Morgunblaðið - 30.05.1981, Síða 20

Morgunblaðið - 30.05.1981, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1981 Tilboði hafnað í E1 Salvador San Salvador. 28. maí. AP. RÍKISSTJÓRN EI Salvador heí- ur hafnaO tilloKU Alþjóðasam- hands jafnaAarmanna um að miðla málum í deilum vinstri- sinna ok hæKrimanna i landinu ok seKÍr einu lausnina þá að efna til kosninKa að sogn forseta landsins. Edward Broadbent, leiðtoKÍ Ný- demókrataflokksins í Kanada og forseti alþjóðasambandsins, bar tillöKuna fram á fundi með José Napoleon Duarte forseta. Duarte sagði í samtali að hann hefði þakkað fyrir tilboðið, en teldi að það mundi fela í sér íhlutun um innanrikismál ef það yrði samþykkt. Broadbent átti fund í Washing- ton á laugardag með Thomas Enders aðstoðarutanríkisráð- herra, ræddi í vikunni við leiðtoga vinstrisinna í E1 Salvbador í Mexíkóborg og ætlar þangað aftur til viðræðna við José Lopez Port- illo forseta. Tekur Fryden- lund við af Luns? Osló. 29. maí. AP. AFTENI’OSTEN hefur það eftir ónafngreindum heimildarmönn- un í dag að Knut Frydenlund utanríkisráðhcrra og Torvald Stoltenherg varnarmálaráðherra komi háðir til greina sem cftir- menn Joseph Luns framkvæmda- stjóra NATO. Afíenposten segir að Helmut Schmidt kanslari V-Þýzkalands sé því mjög fylgjandi að Norðmaður verði næsti framkvæmdastjóri bandalagsins, enda sé það í sam- ræmi við þá hefð að maður frá fámennu aðildarríki sé þar í forsvari. Joseph Luns, sem hefur verið framkvæmdastjóri NATO síðustu tíu ár, verður sjötugur í ágúst nk. og er haft eftir heimildarmönnum í aðalstöðvum NATO að um það leyti sé breytinga að vænta. Atvinnuleysi eykst Id.ndon. 29. mai. AP. ATVINNULAUSUM fjölgaði tólfta mánuðinn í röð á Bret- landseyjum, og hafa fleiri ekki verið án atvinnu f 50 ár þar i landi. samkvæmt heimildum rik- isstjórnarinnar, sem skýrði frá þvi í dag, að 10,0 af hundraði atvinnufærra manna væru nú atvinnulausir. Atvinnulausum fjölgaði í maí um 33.191, og þar með eru samtals 2.558.405 menn atvinnulausir. Tala atvinnuleysingja fór fyrst yfir 2,5 milljónir í apríl. Fyrir ári var tala atvinnulausra 1.509.191. Þegar tölurnar um atvinnuleys- ið voru birtar, veittust helztu talsmenn Verkamannaflokksins að stjórn Margrétar Thatcher, og spáðu því, að fljótt yrðu yfir þrjár milljónir manna atvinnulausar ef ekki yrði breyting á landsstjórn- inni. Margrét Thatcher spjallar vlð N-íra en kom óvænt I gær til N-írlands. Simamynd-AP. Thatcher í ovænta heimsókn til Belfast Belfast. 29. mal. AP. MARGRÉT Thatcher for- sætisráðherra kom í óvænta heimsókn til Bel- fast í gær þar sem hún skoðaði meðal annars verksummerki eftir óeirð- ir í borginni síðustu vik- urnar í kjölfar dauða fjög- urra hungurfanga. Frú Thatcher var óvæg í garð hins ólöglega írska lýðveldishers, sem hún sakaði um tilraunir til að hræða íbúa Norður-írlands til undirgefni með hryðjuverkum. Thatcher kom óvænt og án þess að gera boð á undan sér. Skoðaði hún helzta verzlunarhverfi borg- arinnar. Var henni vel tekið og fyrir henni klappað, en þeir sem hrópuðu að henni ókvæðisorðum voru í algjörum minnihluta. Tveir þriðju hlutar íbúa N-ír- lands styðja afstöðu Thatchers sem þráfaldlega hefur neitað að verða við kröfum hryðjuverka- manna um að litið verði á þá sem pólitíska fanga. Thatcher sagði brezku stjórnina vera að vinna stríðið við ofbeldis- öflin. írskir mótmælendur hafa hvatt hana til enn harðari afstöðu gegn lýðveldishernum, en banda- rískir stjórnmálamenn og stjórn- málamenn úr írska lýðveldinu hins vegar til þess að sýna meiri sveigjanleika við lausn vanda hungurfanganna. Tveir menn týndu lífi og sá þriðji slasaðist lífshættulega er þeir skiptust á skotum við brezkan hermann í Londonderry í gær. Hermaðurinn var klæddur í borg- aralegan klæðnað og var á ferð um hverfið Brandywell, en þar búa svo til eingöngu kaþólskir, er fjórir vopnaðir og grímuklædd- ir menn óku framúr honum og neyddu hann til að stöðva. Skutu grímuklæddu mennirnir að bifreið hermannsins, sem svaraði skot- hríðinni með fyrrgreindum afleið- ingum. Þykir ljóst, að grímumenn- irnir hafi ætlað að ræna bifreið hermannsins, en hundruð bifreiða hafa verið teknar herskildi upp á síðkastið, og ekki órað fyrir því hver þarna var á ferð. Svona var umhorfs á flugmóðurskipinu Nimitz eftir að flugvélin hafði brotlent á þilfari skipsins. Slysið á Nimitz: Sin,#mynd AP Flugmaðuriim lenti þrátt fyrir aðvörun Þrjú ár í vinnubúðum Moskvu. 29. mai. AP. Úkraínugyðingurinn Vladi- mir Kislik hefur nýverið vcrið dæmdur til þriggja ára þrælkun- arvinnu. að sögn áreiðanlcgra heimilda. Kislik hlaut dóm fyrir „mein- samleg óla‘ti“ í Kíev. Hann var handtekinn 19. marz síðastlið- inn. sakaður um árás á karl og konu á strætisvagnastöð. Vinir Kisliks segja ásakanirnar vera staðlausan áhurð. Kislik hefur starfað ötullega að málefnum sovézkra Gyðinga frá því 1973. er honum var neitað um leyfi til að flytjast úr landi.___________________ Vilja lengja dóm Sirhans I^*s Angeles. 29. mai. AP. JOIIN van den Kamp saksóknari staðfesti í dag. að af hálfu embætt- isins væri vcrið að reyna að framlengja fangelsisdóm Sirhans Sirhan er réði Robert F. Kennedy af dogum i júnímánuði 1968. Sirhan á að losna úr fangelsi 1. september 1984, samkvæmt úr- skurði opinberrar nefndar, sem fer með náðunarmál, á síðasta ári, en Sirhan hlaut upphaflega lífstíðar- dóm fyrir að ráða Kennedy af dögum. Morðingjar dúsa venjulega ekki lengur en 13 ár í fangelsi í Banda- ríkjunum, og þótt Sirhan sé ætlað að sitja inni í 16 ár, þá sagði saksóknarinn, að fara yrði öðru vísi með mál þeirra er fremdu pólitísk morð. Samtök bandarískra araba hafa nýverið tekið upp baráttu fyrir því að Sirhan hljóti náðun fyrr en í ráði er. Formælandi samtakanna sagði samtökin telja morðið ófyrirgefan- legt, en þau teldu engu að síður, að Sirhan hefði tekið út sína refsingu. Norfolk. 29; raai. AP. BANDARÍSKA flugmóðurskipið Nimitz kom í dag til heimahafn- ar. þar sem opinber rannsókn fer fram á slysinu um borð í skipinu, er hcrþota af gerðinni EA-6b hrotlcnti á dekki móðurskipsins með þeim afleiðingum að 14 manns létu lífið og fjöldi flugvéla stórskemmdust eða eyðilögðust. Talið er að tjónið sem hlauzt við slysið nemi allt að eitthundrað milljónum dollara. Jack Batzler skipherra sagði að flugvélin hefði byrjað aðflug að skipinu með eðlilegum hætti. Á lokastefnunni hefði hana hins vegar borið örlítið til hægri af stefnu og hún því brotlent á flugvélum hægra megin við lend- ingarbrautina. Skipherra sagði, að flugumferðarstjóri um borð, hefði aðvarað flugmanninn og hvatt hann til að hætta aðflugi og gera aðra tilraun til lendingar. Flug- maðurinn hefði ekki farið eftir þessum leiðbeiningum. Um borð í þotunni voru þrír menn og létust þeir allir. Þotan rakst á dráttarvél og fórst öku- maður hennar. Þá fórust þrír menn er þeir urðu fyrir eldflaug úr þotunni er fór af stað við brotlendinguna. Sjö manns til viðbótar á þilfari skipsins fórust. Auk þess slösuðust 48 manns. Ekkja dr. Sun Yat Sens látin Pcking. 29. mai. AP. EKKJA Sun Yat Sen, leiðtoga byltingarinnar i Kína 1911. SoonK Ching-Ling. lézt úr hvitblæði i dag. niræð að aldri. Útför ekkjunnar. sem var lengi tákn um samvinnu við kommúnistaflokkinn, verður gerð á vegum kínverska alþýðulýð- veldisins. Önnur systir Soong Ching-Ling giftist Chiang Kai Shek og hin systirin H. H. Kung, auðugum bankastjóra og fjármálaráðherra fyrir byltingu kommúnista. Bróðir þeirra var T. V. Soong, forsætisráð- herra Kína í heimsstyrjöldinni síð- ari og á árunum fyrir og eftir stríð. Soong Ching-Ling giftist dr. Sun Yat Sen 1915 þegar hann var 48 árá gamall og nýfráskilinn. Hún klauf sig úr þjóðernissinnaflokknum og kínversku stjórninni 1927 þegar Chi- ang Kai Shek varð leiðtogi flokksins. Hún fór til systra sinna í Chung- king í stríðinu til að leggja áherzlu á einingu, en fékk sæti í stjórn komm- únista eftir valdatöku þeirra 1949, þótt hún væri ekki kommúnisti fyrr en hún var gerð að heiðursfélaga þegar hún veiktist í maíbyrjun. Hún hafði nokkrum sinnum sótt um inngöngu í flokkinn, en henni var hafnað vegna efahyggju.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.