Morgunblaðið - 30.05.1981, Page 23

Morgunblaðið - 30.05.1981, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981 23 tin aö TF-ROM cingarnar á íslandskortinu smyndir Mbl. RAX. Flugmenn á leitarflugvélum koma inn til leitarstjórnar í gær til þess aö gefa skýrslu. 500 menn leita á landi í dag Leitað á hálendinu milli Eyja- fjarðar og Skaga- fjarðar dag flutt til Sauðárkróks í Skagafirði eða Varmahlíðar og einnig verður stöð staðsett á Akureyri. Flugbjörgunarsveit skáta, deildir SVFÍ, björgun- arsveitir skáta og fjöldi heima- manna á leitarsvæðinu hafa tekið þátt í leitinni nótt og dag og í gærkvöldi fóru tvær Fokk- ervélar Flugleiða norður með 100 leitarmenn. Þá fóru 50 leitarmenn frá Snæfellsnesi, 10 UM fimm hundruð menn munu fara landleiðina um fjallgarðinn milli Skaga- fjarðar og Eyjafjarðar í dag til leitar að flugvél- inni TF-ROM sem saknað hefur verið síðan á mið- vikudagskvöld, en þoka hefur hamlað mjög leit á ákveðnum svæðum, m.a. því svæði þar sem mestar líkur eru taldar á að vélin sé niður komin, en tekist hefur að rekja ferð vélar- innar með nokkurri vissu að Nýjabæjarfjalli suður af Öxnadalsheiði, en það er víðfemt fjall með há- sléttu í um 1100 m hæð en snarbrattar hlíðar og á því svæði öllu allt norður skagann á milli Skaga- fjarðar og Eyjaf jarðar hef- ur verið mikil þoka síð- ustu daga og var einnig á miðvikudagskvöld. Engin TF—ROM merki hafa heyrst frá neyðarsendi vélarinnar. Leitin að TF-ROM er ein viðamesta leit um langt árabil á landinu og er nú búið að leita gróflega á fjórðungi íslands úr lofti og á landi. í gær voru um 300 leitarmenn að störfum á Norðurlandi, aðallega inn af Skagafirði, í fyrradag voru liðlega 20 flugvélar við leit á svæðinu og allt frá því á miðvikudagskvöld hafa flugvél- ar leitað eins og veður hefur leyft og einnig leitarmenn á landi, göngumenn, á bílum, snjósleðum og hestum. í gær komst lítil flugvél frá Skaga- firði upp að brúnum á Nýja- bæjarfjalli en varð frá að hverfa vegna þoku. Sex snjó- sleðar sem lögðu á Nýjabæjar- fjall í gær urðu frá að hverfa vegna svartnættisþoku og biðu þeir átekta í gærkvöldi í Sess- elíuskála á Oxnadalsheiði. Þá gengu leitarflokkar inn dalina vestan í Nýjabæjarfjalli. Aðalstjórnstöð leitarinnar er í húsakynnum Flugmálastjórn- ar á Reykjavíkurflugvelli, en stjórnstöð fyrir landleið hefur verið á Blönduósi og verður í úr hjálparsveit skáta í Vest- mannaeyjum, 20 menn frá JC í Reykjavík og um 50 menn úr Þingeyjarsýslum. Auk 500 manna í landleit í dag verða flugvélar eins og veður leyfir og eigendur flugvéla bjóða sig fram, en rétt er að geta þess að sá mikli fjöldi flugvéla, 25—30, sem hefur tekið þátt í leitinni til þessa er gerður út í leit á kostnað eigertda og leitar- manna sjálfra og er um veru- legan kostnað að ræða hjá mörgum sem hafa flogið allt upp í 10—15 tíma í leit. Til dæmis var kostnaður hjá einni vél í fyrradag um 5 þús kr. (500 þús. gkr.). Samkvæmt upplýs- ingum Ingvars Valdimarssonar formanns Flugbjörgunarsveit- arinnar, en hann er einn af stjórnendum leitarinnar frá Reykjavík, er ekkert fjármagn til staðar fyrir leit sem þessa, en til taks að öllu jöfnu er vél Flugmálastjórnar, Landhelgis- gæzlan og hervél af Keflavík- urflugvelli. Annað framboð véla byggist á sjálfboðastarfi þar sem aðilar taka sjálfir á sig kostnað svo sem fyrr greinir. I samtali við Jóhannes Briem frá SVFÍ, Tryggva Pál Frið- riksson frá hjálparsveitum skáta og Ingvar Valdimarsson, stjórnstöð leitar, í gærkvöldi kom fram að allir hafa verið boðnir og búnir til aðstoðar, húsnæði norðanlands hefur staðið opið leitarmönnum og gististaðir eins og Húnaver, Laugabakki, Hreðavatn og Hótel Blönduós hafa staðið leitarmönnum opnir og sögðu stjórnendur leitarinnar að fólk brygði undantekningarlaust vel við óskum þeirra sem marg- ar hverjar væru í rauninni hinar furðulegustu en allt væri gert til þess að léitin bæri árangur. Fjórmenningarnir á TF-ROM: Á leið á JC-þing á Akureyri Frá hlaðamanni MorKunblaAsins Frlðu Proppé á Akureyri „Við skulum senda þeim okkar bestu hugsanir og bænir.“ sagði Andrés B. Sigurðsson, fráfarandi landsforseti Junior Chamber, á landsþingi félagsins, sem haldið er á Akureyri, um miðjan dag i gær. Þingheimur gerði þá hié á þing- störfum til að sameinast í stundar- þögn vegna hvarfs flugvélarinnar síðastliðið fimmtudagskvöld en með henni voru fjórir ungir JC- menn úr Reykjavík á ieið á lands- þingið hér á Akureyri. Ilvarf vélarinnar og fjórmenn- inganna hefur haft afgerandi áhrif á störf og hugi þingfulltrúa og var öllu skemmtanahaldi og þvi sem ekki fellur undir að vera hluti af þinghaidinu aflýst. Fjórmenningarnir eru allir fé- lagar í JC-Borg i Reykjavik og fór stór hluti þingfulltrúa af þinginu áleiðis til Blönduóss í gær til að taka þátt í hinni víðtæku leit sem nú stendur yfir. Allir félagsmenn JC-Borgar eru þar á meðal. Menn eru hér flemtri siegnir og óhætt að fullyrða. að landsþingið sem er hið 20. i roðinni og taldi i upphafi um 100 þingfulltrúa er vart svipur hjá sjón vegna þessa hörmungaratburðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.