Morgunblaðið - 30.05.1981, Page 1

Morgunblaðið - 30.05.1981, Page 1
44 SÍÐUR OG LESBÓK 119. tbl. 68. árg. LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Wyszynski syrgður í Póllandi Varsjá. 29. maí. AP. PÓLSKA kirkjan og verkalýðs- hreyfingin Samstaða hófu í dag undirbúning útfarar Stefáns kardináia Wyszynski. sem lézt í gær af krabbameini. 79 ára að aldri. Útförin verður gerð frá Sigurtorginu í Varsjá. þar sem Jóhannes Páll páfi II söng sögu- lega messu fyrir tveimur árum, hina einu þar frá stríðslokum. Samstaða hefur boðizt til að reisa 13 metra háan kross á torginu, nokkur hundruð metra frá grafhýsi óþekkta hermanns- ins. Útförin verður gerð kl. 4 á sunnudaginn. Blöðin segja mjög ítarlega frá láti Wyszynskis og pólska útvarp- ið flutti sérstaka minningarþætti um hann. Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið fyrirskipuð. „Zycie Warszawy" sagði að með láti Wyszynskis væri „lokið kafla í sögu kirkjunnar er kardinálinn hefði sett mark sitt á með sterkum persónuleika og þeirri miklu virð- ingu, sem hann hefði notið í þjóðfélagslegu og pólitísku lífi.“ Samstaða tilkynnti í dag að könnun yrði gerð á því hvað til væri af birgðum af matvælum og vörutegundum sem mikil eftir- spurn væri eftir. Margir Pólverjar halda að vörur séu ekki settar í verzlanir til að auka spennu. Izvestia sagði í dag að Samstaða hefði grafið undan yfirvöldum og valdið auknum glæpum sem gætu leitt til stjórnleysis. Trud sagði að samtökin Kor settu fram ósann- gjarnar verkamanna-kröfur til að grafa undan socialista-kerfinu. „Alþýðukardinálinn“: sjá grein á bls. 21. Flugumferðar- stjórar á Kastrup semja Kaupmannahrifn. 29. mal. AP. Flugumferðastjórar við Kastrupflugvöll i Kaup- mannahöfn og samgöngu- málaráðuneytið danska hafa náð samkomulagi um að binda endi á deilur vegna yfirvinnuálags flugumferðar- stjóra. Frá því í marz síðast- liðnum hafa flugumferðar- stjórar verið með ýmis konar aðgerðir til að tefja og hindra eðlilega umferð um Kastrup- flugvöll. Flugumferðarstjórar boðuðu veikindaforföll og neituðu að fallast á að vinna yfirvinnu. Talsmaður þeirra sagði, að yfirvöld hefðu fallist á að setja sameiginlega nefnd á laggirnar til að endurskoða yfirvinnu- álag og bætur fyrir yfir- og helgidagavinnu. Nefndin verð- ur að skila áliti áður en samningar flugumferðarstjóra falla úr gildi í apríl á næsta ári. SAS varð að draga allt að 70% úr flugi til Kaupmanna- hafnar vegna aðgerða flugum- ferðarstjóra. Flugfélagið hót- aði í síðustu viku að hætta flugi til Kastrup ef deilan yrði ekki leyst. Miðað við sama tíma í fyrra hefur verulega dregið úr fjölda flugfarþega til Kastrup vegna aðgerða flug- umferðarstjóra. Símamynd AP. Heiðursvörðinn við kistu Stefáns Wyszynski kardinála í gær skipuðu hermenn úr pólska Heimahernum (AK) í síðari heimsstyrjöldinni, nánar tiltekið „Kamipinos“-herdeildinni sem kardinálinn var herprestur í. 19 hafa lát- ist af völdum ókennilegs sjúkdóms Madríd. 29. maí. AP. NÍTJÁN manns hafa nú látist á Spáni af völdum sjúkdóms. sem ekki hefur tekist að bera kennsl á. Yfir 2 þúsund manns hafa verið lagðir á sjúkrahús en sjúkdómur þessi stakk sér niður í úthverfum Madríd fyrir liðlega mánuði. Talið er, að vírus sé valdur að sjúkdóminum, sem er sagður um margt svipaður. lungna- bólgu. Sjúkdómseinkenni eru hár hiti, ákafur hósti, höfuð- verkur og brjóstverkur. Sjúk- dómsins hefur einkum orðið vart á Mið-Spáni og í suður- hluta landsins. Hundruð lækna og vísindamanna vinna nú að því að hefta útbreiðslu sjúk- dómsins. Heimildir frá Spáni segja, að ferðamálayfirvöld þar í landi hafi þungar áhyggjur af far- aldri þessum, því hann kunni að fæla fólk frá því að koma til landsins. Búist er við 35 millj- ónum ferðamanna til Spánar í ár. ísraelskar loftárásir á stöðvar Sýrlendinga Beirut. Tel Aviv. 29. mai. AP. ÍSRAELSKAR orrustuþotur gerðu í kvöld árásir á stöðvar Sýrlend- inga í Bekaa-dal í Libanon. Sjónarvottar sögðust hafa séð að minnsta kosti fjórar ísraelskar orrustuþotur fljúga lágt yfir dalinn. Sýrlend- ingar hófu skothrið á þoturnar. Himininn lýstist upp þegar Sýrlendingar hófu skothríð á þoturnar og miklar drunur fylgdu i kjölfarið. Fréttir voru óljósar þegar Mbl. fór I prentun en ljóst að þoturnar komust allar undan. árásir á stöðvar PLO í þorpinu Majdal Zoun í Líbanon við sólar- upprás í morgun. Þá voru einnig gerðar árásir á stöðvar PLO frá sjó. Að sögn PLO féllu 9 skærulið- ar í árásunum og 18 óbreyttir borgarar biðu bana. Menachim Begin, forsætisráðherra ísraels, sagði, að árásunum hefði verið beint gégn líbýskum hermönnum og SAM-9 eldflaugunum. I • Yasser Arafat, leiðtogi frelsis- samtaka Palestínu, PLO, viður- kenndi á fundi með fréttamönnum í dag, að líbýskir hermenn væru í stöðvum PLO í Suður-Líbanon. Hann sagði, að Líbýumenn hefðu verið með eldflaugar í Líbanon síðastliðin níu ár. Israel hefur hvað eftir annað haldið því fram, að líbýskir hermenn væru stað- settir í Líbanon en PLO og Líbýumenn hafa ávallt neitað því þar til nú. Menachim Begin, forsætisráð- herra Israels, hélt því fram i gær, að Líbýumenn hefðu komið fyrir mjög fullkomnum sovéskum eld- flaugum í Líbanon. Hér er um SAM-9 eldflaugar að ræða. ísra- elska herstjórnin sagði í gær, að fjórir eldflaugapallar Líbýu- manna hefðu verið eyðilagðir í loftárásum á Líbanon. Israelskar orrustuþotur gerðu Harðar árasir Rússa á Ghazni Nýju-D<*lhL 29. maí. AP. SOVÉSKT herlið, stutt skriðdrek- um, stórskotaliði og orrustuþotum, hefur hafið harðar árásir á Ghazni, höfuðborg samefnds héraðs. Að sögn heimilda. sem hafa reynst áreiðanlegar. þá hafa að minnsta Níu IRA-skagruliðar í framboð á Irlandi Bplíast. 29. mai. AP. FJÓRIR IRA-skæruliðar, sem nú eru í mótmælasvelti í Maze-fangels- inu, hyggjast fara í framboð til þingkosninganna í írska lýðveldinu þann 11. júní næstkomandi. Þá hafa aðrir fjórir skæruliðar írska lýðveldishersins í hyggju að fara í framboð og auk þess kona, sem nú afplánar dóm i Armagh-fangelsinu. Níumenningarnir verða til- réttindi sem pólitískir fangar. nefndir á fundi í Dyflinni á þriðjudag af stuðningsnefnd, sem berst fyrir því, að skæruliðar írska lýðveldishersins hljóti rétt- indi sem pólitískir fangar. Faðir Piaras O’Duill, sem er formaður stuðningsnefndarinnar, sagði við fréttamenn, að framboð fanganna væri til að vekja athygli á málsstað skæruliða írska lýð- veldishersins og kröfu þeirra um Ekki er búist við að fangarnir nái kosningu til írska þingsins þar eð stuðningur við málstað þeirra er ekki eins mikill og á N-írlandi. Þó er búist við, að einhverjir þeirra kunni að fara nærri því. Sam- kvæmt nýjum lögum á Irlandi, þá er hverjum þegni bæði á írlandi og N-írlandi heimilt að fara í framboð í írska lýðveldinu. Martin Hurson, IRA-skæruliði sem árið 1977 var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrjr hryðjuverk, hóf í dag mótmælasvelti í Maze-fang- elsinu. Hann kemur í stað Brend- an McLaughlins, sem hætti mót- mælasvelti vegna innvortis blæð- inga. Hurson er einn níumenning- anna í framboði. David Steel, leiðtogi Frjáls- lynda flokksins var í Belfast í dag. Hann heimsótti Joe McDonnel, sem nú er í mótmælasvelti í Mazefangelsinu. Steel ræddi í um 5 mínútur við McDonnell. Hann sagðist hafa reynt að fá McDonnel til að hætta mótmælasvelti sínu en án árangurs. kosti 50 sovéskir hermenn fallið í hardögum um borgina og Sovét- menn hafa misst 20 skriðdreka auk annarra vopna. Ekki höfðu borist fréttir af mannfalli i liði skæruliða en óstaðfestar fregnir segja. að “margir hafi fallið“. Ghazni er um 130 kílómetra suð- vestur af Kabúl, höfuðborg Afgan- istan. íbúar borgarinnar eru rétt um 50 þúsund. Árásirnar á borgina eru liður í umfangsmikilli sókn Sovét- manna í héraðinu. Ghazni hefur lengi verið þyrnir í augum Sovét- manna. Skæruliðar hafa ráðið borg- inni um nokkurt skeið og þaðan hafa farið umfangsmiklir birgðaflutn- ingar til skæruliða, sem hafast við í fjöllum. Skæruliðar hafa ráðið allri borginni að nóttu og stórum hluta hennar að degi til. Þeir náðu borg- inni á sitt vald fyrir nokkrum mánuðum þegar heilt herfylki, nokk- ur þúsund hermenn, snerust til liðs við frelsissveitir Afgana. Þá hafa skæruliðar verið að- sópsmiklir í Kabúl. Að sögn heim- ilda, felldu þeir 52 meðlimi kommún- istaflokksins í síðastliðinni viku. Þá réðust skæruliðar sovéska hermenn, sem öryggisvörzlu í borginni, þeirra. Einnig herma skæruliðar hafi myrt konur á markaðstorgi sunnudag. í vikunni á nú annast og felldu 12 fréttir, að 3 sovéskar síðastliðinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.