Morgunblaðið - 30.06.1981, Síða 1

Morgunblaðið - 30.06.1981, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 142. tbl. 68. árg. ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. IVking. 29. júni. AP. Kínverska fréttastofan staft- festi í kvöld fréttir sem hafa verið áleitnar upp á síðkastiö. aö Hua Kuo-fentí. formaður flokksins. hefði sajtt af sér formennsku. Satfði i fréttum að afsattnarheiðni hans hefði verið samþykkt samhljóða ok síðan hefði IIu Yaobantt, fyrrverandi framkvæmdastjóri flokksins ok náinn samstarfsmaður Dentt Xiaopintt. verið kjörinn for- maður. í fréttum frá Peking segir einnig, að Hua hafi að svo búnu verið kosinn einn af varafor- mönnum flokksins, en hann missti einnig formennskuna í hermálanefnd flokksins sem er talin valdastaða og var Deng kosinn í hans stað. Hu Yaobang er 67 ára og hann hefur í reynd gegnt formennsk- unni í flokknum síðan í nóvem- ber er Hua féll í ónáð og hvarf aftur af hinu pólitíska sjónar- sviði. Það er mál manna að afsögn Hua sé liður í þeirri ákveðnu viðleitni Deng, sem er án efa mestur valdamaður í Kína nú, að hreinsa burt siðustu leifar persónudýrkunarinnar á Mao og færa Kína nær Vestur- löndum. Það var Mao Tse-tung, sem hafði lagt á ráðin með það á sínum tíma að Hua yrði eftir- maður sinn, en fljótlega kom í ljós eftir að hann tók við, að hann yrði varla langlifur í embættinu. Peres Begin EBE-leiðtogar munu hafa frum- kvæði um frelsun Afganistan I.uxrmhorK. 29. júni. AP. LEIÐTOGAR ríkja Efna- hagsbandalags Evrópu hófu fund í Luxemborg í dag og eitt helzta markmið hans er að móta sameiginlega stefnu bandalagsins í þá átt að hafa frumkvæði um að Sovét- menn hverfi á brott með lið sitt frá Afganistan, svo og að móta sameiginlega efna- hagsstefnu EBE-ríkjanna gagnvart Japan og Banda- ríkjunum. Francois Mitterrand, for- seti Frakklands, Spadolini, nýr forsætisráðherra Ítalíu, og Mark Eyskens, forsætis- ráðherra Belgíu, sitja nú þessa fundi í fyrsta sinn. Brezkur embættismaður sagði að leiðtogarnir myndu senda frá sér ítarlega yfirlýs- ingu um málsatriði fundarins um það bil sem honum lýkur annað kvöld, en vitað er að leiðtogarnir eru ekki á einu máli um hvort vaxandi at- vinnuleysi og aukin verðbólga í EBE-ríkjunum ætti að hafa forgang. Ilua Kuo-feng Kina: Hua sett- ur af Heittrúaðir í Teheran áfellast Bandaríkjamenn Beirut. \\ ashington. Sameinuðu þjoðunum. 29. júní. AP. ENGINN hefur enn tekið á sig ábyrgð á sprengingunni. sem varð í aðalstöðvum Islamska lýðveldisflokksins í Teheran á sunnudag og 69 manns létust í. Útvarpið í Teheran kenndi „máíaliðum í tengslum við Bandaríkin“ um. Mikill aragrúi fólks fór um götur Teheran á mánudag og hrópaði ókvæðisorð gegn Bandaríkja- mönnum. Hinn ..hljóðláti meirihluti“ í Teheran er sagður óttast, að herskáir vinstrisinnar hafi komið sprengjunni fyrir. í yfirlýsingu frá Islamska lýðveldisflokknum, sem hann sendi frá sér í dag, segir, að nýr kafli sé hafinn í baráttu þjóðar- innar gegn Bandaríkjunum. „Bandaríkin og Israel verða að skilja, að þau geta ekki spillt fyrir irönsku byltingunni með því að drepa leiðtoga hennar,“ segir í yfirlýsingu flokksins. Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins neitaði í dag að tjá sig nokkuð um áburð írana. „Ég hlusta einfaldlega ekki á slíkt,“ sagði hann. Kurt Waldheim, aðalframkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði, að sprengingin hefði ver- ið áfall fyrir sig. Khomeini erkiklerkur skipaði Seyyed Abdolkarim Musavi- Ardabili eftirmann Beheshtis erkiklerks í hæstarétti á mánu- dag. Beheshti lézt í sprenging- unni. Khomeini skipaði Rabb- ani Amlashi í stöðu yfirsak- sóknara í stað Musavi-Ardabili. Khomeini átti fund með Moh- ammad Rajai, forsætisráð- herra, og Rafsanjani erkiklerk, forseta þingsins, á mánudag. Hann sagði, að „andstæðingar byltingarinnar, sem beina spjótum sínum gegn beztu son- um byltingarinnar" hefðu stað- ið fyrir sprengingunni. Rafsanj- ani lofaði Khomeini, að störf þingsins myndu halda áfram óbreitt á fimmtudag, að al- mennum sorgardögum til heið- urs fórnarlömbum sprengingar- innar afstöðnum. Rajai lofaði að fá góða menn í ríkisstjórnina í stað ráðherranna fjögurra, sem fórust í sprengingunni. Behzad Nabavi, talsmaður ríkisstjórnarinnar, reyndi að gera lítið úr áhrifum Bani-Sadr, fv. forseta, á fundi með frétta- mönnum í dag. Hann sagði: „Hann kann að hafa vitað af sprengingunni fyrirfram, en hann hefur ekki nægan styrk að baki sér, til að geta staðið fyrir slíkum aðgerðum." Bænaleiðtog- inn Mohammad Montazeri var meðal þeirra, sem létust. Hann varði á föstudag aftökur, sem hafa átt sér stað, síðan Bani- Sadr var hrakinn úr embætti. Á sunnudag voru átta til viðbótar 53, sem voru teknir af lífi í síðustu viku, leiddir fyrir skot- sveit. Þeir voru dæmdir fyrir „að heyja stríð gegn Allah". Sjá ennfremur grein á bls.46. Fórnardýr sprengingarinnar. sem varð i aðalstöðvum Islamska lýðveldisflokksins á sunnudag. Kosningar í Israel í dag Niðurstöður skoðanakannana benda til að úrslit verði tvísýn Tel Aviv, 29. júni. AP. EFTIR síðustu skoðanakönnun i ísrael virðist allt benda til, að kusningarnar á morgun. þriðju- dag. verði i meira lagi tvisýnar. Samkvæmt einni skoðanakönnun sem var gcrð á vcgum Verka- mannaflokksins hafði hann 43 sæti og Likud 40. Niðurstöður i annarri gáfu til kynna að fylgi flokkanna væri nánast hnifjafnt. 42 þing- menn til handa hvorum flokki. og i þeirri þriðju var Verkamanna- flokkurinn með 48 þingmenn og Likud með 43 sæti. Yosef Burg innanríkisráðherra og einn helzti forvígismaður NRP (Þjóðlegi trúarflokkurinn), sem venjulega hefur fengið um 10 pró- sent atkvæða í skoðanakönnunum, sagði í dag að það væri ekki ósennilegt að mjög jöfn útkoma flokkanna leiddi til þess að efna yrði til kosninga á nýjan leik fljótlega. Ef mjótt verður á munum er talið trúlegt að Likudbandalagið muni eiga auðveldara með að biðla til smáflokka og klofningsframboða og mynda ríkisstjórn. Kosningabaráttunni lauk form- lega í gærkyöldi, sunnudag. Begin hélt þá 100 þúsund manna fund í Tel Aviv og Peres var með þrjá útifundi þann dag. Begin var óvenju harðorð- ur, svo að ekki sé sagt orðljótur, í garð Verkamannaflokksins og hét á fólk að kjósa ekki Verkamanna- flokkinn, sem m.a. hefði sýnt að innan hans viðgengist kynþáttamis- rétti. Astæðan fyrir þessari ásökun er að einn frambjóðandi Verka- mannaflokksins hafði í ræðu hallað á Austurlanda-Gyðinga, þ.e. frá Norður-Afríku og Asíu, og talið að þeir væru lélegir hermenn og dygðu helzt í snatt. Vakti þetta gríðarlega reiði meðal Austurlanda-Gyðinga sem yfirleitt styðja Likud. Var þar með einnig komin upp á yfirborðið sú skipting sem er innan ísrael, milli Gyðinga frá Evrópu og Banda- ríkjunum og Austurlanda-Gyð- inganna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.