Morgunblaðið - 14.03.1981, Qupperneq 30
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA?
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981
Leikfélag Reykjavíkur
Ofvitinn í 146. sinn
í kvöld verður Ofvitinn sýndur
hjá LeikfélaKÍ Reykjavikur i 146.
sinn.
Eins og kunnuKt er, er það
Kjartan Raunarsson, sem samdi
leikgerðina eftir sogu Þórbergs,
og er hann jafnframt leikstjóri.
Það er samdóma álit allra sem til
þekkja, að ótrúlega vel hafi
tekist að búa söguna i leikbún-
ing, ok sýning Leikfélagsins sé i
heild sinni með merkustu við-
burðum i islenskri leiklist siðari
ára.
Fjórtán leikarar koma fram
i sýningunni, en meistara I>ór-
berg leika þeir Jón Hjartarson og
Emil Gunnar Guðmundsson og
hafa þeir báðir hlotið mikið lof
fyrir túlkun sina. Ofvitinn var
frumsýndur i október 1979 og
hefur jafnan verið leikinn fyrir
fullu húsi í Iðnó, en senn fer
sýningum að fækka.
Fáar sýningar
eftir á Ótemjunni
Annað kvöld er 16. sýning á
hinum sígilda ærslaleik Shake-
speares Otemjunni. Ótemjan er
einn alvinsælasti gamanleikur
höfundar og sviðsetning hans hjá
Leikfélagi Reykjavíkur hefur vak-
ið mikla athygli.
Leikurinn, sem er fullur af
spaugilegum uppátækjum, ást og
misskilningi, lýsir viðureign
þeirra Katrínar og Petrútsíós, og
hvernig hann beygir kvenskassið
til hlýðni og undirgefni svo að
friður megi ríkja í sambúð kynj-
anna. Alls koma fram í sýning-
unni 15 leikarar og hljómlistar-
menn, en aðalhlutverkin eru í
höndum þeirra Lilju Guðrúnar
Þorvaldsdóttur og Þorsteins
Gunnarssonar, sem sjást hér í
hlutverkum sínum á meðfylgjandi
mynd ásamt þeim Jóni Sigur-
björnssyni og Kjartani Ragnars-
syni.
Lúðrasveit verkalýðsins
Tónleikar í Háskólabíói
í dag heldur Lúðrasveit verka-
lýðsins sina árlegu tónieika i
Háskólabiói og hefjast þeir kl. 14.
Á efnisskrá eru baeði innlend og
erlend lög. Stjórnandi er Ellert
Karlsson. Öllum er heimill að-
gangur meðan húsrúm leyfir.
Lúðrasveit verkalýðsins var
stofnuð 8. mars 1953. Fyrsti for-
maður var Bárður Jóhannesson og
fyrsti stjórnandi Haraldur Guð-
mundsson. Lúðrasveit verkalýðs-
ins kom fyrst fram opinberlega á
skemmtun í Mjólkurstöðinni við
Laugaveg í aprílmánuði 1953 og
síðan hefur hún leikið við öll
möguleg tækifæri á hverju ári.
Á næsta ári er fyrirhuguð för
Lúðrasveitarinnar til Finnlands
þar sem haldið verður norrænt
tónlistarmót lúðrasveita og kóra
er starfa á vegum eða í tengslum
við verkalýðshreyfinguna á Norð-
urlöndum.
TIL STYRKTAR ÁSKIRKJU
Safnaðardagur
Asprestakalls
ÁRLEGUR kirkjudagur Safnað-
arfélags Ásprestakalls er á morg-
un og hefst kl. 14 með helgistund
að Norðurbrún 1, sem sóknar-
presturinn, sr. Árni Bergur Sig-
urbjörnsson, annast. Kór Ás-
prestakalls syngur undir stjórn
Kristjáns Sigtryggssonar, organ-
ista Áskirkju.
Að helgistundinni lokinni verð-
ur framreitt veizlukaffi og munu
Guðmundur Guðjónsson söngvari
og Sigfús Halldórsson tónskáld
flytja gestum list sína. Einnig
mun kirkjukór Áskirkju flytja
kórverk og sönglög undir stjórn
organistans. Þá mun fólki gefast
kostur á að kynna sér teikningar
hinnar nýju Áskirkju, sem nú er
risin, ekki sízt fyrir þróttmikið og
fórnfúst starf safnaðarfélagsins.
FélaKsmiðstööin
Bústaðir
Kynningardagskrá
á málefnum
þroskaheftra
Á MORGUN verður sérstök
kynningardagskrá á málefnum
þroskaheftra i félagsmiðstöðinni
Bústöðum, i tilefni af ári fatl-
aðra, og hefst dagskráin kl. 15.
Foreldra- og kennarafélag
öskjuhlíðarskóla hefur tóm-
stundastarf fyrir fyrrverandi og
núverandi nemendur starfsdeilda
skólans í félagsmiðstöðinni Bú-
stöðum í vetur. Leiðbeinandi í
tómstundastarfinu er Ráðhildur
Ingadóttir.
Hópur þessi undir stjórn Ráð-
hildar hefur undirbúið dagskrána.
Þar mun Magnús Magnússon
sérkennslufulltrúi tala um and-
lega fötlun. Nemendur Heyrnleys-
ingjaskólans sýna Iátbragðsleik.
Sólveig Eggerts kemur í heimsókn
og ávarpar samkomuna og að
lokum munu þroskaheftir sýna
brúðuleikhús eftir dæmisögum
Esóps. Allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Nýja Bíó sýnir
„ Töl vutrúlofun“
í GÆR frumsýndi Nýja Bíó
bandariska gamanmynd, Tölvu-
trúlofun (A Perfect Couple).
Leikstjóri er Robert Altman.
Aðalhlutverk leika Paul Dooley
og Marta Heflin.
Þjóðleikhúsið
Oliver Twist verður sýndur í
Þjóðleikhúsinu á morgun og
hefst sýningin kl. 15.00, en fella
varð niður sýningu í dag vegna
aukasýningar á sovéska ballett-
inum.
Það er Bríet Héðinsdóttir sem
hefur sviðsett þessa leikgerð
Árna Ibsens á sögu Charles
Dickens, en Messíana Tómas-
dóttir gerði leiktjöld og búninga,
og Kristinn Daníelsson sá um
lýsinguna. Með helstu hlutverkin
fara Sigurður Sverrir Stephen-
sen, Börkur Hrafnsson, Flosi
Ólafsson, Bryndís Pétursdóttir,
Baldvin Halldórsson, Ævar R.
Kvaran, Valur Gíslason, Þórunn
Magnea Magnúsdóttir, Erlingur
Gíslason, Sigurður Skúlason,
Þórunn Sigurðardóttir, Jón S.
Gunnarsson og Jóhanna Norð-
fjörð.
Fella varð niður sýningu á
Oliver Twist, sem vera átti i
dag, en á morgun verður þetta
vinsæla fjölskylduleikrit enn á
fjölunum.
Hver einasti miði
seldist strax á
sovéska ballettinn
Uppselt á Sölu-
manninn í kvöld
Eins og á fyrri sýningar er
uppselt í kvöld á sýninguna á
Sölumaður deyr. Þórhallur Sig-
urðsson leikstýrir þessari upp-
færslu á verki Arthur Millers.
Sigurjón Jóhannsson gerði
leiktjöld, Áskell Másson samdi
tónlistina, Dóra Einarsdóttir
gerði búninga, Kristinn Daní-
elsson sá um lýsinguna, en
leikritið er flutt í íslenskri þýð-
ingu dr. Jónasar Kristjánssonar.
— Gunnar Eyjólfsson leikur
sölumanninn Willy Loman og
Margrét Guðmundsdóttir leikur
Lindu konu hans og hafa þau
bæði hlotið einróma lof fyrir
túlkun sína á þessum hlutverk-
um. Andri Örn Clausen og Há-
kon Waage leika syni hjónanna.
Uppselt á allar sýning-
ar sovéska ballettsins
Fljótlega varð uppselt á allar
fjórar sýningar sovéska ballett-
flokksins og voru því auglýstar
tvær aukasýningar, í dag kl.
15.00 og mánudag kl. 20.00 og
seldist einnig hver miði á þær
strax.
Manuela Wiesler og Helga Ingólfsdóttir.
Tónleikar í Útskálakirkju
Stjornuhíó
„Cactus Jack“
Á fimmtudaginn frumsýndi
Stjörnubió nýja bandariska gam-
anmynd i litum, Cactus Jack.
Leikstjóri er Hal Needham. Aðal-
hlutverk leika Kirk Douglas,
Ann-Margret og Paul Linde.
Snákabit er eitt af mðrgum
þorpum villta vestursins. Hinn
illræmdi Cactus Jack er á leið
þangað. Hann hefur aðeins eitt í
huga — að ræna banka staðarins.
— Síðan segir frá samningum
Cactus Jack og eiganda bankans,
Avery Simpson, ævintýraferð og
ioks baráttu hins góða og illa.
Myndin segir frá ástarsambandi
miðaldra fornsala, Alex Theodo-
poulos, og ungrar poppsöngkonu,
Sheilu Straight, sem komið hefur
verið á með hjálp tölvu.
Marta Heflin og Paul Dooiey i
hlutverkum sinum I „Tölvutrúlof-
un“.
Helga Ingólfsdóttir og
Manuela Wieslerleika
Garði, 11. marz.
Á MORGUN heldur Tónlistar-
félag Gerðahrepps árlega tón-
leika i Útskálakirkju og hefjast
þeir kl. 15. bað er eitt af
aðalmarkmiðum félagsins að
halda eina tónleika á ári með
þekktum listamönnum og að
þessu sinni koma Manuela Wiesl-
er flautuleikari og Helga Ingólfs-
dóttir semballeikari með fjöl-
þætta dagskrá.
Á efnisskrá verða verk eftir
Bach, Hendel og Pál P. Pálsson.
Þetta er í annað sinn sem svo
þekktir listamenn eru á ferð hér
en í fyrra kom Hamrahlíðarkór-
inn og gerði „stormandi lukku"
undir stjórn Þorgerðar Ingólfs-
dóttur.
Það má einnig geta þess að
Helga kemur með hljóðfærið með
sér en sembal mun ekki vera til á
Suðurnesjum.
Arnór.