Morgunblaðið - 30.06.1981, Síða 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1981
) Eyjamenn sækja að marki UBK.
Ljósm. Sigurifeir.
mjög sterkur, þó með einni undan-
tekningu og það kostaði jöfnun-
armark UBK. Það var á 25.
mínútu og Breiðablik í sókn.
Varnarmenn ÍBV náðu að brjóta
þá sókn á bak aftur, en fyrir
einhver óskiljanleg atvik barst
knötturinn út til Helga Helgason-
ar bakvarðar UBK, sem var einn
og óvaldaður fyrir utan vítateigs-
hornið. Átti Helgi í engu „basli“
með að skora. Eftir því sem lengra
leið á hálfleikinn náðu Blikarnir
betri tökum á miðjunni og voru
þeir mun meira með knöttinn, en
varnarmenn ÍBV gáfu þeim aldrei
frið. Staðan því jöfn í hálfleik,
1-1.
I síðari hálfleiknum voru
Breiðabliksmenn mun meira af-
gerandi í öllum sínum aðgerðum,
ákveðnir í alla bolta og sókn
þeirra mun beittari. Eyjamenn á
hinn bóginn náðu sér ekki á strik
og misstu öll tök á miðjunni. Það
kom því engum á óvart, þegar
UBK tók forystuna í leiknum á 55.
mínútu. Snögg stungusending kom
fram á Helga Bentsson, sem varn-
Blikarnir unnu sanngjarnan
BLIKARNIR gefa ekkert eftir í
toppharáttunni í 1. deild og á
sunnudaginn naddu þeir sér í tvö
dýrmæt stig. er þeir sigruðu ÍBV
2—1 í Eyjum. Blikarnir eru því
enn taplausir í deildinni og
fylgja fast á hæla Víkinga,
ákveðnir að hleypa Ilaðargarðs-
liðinu ekki um of fram úr. Sigur
Breiðabliks í Eyjum á sunnudag-
inn var verðskuldaður, en liðið
þurfti að hafa fyrir því að
innbyrða sigurinn. Mörk þeirra
voru ekki í besta gæðaflokki, eins
og Blikarnir hafi svo sem nokkuð
við það að athuga þegar stigin
tvö komu á annað borð þeim til
tekna á töflunni.
Eyjamenn byrjuðu vel í leikn-
um, fengu sannkallaða óskabyrj-
un, þegar Ómar Jóhannsson skor-
aði hreinasta gull af marki strax á
12. mínútu leiksins. Sókn Eyja-
manna var skemmtilega upp
byggð, boltinn gekk mann af
manni fram vinstri kantinn, Gúst-
af Baldvinsson gaf fyrir markið á
Jóhann Georgsson, sem síðan
renndi knettinum út fyrir teiginn
til Ómars sem skaut viðstöðulaust,
ÍBV:UBK 1;2
boltinn þeyttist í markið án þess
að Guðmundur markvörður kæmi
við nokkrum vörnum. Fyrri hálf-
leikurinn einkenndist annars af
miklum hraða og oft og tíðum
skemmtilegri spilamennsku
beggja liða úti á vellinum, en
verulega góð marktækifæri var
varla um að ræða við hvorugt
markið. Varnarleikur liðanna var
armenn ÍBV höfðu gefið eftir
dálítið athafnapláss, þá var ekki
að því að spyrja, Helgi geystist í
gegn og skoraði fram hjá Páli í
markinu. Breiðablik hafði þar með
náð forystunni og var það í fullu
samræmi við gang leiksins. Hélt
liðið þessum tökmum á leiknum
þar til að um stundarfjórðungur
var eftir til leiksloka, þá fóru
Eyjamenn að sækja í sig veðrið án
þess þó að þeim tækist að jafna
metin. Sigur UBK var þvi í höfn.
Lið UBK vann vel fyrir þessum
stigum, og verður áreiðanlega með
í toppbaráttunni í sumar. Það er
virkilega gaman að sjá til liðsins,
leikgleðin og viljinn til þess að
gera vel geislar af hverjum ein-
asta leikmanni. Þeir létu ekki
bugast við mótlæti, heldur hertu á
sér og unnu sigur. Liðið var mjög
jafnt og það var liðsheildin sem
vann til þessara stiga. Helgi
Bentsson var sannkallaður „terr-
or“ varnarmanna ÍBV og Valde-
mar Valdemarsson var mjög góð-
ur í vörninni.
Eyjamenn mættu hér ofjörlum
sínum og það verður að segjast að
liðið hefur ekki leikið vel upp á
síðkastið. Liðið náði engum tökum
á miðjuspilinu og sóknarmenn
liðsins þurftu að glíma við sífelld-
ar kýlingar fram miðjuna. Tengi-
liðirnir komu seint og illa upp
kantana svo sóknarleikur liðsins
var mjög bitlaus. Hins vegar var
varnarleikur liðsins ágætur og
bestu menn liðsins á sunnudaginn
voru Valþór Sigþórsson og Þórður
Hallgrímsson.
Dómari var Óli Ólsen og fannst
mér gæta nokkurs ósamræmis hjá
honum. Þórður Hallgrímsson var
til dæmis bókaður fyrir brot þegar
sigur
aðrir sluppu við slíkt í svipuðum
tilfellum.
I stuttu máli:
Hásteinsvöllur 28. júní. 1. deild:
ÍBV:UBK 1—2 (1—1).
Mark ÍBV: Ómar Jóhannsson á
12. mín.
Mörk UBK: Helgi Helgason á
25. mín. og Helgi Bentsson á 55.
mín.
Áminningar: Þórður Hall-
grímsson ÍBV og Vignir Baldurs-
sonUBK.
Dómari: Óli Ólsen.
hkj.
„Bjóst ekki við að ná tveim stigum“
— sagði Marteinn Geirsson
„ÉG IIELD bara að þessi sigur og sú barátta sem var í leiknum,“ hélt
Marteinn áfram, „komi of steint, því við erum þegar búnir að tapa
mjög dýrmætum stigum i fyrri hluta mótsins og held ég að þeirra
dýrmætust séu stigin sem við töpuðum til Þórs,“ sagði hann, og var að
vonum kampakátur eftir að lið hans Fram, hafði unnið sigur á liði
KA, 1—0, á sunnudagskvöldið.
Úrslit leiksins, sem var mjög jafn, voru ekki mjög sanngjörn en
eftir gangi hans hefði verið fyllilega sanngjarnt að liðin hefðu deilt
með sér stigum.
Það eru ekki sterkar minningar
sem tengjast fyrri hálfleik en
hann var mjög þófkenndur og fátt
sem gladdi augað. Leikurinn fór
að mestu fram á milli vítateig-
anna og komust liðin örsjaldan
inn í teigana. Færin í hálfleiknum
Lið KA:
Aðalsteinn Jóhannsson 6
Steinþór Þórarinsson 5
Guðjón Guðjónsson 5
Ilaraldur Haraldsson 6
Erlingur Kristjánsson G
Gunnar Gíslason 5
Jónas Haljgrimsson 5
Eyjólfur Ágústsson 5
Hinrik Þórhallsson 6
Jóhann Jakobsson 7
Gunnar Blöndal 6
Ásbjörn Björnsson (vm) 4
Lið Fram:
Guðmundur Baldursson 6
Hafþór Sveinjónsson 5
Þorsteinn Þorsteinsson 5
Sighvatur Bjarnason 5
Marteinn Geirsson 6
Ársæll Kristjánsson 7
[lalldór Arason 4
jíuðmundur Torfason 6
Pétur Ormslev 6
\gúst Hauksson 5
Albert Jónsson 5
voru mjög svo af skornum
skammti og má eiginlega segja að
hvort liðið um sig hafi einu sinni
verið nálægt því að skora, og skeði
það undir lok hálfleiksins. Fyrra
færið kom á markamínútunni
frægu (43. mín.) og féll það í skaut
Lið ÍBV:
Páll Pálmason 6
Guðmundur Erlingsson G
Snorri Rútsson G
Inirður Hallgrímsson 7
Valþór Sigþórsson 7
Ómar Jóhannsson 5
Jóhann Georgsson 5
Viðar Elíasson 5
Gústaf Baldvinsson 5
Sigurlás Þorleifsson 5
Kári Þorleifsson 6
Hlynur Stefánsson vm. 4
Lið UBK:
Guðmundur Ásgeirsson 6
Ilelgi Helgason 6
Tómas Tómasson 6
Valdemar Valdemarsson 7
Ólafur Björnsson G
Vignir Baldursson G
Hákon Gunnarsson 6
Jóhann Grétarsson G
Jón Einarsson 7
Helgi Bentsson 8
Sigurjón Kristjánsson 6
Gísli Sigurðsson vm. lék I G min„
Gunnlaugur Ilelgason vm. lék i 7
mín.
fyrirliði Fram
KA:Fram Q>1
Frammara. Þeirra sprækasti mað-
ur í leiknum, Ársæll Kristjánsáon,
fékk þá boltann rétt inni í vítateig
KA en gott skot hans fór rétt
framhjá. Aðeins einni mínútu
síðar fékk KA aukaspyrnu rétt
fyrir utan vítateig Fram. Gunnar
Gíslason tók hana og varði Guð-
mundur fast skot hans en missti
knöttinn frá sér til Hinriks
Þórhallssonar sem kom aðvífandi
en skot hans geigaði.
Eftir tilþrifalítinn fyrri hálfleik
mættu liðin ákveðin til þess siðari
og bauð hann upp á ágætan
fótbolta og færi á báða bóga.
Þegar ellefu mínútur voru eftir af
hálfleiknum átti Pétur Ormslev
gott skot rétt fyrir utan vítateig,
en Aðalsteinn markvörður KA var
vel á verði og varði vel. Á 25.
mínútu var komið að KA, Hinrik
Þórhallsson fékk boltann inni í
vítateig Fram og hugðist skjóta,
en ekki tókst betur til en svo að
knötturinn barst til Gunnars
Blöndal sem var á markteigshorn-
inu en skot hans úr þröngri
aðstöðu fór yfir.
Aðeins þremur mínútum síðar
kom svo markið sem reyndist vera
sigurmarkið þegar upp var staðið.
Guðmundur Torfason fékk send-
ingu inn í vítateig KA og var hann
út við endalínu, hann lék út í
teiginn og í leiðinni á tvo KA-
menn. Utarlega í teignum skaut
hann svo á markið, skot hans fór í
KA-mann og þaðan í hliðarnetið,
algjörlega óverjandi fyrir Aðal-
stein í markinu. Eftir markið
bjuggust flestir við því að KA-
menn efldust til muna og sýndu nú
klærnar svo um munaði en það
varð bið á því, því það voru
Frammarar sem gerðust nú
ákveðnari næstu mínúturnar. En
undir lok leiksins fóru KA-menn
að sækja af krafti. Á 39. mínútu
fékk Gunnar Gíslason knöttinn
rétt fyrir innan vítateigslínu við
Frammarkið, eftir horn. Firnafast
skot hans fór í Frammara og rétt
framhjá stöng marksins. Það sem
eftir lifði leiksins var mikið um að
vera inni í vítateig Fram og skall
hurð nærri hælum oftar en einu
sinni við mark Frammara og
máttu þeir prísa sig sæla þegar
Eysteinn dómari flautaði til
leiksloka og sigurinn var þeirra.
I þessum leik vantaði einhvern
neista í lið KA, en það hefur
vafalaust haft sín áhrif að Elmar
Geirsson lék ekki með að þessu
sinni vegna meiðsla. Vörnin stóð
fyrir sínu en miðjan og sömuleiðis
framlínan voru með daufara móti
í leiknum og þá einkum í fyrri
hálfleik.
Framliðið virkaði mjög jafnt í
þessum leik og var enginn sem
skaraði mjög áberandi fram úr en
þó má minnast á Ársæl Krist-
jánsson sem lék vel. Liðið barðist
vel í leiknum og eiga þeir vafa-
laust eftir að sýna klærnar í síðari
hluta mótsins.
Ágætur dómari í þessum leik
var Eysteinn Guðmundsson.
í stuttu máli:
1. deild sunnudaginn 28.6. 1981,
Akureyrarvöllur.
KA — Fram 0—1 (0—0).
Mark fram: Guðmundur Torfason
á 73. mín.
Áminning: Hafþór Sveinjónsson
Fram og Ágúst Hauksson Fram
fengu gula spjaldið.
Áhorfendur: 1138.
Dómari: Eysteinn Guðmundsson.
— sor
Guðmundur Torfason skoraði sigurmark Fram.