Morgunblaðið - 30.06.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ1981
5
Helvi Sipilá fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna:
Hvetur til aukinna fram-
laga í þróunarsjóð kvenna
„Ríkisstjórnir verða að gera sér grein fyrir því að velferð
harna i londum þeirra fer eftir því hvernig búið er að
mæðrunum, þvi börn fæðast nú einu sinni konum en ekki
ríkisstjórnum.“
Svo mæltist Helvi Sipila, ráðgjafa Sameinuðu þjmlanna i
félags- og mannréttindamálum, á hlaðamannafundi er
boðaður var af Utanrikisráðuneytinu í gær, þar sem kynnt
var starfsemi Kvennaáratugssjóðs Sameinuðu þjóðanna.
Helvi Sipila er í forsvari
fyrir sjóðnum og hefur hún að
undanförnu ferðast um 20
þjóðlönd til að kynna starf-
semi hans og hvetja ríkis-
stjórnir og einstaklinga til að
láta aukin framlög af hendi
rakna til hans. Helvi Sipila
hefur lengi látið til sín taka á
sviði alþjóðlegra mannrétt-
inda, auk þess sem hún er
þekkt í heimalandi sínu, Finn-
landi, en þar starfaði hún sem
hæstaréttarlögmaður og hefur
nafn hennar æ oftar að undan-
förnu verið nefnt í tengslum
við næstu forsetakosningar
þar í landi. í síðustu Gallup-
skoðanakönnun fékk Sipila um
8% atkvæða, þ.e. næstflest á
eftir forsætisráðherra Finn-
lands, Kovisto, sem þykir lang
sigurstranglegastur. Ekki vildi
Sipila þó tjá sig um það, hvort
hún hygði á forsetaframboð í
Finnlandi, á fundinum í gær,
þó ekki tæki hún fyrir það,
enda önnur mál á dagskrá, þ.e.
Kvennaáratugssjóðurinn. En
honum helgar Helvi Sipila nú
krafta sína, eftir að hafa gegnt
stöðu aðstoðar-framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna
um árabil.
Kvennaárssjóður Samein-
uðu þjóðanna var stofnaður í
kjölfar hins alþjóðlega
kvennaárs 1975, á grundvelli
sjóða, sem framlög héldu
áfram að streyma í, eftir að
hinu eiginlega kvennaári var
lokið. Höfuðverkefni sjóðsins
er að aöstoða konur í þróunar-
löndunum við að skapa sér og
sínum mannsæmandi lífsskil-
yrði, með því að auka mennt-
unarmöguleika þeirra og
þátttöku í atvinnulífi. Hér er
því ekki aðeins um kvenrétt-
indamál að ræða, heldur al-
menn mannréttindi og starfar
sjóðurinn í tengslum við
Þróunarstofnun Sameinuðu
þjóðanna. „Verkefnin eru
óþrjótandi, en starfið skilar
sér líka margfalt aftur," sagði
Sipila m.a.
A blaðamannafundinum var
sýnd kvikmynd um starfsemi á
vegum sjóðsins í hinum ýmsu
löndum. En kvennaárssjóður-
inn hefur á undanförnum
þremur árum beitt sér fyrir
um 122 verkefnum í þágu
kvenna í þróunarlöndunum,
allt frá leiðsögn í fiskeldi á
Indlandi til sandgræðslu í
Súdan. Sipila kvaðst hafa
fengið góðar móttökur í Utan-
ríkisráðuneytinu, en þar hitti
hún að máli Ólaf Jóhannesson
Ilelvi Sipila
utanríkisráðherra og sagði
hann að tillögur um að auka
framlag íslendinga til sjóðsins
yrðu lagðar fram. Framlag
Islands nam á síðasta ári sjö
þúsund dollurum og sagði
Helvi Sipila það vera öðrum
þjóðum afar gott og mikilvægt
fordæmi. En misjafnt er hve
mikið þjóðir leggja fram til
slíkra mála, þar eð um er að
ræða pólitískar ákvarðanir
hverrar ríkisstjórnar um sig.
T.d. lagði Spánn fram myndar-
legt framlag á síðasta ári, í
fyrsta sinn. En þjóðir S-Amer-
íku munu hins vegar hafa
verið tregar til framlaga, en
þegið mun meira úr sjóðnum.
I dag gengur Helvi Sipila á
fund forseta Islands, Vigdísar
Finnbogadóttur, og situr fund
með Jafnréttisráði, auk þess
sem hún mun hitta Svavar
Gestsson félagsmálaráðherra
að máli.
®ÍP$
mm
suiritirleyíi
WRANGLER & BANDÍDÓ
kakhi buxur
□ Stutterma skyrtur — úrval
□ Léttir Lordian jakkar
□ Bolir allskonar — mikið úrval
□ Þunnar „weekend“ kakhi buxur
□ Frotté-fóöraöir sportjakkar
Wrangler & Bandídó
□ Lordian stakar buxur
Austurstræti 22 Simi trá skiptiboröi 85055
Austurstræti 22 Sími frá skiptiboröi 85055