Morgunblaðið - 30.06.1981, Page 45

Morgunblaðið - 30.06.1981, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1981 25 LK^m. RAX. ku á als oddi í fararbroddi VÍSI 6:1 þar kom Njáll Eiðsson að á fullri ferð, kastaði sér fram og skallaði knöttinn með tilþrifum í netið, 3:0. Hilmar sjálíur Á 63. mínútu leiksins var komið að Hilmari Harðarsyni að skora, en hann hafði lagt upp tvö mörk og gjörbreytt leiknum. Þorsteinn gaf fyrir og Hilmar náði boltanum. Hann hafði ýmsa möguleika, en skaut að lokum á markið. Knötturinn fór í Rúnar bakvörð á leiðinni í markið, 4:0. Þórsarar minna á sig Það hafði lítið farið fyrir Þórsurum í seinni hálfleiknum, en á 89. mínútu leiksins minntu þeir aðeins á sig. Þórarinn Jó- hannsson hreinsaði frá marki Þórs fram yfir miðju. Sigurður Haraldsson markvörður Vals var nokkuð fyrir utan vítateig- inn, kannski til að geta fylgst betur með leiknum, sem að langmestu leyti fór fram í hinum vítateignum. Bjarni Svein- björnsson, snaggaralegur vara- maður Þórs, náði boltanun, lék á Sigurð mitt á milli miðlínu og vítateigs og skaut síðan af löngu faeri í tómt markið, 5:1. Ferna Þorsteins Það var við hæfi, að Þorsteinn Sigurðsson hefði síðasta orðið í þessum leik, þetta var jú leikur- inn hans. Valur Valsson átti skot að marki Þórs, en Eiríkur missti boltann frá sér. Þorsteinn fylgdi vel eftir og sendi knöttinn örugglega í netið, 6:1. Það er ástæðulaust fyrir Valsmenn að ofmetnast eftir þennan stórsigur, andstæðingur- inn var einfaldlega mjög slakur. Þó skal ekki litið framhjá því, að Valsarar reyndu að leika knatt- spyrnu allan tímann og létu andstæðingana ekki draga sig niður eins og oft vill gerast. Stórsigur eins og þessi hlýtur að stappa stálinu í Valsmenn og nú þegar prófönnum leikmanna eins og Gríms og Guömundar Þorbjörnssonar er Iokið, stólpar eins og Dýri, Guðmundur og væntanlega Matthías eru að jafna sig og þeir Sævar, Þor- grímur og Hilmar Sigurðsson eru að finna formið, getur Vals- liðið ekki annað en styrkst enn frekar. Beztu menn Vals að þessu sinni voru Þorsteinn, Hilmar Harðarson og Njáll Eiðsson. Þorgrímur var traustur á miðj- unni, Sævar klettur í vörninni. „Þeir gerðu það eina rétta, léku upp kantana, og þá erum við búnir," sagði Þórarinn Jó- hannsson miðvörður Þórs að leiknum loknum. Mikið rétt hjá Þórarni auk þess, sem blautur völlurinn var engan veginn það sem Þórsarar hefðu helzt óskað sér. Kjartan Ólafsson dæmdi leik- inn vel. I stuttu máli: íslandsmótið 1. deild, Laugardalsvöllur 27. júní. Valur — Þór 6:1 (1:0). Mörk Vals: Þorsteinn Sigurðs- son á 9., 57., 80. og 90 mín. Njáll Eiðsson á 61. mínútu og Hilmar Harðarson á 63. mín. Mark Þórs. Bjarni Svein- björnsson á 89. mínútu. Gult spjald: Þorgrímur Þrá- insson, Val. Áhorfendur: 395. - áij. Frábær knattspyrna hjá Skagamönnum - er liöiö skoraöi loks eftir tæpar 600 mínútur JSVONA hefur þetta verið í allt sumar, við höfum verið betri aðilinn, leikið betri knattspyrn- una, en þvi miður ekki getað skorað mörk. Nú höfum við hins vegar haft heppnina með okkur. En þessu er þó alls ekki lokið,“ sagði Steve Fleet, þjálfari ÍA, er hann gekk með leikmönnum sín- um til búningsklefa í hálfleik í viðurcign FH og ÍA á Kapla- krikavellinum á laugardaginn. Ilann hafði ærna ástæðu tii að glcðjast, staðan var 3—0 fyrir IA, liðið hafði loksins skorað mark, meira að segja þrjú eftir 588 mínútna hlé. Og síðast en ekki sist, hafði lið ÍA leikið snilldarknattspyrnu. einhverja þá bestu sem undirritaður hefur séð til íslensks liðs. FH-ingum til hróss, gáfust þeir ekki upp fyrr en í fulla hnefana, þeir léku oft prýðilega og fengu sín tækifæri. En þeir mættu hreinlega ofjörl- um sínum að þessu sinni. Er farið að vera aðlaðandi að horfa á knattspyrnuleiki á Kaplakrika. sviptingarnar cru miklar og mörkin mörg, tíu í tveimur síðs ustu leikjunum. Þéttur úði streymdi niður úr háloftunum meðan leikurinn stóð yfir og var völlurinn því háll sem áll. Varnarmenn áttu erfitt með að fóta sig, sóknarmenn reyndar ekki síður, og fyrir vikið var mikið um spennandi augnablik uppi við mörkin. Strax á 7. mínútu gaf Kristján Olgeirsson vel fyrir markið eftir að hafa fengið stungusendingu frá Guðbirni, tveir Skagamenn voru í dauða- færi, en FH-ingum tókst að bægja hættunni frá. Fimm mínútum síðar varði Hreggviður vel góðan skalla Guðbjörns og fóru áhangendur Skagaliðsins um- svifalaust að mála fjandann upp á vegg, þetta yrði enn einn núll- leikurinn. FH-ingar voru frískir þó svo að Skagamenn væru tals- vert meira með knöttinn og Ingi Björn hristi af sér nokkra varn- armenn á 16. mínútu, skaut á markið, en naumlega fram hjá. Hefði Ingi líkiega skorað ef hann hefði hitt markið, því Bjarni markvörður var mjög seinn niður. En á 25. mínútu brutu Skaga- menn loks ísinn með glæsilegu marki. Kristján Olgeirsson sendi þá vel fyrir markið frá hægri, Guðbjörn var prýðilega staðsettur til þess að gera eitthvað í málinu, en hann var klókur og lét knöttinn rúlla áfram til Árna Sveinssonar. Árni sendi viðstöðulausa sendingu að markteigshorninu og þar kom Július Pétur Ingóifsson á fleygi- ferð og skoraði með þrumuskoti. Og fyrst Skagamenn voru á annað borð byrjaðir að skora, þá töldu þeir af og frá að hætta því. Mínútu síðar kallaði Sigurður Lárusson naumlega fram hjá, en á 29. mínútu kom annað markið. Löng fyrirgjöf kom fyrir FH-markið frá vinstri og blautur völlurinn lék Helga Ragnarsson grátt, þreif af honum knöttinn og skilaði honum til Kristjáns Oigeirssonar, sem var í dauðafæri. Kristján lét eins og hann vissi ekki hvað gera skyldi við knöttinn og þvældist með hann við fæturna þangað til að Hreggviður markvörður stakk sér niður og mokað knettinum burt. En Hreggviður flæktist í Kristjáni með þeim afleiðingum að Skagamaðurinn féll á jörðina og vítaspyrna varð ekki umflúin. Var vítið sögulegt, því það þurfti að þrítaka það. Júlíus Pétur spyrnti tvívegis áður en Þóroddur Hjaltalín hafði gefið honum merki og það var ekki fyrr en í þriðju atrennu, að vítið var loks löglegt. Alltaf spyrnti Júlíus í sama horn- ið. Og alltaf skoraði hann. Skagamenn voru áfram sterkari aðilinn, en FH-ingar létu sig ekki og á 39. mínútu fékk Ingi Björn besta tækifæri FH, er mislukkað skot Pálma varð til þess að Ingi Björn fékk knöttinn í dauðafæri á markteigshorni ÍA. Bjarni Sig- urðsson varði skot Inga hreint stórkostlega. Síðan tóku Skaga- menn öll völd á ný og voru þrívegis nærri því að skora á síðustu mínútum hálfleiksins áður en Sigurður Lárusson kom knett- inum loks í netið. Var það stór- kostlegt mark, þríhyrningsspil Guðbjörns og Kristjáns á hægri kantinum opnaði vörn FH, Krist- ján sendi knöttinn fyrir markið og Sigurður skallaði í stöngina og inn með miklum tilþrifum, 3—0. FH-ingar ætluðu greinilega að selja sig dýrt, því þeir hófu síðari hálfleikinn með mikilli sókn. Skagamenn léku aftar en í fyrri hálfleik, eins og þeir ætluðu að taka lífinu með ró. Pálmi átti fljótlega gott skot naumlega yfir og á 55. mínútu varði Bjarni Sigurðsson glæsilega skot Inga Bjarnar af 20 metra færi. En aðeins níu mínútum síðar kom fjórða mark IA eins og skrattinn úr sauðarleggnum og var þar með allur vindur úr FH. Há sending kom inn í vítateig FH frá vinstri, Gunnar Bjarnason ætlaði að spyrna frá, en hitti knöttinn illa með þeim afleiðingum, að hann sveif í fallegum boga yfir mark- vörðinn, í þverslána og þaðan á kollinn á Kristjáni Olgeirssyni og hann þakkaði kurteislega fyrir sig með því að skalla í netið. Var nú sem leikmenn FH gæf- ust gersamlega upp og Skagamenn náðu slíkum yfirburðum, að með ólíkindum mátti heita. Þeir tættu vörn FH hvað eftir annað í sig, niður miðjuna, upp kantana, stórkostleg knattspyrna, en Hreggviður Agústsson var þeim óþægur ljár í þúfu. Hann varði hvert þrumuskotið af öðru og gaf sig ekki, ÍA skoraði ekki fleiri mörk. FH-liðið byrjaði þennan leik mjög frísklega og það gildir um marga leikmenn liðsins, að þeir byrjuðu leikinn vel, en enduðu hann afleitlega. Til dæmis Helgi Ragnarsson, vinstri bakvörður. Hann var frískur framan af, en síðan var engu líkara en hann væri hreinlega ekki inni á vellin- um. Er þetta aðeins tekið sem dæmi og Helgi engan veginn eini sökudólgurinn. Hreggviður var besti maður liðsins, verður ekki sakaður um mörkin og bjargaði liði sínu frá rosalegum skelli. Ingi Björn var frískur lengst af og þeir Pálmi og Óli Dan áttu góða spretti. I vörninni stóðu Guð- mundarnir sæmilega fyrir sínu, en leikmenn eins og Gunnar Bjarna- son, Viðar Halldórsson og Magnús Teitsson voru ekki einu sinni skuggarnir af því sem þeir best geta. Lið IA var afar jafnt og afar gott í þessum leik. Að öðrum ólöstuðum báru þó þrír leikmenn nokkuð af. Það voru Bjarni markvörður, sem bjargaði tívegis stórglæsilega þegar mikið lá við, auk þess em hann sýndi fádæma öryggi í öllu sem hann tók sér fyrir hendur á velinum. Kristján Olgeirsson og Sigurður Lárusson léku einnig frábærlega, en aðrir voru jafnir og mjög sterkir. I stuttu máli: íslandsmótið 1. deild FH-ÍA 0:4 (0:3) Mörk IA: Júlíus Ingólfsson á 325. og 29. mín., Sigurður Lárus- son á 45. mín. og Kristján Olgeirs- son á 64. mín. Spjöld: Sigurður Halldórsson fyrir að handleika af ásettu ráði. Áhorfendur: um 400. Dómari: Þóroddur Hjaltalín. Stóð sig í heild þokkalega, en var oft of fljótur að flauta, þannig að sá brotlegi hagnaðist. — gg. (gliauMnmi '.t V*,*- ;?5«kS> mm yLí.'‘A; -cicjr.^cw, \\\ityrí| f .. vy’» sfl *v\« >» **»♦«< 'IIVn • Hjarni Sigurðsson átti stórgóðan leik með íA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.