Morgunblaðið - 14.03.1981, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 14.03.1981, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981 39 Sigurður Pálsson Skógahlíð - Minráng Fæddur 2. ágúst 1905. Dáinn 8. mars 1981. Hinn 8. mars sl. andaðist í Sjúkrahúsi Húsavíkur Sigurður Pálsson bóndi Skógahlíð, Reykja- hreppi, S-Þing. Sigurður var fæddur í Skógum í Reykjahreppi 2. ágúst 1905 og var einn af fjmm börnum þeirra hjónanna Hólm- fríðar Jónsdóttur og Páls Sigurðs- sonar, búenda í Skógum. Sigurður átti til góðra að telja í þingeyskar ættir fram, en þær verða þó ekki raktar hér. Æskuheimili Sigurðar var mjög hrjáð af heilsuleýsi móður hans og ólst hann upp við fátækt og vinnusemi. Erfið kjör Sigurðar í æsku settu sín sár á hann og fannst oft fyrir þeirri kviku í næmu lundarfari hans. Sigurður þreytti ekki skóla- göngu framyfir það, sem skyldan bauð á uppvaxtarárum hans, en nam fljótt verklega mennt og hyggindi, sem í hag koma í hinni daglegu lífsbaráttu. Hann var hagsýnn í verki, harðsóttur til bjargálna og brást ekki dugnaður. Hann gekk löngum óheill til skóg- ar sökum heilsubrests, en sást lítt fyrir og mun hafa slitnað nokkuð um aldur fram. Veiðimennska hvers konar var honum í blóð borin og var hann furðu nærfærinn um hætti dýra og fiska, enda jafnan fengsæll á veiðum. Skilamaður var Sigurður í viðskiptum svo sem best mátti verða, enda hafði hann jafnan gott lánstraust, sem oft kom sér vel í umfangi hans. Hann var maður skopskyggn og oft gamansamur, og naut sín vel á mannfundum þótt ekki neytti hann víns svo á sæi. Lítið starfaði Sigurður að félagsmálum eða í almannaþágu, þó var hann í mörg ár gangnafor- ingi og grenjavinnslumaður sveit- ar sinnar. Þau störf fórust honum vel, enda unnin í alvöru og af trúmennsku. A ungum aldri eign- aðist Sigurður eyðibýlið Dýjakot, sem er næsta jörð við Skóga. Það býli byggði hann upp sem nýbýli og nefndi Skógahlíð. Með dugnaði og hagsýni ásamt atfylgi fjöl- skyldu sinnar tókst honum að byggja svo vel og rækta í Skóga- hlíð að með ágætum var. Eiginmaöur minn, SIGMUNDUR SIGURÐSSON, bóndi, Syöra-Langholti, Hrunamannahreppi, andaöist á Vífilsstaöaspítala 12. marz. Anna Jóhanneadóttir. Útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu JÓNINNU JÓNSDÓTTUR, Stórholti 27, fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 16. mars kl. 1.30. Gissur Eggertsson, Sigríöur Davíösdóttir, Halldóra Eggertsdóttir, Runólfur Runólfsson, Hildigunnur Eggertsdóttir, Geröur Hafsteinsdóttir, Rósa Pélsdóttir, Sigríöur Hafdís, Davíö Arnar. + Innilegustu þakkir fyrir sýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför ARNBJARGAR STEFÁNSDÓTTUR. Gunnar Ólafsson, Örn Ólafsson, Kristín Jónsdóttir, Hafliöi Jónsson. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö, vináttu og viröingu viö andlát og útför móöur minnar, tengdamóöur, ömmu og lang- ömmu, HÓLMFRÍDAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Hringbraut 115. Kristjana Þorkelsdóttir, Einar J. Skúlason, Skúli Einarsson, Ingifríöur Skúladóttir. + Við þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför STEINS STEINSEN. Eggert Steinsen, Steinunn Steinsen, Gunnar M. Steinsen, Sjöfn Zophaniasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + innilegt þakklæti færi óg öilum þeim sem auösýndu samúö og hlýhug vegna andláts og jaröarfarar eiginmanns míns, fööur, sonar, bróöur, mágs og tengdasonar, INGÓLFS S. RAGNARSSONAR, yfirvélstjóra, Hlíóarvegi 18, Kópavogi. Sérstakar þakkir til skipstjóra og áhafnar m/s Úöafossi. Einnig til Eimskipafélags (slands. Lilja Kristjénsdóttir, Ingibjörg Helga Ingólfsdóttir, Sóley Erla Ingólfsdóttir, Helga Siguröardóttir, Ragnar Jónsson, Sigvaldi Ragnarsson, Selma Gunnarsdóttir, Sigfrióur Einarsdóttir, Kristjén Teitsson. Minning: Salóme Guðmunds- dóttir Bolungarvík Sigurður var natinn búmaður, sem ekkert lét fara til spillis, fór vel með efni og svo snyrtilegur í umgengni að eftir var tekið, enda fékk hann eitt sinn opinbera viðurken'ningu fyrir umgengni og gott útlit á húsakosti sínum. Þá viðurkenningu mun hann hafa kunnað vel að meta. Gæfumaður var Sigurður í fjöl- skyldulífi sínu. Hann giftist greindri mannkostakonu, Aðal- heiði Þorgrímsdóttur frá Miðhlíð á Barðaströnd, og lifði hann hana sl. 5 ár. Sambúð þeirra hjónanna var með ágætum og varð þeim 4 barna auðið, sem hér skal greina: Hólmfríður, gift Jakob Hendrik- sen sjómanni búsett á Akranesi, Árdís, gift Tryggva Óskarssyni bónda, Þverá í Reykjahreppi, Þorgrímur bóndi á Skógum 3, Reykjahreppi, giftur Sigríði Hjálmarsdóttur, og Kristín, kona Júlíusar Jónassonar sjómanns á Húsavík. Auk sinna barna ólu þau Aðalheiður og Sigurður upp dótt- ur Aðalheiðar, Unni, sem gift er Pétri Sigvaldasyni í Klifshaga í Axarfirði og systurson Sigurðar, Björn Ófeig, nú bónda í Skógahlíð. Öll hafa þessi börn reynst velgert manndómsfólk, enda alin upp við hóf og siðsemi. Fósturbörnum sínum reyndist Sigurður ekki síðri en sínum eigin og var það honum mikill sómi. Allir þeir, sem til þekkja, vita að Sigurður hefur skilað miklu dagsverki og mun meiru en margur sá, er meiri var að vallarsýn, og á þar fyrir skylda þökk samferðamanna sinna. Er ég nú kveð Sigurð hinstu kveðju, þá er þess gott að minnast að lífs- skoðun hans var slík að óttalaus var hann um fund sinn við dauð- ann og jafnan efalaus í trúmálum. Ég þakka honum langa og litríka samfylgd og flyt aðstandendum hans hugheilar samúðar kveðjur. Vigfús B. Jónsson. Laxamýri. Fædd 25. júni Dáin 5. mars 1981 Salóme var fædd að Höfða í Grunnavíkurhreppi. Foreldrar hennar voru Elín Jónsdóttir og Guðmundur Benediktsson. Hún var yngst af fjórum þeirra barna. Faðir hennar drukknaði ásamt állri sinni áhöfn, þegar hún var aðeins ársgömul. Nokkrum árum síðar giftist móðir hennar aftur Árna Jónssyni og varð þeim tveggja barna auðið. Árið 1909 keyptu þau Elín og Árni jörðina Furufjörð og fluttust þangaö með börnin sex og bjó fjölskyldan þar í 41 ár. Þegar börn þeirra uxu úr grasi, bættu þau við sig fjórum börnum í fóstur sem ólust þar upp við mikið ástríki og er ég ein af þeim, og þeirra yngst. Um tvítugt lærði Salóme karl- mannafatasaum á ísafirði og mun það hafa komið sér vel því heimil- ið var jafnan mannmargt. Á sumrin var auk okkar oft mikið af aðkomubörnum. öllum okkur reyndist hún sem besta móðir væri. Til hennar var ávallt gott að leita, því yfir okkar velferð var hún jafnan vakandi og átti sinn stóra þátt í því, hve vel öllum leið. Árið 1950 fluttist fjölskyldan til Bolungavíkur og bjó Salóme á heimili Guðmundar bróður síns og konu hans, Sigríðar Jakobsdóttur og börnum þeirra. Með þeim var alla tíð kært. Enda leið henni þar svo vel að á betra varð ekki kosið. Þótt Salóme giftist ekki og ætti ekki börn, var hún á margan hátt gæfumanneskja, því sjálf var hún góð kona og vönduð í orði og verki. Uppskar hún ríkulega af því sem hún sáði. Hún þurfti ekki að kynnast því, hvað er að verða aldraður og yfirgefinn í ellinni, því hún var örmum vafin kærleika af systkinabörnum sínum og mág- konu uns yfir lauk. Um leið og ég sendi Salóme hinstu kveðju yfir móðuna miklu með hjartans þakklæti frá okkur fóstursystkinunum fyrir allt sem hún var okkur, sendum við einnig Kristínu systur hennar, Sigríði mágkonu hennar, börnum þeirra og öllum öðrum aðstandendum okkar innilegu samúðarkveðjur. J.H. Afmælis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Guðbjörg Snorradótt ir - Minningarorð Fædd 14. febrúar 1890. Dáin 5. mars 1981. í dag laugardaginn 14. mars ’81 verður Guðbjörg Snorradóttir frá Húsum, Ásahreppi jarðsett að Kálfholtskirkju, sömu sveit. Guðbjörg fæddist að Steinsholti í Gnúpverjahreppi, en foreldrar hennar voru hjónin Margrét Jós- epsdóttir og Snorri Jónsson. Barn- ung fluttist hún að Húsum og kynntist hún þar eiginmanni sín- um, Einari Gíslasyni, er lést fyrir allmörgum árum. Bjuggu þau í nærfellt 50 ár að Húsum, og ætíð við kröpp kjör framan af, sem ekki var óalgengt á þeim árum. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið, og búa þau öll í Reykjavík; Margrét gift Guðjóni Tómas- syni bifreiðastjóra, Óskar bif- reiðastjóri giftur Söru Helgadótt- ur, Sigríður gift Einari Agústs- syni heildsala og Ágústa iðn- verkakona. Guðbjörg var hlý í viðmóti, trygg og vinur vina sinna, skap- góð, greiðvikin og ákaflega rausn- arleg heim að sækja. Samt sem áður gat hún verið föst fyrir ef svo bar undir, en ekki heyrði ég hana hallmæla nokkrum manni, enda mátti hún ekki vamm sitt vita. Ég átti þess kost á síðari hjúskaparárum þeirra hjóna, að koma í heimsókn að húsum. Var þá alltaf tekið vel á móti mér, sem öðrum og framreitt það besta er heimilið hafði upp á að bjóða, og þótti mér mikið um hjartagæsku og gestrisni húsmóðurinnar. Guð- björg bar það með sér „að sælla er að gefa en þiggja". Er maður hennar Einar lést, brá hún búi og fluttist til Reykja- víkur, og dvaldist lengst af hjá Sigríði dóttur sinni. Guðbjörg var greind vel og tileinkaði sér borgarlífið fljótt, og var jafnan vel með í öllum málefn- um, er bar á góma. Hafði hún gaman af að spila á spil, og gat spilað klukkustundum saman án hvíldar, þótt öldruð væri. Mikið kunni hún af sögum og vísum, og oft var gaman að heyra hana segja frá, en Guðbjörg dvaldi um tíma á heimili mínu. Nú er hún horfin yfir móðuna miklu, og eftir situr minningin um góða konu. Blessuð sé minning hennar. . Trausti Ólafsson. Þökkum + innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og jaröarför SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDOTTUR, Rénargötu 22. Jónas Guömundsson, Edith Guömundsson, Rannveig Jónsdóttir, Ingólfur Þorkelsson, Anna Jónasdóttir, Heimir Askelsson. Vigdfs Jónsdóttir, Þórir Ingvarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.