Morgunblaðið - 30.05.1981, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981
„Miðla fegurðaráhrif-
um á minn hátt til fólks“
Sýning
Steinunnar
Marteinsdóttur
leirkerasmiðs á
Kjarvalsstöðum
Mikii aðsókn heíur
verið að sýningu Stein-
unnar Marteinsdóttur leir-
kerasmiðs á Kjarvals-
stijðum. en hún sýnir
þar um 100 leirmuni auk
teikninga við ljóð Tómasar
Guðmundssonar í Stjörn-
um vorsins. Sýningu
Steinunnar lýkur á
sunnudagskvöld.
„Flestir þessara
muna eru unnir á þessu
ári.“ sagði Steinunn, „það
komst veruletíur skriður
á mig þejjar ég hóí
vinnu fyrir Hássclby-
sýninguna. sem var i lok
febrúar o>? að henni lok-
inni ákvað ég að halda
áfram því striki. sem ég
hafði tekið. sérstaklega
varðandi postulín og
steinleir. Hef satt að
segja djöflast í þessu síð-
an. l>egar fólk er að tala um
Steinunn Marteinsdóttir
að ég hafi breytzt, þá tel
ég það fyrst og fremst
eðlilega þróun frá því
sem ég hef verið að gera
undanfarin ár. Ég nota
allt aðrar aðferðir við
hronnsluna. en viðfangs-
efnin vinn ég mikið út frá
náttúruformum, reyni að
miðla fólki í mínu efni
á minn hátt þeim fegurð-
aráhrifum sem ég hef orðið
fyrir.
Mest eru þetta hlut-
ir sem flokkast undir
nytjalist, þótt vasarnir séu á
sinn hátt skúlptúrar og
byggðir upp eftir lög-
málum höggmyndalistar-
innar. bað nýjasta á þessari
sýningu eru lágmyndir
og ég mun halda
áfram á þeirri braut.
Svo er eitt og annað.
sem kemur við sögu, t.d.
nota ég vikur úr nýja hraun-
inu í Eyjum til þess að fá
ákveðna áferð á gler-
unginn, en það cr aðferð
sem ég hef lært af kollegum
rnínum og mér finnst
ákaflega skemmtileg.
Sýningin sjálf hefur
gengið vel, það er gott að
sýna í þessum stóru og
björtu göngum og ekki
skemmir, að það eru
fleiri að sýna í húsinu, líf
og f jör í þcssu. Hitt er svo,
að það eru líklega alltaf
mikil læti i manni,
næsta sýning með
Hásselby-hópnum er á
næstu grösum í Kjarvals-
stöðum i sumar, en
þetta er skemmtilegt þó
það sé erfitt.“
- á.j.
Gosaugnamynstrið í vösum Steinunnar.
Skálar.
Ungir sýningargestir skoða vasa og skálar.