um landið
allt. Það hefur þó verið presta-
skortur í prófastsdæminu eins og
sums staðar á Vestfjörðum, t.d. á
Suðureyri og Þingeyri. Ég þjóna
því prestakalli aukalega meðan
svo er ástatt.“
— Hvernig gengur að komast
rriilli kirknanna?
„Það gengur misjafnlega og
hefur verið mjög erfitt sl. 3
mánuði. Þó er ekki eins erfitt að
komast á milli nú og fyrir 17 árum
er ég byrjaði að þjóna í Holti. Nú
er meira mokað yfir veturinn því
mannlífið krefst meiri sam-
gangna. Fólk sættir sig ekki við
eins mikla innilokun og áður. Það
hefur mikið verið gert í vegamál-
um á Vestfjörðum á síðustu árum
þótt enn sé margt eftir.
Það má segja að ég noti öll
farartæki til að komast um. Ég
nota mikið skíði, báta, bíla, vél-
sleða og er meðeigandi að lítilli
flugvél. Ég hef lítið notað hana í
embættiserindum enn sem komið
er en það stendur til að bæta úr
því. Hún kemur til með að létta
mér mjög ferðir um prófastsdæm-
ið því vegalengdir eru miklar.“
Þess má geta að í ísafjarðar-
prófastsdæmi er 21 kirkja í 19
sóknum. Sjálfur þjónar Lárus 3
sóknum sem í eru samtals 8
kirkjur.
— Hvað ætlið þið að gera í
tiiefni kristniboðsársins?
„Það er ekki ákveðið enn, við
höfum aðeins rætt málin. Séra
Jakob Hjálmarsson á ísafirði hef-
ur forgöngu um að við munum
líklega halda hátíð á Patreksfirði í
ágúst."
— Finnst þér kirkjan vera eins
og hún á að vera, lifandi stofnun
sem nær til fólksins í landinu?
„Við getum aldrei og megum
aldrei vera ánægð með kirkjuna.
Og það vantar mikið upp á að við
getum verið nokkurn veginn
ánægð. Þó getum við sagt að
sjaldan hafi verið unnið eins
mikið að málefnum kirkjunnar og
á sl. árum. Reynt hefur verið að
laga hana að breyttum þjóðfélags-
háttum og það hefur sýnt sig að
það er vel hægt ef fyrir hendi er
áhugi og stuðningur frá löggjafan-
um. Þar hefur áhugann greinilega
vantað. Alþingi hefur ekki tekið
tillit til þeirra stofnana sem það
hefur sjálft sett á fót, t.d. kirkju-
þings. Það hefur hundsað sam-
þykktir þingsins og óskir svo árum
skiptir. Alþingi hefur t.d. enn ekki
séð sóma sinn í því að afgreiða
mál eins og lög um prestkosn-
ingar.
— Ert þú þá að segja að það sé
Alþingi að kenna að kirkjan hefur
ekki getað lagað sig að breyttum
þjóðfélagsháttum, náð betur til
fólksins?
„Ekki eingöngu en að töluverðu
leyti. Þingmenn eru oft að setja
sig í dómarasæti í þeim málum
sem við þekkjum miklu betur til.
Þeir verða að beygja sig undir
vilja okkar sem erum sérmenntað-
ir og vinnum að málefnum kirkj-
unnar. Kirkjan á sér því miður
sárafáa málsvara á þingi. Ég veit
svo sannarlega ekki hvað gerðist
ef kirkjan risi upp og sameinaðist
gegn stjórnvöldum. Hún getur
verið valdamikil," sagði Lárus að
lokum.
„Kirkjan á meiri ítök
í hugum fólks en i
fljótu bragði virðist“
Sigmar I. Torfason er prófastur
í Múlaprófastsdæmi og hefur að-
setur á Skeggjastöðum sem er
nyrsta kirkjan í prófastsdæminu.
Skeggjastaðir eru skammt frá
þorpinu Bakkafirði sem tilheyrir
prestakallinu.
„Ég er nokkurs konar forngrip-
ur því þetta prestakall hefur verið
óbreytt svo lengi sem elstu heim-
ildir greina frá,“ sagði Sigmar.
„Það hefur ekki verið sameinað
öðrum prestaköllum vegna þess
hve erfiðar heiðar eru báðum
megin við.“
í Múlaprófastsdæmi eru 17
sóknir byggðar en tvær eru í eyði.
Sigmar var spurður að því hvort
ekki væri á tíðum erfitt að ferðast
um prófastsdæmið?