Morgunblaðið - 30.05.1981, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981
21
Spánn:
Fylgi jafnaðarmanna
virðist aukast mjög
Madrid. 29. maí. AP.
GALLUP birti í danc niðurstöður
könnunar á fyÍKÍ stjórnmála-
flokka á Spáni on samkva*mt
þcim mundi flokkur jafnaðar-
manna undir forystu Felipe
Gonzales vinna stórsigur Ken>?ju
Spánverjar til kosninKa nú.
Niðurstöðurnar benda til þess
að jafnaðarmenn fengju 42% at-
kvæða en Lýðræðissambandið,
sem nú er við stjórn, aðeins 23,6%.
I kosningunum 1979 fékk sam-
bandið 35% atkvæða en jafnað-
armenn fengu þá 30,5%. Komm-
únistar fá samkvæmt könnuninni
7,9%, en fengu 10,8% árið 1979.
Flokkur Manuel Fraga, sem er
hægra megin við miðju í spænsk-
um stjórnmálum, mundi bæta við
sig ef kosið væri nú og fengi 8,9%
eða 3% meira en í síðustu kosn-
ingum.
Tekst Forlani að
mynda nýja stjóm?
Róm. 29. mái. AP.
ARNALDO Forlani. leiðtoga kristilegra demókrata. var í dag falið að
reyna að mynda nýja ríkisstjórn á ítaliu. Forlani er forsætisráðherra
bráðabirgðastjórnarinnar sem er við völd, en Forlani baðst lausnar
fyrir sig og ráðuneyti sitt á þriðjudaginn var vegna hneykslismáls.
sem þrir ráðherrar í stjórninni hafa verið bendlaðir við.
Forlani ræddi í dag við leiðtoga
stærstu stjórnmálaflokkanna og
er hann sagður gera sér vonir um
Veður
víða um heim
Akureyri 8 alskýjaó
Amsterdam 15 úrkoma
Aþena 28 skýjað
Barcelona 19 skýjað
Berlín 16 skýjað
BrOssel 13 úrkoma
Chicago 26 úrkoma
Dyftinni , 15 skýjað
Feneyjar 21 skýjað
Frankfurt 17 rigning
Færeyjar vantar
Genl 13 úrkoma
Helsinki 18 skýjað
Hong Kong 30 heiðskírt
Jerúsalem 33 heiðskírt
Jóhannesarborg 19 heiðskfrt
Kairó 34 heiðskfrt
Kaupmannahöfn 18 heióskirt
Las Palmas 22 léHskýjað
Lissabon 27 heiðskírt
London 15 úrkoma
Los Angeles 25 skýjað
Madrid 26 skýjað
Malaga 23 léttskýjað
Mallorka vantar
Mexicoborg 24 skýjað
Miami 29 skýjað
Moskva 27 heiðskírt
New York 25 rigning
Nýja Delhi 38 skýjað
Osló 11 skýjað
París 18 skýjað
Reykjavík 9 þokumóða
Ríó de Janeiro 27 skýjað
Rómaborg 24 heiðskirt
San Francisco 15 heiðskírt
Stokkhólmur 17 heiöskírt
Sydney 20 skýjað
Tel Aviv 30 heiöskfrt
Tókýó 26 heiðskfrt
Vancouver 21 skýjað
Vínarborg 18 skýjaö
að hægt verði að mynda fimm
flokka stjórn. Forlani stefnir að
því að ljúka stjórnarmyndunar-
viðræðum á þriðjudag, en viðræð-
urnar munu fyrst og fremst mið-
ast við að fá sósíalista til að ganga
inn í nýja samsteypustjórn. Sósí-
alistar hafa gefið til kynna að þeir
vilji ekki mynda nýja stjórn nema
þeir fái forsætisráðherraembætt-
ið.
Þingnefnd vinnur að því að
upplýsa hneykslismálið sem varð
stjórninni að falli og sífellt koma í
ljós nöfn fleiri þekktra manna,
sem eru í frímúrarastúkunni P-2,
en stúkan og stór meistari hennar,
Gelli, liggja undir grun um njósn-
ir og pólitískt samsæri. Gelli
hefur verið sakfelldur á Ítalíu, en
hann er í felum erlendis og hafa
ítölsk stjórnvöld óskað eftir að-
stoð Interpol við að hafa hendur í
hári hans. Interpol hefur neitað að
handtaka manninn þar sem for-
ráðamenn stofnunarinnar telja að
ákæran á hendur honum sé af
pólitískum toga spunnin og ekki
hafi tekizt að leiða í ljós nægilega
sterkar líkur fyrir því að hann
hafi brotið af sér svo réttlætan-
legt sé að handtaka hann.
Dæmdir
fyrir uppþot
l/.mir. 29. maí. AP.
HERDÓMSTÓLL dæmdi í dag
187 vinstrisinnaða starfsmenn i
opinberri spunaverksmiðju í
tveggja til 29 ára fangelsi í
framhaldi af uppþotum í verk-
smiðjunni i fcbrúar í fyrra.
Timman sigraði
á IBM-mótinu
Amsterdam. 29. maí. AP.
Ilollenski stórmeistarinn Jan
Timman bar sigur úr býtum á
IBM-skákmótinu i Amsterdam,
sem lauk í dag. Timman samdi
um jafntefli við Vlastimil Hort.
Tékkóslóvakiu, eftir aðeins 12.
leiki. Heimsmeistarinn Anatoly
Karpov tefldi við Lubosh Kaval-
ek. Bandarikjunum. og þeir
sömdu um jafntefli eftir aðeins
17. leiki.
Timman varð því sigurvegari.
Karpov var sá eini, sem gat náð
Timman að vinningum. Önnur
úrslit í 11. og síðustu umferð urðu:
Lajos Portisch, Ungverjalandi
vann Jan-Hein Donner, Hollandi.
Vassili Smyslov, Sovétríkjunum
og Tony Miles, Englandi sömdu
jafntefli eftir 12 leiki, Hans Ree,
Hollandi vann Lev Polugaevsky,
Sovétríkjunum. Ljubomir Ljuboj-
evic, Júgóslavíu og Kick Lange-
weg, Hollandi sömdu jafntefli
eftir 23 leiki.
Lokastaðan á mótinu varð:
1. Jan Timman 7%. 2-3. Karpov
og Portisch 7. 4-6. Hort, Kavalek
og Smyslov 6V4. 7. Ree 6. 8-9.
Ljubojevic og Miles 5. 10. Poluga-
evsky 4%. 11. Donner 2l/z. 12.
Langeweg 2.
Kista Wyszynski
Simamynd AP.
Alþýðukardináli
á erfiðum tímum
KIRKJUHÖFÐINGJAR i Póllandi hafa fram á síðustu tíma haft mikil veraldleg áhrif og völd á við
fursta og prinsa. Þegar konungar Póllands féllu frá fór leiðtogi kaþólsku kirkjunnar með æðstu völd
unz annar konungur tók við og kallaðist „Interrex". Síðasti fulltrúi þessarar gömlu hefðar í Póllandi
var Stefan kardináli Wyszynski, hinn nýlátni æðsti maður kaþólsku kirkjunnar. sem sumir telja
einhvern mikilhæfasta stjórnskörung eftirstríðsáranna i Evrópu og gegndi hlutverki nokkurs konar
„Interrex" i augum margra Pólverja.
Hann var hvað sem öðru líður
áhrifamesti kirkjuleiðtoginn í
Austur-Evrópu eftir síðari heims-
styrjöldina, naut meiri virðingar en
nokkur annar kristinn forystumað-
ur og náði meiri árangri. Undir
forystu hans varð kaþólska kirkjan
í Póllandi viðurkenndur aðili að
stjórn landsins og tákn þjóðarinn-
ar, sögu hennar og frelsis.
Þetta kom skýrast fram þegar
pólski páfinn Jóhannes Páll II, sem
var skjólstæðingur Wyszynskis
kardinála frá gamalli tíð, kom í
heimsókn sína til Póllands 1979.
Heimsókn páfa var kórónan á
lífsstarfi kardinálans og páfinn
lagði sjálfur áherzlu á það þegar
hann lét oft opinberlega í ljós ást
sína og aðdáun á hinum aldna
kirkjuhöfðingja í heimsókninni.
Eftir síðari heimsstyrjöldina var
Pólland nær eingöngu byggt kaþ-
ólskum Pólverjum þar sem fólk,
sem var af öðru þjóðerni og að-
hylltist önnur trúarbrögð, hvarf
þegar landamærin voru færð í
vestur og þvi varð kaþólska kirkjan
eðilegur burðarás þjóðernisbarátt-
unnar gegn guðlausri ríkisstjórn
sem Rússar þröngvuðu upp á þjóð-
ina. Áhrif kirkjunnar í Ungverja-
landi og Tékkóslóvakiu komust
ekki í hálfkvisti við áhrif pólsku
kirkjunnar, enda var ekki til að
dreifa eins löngum, sögulegum
tengslum kirkjunnar í þessum
löndum við þjóðfrelsisbaráttu og
þjóðármálstað og í Póllandi. Kirkj-
an í Póllandi hafði aldrei verið
tengd einhverri yfirstétt, eins og
t.d. á Kúbu þar sem áhrif hennar
gufuðu upp eftir valdatöku Castros,
heldur aíltaf túlkað raddir þjóðar-
innar. Þetta var mesti styrkur
Wyszynskis kardinála í erfiðri bar-
áttu hans.
Hann var fæddur 1901. Fjöl-
skylda hans tilheyrði lágaðli, sem
hafði glatað eignum sínum og
mátti muna fífil sinn fegurri, og
faðir hans varð að hafa ofan fyrir
fjölskyldunni með kirkjuorganleik.
A yngri árum sínum hafði Wysz-
ynski áhuga á þjóðfélagsmálum og
sá áhugi hans kom fyrst í Ijós
þegar hann var blaðamaður og
skrifaði um trúarleg málefni og
síðar þegar hann varð prestur og
hóf störf meðal fátækra og at-
vinnulausra.
Þegar kommúnistar komu til
valda lögðu þeir gamla þjóðfélags-
kerfið í rúst og það var kirkjunni
mikil blessun, þar sem hún var
stéttlaus og átti auðvelt með að
festa rætur meðal verkamanna-
stéttarinnar sem myndaðist með
iðnvæðingu kommúnista. Árið 1946
varð Wyszynski biskup í borginni
Lublin, sem er fræg fyrir kaþólsk-
an háskóla. Wyszynski tókst að
halda lífinu í skólanum, en það var
einstætt afrek í Austur-Evrópu á
þeim tíma. Þremur árum síðar var
hann skipaður erkibiskup í Gniezno
og Varsjá og skömmu síðar varð
hann æðsti yfirmaður kaþólsku
kirkjunnar í Póllandi.
Þrýstingur kommúnistastjórnar-
innar á kirkjuna var gífurlegur um
þessar mundir. Nokkur hundruð
prestar og átta biskupar höfðu
verið handteknir 1953 og það ár var
Wyszynski settur í stofufangelsi t
klaustri einu. Ríkisstjórnin reyndi
að kljúfa kirkjuna með svokölluð-
um „ættjarðarprestum“, áreiðan-
lega að undirlagi sovézku leynilög-
reglunnar í Póllandi, en tilraunin
fór gersamlega út um þúfur.
Mildari stefna var tekin upp
gagnvart kirkjunni eftir valdatöku
Wladyslaw Gomulka í kjölfar
leyniræðu Krúsjeffs um glæpi Stal-
íns 1956 og Wyszynski og aðrir
prestar sem sátu í fangelsum voru
látnir lausir.
En þótt nýja stjórnin felldi úr
gildi samkomulag, sem kirkjan var
neydd til að sætta sig við 1953 um
samskipti ríkis og kirkju, hóf hún
fljótlega nýjan þrýsting gegn kirkj-
unni og gerði sér vonir um að áhrif
kirkjunnar mundu dvina smátt og
smátt og verða að engu. Meðan á
þessu gekk var Wyszynski eins og
klettur úr hafinu miðað við leiðtoga
kommúnista, sem vissu ekki í
hvorn fótinn þeir áttu að stíga.
Þegar Edvard Gierek kom til
valda eftir matvælaóeirðirnar 1970
reyndi hann að friðmælast við
Wyszynski, en hann var í aðalatrið-
um fjandsamlegur kirkjunni. Gier-
ek fór ekki í heimsókn til Páfagarðs
fyrr en 1977 eftir nýjar óeirðir
verkamanna og fyrsta fund sinn
með Wyszynski átti hann síðar.
Það var löngu orðið augljóst að
sómasamleg samskipti ríkis og
kirkju voru undirstaða þess að
stöðugleiki gæti ríkt í Póllandi.
Þegar hér var komið naut Wysz-
ynski mikillar virðingar og áhrif
hans voru mikil. Myndugleiki hans
var slíkur að allir þögnuðu á
fjölmennum samkomum við
minnstu handahreyfingu hans.
Kaþólskir menn i öðrum löndum
kunnu þó ekki alltaf að meta hann.
Þrjózka sú sem hann sýndi í þeirri
baráttu sinni að varðveita stöðu
kirkjunnar í Póllandi torveldaði þá
„austurstefnu" (Ostpolitik), sem
tekin var upp í Páfagarði. Siðgæð-
ishugmyndir hans voru gamaldags
að dómi margra kaþólskra Vestur-
landabúa, en skoðanir kardinálans
og flestra kaþólskra Pólverja fóru
saman að miklu leyti í báðum
þessum málum.
Þegar Karol Wojtyla, erkibiskup
í Kraká, var kjörinn páfi 1978 var
það að minnsta kosti sumpart sigur
fyrir Wyszynski og kirkjuna, að
minnsta kosti fólst í kjörinu virð-
ingarvottur við kardinálann og
kirkjuna sem hann hafði hlúð að,
varið og eflt. Sömu sögu er að segja
um atburðina i ágúst 1980.
Flestir pólskir verkamenn gengu
út frá því að kirkjan mundi að
minnsta kosti blessa hreyfingu
þeirra, er áhrif Wyszynskis höfðu
átt mikinn þátt i að móta. Hlið
Lenin-skipasmíðastöðvarinnar í
Gdansk, þar sem verkamenn lögðu
niður vinnu, skreytt myndum af
páfanum og Maríu mey, voru ljós-
asti vottur þess.
En Wyszynski var í erfiðri að-
stöðu í ágúst í fyrra. Ríkisstjórnin
vissi ekki sitt rjúkandi ráð og hafði
meiri þörf fyrir kirkjuna en nokkru
sinni áður. Gierek gekk á fund
Wyszynskis þegar verkfallið geis-
aði í Gdansk og lagði áherzlu á
hættuna á sovézkri ihlutun. Daginn
eftir varð Wyszynski við beiðni
stjórnarinnar, sem lagði ríkt á við
hann að gera skyldu sína sem
ættjarðarvinur, og flutti ræðu þar
sem hann hvatti til hófsemi. Ræð-
unni var sjónvarpað, þótt slíkt
hefði aldrei gerzt áður.
Verkamennirnir létu orð hans
sem vind um eyru þjóta. Wyszynski
áttaði sig fljótt. Hann skipaði
ráðunauta til starfa hjá hinni nýju
verkalýðshreyfingu, Solidarnosc,
og átti ágætt samband við leiðtoga
hennar, Lech Walesa, sem er mjög
trúaður. Þeir ræddust oft við eins-
lega og kardinálinn gaf honum ráð
og hafði mikil áhrif að tjaldabaki
síðustu mánuðina sem hann lifði.
Fánar og veifur Solidarnosc hafa
verið áberandi við messur sem hafa
verið sungnar siðan hann veiktist
og páfanum var sýnt banatilræði.
I nútímakirkjum eru ekki lengur
furstar og prinsar eins og fyrrum
þegar kirkjuhöfðingjar komu fram
í hlutverki „Interrex" í Póllandi, en
Wyszynski var prins pólsku kirkj-
unnar og pólsku þjóðarinnar á
örlagatímum í pólska alþýðulýð-
veldinu, en umfram allt kardináli
fólksins — sannkallaður alþýðu-
páfi.