Morgunblaðið - 30.05.1981, Side 14

Morgunblaðið - 30.05.1981, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981 „Miðla fegurðaráhrif- um á minn hátt til fólks“ Sýning Steinunnar Marteinsdóttur leirkerasmiðs á Kjarvalsstöðum Mikii aðsókn heíur verið að sýningu Stein- unnar Marteinsdóttur leir- kerasmiðs á Kjarvals- stijðum. en hún sýnir þar um 100 leirmuni auk teikninga við ljóð Tómasar Guðmundssonar í Stjörn- um vorsins. Sýningu Steinunnar lýkur á sunnudagskvöld. „Flestir þessara muna eru unnir á þessu ári.“ sagði Steinunn, „það komst veruletíur skriður á mig þejjar ég hóí vinnu fyrir Hássclby- sýninguna. sem var i lok febrúar o>? að henni lok- inni ákvað ég að halda áfram því striki. sem ég hafði tekið. sérstaklega varðandi postulín og steinleir. Hef satt að segja djöflast í þessu síð- an. l>egar fólk er að tala um Steinunn Marteinsdóttir að ég hafi breytzt, þá tel ég það fyrst og fremst eðlilega þróun frá því sem ég hef verið að gera undanfarin ár. Ég nota allt aðrar aðferðir við hronnsluna. en viðfangs- efnin vinn ég mikið út frá náttúruformum, reyni að miðla fólki í mínu efni á minn hátt þeim fegurð- aráhrifum sem ég hef orðið fyrir. Mest eru þetta hlut- ir sem flokkast undir nytjalist, þótt vasarnir séu á sinn hátt skúlptúrar og byggðir upp eftir lög- málum höggmyndalistar- innar. bað nýjasta á þessari sýningu eru lágmyndir og ég mun halda áfram á þeirri braut. Svo er eitt og annað. sem kemur við sögu, t.d. nota ég vikur úr nýja hraun- inu í Eyjum til þess að fá ákveðna áferð á gler- unginn, en það cr aðferð sem ég hef lært af kollegum rnínum og mér finnst ákaflega skemmtileg. Sýningin sjálf hefur gengið vel, það er gott að sýna í þessum stóru og björtu göngum og ekki skemmir, að það eru fleiri að sýna í húsinu, líf og f jör í þcssu. Hitt er svo, að það eru líklega alltaf mikil læti i manni, næsta sýning með Hásselby-hópnum er á næstu grösum í Kjarvals- stöðum i sumar, en þetta er skemmtilegt þó það sé erfitt.“ - á.j. Gosaugnamynstrið í vösum Steinunnar. Skálar. Ungir sýningargestir skoða vasa og skálar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.