Morgunblaðið - 30.05.1981, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.05.1981, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAI 1981 Verzlunarskóla Is- lands úthlutað lóð í nýja miðbænum VERSLUNARSKÓLA íslands var úthlutað lóA I nýja mióhan um á bornarráðsfundi sl. þriðju- daK. í ræðu Þorvarðar Elíassonar skólastjóra við skólaslit í gær kom fram að skólinn hefur síðan 1973 átt fyrirheit um lóð á Litluhlíð þar sem Golfvöllurinn gamli stóð. Skólanefnd hefur á hinn bóginn aldrei verið fyllilega ánægð með þann stað og því ákvað hún á fundi sínum 29. desember sl. að sækja til borgarráðs um að mega byKKja nýtt skólahús á lóð í hinum nýja miðbæ í Kringlumýrinni. Umsókn þessi hlaut allmiklu lengri meðferð í borgarstjórn en upphaflega var áætlað og því hefur ekki verið unnt að vinna að frekari undirbúningi málsins. Skólanefnd kom saman sl. mið- vikudag og varð sammála um að taka lóðinni með þeim úthlutun- arskilmálum sem fram eru settir m.a. þeim að byggingarfram- kvæmdir yrðu hafnar innan 18 mánaða og lokið innan fjögurra ára. Þetta þýðir að Verslunarskóli íslands flytzt í nýtt húsnæði, sem reist verður á lóð í Kringlumýr- inni milli Háaleitis og Kringlu- mýrarbrautar á móts við eða litlu Beitir kominn til Neskaupstaðar Nrskaupstaó. 27. maí. BEITIR NK 123 sigldi i höfn i fyrsta sinn hór í dag. Beitir hét áður Óli Óskars RE og er nú eign Síldarvinnslunnar hf. Skipið var sýnt hæjarhúum í dag og mun hann halda á kolmunnaveiðar að tveimur dögum liðnum. Togarinn kom úr heildarskoðun og endurnýjun úr slipp í Reykja- vík. Skipstjóri Beitis verður Egg- ert Þorfinnsson. Asgeir. ofar en efsti hluti Stigahlíðar og Hvassaleitis er. Flutningurinn gæti átt sér stað eftir 4 ár en einnig er hugsanlegt að hann verði fáum árum síðar. I skilmálanum er kveðið á um að húsnæðið megi vera 3500 rúmmetrar og verður það senni- lega nýtt. í núverandi húsnæði eru 16 stofur en 30 bekkir og skólinn því tvísetinn. Má því gera ráð fyrir að í nýja húsnæðinu verði 30 stofur fyrir utan sérstofur. Gamla verslunarskólahúsnæðið verður selt. Hluti nýstúdenta úr Verslunarskóla íslands. Verzlunarskóli íslands hefur út- skrifað 1441 stúdent frá upphafi VERZLUNARSKÓLA íslands var slitið í gær. Athöfnin fór fram í hátíðasal skólans og hófst á því að borvarður Elíasson hélt ræðu og bauð gesti velkomna. Allir þeir 114 sem settust í 6. hekk í haust hafa lokið prófum og útskrifast nú. Úr hagfræði- deild útskrifast að þessu sinni 73 stúdentar og 41 úr máladeild. Fjöldi útskrifaðra stúdenta frá upphafi er þá orðinn 1441, þar af 742 piltar og 699 stúlkur. Verðlaun Verslunarráðs íslands fyrir bestan árangur í hagfræði, bókfærslu og reiknishaldi hlaut Jón Þ. Einarsson. Verðlaun úr Minningarsjóði um dr. Jón Gísla- son fyrrverandi skólastjóra hlutu Steinunn Unnsteinsdóttir fyrir hæstu meðaleinkunn í erlendum tungumálum á stúdentsprófi, Be- linda Theriault fyrir hæstu meðal- einkunn í erlendum tungumálum í Máladeild, Vera Ósk Steinsen fyrir hæstu einkunn í latínu, Helga Árnadóttir fyrir hæstu ein- kunn í frönsku, íris Heiðberg fyrir hæstu einkunn í þýsku og Guð- mundur Benediktsson fyrir hæstu einkunn í ensku. Verðlaun Hjartar Jónssonar Theriault verðlaun frá Danska sendiráðinu. Verðlaun Sögufélagsins fyrir góðan árangur í sögu hlutu þau Hjálmur Nordal og Þuríður H. Benediktsdóttir. Bókaverðlaun skólans hlutu í Hagfræðideild: Steinunn Unn- steinsdóttir, Þuríður H. Bene- diktsdóttir, Jón Þ. Einarsson, Auður M. Sigurðardóttir og Lilja Mósesdóttir. I Máladeild: Vera Ósk Steinsen og Helga Árnadóttir. Eftir afhendingu stúdentaskírt- einanna flutti Jóhannes L. L. Helgason ræðu fyrir hönd afmæl- isárganganna og kom þar meðal annars fram að afmælisárgang- arnir höfðu stofnað Minningar- sjóð um dr. Jón Gíslason fyrrver- andi skólastjóra Verslunarskóla Islands í virðingar- og þakklæt- isskyni fyrir vel unnin störf hans í þágu skólans. Tilgangur sjóðsins er að vinna að eflingu búvísinda- greina í Verslunarskólanum. Á eftir ávarpi Jóhannesar hélt Jón Ólafsson forseti nemendaráðs stutta tölu og verðlaunaði þá nemendur, sem unnið höfðu mikil og góð störf í þágu félagslífsins í skólanum. kaupmanns hlaut Auður M. Sig- urðardóttir fyrir færni í móður- máli. Stjórnunarfélag íslands veitti Ingunni S. Einarsdóttur verðlaun fyrir frábæran árangur í stjórnun. Verðlaun fyrir ágætan árangur í raungreinum hlaut Jón Þ. Ein- arsson. Frönskuverðlaun frá Alliance Francais hlaut Helga Árnadóttir og frönskuverðlaun frá skólanum hlaut Steinunn Unnsteinsdóttir. Steinunn hlaut einnig verðlaun frá Þýska sendiráðinu fyrir ágæt- an árangur í þýsku. í dönsku hlutu þær Birna Kat- rín Sigurðardóttir og Belinda Þorvraður Elíasson afhendir verðlaun fyrir góðan námsárangur. Vegfarendur þurfa sjálfir að bera grjót- ið af veginum FáskrúAsíirAi. 29. maí. í UM tvo áratugi hefur verið starfandi hér á Fáskrúðs- firði eftirlitsmaður frá Vcgagerðinni og hefur hann m.a. séð um að hrrinsa grjót úr Staðar- og Vattarnes- skriðum á milli Reyðarfjarð- ar og Fáskrúðsfjarðar. Fyrir nokkru gerðist það. að eftirlitsmanninum. sem er 70 ára gamall. var sagt upp störfum og hætti hann fyrir skömmu. Svo virðist sem ekki eigi að ráða mann i hans stað. Frá því um miðja síðustu viku hefur Vegagerðin ekki sinnt því að hreinsa grjót, sem ávallt hrynur úr Vatt- arnes- og Staðarskriðum. Hafa vegfarendur sjálfir þurft að bera grjót af vegin- um og nú er svo komið að ógerningur er að mætast í Staðarskriðum. Að öðru leyti er vegurinn á milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar mjög góður, en þjóðbrautin í gegnum Fagra- dal frá Reyðarfirði til Egils- staða er hins vegar vart fær nema jeppum og trukkum. Heyrst hefur, að lítið eigi að gera fyrir þann veg fyrr en að hausti. — Albert. Seðlabanki Islands um vaxtabreytinguna: Heildarmeðaltal ársávöxt- unar lækkar um u.þ.b. 1,5% MORGUNBLAÐINU barst I gær eftirfarandi frá Seðlabanka ís- lands um vaxtabreytingarnar 1. júní: „Svo sem kunnugt er, var aðlög- unartimi ávöxtunarkjara sparifjár og lánskjara að verðbólgustigi framlengdur með lögum um síðustu áramót til loka yfirstandandi árs. Jafnframt því var komið fram aðgerðum til þess að hamla gegn verðbólgu, er leitt hafa til þess, að samræming vaxta að verðbólgu hef- ur einnig gerzt frá þeirri hlið. Við þá endurskoðun vaxta, sem nú skal fram fara samkvæmt viðtekn- um starfsreglum, er nokkurt álita- mál, hvert mat skuli lagt á verð- bólgustig til grundvallar þeirri ákvörðun. Með hliösjón af aðgerðum stjórnvalda til þess að draga veru- lega úr verðbólgunni stig af stigi, svo og til þess að auka líkur á árangri í þeirri viðleitni, getur verið tilefni til að taka sem mest tillit til hjöðnunar verðbólgu undanfarna mánuði. Þó virðist ekki unnt að taka mið af minni verðbólgu en 40%, sem er markmið ríkisstjórnarinnar yfir árið í heild. Þá er og talið rétt að halda þeirri aðlögun lánskjara að þessu marki, sem þegar hefur náðst. Út frá þessu er jöfnum höndum um það að ræða að samræma vaxtakerfið innbyrðis með því að færa niður þá vexti, sem komnir eru fram úr þessari viðmiðun og færa saman vexti skyldra lánaflokka. Jafnframt er stefnt að því að létta nokkuð vaxtagjöld framleiðslunnar, með lækkun vaxta af hlaupareikn- ingslánum og viðbótarafurðarlán- um, en víxilvextir lækkaðir minna með hliðsjón af mikilli ásókn í það lánsform til almennrar eyðslu. Vextir endurseljanlegra afurðalána standa einnig óbreyttir, þar eða þeir hafa legið mjög eftir í aðlögun lánskjara. Bankastjórn Seðlabankans hefur því, að höfðu samráði við bankaráð og ríkisstjórn, tekið þá vaxtaákvörð- un, sem hér fer á eftir í megindrátt- um. Grunnvextir standa óbreyttir, svo að öll breyting vaxtanna fellur á verðbótaþáttinn, að því undan- skildu, að grunnvextir vaxtaauka- lána lækka úr 8,5% i 6,5% til samræmis við grunnvexti skulda- bréfa og afborgunarlána. Gengur breytingin í gildi hinn 1. júní nk., og fer yfirlit breyttra ákvæða hér á eftir. Ársávöxtun er hér miðuð við algengustu greiðsluskilmála. Heildarmeðaltal ársávöxtunar á Innlán Sparisjóðsbækur Reikningar með uppsögn: 3ja mánaða 12 mánaða Útlán Viðbótaraf urðalán Hlaupareikningslán Víxlar Skuldabréfa- og afborgunarlán: Skuldabréf (2 gjaldd.) Vaxtaaukalán (2 gjaldd.) Dráttarvextir á mán. báða bóga lækkar við þetta um u.þ.b. 1,5%. Með þessum vaxtabreytingum eru gerðar veigamiklar kerfis- breytingar, til einföldunar á vaxtakerfinu og fækkunar vaxta- flokka. Á innlánshlið lækka vextir 6 og 12 mánaða og 10 ára spari- sjóðsbóka í sömu vexti og á almennum sparisjóðsbókum, en eigendur þeirra eiga þess kost að flytja innstæður af þem yfir á verðtryggða innlánsreikninga, bundna til sex mánaða. Á útláns- hlið eru lánskjör skuldabréfa í hefðbundnu formi hækkuð til Nafnvextir á ári Ársvöxtun Til Frá Breyt- Frá Breyt- 31/5 1/6 ing 1/6 ing 35,0 34,0 -1,0 34,0 -1,0 38,0 37,0 -1,0 40,4 -1,2 42,0 39,0 -3,0 42,8 -3,6 35,0 33,0 -2,0 38,5 -2,7 35,0 33,0 -2,0 38,5 -2,7 33,0 32,0 -1,0 38,9 -1,5 38,0 40,0 +2,0 44,0 +2,4 43,0 40,0 -3,0 44,0 -3,6 4,75 4,5 -0,25 54,0 -3,0 samræmis við kjör vaxtaaukaút- lána, um leið og hin síðar greindu eru færð niður. Við þetta falla vaxtaaukalán niður sem sérstakur lánaflokkur, ásamt þeim sérstöku réttarreglum, sem gilt hafa um vaxtaaukakjörin. Vaxtaaukainn- lán kallast nú reikningar með 3ja mánaða og 12 mánaða uppsögn, en vaxtaaukaútlán falla undir skuldabréfalán og afborgunarlán. Þannig rennur vaxtaaukakerfið nú saman við hið almenna vaxta- kerfi, um leið og það nálgast mark verðtryggingar."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.