Morgunblaðið - 30.06.1981, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1981
33
Kristján Aðalsteins-
son skipstjóri, 75 ára
í dag 30. júní, eru sjötíu og
fimm ár liðin frá því sæmdarhjón-
unum Kristínu Kristjánsdóttur
frá Vattarnesi og Aðalsteini Aðal-
steinssyni frá Hrauni í Dýrafirði
fæddist sonur, sem í skírninni
hlaut nafnið Kristján Sigurður.
Heimahagarnir, Haukadalur við
hinn náttúrufagra Dýrafjörð urðu
til að móta lífsviðhorf drengsins,
sem sumhverf fylgja honum enn
ásamt þeim þroska er hann sem
ungmenni nam af þátttöku í
almennum störfum við sjó og
sveit. En sjómennskan var sterk
ættarfylgja og sagði til sín, svo
hún varð ekki hamin, og fimmtán
vetra var Kristján kominn á
sjóinn. Hafið varð síðan starfs-
vettvangur hans í fimm tugi ára,
að frátalinni námsdvöl í héraðs-
skólanum að Núpi og síðar
sérfræðinámi í farmennsku við
Stýrimannaskólann í Reykjavík.
En frá árinu 1973 hefur Kristján
verið starfsmaður Alþingis.
Sjómennskan í hálfa öld, frá
1920 og fram um 1970, sem hefst
með því að fimmtán ára unglingur
ræðst á kútter Pilot frá Bíldudal,
verður síðar þátttakandi í að
skapa mesta framfaratímabil í
allri siglingasögu þjóðarinnar og
lýkur ferli sínum með því að hann
hættir sjómennsku 67 ára og
siðustu fimmtán árin verið skip-
stjóri á m.s. Gullfossi.
Það lætur því að líkum að
sjóferðarsaga Kristjáns Aðal-
steinssonar er viðburðarrík og
stórmerk, þótt ekki verði hún
rakin hér. Þess skal aðeins getið
að við sem þekkjum vel til þeirrar
sögu m.a. vegna samstarfs okkar
við Kristján í meira en tvo tugi
ára, vitum að störf hans á sjónum
voru gifturík og farsæl. Þótt liðinn
sé nærri tugur ára frá því m.s.
Gullfoss var seldur úr landi og
samfylgd okkar með Kristjáni
skipstjóra á sjónum því liðin tíð,
viljum við nota þetta tækifæri
jafnframt því að óska honum
hjartanlega til hamingju með af-
mælið að þakka honum það sem
hér hefur verið nefnt gifturík og
farsæl sjómannsstörf. Æðsti yfir-
maður á hverju skipi hefur allan
rétt til að gera miklar kröfur til
skipshafnar sinnar, en það er gifta
skipshafnarinnar að finna að skip-
stjórinn gerir mestar kröfur til
eigin persónu, að skyldurækni og
ábyrgðartilfinning hans gagnvart
skipi og skipshöfn er honum allt.
Þetta var ekki einvörðungu
bundið skyldustörfunum á hafi úti
eða annarsstaðar. Kynntust skip-
verjarnir svo sannarlega um-
hyggjusemi skipstjórans, sérstak-
lega ef eitthvað bar út af, lasleiki
eða annað — bæði heima og
heiman. Það er gifta hverrar
skipshafnar að finna á hvern veg
skipstjórinn metur störfin, þegar
mat hans er eins og Kristjáns, að
öll störf eru mikilvæg og göfug séu
þau framkvæmd af virðingu, alúð
og vandvirkni og vegsemdartitlar
réttlæta aldrei hyskni eða óvand-
virkni.
Við sem hér árnum afmælis-
barninu heilla í dag, höfum einnig
ærna ástæðu til að þakka hve vel
Kristjáni fórst að vera gestgjafi
og hve vel hann sat sitt öndvegi.
Jafnan var þar allt á einn veg,
þannig að skip, skipshöfn og
skipseigendur hlutu sæmd af. Og
lengi mun minnisstætt hve skjót-
ur Kristján 'var til ákvarðana og
fljótur að átta sig á hverjum
vanda. Fyrirmæli hans voru því
jafnan skýr og ákveðin. Hann var
hamhleypa til allrar vinnu, virti
öll heiðarleg störf og mat mikils
hvern þann sem lagði rækt og
trúmennsku í verk sín.
Kristjáni hefur hlotnast marg-
víslegur verðskuldaður frami og
viðurkenning. En í dag munu
honum berast óskráðar kveðjur
frá þeim mörgu er átt hafa með
honum samleið, lengri eða
skemmri, allt síðan hann sleit
barnsskónum vestur í Haukadal
og flutti með sér til starfs og leiks
þá heiðu fegurð fjarðarins sem svo
farsæl reynist þeim er einhvers
metur tign sköpunarverksins.
Lifðu heill, blessað sé heimili
þitt og skyldulið.
Samferðamenn
FRETTIR UR DJUPINU
• •
Skírt og fermt í Ogri
ANNAN DAG hvítasunnu var
messað í Ögurkirkju við Isafjarð-
ardjúp. Var þar bæði skírt og
fermt. Á annað hundrað manns
var við guðsþjónustuna og kirkju-
bekkir þéttsetnir, enda fegursta
veður.
Sóknarprestur, séra Baldur Vil-
helmsson í Vatnsfirði, skýrði frá
því í messulok að kirkjunni hefði
borist gjöf, fagurlega saumaður
altarisdúkur, frá Ragnheiði Bald-
ursdóttur í Vigur. Dúkinn saum-
aði hún sjálf og gaf til minningar
um afa sinn og ömmu, Bjarna
Sigurðsson og Björgu Björnsdótt-
ur í Vigur.
Að lokinni guðsþjónustu buðu
hjónin í Ögri, Halldór Hafliðason
og María Guðröðsdóttir, öllum
kirkjugestum til veglegrar skírn-
ar- og fermingarveislu í Ung-
mennafélagshúsinu.
Konur þinga á
Tálknafirði
Fundur Sambands vestfirskra
kvenna var haldinn á Tálknafirði
dagana 29.—30. maí sl.
Mættir voru fulltrúr frá öllum
aðildarfélögunum, 16 að tölu.
Kvenfélagið Björk í Ögursveit
sótti um inngöngu í sambandið. I
SVK eru nú 660 konur auk heið-
ursfélaga.
Erindi á fundinum hélt Hildi-
gunnur Högnadóttir frá Isafirði.
Talaði hún um málefni vangefinna
á Vestfjörðum og sýndi líkan af
fyrirhuguðu dvalarheimili fyrir
vangefna, sem valinn hefur verið
staður á Isafirði. Urðu umræður
að loknu erindinu og var ýmsum
fyrirspurnum beint til Hildi-
gunnar. Voru konurnar einhuga
um að reyna eftir fremsta megni
að styðja þetta nauðsynlega mál-
efni.
Ymiss önnur mál voru rædd á
fundinum, s.s. ræktunar- og^heil-
brigðismál o.fl. Formaður Sam-
bandsins er Þorbjörg Bjarnadóttir
skólastjóri.
Kvenfélagið Harpa á Tálkna-
firði sá um mat og gistingu
fundargesta af miklum myndar-
skap.
SUMAKDÚSTAÐUK
DKEGINH ÚT
O.JÚUf\þS
Fullfrágenginn
sumarbústaður að
Hraunborgum í
Grímsnesi með öllum
búnaði, að verðmæti kr.
350.000.- verður dreginn
út 3. júlí.
Auk þess bifreiðavinningar
eftir vali hver kr. 30.000.-
Utanlandsferðir eftir vali
kr. 10.000.-
Húsbúnaður eftir vali
kr. 2.000,-
Húsbúnaður eftir vali
kr. 700,-
Miði er möguleiki
•RHÆKKUN
VINNINGA
Þriggjavi
• •
Góð hótel og íbúðir, með eða án fæðis.
íslenskt leiguflug alla leið í sólnaog sjóinn.
oppun
i FERÐAMIÐSTOÐini
AÐALSTRÆTI9
SÍMI28133 11255
> i 11