Morgunblaðið - 14.03.1981, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981
31
Alþýöuleikhúsið
Borgar Garðarsson í
hlutverki Pissanis
— í „Stjórnleysingjanum“
í kvðld sýnir Alþýðuleikhúsið
leikritið „Kona". Annað kvöld er
„Stjórnleysinginn" á fjölunum i
Hafnarbíói og „Kóngsdóttir"
báða dagana. en sýningar á henni
hefjast kl. 15.
Nú hefur Alþýðuleikhúsið sýnt
„Stjórnleysingi ferst af slysför-
um“ í rúman mánuð við mjög góða
aðsókn og hefur verið uppselt á
nær allar sýningar. Fólk hefur
skemmt sér vel yfir ævintýrum
dára nokkurs, sem villist inn á
lögreglustöðina í Mílanó. Hann
dulbýr sig í gervi rannsóknardóm-
ara sem á að rannsaka mál
stjórnleysingja er féll út um
glugga á fjórðu hæð í lögreglu-
stöðinni og lét líf sitt á gangstétt-
inni fyrir utan.
Borgar Garðarsson tekur nú við
hlutverki Pissanis fulltrúa af
Bjarna Ingvarssyni sem er að
halda upp í leikferð með Pæld’íðí.
Þetta er fyrsta hlutverk Borgars í
íslensku leikhúsi síðan hann hélt
til Finnlands fyrir tæpum átta
árum. Borgar varð fastráðinn
leikari við Lilla Teatern í Helsinki
1975, sem er eitt þekktasta leik-
húsið á Norðurlöndum og hefur
heimsótt okkur tvisvar á Listahá-
Þráinn Karlsson i hlutverki dár-
ans sem lendir i höndum lögregl-
unnar, en brátt má ekki á milli
sjá hver hafi lent i höndum hvers.
Jakob Hafstein sýn-
ir í Njarðvíkum
Gftir hádegi á morgun opnar
Jakob Hafstein málverkasýningu
i Sjálfstæðishúsinu i Njarðvikum.
Þar sýnir hann 15 oliumálverk,
14 vatnslitamyndir og 16 past-
elmyndir. Flest verkanna eru
unnin á síðasta ári, en nokkur
fullgerð á þessu ári. Jakob hefur
áður sýnt á Suðurnesjum. í
Grindavik og fyrir 12 árum i
Keflavík.
Myndefni Jakobs er eins og
jafnan áður aðallega landslag með
ívafi af fuglum, bátum í höfnum
og húsum í Stykkishólmi. Annars
er myndefnið víðs vegar að af
landinu.
Sýning Jakobs Hafstein er opin
daglega frá kl. 16—22 og stendur
til 22. þ.m.
Jakob Hafstein leggur siðustu
hönd á blómamynd á vinnustofu
sinni.
Leikflokkurinn á Ilvammstanjía
Guðrún Svava og Þorbjörg
sgna d Kjarvalsstöðum
ÞORBJÖRG Höskuldsdóttir og
Guðrún Svava Svavarsdóttir
opna myndlistarsýningu i vestur-
sal Kjarvalsstaða i dag ki. 15.
Þær sýna þar um 60 verk, mál-
verk og teikningar. Sýning Guð-
rúnar Svövu er tvískipt, annars
vegar eru þar myndraðir, olíu-
málverk á striga og teikningar,
en hins vcgar eru þar stök
málverk. Þorbjörg sýnir oliumál-
verk og teikningar af ýmsum
stærðum og gerðum.
Þorbjörg stundaði nám í Mynd-
listarskólanum í Reykjavík og
akademíunni í Kaupmannahöfn.
Hún hefur haldið 2 einkasýningar
og tekið þátt í mörgum samsýn-
ingum bæði hér heima og erlendis.
Guðrún Svava stundaði einnig
nám í Myndlistarskólanum í
Reykjavík og Stonganov-akademí-
unni í Moskvu. Þetta er önnur
einkasýning Guðrúnar Svövu.
öll verkin á sýningunni er frá sl.
3 árum, flest frá árunum 1980 og
1981.
Eins og áður segir er mikið um
myndraðir á sýningu Guðrúnar
Svövu. Raðirnar eru 4 en eru allar
útfærðar á 3 mismunandi vegu, í
teikningar, olíumálverk og smá-
myndir (mineatur). Þær bera allar
heitið „Um frelsið". Guðrún var
spUrð að því hvers vegna hún hefði
valið að tjá sig í myndröðum.
„Mér fannst ég ekki geta sagt
það sem ég ætlaði að segja nema í
svo mörgum stigum,“ sagði hún.
Það sem einkennir myndir Þor-
bjargar eru tíglar.
„Þetta eru sennilega áhrif frá
húsbyggjendum," sagði hún. „Það
eru allir að flisaleggja húsin og ég
flísalegg náttúruna. Ég hef alltaf
notað tíglana mikið en ein mynd-
anna hér á sýningunni á að vera
að losa mig við þá. Ég veit ekki
hvernig til tekst.“
Við opnun sýningarinnar leikur
Manuela Wiesler flautuleikari
verk eftir Leif Þórarinsson. Sýn-
ingin verður opin daglega kl.
14—22 til 29. mars nk.
Sýnir „Delerium bubonis“
í Keflavík og Kópavogi
tíð, í seinna skiptið með leikritið
„Sizwi Bansi er död“, en þar fór
Borgar með annað hlutverkið af
tveimur.
„Pæld’íðí" er sem fyrr segir að
leggja upp í leikferð, nánar tiltek-
ið um Norðurland. Fyrsta sýning-
in verður á Húsavík mánudaginn
16. þ.m. og er það 60. sýningin á
þessu umdeilda, en þó vinsæla
leikriti. Þriðjudaginn 17. þ.m. eru
svo sýningar á „Pæld’íðí” í félags-
heimilinu í Aðaldal og að Laugum.
Þaðan er ferðinni svo heitið til
Akureyrar þar sem leikið verður í
Glerárskóla og Menntaskólanum,
en einnig í leikhúsi bæjarins.
Dalvíkingar fá svo sinn skerf á
föstudaginn 20. þ.m. og Sauðkræk-
ingar mánudaginn 23. þ.m. Síðasti
viðkomustaðurinn í þessari norð-
urför „Pæld’íðí" eru Reykir í
Hrútafirði þriðjudaginn 24. þ.m.
í kvöld sýnir leikfiokkurinn á
Hvammstanga leikritið „Deleri-
um bubonis" eftir Jón Múla og
Jónas Arnasyni i Félagsbiói i
Keflavik og hefst sýningin kl. 21.
Á morgun verður ieikfiokkurinn
svo með sýningu í Félagsheimil-
inu i Kópavogi og hefst hún kl.
15.
Þetta er 12. verkefni leikflokks-
ins á Hvammstanga og er Þröstur
Guðbjartsson leikstjóri, en þetta
er í annað sinn, sem hann starfar
með flokknum, og gerði hann
einnig leikmynd. Ingibjörg Páls-
dóttir æfði hina fjölmörgu söngva
verksins og leikur Oddur Sigurðs-
son undir á pianó.
Úr uppfærslu leikflokksins á
Hvammstanga á „Delerium bub-
onis" eftir Jón Múla og Jónas
Árnasyni.
Hvermg væn ao reyna
snigla og froskalæri
á Esjubergi?
1. Grillaðir sniglar í hvítlaukssmjöri,
með ristuðu brauði.
2. Ristuð froskalæri með smjöruðum gul-
rótum og kartöflukrókettum.
3. Skjaldbökusúpa.
4. Heilsteiktar nautalundir, Wellington,
með bökuðum kartöflum og broccoli.
5. Lambageiri með frönsku tómatsalati, rauð-
vínssósu og koníaksteiktum sveppum.
6. Ostur, kex og ávextir á hlaðborði
7. Desertkökur.
Jónas Þ Dagbjartsson og Jónas Þórir
Leika franskar og léttklassískar
melódíur með tilþrifum!
FRANSKT
KVOLD
á la Francaise
mm