Morgunblaðið - 14.03.1981, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981 17
Hótel- og veitingaskóli íslands:
Matsölukvöld til að
kosta Ameríkuf ör
Ég held raunar að við þurfum á að
halda allri okkar samstöðu, öllum
okkar krafti og ríflega því hugviti
og þekkingu sem við sameiginlega
eigum til að þrælahaldskerfinu í
bókmenntamálum íslendinga
verði aflétt. Hér er ég bara að tala
um framleiðslu og sölu bóka.
órædd eru þau mál að nú reka
bæjarfélög um allt land stórfyrir-
tæki þar sem bókum er dreift
nánast gratís út sem svarar milj-
ónaupplögum án þess höfundar fái
nema hlægilegan píring (56 milj-
ónir árið 1980) fyrir. Það er annað
dæmi.
Víkjum aftur að furðanlegu
kröfuleysi rithöfunda í sínum
málum. Það má að einhverju leyti
skýra með því að skipulega hefur
verið haldið leyndum öllum stað-
reyndum þessa mikilvæga máls.
Könnun sem Hagvangur byrjaði á
fyrir allmörgum árum var stöðvuð
af útgefendum og bóksölum. í
rauninni er þetta hér fyrsta raun-
hæfa tilraunin til að komast til
botns í þessum málum og finna
grundvöll handa höfundum og
þýðendum að standa á með kröfur
sínar, sem nú verða að beinast
nær einvörðungu að ríkisbákninu
sem orðið er meirihlutaaðili að
rekstri bókamarkaðarins eins og
taflan ber með sér. Það er von-
laust að halda áfram að karpa við
útgefendur um hærri og hærri
prósentu af minni og minni hluta
bókarverðsins. Kyrrstaðan ein
kemur útúr því. Það er líka borin
von að ræða mikið lengur við
meira og minna ólæsa fulltrúa
ríkisvaldsins og kerfisins um göfgi
bókmennta og nauðsyn þess að
veita til þeirra fé uppá gustuk og
góðan vilja. Alþingi hefur sýnt á
sér andlitið núna þegar þar liggur
tillaga á borðum um að taka
fjárræðið af höfundunum og setja
pólitíkusa í það að úthluta þeim
skitnu 3% af hagnaði ríkisins sem
renna í Launasjóðinn. Forsendan
fyrir þessu á að vera rifrildi
höfundanna og góðsemi þing-
manna. En sannleikurinn er, að
hér er sá sem öllu ræður, meiri-
hlutaaðilinn að bókamarkaðstekj-
unum að sýna vald sitt og gera
sömu kröfuna og þekkist austan-
við járntjaldið þar sem ríkið er
orðið enn stærri þátttakandi í
bókamarkaðnum og pólitíkusarnir
ráða öllu.
Þetta verður umfram allt að
forðast.
Sé nú leitað vel og öllu snúið við
þá má kannski finna því stað að
kröfur höfundanna hafi látið á sér
bæra. Ógn hæverskar að vísu og
duldar. Með þær er líka farið sem
ríkisleyndarmál. Þessu ríkisleynd-
armáli ætla ég nú samt að ljóstra
hér upp í lokin. Ráðuneytin vita að
árið 1980 bárust til Launasjóðs
rithöfunda 143 umsóknir um
starfslaun samtals í 785 mánuði.
Ég leyfi mér að líta á þessar
hæversku umsóknir sem kröfu
höfundanna. Og vissulega er hún
bljúg og feimnisleg.
Við skulum nú tala við ríkis-
kassann eins og hann væri pen-
ingastofnun og reikna með því að
ránskapurinn á bókamarkaðnum
sé rekinn eins og annar bisnis. Þá
kemur í ljós að þessi „bisnis“
lætur nú í dag ekki nema 5,5
prósentur af veltu sinni í hráefnis-
kaup. Þá á ég við hlut höfundanna.
Þetta er óðs manns æði og mundi
leiða hvaða einkarekstur sem er
beint til helvítis. Eigum við að
segja að hóflegt sé fyrir þetta
fyrirtæki að láta svo sem 10,5
prósentur af gróða sínum í hrá-
efniskaupin. Þetta er nú einu sinni
sá eini kostnaður sem fyrirtækið
leggur út. Setjum nú svo að
ríkissjóður vildi hlíta jafn góðlega
og vel gefnu ráði. Þá hefði hann
bætt 7,5 prósentum af tekjum
sínum af bókum ofan á launasjóð-
inn árið 1980. Þá hefði launasjóð-
urinn haft til umráða 420 miljónir
gamalla króna sem eru 1050 mán-
aðarlaun. Þá hefði verið hægt að
sinna öllum kröfum rithöfunda
(sem eru satt að segja undarlega
lágar) og byggja upp sjóð með
afgangnum sem hefði orðið 106
miljónir. Þeim mátti ráðstafa til
lána. Ferðalána handa rithöfund-
um, byggingarlána, námslána og
hver veit hvað.
Nú eru semsé vatnaskil í málum
rithöfunda í þessu landi. Sjálfir
ráða þeir til hvorrar áttarinnar
gæfa þeirra rennur. Um það er að
velja að fljóta niðrað feigðarósn-
um með rifrildið gamla innan-
borðs á meðan fulltrúar ræningj-
ans, ríkisvaldsins — þá á ég við
Alþingismenn úr öllum flokkum
— nota sér þetta ósamkomulag til
að sölsa undir sig allt sjálfstæði
höfundanna, fjárræði þeirra og
skoðanir. Ellegar hin leiðin —
glæst sigling í samhug um kjörin
sín hversu sem öðrum skoðunum
er háttað, sigling inní framtíð þar
sem ránskapur Alþingis hefur
verið brotinn það á bak aftur að
það verður hægt að gefa sér tíma
til að skrifa bækur í næði á þessu
landi og lifa þó við almennt
viðurkennd lágmarkskjör.
Ykkar er valið, en að lokum læt
ég hér töflu sem er leiðrétting á
síðasta lið fyrri töflunnar. Leið-
réttingin er fólgin í því sem áður
er getið, að hagfellt hefði verið
fyrir ríkissjóð að bæta litlum 300
miljónum við launasjóðinn árið
1980. Vitaskuld hefðu 90 af þeim
miljónum skilað sér óðara í kass-
ann með hækkandi sköttum höf-
unda (við reiknum líka með því að
höfundur sem lætur launasjóðinn
kaupa sig úr starfi fái annan
mann til að vinna sín gömlu störf
svo ekki er um tekjutap ríkisins að
ræða vegna þess tilflutnings). Þá
liti hlutaskifting á bókamarkaði
svona út; og þætti engum
hneyksli:
Tafla II
(óskatafla)
Útg.: 1.997m eða 26,6%
Höf.: 623m eða 8,3%
Bóks.: 1.215m eða 16,2%
Ríkissj.: 3.668m eða 48,9%
7.503m 100,0%
NEMENDUR Hótel- og veit-
ingaskóla íslands munu standa
fyrir matsölukvöldum að Hótel
Esju um næstu helgi, i kvöld,
laugardags- og sunnudagskvöld
frá kl. 18.00 til 22.30. Er verði
mjög stillt i hóf og kostar
fjórréttuð kvöldmáltið 120 kr.
og eru allir velkomnir. Hráefni
til matreiðslunnar frá nemend-
ur skólans ókeypis en ágóðann
af matsölunni hyggjast þeir
nota til að fjármagna ferð er
hluti þeirra sem útskrifast á
þessu ári mun fara til Banda-
rikjanna í vor.
A þriðjudag buðu nemendur
Hótel- og veitingaskóla íslands
blaðamönnum til kvöldverðar og
kynntu fyrir þeim fyrirhugaða
ferð sína til Bandaríkjanna. Er
tilgangur ferðarinnar þríþættur.
Að skoða hótel í Bandaríkjunum,
að kynna og auglýsa íslenzkan
mat og fá reynslu af erlendum
veitingahúsum. Um helmingur
þeirra rúmlega 40 nemenda sem
skólinn útskrifar á þessu ári mun
taka þátt í ferðinni. Mun hópur-
inn standa fyrir tveim veizlum á
bandarískum hótelum — hádeg-
isverði og kvöldverði. Hádegis-
verðurinn, sem mun eingöngu
samanstanda af fiskréttum,
verður á Hotel Grossinger, Loch
Sheldrake við New York en
kvöldverðurinn verður að Sulli-
van Conty Community College á
sama stað. Verður boðið uppá
íslenzka lambasteik og verður
matreiðslusýning tengd fram-
reiðslu hennar. Allt hráefni sem
notað verður í þessar máltíðir
hafa framleiðendur gefið þannig
að hægt verður að selja þær við
vægu verði og vonast nemendur
Hótel- og veitingaskólans til að
þær verði verðug auglýsing fyrir
íslenzkar matvörur sem þeir
telja að standi erlendum matvör-
Frá kvöldverðinum sem nemend-
ur Hótel- og veitingaskóla ís-
lands buðu blaðamönnum til.
um síður en svo að baki. Hyggj-
ast þeir gera það sem í þeirra
valdi stendur til að kynningin
takist sem bezt en að þeirra áliti
hefur alls ekki verið gert nógu
mikið af því að kynna íslenzkan
mat erlendis.
skrautlegarpottaplöntur
Starfsvika í Fjölbrauta
skóla Suðurnesja
VIKUNA 16.—20. mars verður
haldin starfsvika i Fjölbrautaskóla
Suðurnesja (FS) og fellur öll form-
leg kennsla niður i þeirri viku af
þeim sökum. í stað venjulegrar
kennslu mun nemendum m.a. verða
boðið upp á átthagaferðir um
Reykjanes, svo og ferðir i ýmis
fyrirtæki og stofnanir á Suðurnesj-
um og Stór-Reykjavikursvæðinu
sem tengjast námi þeirra á ein-
hvern hátt.
Þá verður efnt til fyrirlestrahalds
í skólanum um hin ýmislegustu efni
er tengjast jafnt skóla- og mennta-
málum, svo og þjóðmálum og
byggðamálum Suðurnesja. Munu
fyrirlestrarnir verða haldnir á milli
kl. 15 og 17 alla daga vikunnar og
verður hægt að velja milli þriggja
fyrirlestra samtímis. Fyrirlestrar
þessir eru opnir nemendum jafnt
sem öðrum íbúum Suðurnesja og er
ástæða til að hvetja fólk til að
notfæra sér þetta tækifæri.
Nemendafélag skólans mun í til-
efni starfsvikunnar gangast fyrir
kvikmyndahátíð í Félagsbíói ofan-
greinda daga og hefjast sýningarnar
kl. 17 dag hvern. Meðal mynda
þeirra er sýndar verða eru ýmsar
mestu perlur kvikmyndagerðarlist-
arinnar svo sem myndir eftir Chap-
lin, Buster Keaton, Roman Polanski
o.fl. Aðgangur að kvikmyndasýning-
unum er öllum heimill.
Á mánudagskvöldið kl. 20.30 verð-
ur sýnt leikritið KONA eftir Dario
Fo í flutningi Alþýðuleikhússins í
Félagsbíói og starfsvikunni lýkur
svo á föstudagskvöld í Félagsbíói kl.
20.30 með tónlistarhátíð sem Nem-
endafélagið gengst fyrir. Aðgangur
er öllum heimill.
(Fréttatilkynning)
Höfum nú fengiö gott úrval af
margskonar skrautplöntum sem ekki
hafa sést héráöur. Suðrænarplöntur
og pálmar í miklu úrvali. Júkka
pálmar, stórir sem smáir.
Hafsteinn Hafliðason,
garöyrkjufræöingur leiöbeinir
viöskiptavinum þessa helgi um
pottaplöntur, meöferð þeirra,
umpottun og staösetningu.
Komiö í Blómaval, skoðið urvalið.
Opiö frá kl. 9-21