Morgunblaðið - 30.05.1981, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1981
Peninga-
markadurinn
\
GENGISSKRANING
Nr. 100 — 29 maí 1981
Ný kr. Ný kr.
Eining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollar 7,153 7,173
1 Sterlingspund 14,825 14,866
1 Kanadadollar 5,956 5,972
1 Oonsk króna 0,9805 0,9833
1 Norsk króna 1,2503 1,2538
1 Sænsk króna 1,4502 1,4542
1 Finnskt mark 1,6432 1,6478
1 Franskur franki 1,2994 1,3030
1 Belg. franki 0,1889 0,1894
1 Svissn. franki 3,4581 3,4677
1 Hollensk florina 2,7725 2,7802
1 V.-þýzkt mark 3,0855 3.0941
1 Itölsk líra 0,00620 0,00622
1 Austurr. Sch. 0,4367 0,4379
1 Portug. Escudo 0,1161 0,1164
1 Spánskur peseti 0,0772 0,0774
1 Japansktyen 0,03198 0,03207
1 írskt pund 11,291 11,323
SDR (sérstök
dráttarr.) 27/05 8.0689 8,0900
f
GENGISSKRANING
FERDAMANNAGJALDEYRIS
29. mái 1981
Ný kr. Ný kr.
Eining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollar 7,868 7,890
1 Sterlingspund 16,308 16,353
1 Kanadadollar 6,552 6,569
1 Dönsk króna 1,0786 1,0816
1 Norsk króna 1,3753 1,3792
1 Sænsk króna 1,5952 1,5996
1 Finnskt mark 1,8075 1,8126
1 Franskur franki 1,4293 1,4333
1 Belg. franki 0,2078 0,2083
1 Svissn. franki 3,8039 3,8145
1 Hollensk florina 3,0498 3,0582
1 V.-þýzkt mark 3,3941 3,4035
1 Itölsk líra 0,00682 0,00684
1 Austurr. Sch. 0,4804 0,4817
1 Portug. Escudo 0,1277 0,1280
1 Spánskur peseti 0,0849 0,0851
1 Japansktyen 0,03518 0,03528
1 Irskt pund 12,420 12,455
v
Vextir: (ársvextir)
INNLÁNSVEXTIR:
1. Almennar sparisjóðsbækur ......35,0%
2. 6 mán. sparisjóðsbækur..........36,0%
3. 12 mán. og 10 ára sparisjóðsb. ... 37,5%
4. Vaxtaaukareikningar, 3 mán.1).... 38,0%
5. Vaxtaaukareikningar, 12 mán. ’* .. 42,0%
6. Verötryggðir 6 mán. reikningar ... 1,0%
7. Ávísana- og hlaupareikningar..19,0%
8. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæður í dollurum....... 9,0%
b. innstæöur t sterlingspundum ... 8,0%
c. innstæöur í v-þýzkum mörkum .. 5,0%
d. innstæöur í dönskum krónum .. 9,0%
1) Vextir færðir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
(Verðbótaþáttur í sviga)
1. Víxlar, forvextir..........(27,5%) 33,0%
2. Hlaupareikningar ...........(30,0%) 35,0%
3. Lán vegna útflutningsafuröa....... 4,0%
4. Önnur afurðalán ............(25,5%) 29,0%
5. Almenn skuldabréf ..........(31,5%) 38,0%
6. Vaxtaaukalán ...............(34,5%) 43,0%
7. Vísitölubundin skuldabréf ........... 2,5%
8. Vanskilavextir á mán.................4,75%
Þess ber aö geta, aö lán vegna
útflutningsafuröa eru verötryggð miöaö
viö gengi Bandaríkjadollars.
Lífeyrissjóðslán:
Lifeyrissjóöur starfsmanna ríkisins:
Lánsupphæö er nú 100 þúsund ný-
krónur og er lániö vísitölubundiö meö
lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstími er allt aö 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veö er í er lítílfjörleg, þá
getur sjóöurinn stytt lánstímann.
Lífeyrissjóóur verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aöild aö
lífeyrissjóönum 60.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast viö lániö 5.000 nýkrónur, unz
sjóðsfélagi hefur náö 5 ára aöild aö
sjóönum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára
sjóösaöild bætast viö höfuöstól leyfi-
legrar lánsupphæóar 2.500 nýkrónur á
hverjum ársfjóröungi, en eftir 10 ára
sjóósaöild er lánsupphæöin oröin
150.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aðild
bætast viö 1.250 nýkrónur fyrir hvern
ársfjóröung sem líöur. Því er í raun
ekkert hámarkslán í sjóönum. Fimm ár
veröa aó líöa milli lána.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 25 ár
aö vali lántakanda.
Lánskjaravisitala fyrir maímánuö
1981 er 239 stig og er þá miöaö viö 100
1. júní '79.
Byggingavíaitala var hinn 1. janúar
síöastliöinn 626 stig og er þá miöaö vió
100 í október 1975.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18—20%.
þetta erum við að gera kl. 11.20:
Gagnfræðaskólanemar í
Keflavík gera dagskrá
- með aðstoð Valgerðar Jónsdóttur
Á dagskrá hljóðvarps kl.
11.20 er þátturinn Þetta erum
við að gera. Valgerður Jóns-
dóttir aðstoðar nemendur í
Gagnfræðaskóla Keflavíkur
við að búa til dagskrá.
— Þetta eru krakkar úr
6.-9. bekk Gagnfræðaskóla
Keflavíkur, sagði Valgerður,
— og þau byrja á því að lýsa
skólanum sínum og aðbúnaði
hans, félagslífi o.fl. Þá segja
þau okkur frá niðurstöðum úr
hópvinnu við mikið samþætt-
ingarverkefni sem þau unnu í
tilefni af ári fatlaðra. Einn
hópurinn fjallaði þar um geð-
ræna sjúkdóma, annar um
fötlun vegna slysa í heimahús-
um o.s.frv. Þau skýra einnig
Valgerður Jónsdóttir
frá því hvernig þau unnu að
þessum verkefnum og hvernig
þeim líkaði að vinna svona
saman. Þá verður kynnt fyrir
okkur starf plötusnúða skól-
ans. Á haustin sækja margir
um starf sem plötusnúður, en
síðan er valið úr. Ritnefnd
skólans kynnir skólablaðið, en
það heitir „Stakkur" og hefur
verið gefið út á þriðja áratug.
Fram fara umræður um diskó-
tónlist. Þar ræðast við full-
trúar úr ritnefnd og tveir aðrir
nemendur. Það hefur verið
áriegur viðburður í skólanum
að kjósa mælskusnilling árs-
ins, bæði í 8. og 9. bekk, og
fáum við að hlýða á ræðu
sigurvegarans úr 8. bekk. Öll
tónlist sem flutt verður í
þættinum er flutt af fyrrver-
andi nemendur Gagnfræða-
skólans í Keflavík eða er eftir
þá, nema hvort tveggja sé. Þar
má nefna Gunnar Þórðarson,
Jóhann Helgason, Rúnar Júlí-
usson, Rut Reginalds, Þórir
Baldursson, Vignir Bergmann
og Magnús Kjartansson. Þetta
verður síðasti skólaþátturinn
minn í sumar og óvíst um
framhaldið.
I-* ^XJ 3
HEVRH! i
Cliff Robertson og Christina Ferrare i myndinni J.W. Coop.
LauKardagsmyndin kl. 21.50:
J.W. COOP
Á dagskrá sjónvarps kl.
21.50 er bandarísk bíómynd,
J.W. Coop, frá árinu 1971.
Ilöfundur handrits og leik-
stjóri er Cliff Robertson,
sem leikur jafnframt aðal-
hlutverk ásamt Christina
Ferrare og Geraldine Page.
J.W. Coop er látinn laus úr
fangelsi og eftir stutta heim-
sókn til móður sinnar tekur
hann til við kúrekaíþróttir
að nýju, en þar hafði hann
staðið framarlega, áður en
hann lenti í fangelsinu. Tíu
ára fangelsisvist hefur eðli-
lega haft sín áhrif. Tilraunir
hans til þess að komast í
landsmótið ganga skrykjótt
þrátt fyrir margar og hættu-
legar tilraunir í viðureign við
ótemjur, enda eru stríðalin
nautin engin lömb að leika
sér við.
Á dagskrá
sjónvarps kl.
21.00 er tón-
listarþáttur
með Álan
Price. Þýðandi
er Ellert Sig-
urbjörnsson.
M.a. er brugð-
ið upp mynd-
um frá tóníeik-
um sem söngv-
arinn hélt í
Manchester.
Útvarp Reykjavík
L4UG4RD4GUR
30. maí
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. 7.15 Leikfimi.
7.25 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Morgunorð: Kristin Sverris-
dóttir talar.
8.50 Leikfimi.
9.00 Fréttir. Tilkynningar
Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Krist-
ín Sveinbjörnsdóttir kynnir.
(10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.)
11.20 Þetta erum við að gera.
Valgerður Jónsdóttir aðstoð-
ar nemendur í Gagnfræða-
skóla Keflavíkur við að búa
til dagskrá.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.45 íþróttir. Umsjón: Her-
mann Gunnarsson.
SÍÐDEGIÐ
14.00 í umsátri. Jón Sigurðs-
son flytur þriðja og siðasta
erindi sitt úr ísraelsferð.
14.20 Tónleikar.
15.00 Hvað svo? — Síðasti
geirfuglinn? Helgi Péturs-
son rekur slóð gamals frétta-
efnis.
15.40 Túskildingsóperan.
Kammersveit undir stjórn
Arthurs Weisbergs leikur
lög úr Túskildingsóperunni
eftir Kurt Weill.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. André
Saint-Clivier og Kammer-
sveit Jeans-Francois Paill-
ards leika Mandólínkonsert i
g-dúr op. 73 eftir Johann
Nepomuk Hummel; Jean-
Francois Paillard stj. /
André Gertler og Kammer-
sveitin í Zúrich leika Fiðlu-
konsert í G-dúr eftir Giu-
seppe Tartini; Edmond de
Stoutz stj. / Anton Heiller og
Kammersveit Ríkisóperunn-
ar i Vín leika Sembalkonsert
nr. 1 i d-moll eftir Johann
Sebastian Bach; Militiades
Caridis stj.
17.20 Gönguleiðir í nágrenni
Reykjavíkur. Eysteinn
Jónsson fyrrverandi ráð-
herra flytur erindi. (Áður
útv. í apríl 1962.)
18.00 Söngvar í léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
KVÖLDID
19.35 Þáttur Af Walter
Schnaffs. Smásaga eftir Guy
de Maupassant. Árni Bland-
on les.
20.00 Hlöðuball. Jónatan Garð-
arsson kynnir ameríska kú-
reka- og sveitasöngva.
20.30 Roger Williams leikur
vinsæl lög á píanó með
hljómsveit.
20.45 Um byggðir Hvalfjarðar
— annar þáttur. Leiðsögu-
maður: Jón Böðvarsson
skólameistari. Umsjón: Tóm-
as Einarsson. Lesari með
honum: Valdemar Ilelgason.
(Þátturinn verður endurtek-
inn daginn eftir kl. 16.20.)
21.20 Illjómplöturabb Þor-
steins Hannessonar.
22.00 Reynir Jónasson leikur
létt lög á harmóniku.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá - morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Séð og lifað. Sveinn
Skorri Höskuldsson les
endurminningar Indriða
Einarssonar (30).
23.00 Danslög. 23.45 Fréttir.
01.00 Dagskrárlok.
SKJÁNUM
LAUGARDAGUR
30. mai
16.30 íþróttir.
Umsjónarmaður Bjarni
Fclixson.
18.30 Einu sinni var.
Sjötti þáttur.
Þýðandi Ölöf I’étursdóttir.
Sögumaður Þórhallur Sig-
urðsson.
18.55 Enska knattspyrnan.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dag-
20.35 Löður.
Gamanmyndaflokkur.
Þýðandi Ellert Sigur-
björnsson.
21.00 Alan Price.
Tóntistarþáttur með Alan
Price.
Þýðandi Ellert Sigur-
björnsson.
21.50 J.W. Coop.
Bandarísk biómynd frá ár-
inu 1971.
Ilöfundur handrits og leik-
stjóri er Cliff Robertson,
sem leikur jafnframt aðal-
hlutverk ásamt Christina
Ferrare og Geraldine Page.
J.W. Coop er látinn laus
eftir að hafa afplánað tiu
ára fangelsisdóm. Hann
var atvinnumaður i kú-
rekaiþróttum, áður en
hann hlaut dóm. og nú
tekur hann upp þráðinn að
nýju.
Þýðandi Jón O. Edwald.
23.35 Dagskrárlok.