Morgunblaðið - 30.06.1981, Page 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1981
ísland hafnaði í 12. sætinu
- töp í tveimur síðustu leikjunum
- ísland aldrei náð jafn langt í golfi
„VIÐ töpuAum ba-ði fyrir IIol-
landi og Austurriki og höfnuðum
i 12. sætinu. Lontjra höfum við
aldrei náð. höfðum verið i c-riðli
þangað til i fyrra, að við unnum
okkur upp í b-riðii ok höfnuðum i
16. sæti,“ sagði Kjartan L. Páls-
son landsliðsfyrirliði í gölfi í
samtali við Morgunhlaðið á
sunnudaKÍnn, en ísland hafði þá
nýlokið þátttöku sinni i Evrópu-
meistaramótinu i Kolfi.
Leikirnir gegn Hollandi og
Austurríki voru miklir barnings-
leikir og gátu farið hvernig sem
var. „Leikirnir hérna vinnast á
púttunum. Hér eru stærstu flatir
veraldar og þú getur þess vegna
lent í því að reyna að setja niður
90 metra pútt. Venjulega haldast
keppendur í hendur upp á flatirn-
ar, en síðan ræður úrslitum hvor
er klókari púttari," sagði Kjartan
enn fremur.
Ragnar Ólafsson fékk ekki
öfundsvert hlutskipti, lenti í báð-
um leikjunum í því, að keppa
síðastur, er brugðið gat til beggja
vona. Gegn Hollandi var staðan
1—1 eftir tvíliðaleikinn, Ragnar
Ólafsson og Geir Svansson sigr-
uðu keppinauta sína, en Björgvin
Þorsteinsson og Sigurður Péturs-
son töpuðu hins vegar. Einliða-
leikurinn byrjaði ekki gæfulega,
Geir tapaði og Óskar Sæmundsson
einnig. En síðan fór allt að skríða
saman, Björgvin Þorsteinsson
vann sinn Hollending og Hannes
Eyvindsson fylgdi því eftir með
góðum sigri, því 3—3 er Ragnar
Ölafsson hóf síðasta leikinn. Þeg-
ar tvær holur voru eftir, nægði
Ragnari jafntefli á 17. holu til að
tryggja Islandi sigur. Hann komst
upp á flöt í 2 höggum, en fjórpútt-
aði síðan. Hollendingurinn lauk
sér af í fimm höggum þrátt fyrir
að hann lenti um tíma með kúlu
sína upp á þjóðveginum. Þeir voru
því jafnir er síðasta holan rann
upp. Enn átti Ragnar í brösum á
flötinni, þrípúttaði á sama tíma og
sá hollenski tvípúttaði og tryggði
Hollandi sigurinn. Hefði ísland
sigrað, hefði landinn keppt um
9.—10. sætið og hróður hans vaxið
enn. En það eru ekki alltaf jólin.
„Þetta er eins og að brenna af
tveimur vítaspyrnum í knatt-
spyrnuleik þegar staðan er 3—3 og
ein mínúta eftir," sagði Kjartan
um málið, en það var mikið álag á
Ragnari og svona getur alltaf
gerst."
Mótherjar íslands á sunnudag-
inn var Austurríki, sem á ágætu
Iiði á að skipa. Tvíliðaleikurinn
byrjaði vel, Björgvin og Hannes
lögðu sína keppinauta að velli, en
síðan töpuðu Geir og Ragnar, því
1 —1 er einliðaleikurinn hófst. Það
blés ekki byrlega, er bæði Sigurð-
ur Pétursson og Óskar Sæmunds-
son töpuðu viðureignum sínum.
Hins vegar vann Hannes sinn
mann og því möguleiki. En
Björgvin tapaði sínum leik og
einnig Ragnar Ólafsson, þó svo að
hann hafi staðið betur að vígi er
aðeins tvær holur voru eftir.
ísland hafnaði því í 12. sæti og
vakti frammistaða liðsins umtals-
verða athygli, meðal annars var
rituð löng og mikil grein í sunnu-
dagsblaðið fræga Sunday Tele-
graph um íslensku golfmennina og
þær framfarir sem hafa greinilega
átt sér stað. Ekki hefur síst vakið
athygli, að í íslenska liðinu eru
tveir sjómenn, sem hafa fyrir þær
sakir takmarkaða möguleika á því
að æfa. En þær þjóðir sem ísland
skaut aftur fyrir sig að þessu sinni
voru Noregur, Spánn, Ítalía,
Finnland, Belgía, Luxemborg og
Portúgal. Næstu þjóðir fyrir
framan okkur voru Austurríki,
Sviss og Holland.
• Hlutskipti Ragnars ólafsson-
ar var ekki öfundsvert að leika
síðustu lotuna í einliðaleiknum,
úrslitalotuna. Var mikið álag á
Ragnari.
• Gylfi Kristinsson
Jón Þór stóð
sig mjög vel
ÍSLENSKI unglingalands-
liðsmaðurinn i golfi, Jón Þór
Gunnarsson frá Akureyri,
keppti í siðustu viku á Doug
Somners-unglingakeppninni
árlegu, sem haldin er i Aber-
deen. Er keppnin fyrir kylf-
inga sem eru 17 ára og yngri.
Jón Þór stóð sig mjög vel,
hafnaði í 10. sæti á 320
höggum. 79-81-85-75, cn par
vallarins er 71.
Guðmundi vísað úr keppni
- hafði forystu eftir þrjár umferðir
- Gylfi og Steinunn sigruðu örugglega
GYLFI Kristinsson GK varð ör-
uggur sigurvegari á unglinga-
meistaramótinu i golfi sem fram
fór á Grafarholtsvelli um helg-
ina. Leiknar voru 72 holur, 36
hvorn dag. og lék Gylfi á 310
höggum. eða níu höggum minna
en næsti maður, sem var Magnús
Jónsson GK á 319 höggum. Sig-
urður Sigurðsson varð þriðji á
321 höggi, en hann þurfti að slá
Eirik Jónsson út i bráðabana. en
Eiríkur lék einnig á 321 höggi.
Annars bar það til tíðinda, að
j>eim keppanda, sem var með lang
besta skorið eftir þrjár umferðir,
Guðmundi Arasyni, var vikið úr
keppninni fyrir þær sakir að slá
teigskot af röngum stað, þ.e.a.s.
hann stillti upp kúlu sinni aðeins
fyrir aftan teiginn. Urðu menn
þess varir og lauk þar með sögu
Guðmundar í keppninni. Lítum á
röð efstu manna í eldri flokkinum:
Gylfi Kristinsson GK 310
Magnús Jónsson GK 319
Sigurður Sigurðsson GK 321
Eiríkur Jónsson 321
Gunnlaugur Jóhannsson GK 322
Hilmar Björgvinsson GS 324
Sveinn Sigurbergsson GR 328
í yngri unglingaflokknum varð
Karl Ó. Jónsson öruggur sigurveg-
ari, lék á 320, eða 11 höggum
minna en næsti maður, sem var
Arnar M. Ólafsson á 331 höggi.
Kristján Ö. Hjálmarsson varð
þriðji á 336 höggum, en Kristján
er frá Golfklúbbi Húsavíkur.
í kvennaflokki varð Steinunn
Sæmundsdóttir GR öruggur sigur-
vegari á 328 höggum, Sólveig
Þorsteinsdóttir varð önnur á 335
höggum og Þórdís Geirsdóttir GK
varð þriðja á 351 höggi. Keppend-
• Steinunn Sæmundsdóttir sigr-
aði örugglega i kvennaflokki.
ur voru aðeins fjórir og fjórði
keppandinn var Ásgerður Sverris-
dóttir á 366 höggum.
Graham sigraði á opna
bandaríska meistaramótinu
ÁSTRALÍUMAÐURINN David
Graham sigraði á opna handa-
riska meistaramótinu i golfi sem
fram fór fyrir skömmu i Fíla-
delfiu. Varð Graham fyrsti Ástr-
alíubúinn til að vinna þetta
mikla mót i 86 ára sögu þess.
Graham var afar sterkur í keppn-
inni, lék á 273 höggum, 68-68-70-
67, eða á 3 höggum minna en
næstu keppendur sem voru Bill
Rogers á 276 höggum, 70-68-69459
og George Burns á 69456-68-73.
Merion-golfvöllurinn í Fíla-
delfíu þykir afar erfiður, sérstak-
lega 14. holan. í fyrstu þremur
umferðunum hafði Graham marið
hana tvívegis á pari, einu sinni á
einu yfir pari. í öllum tilvikunum
• David Graham rekur verð-
launagrip sinum rembingskoss.
var hann í alls kyns basli út í
sandgryfjum og í órækt og tókst
að bjarga öllu saman ótrúlega vel
þrátt fyrir allt. En hann var einu
höggi á eftir þeim Burns og
Rogers þegar að 14. holunni í
síðustu umferðinni kom. Hann
ákvað þá að taka áhættu og taka
afleiðingunum. Hann sló blint
með trékylfu og svo vel heppnaðist
höggið, að hann náði hinni erfiðu
holu á „birdie", eða einu undir
pari. Þar með náði hann foryst-
unni og síðustu holurnar lék hann
allar á einu undir. Höggin hans
273, er átta höggum betri árangur
heldur en vallarmetið á Merion og
áttu áhorfendur varla orð til að
lýsa frammistöðu Ástralíumanns-
ins.
20 pör
Á laugardaginn var haldið
á Akureyri paramót í golfi.
Um það bil tuttugu pör tóku
þátt i mótinu sem fram fór i
ágætis veðri. Sigurvegarar
urðu parið Jónina Pálsdóttir
og Ómar Pétursson á 65
höggum, næst komu þau
Sverrir Þorvaldsson og Elfa
Aðalstcinsd. á 69 höggum. I
þriðja sæti urðu svo Jón
Aðalsteinsson og Herdis Her-
bertsd. á 70 höggum. Og svo í
fjórða sæti Einar Grétarsson
og Susanna Möller.
— jor.
Pate skaut
öllum aft-
ur fyrir sig
JERRY Pate bar sigur úr
býtum á opna Memphis-
golfmótinu sem haldið var á
samnefndum stað um helgina.
Pate lék á 274 höggum, 69-
_ 70 — 66 — 69. Baráttan við þá
’Bruce Lietzke og Tom Kite
var afar hörð, en þeir luku
báðir keppni með 276 högg.
Þessir þrír báru nokkuð af,
því fjórði maður, Denis Wat-
son. sló 281 högg. Peter Jak-
obsen lék einnig á 281 höggi,
en Watson hafði betur i
hráðabana um 4. sætið.
Öldungamót
í golfi
GOLFKLÚBBUR Ness heldur
sitt árlega öldungamót.
„Hornið“, fimmtudaginn 2.
júlí kl. 17.00.
Keppt er með forgjöf. 16
bestu halda áfram í holu-
keppni. Mörg aukaverðlaun
verða veitt, t.d. fyrir að vera
næst holu á 3. og 6. braut og
fyrir fæst pútt.