Morgunblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 1
44 SÍÐUR OG LESBÓK
119. tbl. 68. árg.
LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Wyszynski
syrgður í
Póllandi
Varsjá. 29. maí. AP.
PÓLSKA kirkjan og verkalýðs-
hreyfingin Samstaða hófu í dag
undirbúning útfarar Stefáns
kardináia Wyszynski. sem lézt í
gær af krabbameini. 79 ára að
aldri. Útförin verður gerð frá
Sigurtorginu í Varsjá. þar sem
Jóhannes Páll páfi II söng sögu-
lega messu fyrir tveimur árum,
hina einu þar frá stríðslokum.
Samstaða hefur boðizt til að
reisa 13 metra háan kross á
torginu, nokkur hundruð metra
frá grafhýsi óþekkta hermanns-
ins. Útförin verður gerð kl. 4 á
sunnudaginn.
Blöðin segja mjög ítarlega frá
láti Wyszynskis og pólska útvarp-
ið flutti sérstaka minningarþætti
um hann. Þriggja daga þjóðarsorg
hefur verið fyrirskipuð.
„Zycie Warszawy" sagði að með
láti Wyszynskis væri „lokið kafla í
sögu kirkjunnar er kardinálinn
hefði sett mark sitt á með sterkum
persónuleika og þeirri miklu virð-
ingu, sem hann hefði notið í
þjóðfélagslegu og pólitísku lífi.“
Samstaða tilkynnti í dag að
könnun yrði gerð á því hvað til
væri af birgðum af matvælum og
vörutegundum sem mikil eftir-
spurn væri eftir. Margir Pólverjar
halda að vörur séu ekki settar í
verzlanir til að auka spennu.
Izvestia sagði í dag að Samstaða
hefði grafið undan yfirvöldum og
valdið auknum glæpum sem gætu
leitt til stjórnleysis. Trud sagði að
samtökin Kor settu fram ósann-
gjarnar verkamanna-kröfur til að
grafa undan socialista-kerfinu.
„Alþýðukardinálinn“: sjá
grein á bls. 21.
Flugumferðar-
stjórar á
Kastrup semja
Kaupmannahrifn. 29. mal. AP.
Flugumferðastjórar við
Kastrupflugvöll i Kaup-
mannahöfn og samgöngu-
málaráðuneytið danska hafa
náð samkomulagi um að
binda endi á deilur vegna
yfirvinnuálags flugumferðar-
stjóra. Frá því í marz síðast-
liðnum hafa flugumferðar-
stjórar verið með ýmis konar
aðgerðir til að tefja og hindra
eðlilega umferð um Kastrup-
flugvöll.
Flugumferðarstjórar boðuðu
veikindaforföll og neituðu að
fallast á að vinna yfirvinnu.
Talsmaður þeirra sagði, að
yfirvöld hefðu fallist á að setja
sameiginlega nefnd á laggirnar
til að endurskoða yfirvinnu-
álag og bætur fyrir yfir- og
helgidagavinnu. Nefndin verð-
ur að skila áliti áður en
samningar flugumferðarstjóra
falla úr gildi í apríl á næsta
ári.
SAS varð að draga allt að
70% úr flugi til Kaupmanna-
hafnar vegna aðgerða flugum-
ferðarstjóra. Flugfélagið hót-
aði í síðustu viku að hætta
flugi til Kastrup ef deilan yrði
ekki leyst. Miðað við sama
tíma í fyrra hefur verulega
dregið úr fjölda flugfarþega til
Kastrup vegna aðgerða flug-
umferðarstjóra.
Símamynd AP.
Heiðursvörðinn við kistu Stefáns Wyszynski kardinála í gær skipuðu hermenn úr pólska Heimahernum
(AK) í síðari heimsstyrjöldinni, nánar tiltekið „Kamipinos“-herdeildinni sem kardinálinn var herprestur í.
19 hafa lát-
ist af völdum
ókennilegs
sjúkdóms
Madríd. 29. maí. AP.
NÍTJÁN manns hafa nú látist
á Spáni af völdum sjúkdóms.
sem ekki hefur tekist að bera
kennsl á. Yfir 2 þúsund manns
hafa verið lagðir á sjúkrahús
en sjúkdómur þessi stakk sér
niður í úthverfum Madríd
fyrir liðlega mánuði.
Talið er, að vírus sé valdur að
sjúkdóminum, sem er sagður
um margt svipaður. lungna-
bólgu. Sjúkdómseinkenni eru
hár hiti, ákafur hósti, höfuð-
verkur og brjóstverkur. Sjúk-
dómsins hefur einkum orðið
vart á Mið-Spáni og í suður-
hluta landsins. Hundruð lækna
og vísindamanna vinna nú að
því að hefta útbreiðslu sjúk-
dómsins.
Heimildir frá Spáni segja, að
ferðamálayfirvöld þar í landi
hafi þungar áhyggjur af far-
aldri þessum, því hann kunni að
fæla fólk frá því að koma til
landsins. Búist er við 35 millj-
ónum ferðamanna til Spánar í
ár.
ísraelskar loftárásir
á stöðvar Sýrlendinga
Beirut. Tel Aviv. 29. mai. AP.
ÍSRAELSKAR orrustuþotur gerðu í kvöld árásir á stöðvar Sýrlend-
inga í Bekaa-dal í Libanon. Sjónarvottar sögðust hafa séð að minnsta
kosti fjórar ísraelskar orrustuþotur fljúga lágt yfir dalinn. Sýrlend-
ingar hófu skothrið á þoturnar. Himininn lýstist upp þegar
Sýrlendingar hófu skothríð á þoturnar og miklar drunur fylgdu i
kjölfarið. Fréttir voru óljósar þegar Mbl. fór I prentun en ljóst að
þoturnar komust allar undan.
árásir á stöðvar PLO í þorpinu
Majdal Zoun í Líbanon við sólar-
upprás í morgun. Þá voru einnig
gerðar árásir á stöðvar PLO frá
sjó. Að sögn PLO féllu 9 skærulið-
ar í árásunum og 18 óbreyttir
borgarar biðu bana. Menachim
Begin, forsætisráðherra ísraels,
sagði, að árásunum hefði verið
beint gégn líbýskum hermönnum
og SAM-9 eldflaugunum.
I •
Yasser Arafat, leiðtogi frelsis-
samtaka Palestínu, PLO, viður-
kenndi á fundi með fréttamönnum
í dag, að líbýskir hermenn væru í
stöðvum PLO í Suður-Líbanon.
Hann sagði, að Líbýumenn hefðu
verið með eldflaugar í Líbanon
síðastliðin níu ár. Israel hefur
hvað eftir annað haldið því fram,
að líbýskir hermenn væru stað-
settir í Líbanon en PLO og
Líbýumenn hafa ávallt neitað því
þar til nú.
Menachim Begin, forsætisráð-
herra Israels, hélt því fram i gær,
að Líbýumenn hefðu komið fyrir
mjög fullkomnum sovéskum eld-
flaugum í Líbanon. Hér er um
SAM-9 eldflaugar að ræða. ísra-
elska herstjórnin sagði í gær, að
fjórir eldflaugapallar Líbýu-
manna hefðu verið eyðilagðir í
loftárásum á Líbanon.
Israelskar orrustuþotur gerðu
Harðar árasir
Rússa á Ghazni
Nýju-D<*lhL 29. maí. AP.
SOVÉSKT herlið, stutt skriðdrek-
um, stórskotaliði og orrustuþotum,
hefur hafið harðar árásir á Ghazni,
höfuðborg samefnds héraðs. Að
sögn heimilda. sem hafa reynst
áreiðanlegar. þá hafa að minnsta
Níu IRA-skagruliðar
í framboð á Irlandi
Bplíast. 29. mai. AP.
FJÓRIR IRA-skæruliðar, sem nú eru í mótmælasvelti í Maze-fangels-
inu, hyggjast fara í framboð til þingkosninganna í írska lýðveldinu
þann 11. júní næstkomandi. Þá hafa aðrir fjórir skæruliðar írska
lýðveldishersins í hyggju að fara í framboð og auk þess kona, sem nú
afplánar dóm i Armagh-fangelsinu.
Níumenningarnir verða til- réttindi sem pólitískir fangar.
nefndir á fundi í Dyflinni á
þriðjudag af stuðningsnefnd, sem
berst fyrir því, að skæruliðar
írska lýðveldishersins hljóti rétt-
indi sem pólitískir fangar.
Faðir Piaras O’Duill, sem er
formaður stuðningsnefndarinnar,
sagði við fréttamenn, að framboð
fanganna væri til að vekja athygli
á málsstað skæruliða írska lýð-
veldishersins og kröfu þeirra um
Ekki er búist við að fangarnir nái
kosningu til írska þingsins þar eð
stuðningur við málstað þeirra er
ekki eins mikill og á N-írlandi. Þó
er búist við, að einhverjir þeirra
kunni að fara nærri því. Sam-
kvæmt nýjum lögum á Irlandi, þá
er hverjum þegni bæði á írlandi
og N-írlandi heimilt að fara í
framboð í írska lýðveldinu.
Martin Hurson, IRA-skæruliði
sem árið 1977 var dæmdur í 20 ára
fangelsi fyrjr hryðjuverk, hóf í
dag mótmælasvelti í Maze-fang-
elsinu. Hann kemur í stað Brend-
an McLaughlins, sem hætti mót-
mælasvelti vegna innvortis blæð-
inga. Hurson er einn níumenning-
anna í framboði.
David Steel, leiðtogi Frjáls-
lynda flokksins var í Belfast í dag.
Hann heimsótti Joe McDonnel,
sem nú er í mótmælasvelti í
Mazefangelsinu. Steel ræddi í um
5 mínútur við McDonnell. Hann
sagðist hafa reynt að fá McDonnel
til að hætta mótmælasvelti sínu
en án árangurs.
kosti 50 sovéskir hermenn fallið í
hardögum um borgina og Sovét-
menn hafa misst 20 skriðdreka auk
annarra vopna. Ekki höfðu borist
fréttir af mannfalli i liði skæruliða
en óstaðfestar fregnir segja. að
“margir hafi fallið“.
Ghazni er um 130 kílómetra suð-
vestur af Kabúl, höfuðborg Afgan-
istan. íbúar borgarinnar eru rétt um
50 þúsund. Árásirnar á borgina eru
liður í umfangsmikilli sókn Sovét-
manna í héraðinu. Ghazni hefur
lengi verið þyrnir í augum Sovét-
manna. Skæruliðar hafa ráðið borg-
inni um nokkurt skeið og þaðan hafa
farið umfangsmiklir birgðaflutn-
ingar til skæruliða, sem hafast við í
fjöllum. Skæruliðar hafa ráðið allri
borginni að nóttu og stórum hluta
hennar að degi til. Þeir náðu borg-
inni á sitt vald fyrir nokkrum
mánuðum þegar heilt herfylki, nokk-
ur þúsund hermenn, snerust til liðs
við frelsissveitir Afgana.
Þá hafa skæruliðar verið að-
sópsmiklir í Kabúl. Að sögn heim-
ilda, felldu þeir 52 meðlimi kommún-
istaflokksins í síðastliðinni viku.
Þá réðust skæruliðar
sovéska hermenn, sem
öryggisvörzlu í borginni,
þeirra. Einnig herma
skæruliðar hafi myrt
konur á markaðstorgi
sunnudag.
í vikunni á
nú annast
og felldu 12
fréttir, að
3 sovéskar
síðastliðinn