Morgunblaðið - 30.07.1981, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981
Starfshópur um mjólkurmál:
Slæmur búnaður f jósa og
skortur á þrifum eru með-
al orsaka gæðarýrnunar
SAMSTARFSHÓPUR um
mjólkurmál hefur skilaó skýrslu
til heilhrÍKÓisráðherra um ástand
mjólkur á solusvæói Mjólkursam-
solunnar i Reykjavik, en honum
var ætlað að skila ráðuneytinu
tillOKum um úrbætur m.a. um
aukið eftirlit og á hvern hátt væri
hætft að stýra betur eftirliti með
Kæðum mjólkur af hálfu hins
opinbera. Starfaði hópurinn i nánu
samstarfi við Mjólkursamsoluna i
Reykjavík ok aðra framleiðendur.
í skýrslunni segir m.a., að þótt
ekki séu liðin nema 8 ár frá
gildistöku reglugerðar um
mjólkurvörur hafi orðið verulegar
breytingar á framleiðslu, dreifingu
og sölu. I niðurstöðum segir að
orsakir gæðarýrnunar mjólkur sé að
verulegu leyti að finna í slæmu
ástandi og búnaði fjósa, skorti á
þrifum og aðhaldsleysi hjá litlum
hluta framleiðenda, sem þó hafi
veruleg áhrif vegna blöndunar
mjólkur í mjólkurflutningum. Segir,
að stórlega vanti fræðslu á nauðsyn
góðs hreinlætis við mjólkurfram-
leiðslu. Þá kemur fram, að mjólk sé
sótt til sumra framleiðenda tvisvar í
viku, sem þýði að hún verði miklu
eldri en reglur leyfi áður en geril
eyðing fari fram og er tekið undir
gagnrýni á hve sjaldan mjólk sé sótt
til framleiðenda. Geymsluþol
nýmjólkur hefur verið breytilegt á
árunum 1978 til 1981, sem tekin eru
til viðmiðunar, og voru árið 1978
60% sýna frá MS slæm eftir 3
sólarhringa, 11% árið 1979, 44%
1980 og 50% það sem af er yfir-
standandi ári, sem bendir til þess að
geymsluþoli nýmjólkur hafi hrakað
mjög í fyrra og það sem af er þessu
ári segir m.a. í skýrslunni.
Ekki er talið að skemmd mjólk
finnist eingöngu á sumartíma og
nefnd dæmi um 2. og 3. flokks mjólk
að vetrarlagi. Greint er frá mann-
legum mistökum, sem voru í því
fólgin, að 3. flokks mjólk, sem fara
hefði átt í vinnslu, hafi verið
blandað við nýja mjólk og 3. flokks
mjólk hafi verið seld sem neyslu-
mjólk. Nefndin segir að ástæðna
fyrir gallaðri mjólk sé ekki ein-
göngu að leita hjá framleiðendum
og vinnsluaðilum, hér eigi opinberir
eftirlitsmenn líka hlut að máli
vegna aðhaldsskorts og er lagt til að
endurskoðaðar verði reglur um
eftirlit með mjólkurframleiðslu.
Meðal ráðstafana, sem lagt er til
að gera þurfi er aö fella úr gildi
undanþágur til dagstimplunar,
stimpluð verði dagsetning geril-
sneyðingar og á grundvelli geymslu-
þolsprófana á næstu vikum skuli
taka ákvörðun um hvort nauðsyn-
legt verði að stytta sölufrest enn
frekar. Hitamælar verði settir á alla
kælitanka framleiðenda á svæði
MBF, bætt verði kæling í mjólkur-
stöðvunum, reynt verði að skipu-
leggja mjólkurflutninga þannig að
neyslumjólk verði sótt oftar, bætt
verði kæling í afurðageymslum
MBF og auka rannsóknir til að
koma í veg fyrir að 2. og 3. flokks
mjólk verði seld sem neyslumjólk.
Gjöfforseta Islands til Karls Bretaprins og laföi Díönu
Málverk þetta eftir Eirík Smith, listmálara, er gjöf forseta íslands. frú Vigdisar Finnbogadóttur og
íslensku þjóðarinnar til Karls Bretaprins og brúðar hans, lafði Dionu, í tilefni af brúðkaupi þeirra,
sem fram fór í Sánkti Páls-dómkirkju í London i gærmorgun. Gjöfin er oliumálverk af Tunguselshyl i
Hofsá i Vopnafirði, en sem kunnugt er hefui Karl prins stundað þar laxveiðar nokkur undanfarin
sumur.
Verkið var sent til Bretlands fyrir nokkru og kom sendiráð íslands því til skila í Buckingham-höll.
I gjafabréfi, sem fylgir málverkinu, segir m.a. að það hafi verið málað að sérstakri ósk forsetans.
Einnig er þar stutt æviágrip listamannsins. Ljósmynd af hylnum fylgir hér með.
Geir Hallgrimsson og iðnaðarráðherra:
Ræddu súrálsmálið
á fundi í gærdag
„VIÐ SKÝRÐUM hvor öðrum frá
sjónarmiðum okkar I þessu máli og
á hvaða grundvelli unnt væri að
vinna frekar að þessum málum,“
saKði Geir Ilallgrimsson formaður
Sjálfstæðisflokksins i samtali við
MorKunhlaðið i gær, en hann var
inntur eftir þvi hvað þeim Hjörleifi
Guttormssyni iðnaðarráðherra
hefði farið á milli i viðræðum
þeirra um súrálsmálið, sem fram
fóru í KærmorKun.
„Við gerum ráð fyrir að frekari
umræður fari fram, bæði á milli
okkar og formanns Alþýðuflokks-
ins,“ sagði Geir. Hvað áframhald-
andi fundi varðaði sagði Geir að þeir
Hjörleifur myndu aftur ræða saman
eftir viðræður iðnaðarráðherra og
Gervasoni enn í fang-
elsi þrátt fyrir náðun
Amnesty International styður baráttu hans
„MÉR ER haldið i fangelsi, þrátt
fyrir að varnarmálaráðherrann.
Charles Hernu, hafi Kefið mér
upp sakir,“ saKði Patrick Gerva-
soni i samtali við Mbl„ en hann
hefur verið í fanKelsi siðan i
júnímánuði. Amnesty Internat-
ional hefur tekið upp baráttu
fyrir því að Gervasoni verði
látinn laus og þau lita svo á. að
hann sé i haldi vegna stjórnmála-
skoðana sinna.
„Þegar ég kom til Frakklands
var mér tilkynnt að ég gæti farið
frjáls ferða minna, en þegar ég
kom út af skrifstofu herdómstóls-
ins í Marseilles, var ég handtekinn
af herlögreglunni. Ég var dæmdur
í tveggja mánaða fangelsi og var
haldið í einangrun þar til á
föstudag að ég fékk fyrst að tala
við lögfræðing minn.
Vegna þjóðhátíðardagsins 14.
júlí sendi varnarmálaráðherra
mér náðunarbréf, en yfirmenn
hersins neituðu að sleppa mér úr
haldi og ég vissi ekki einu sinni af
því fyrr en nýlega að ég hafði
Patrick Gervasoni
verið náðaður. Herinn neitaði að
hlíta fyrirmælum ráðherrans.
Mitterrand forseti lofaði að
leggja niður herdómstóla fyrir
kosningarnar, en vegna þrýstings
frá hernum hefur verið slegið af
og nú er aðeins lofað takmörkun-
um á valdsviði herdómstóla. Svo
virðist, að engin breyting ætli að
verða í málefnum þeirra, sem
neita að gegna herþjónustu, þótt
ný ríkisstjórn sé tekin við.
I fyrradag fóru fulltrúar
mannréttindahreyfingar í Frakk-
landi á fund ráðherrans til þess að
vita hvernig málin stæðu, en
ekkert kom út úr þeim fundi."
— Hvert verður framhaldið?
„Ef ekki verður búið að ná mér
úr haldi fyrir 17. ágúst verð ég að
öllum líkindum leiddur fyrir her-
dómstól í Marseilles og dæmdur í
1—3ja ára fangelsi og mér sýnist
raunin ætla að verða sú. Það er
ljóst, að herinn vill ekki sleppa
mér. Ef ég verð dæmdur, er
ólíklegt að ég verði leystur úr
haldi fyrr en ég verð búinn að
afplána dóminn.
Amnesty International hefur
tekið upp baráttu í málí mínu og
að þeirra áliti er ég í fangelsi
vegna pólitískra skoðana minna.
Þrýstingur frá þeim kemur mér
vonandi til góða, en einnig vonast
ég til, að almenningur í Frakk-
landi og erlendis sýni mér stuðn-
ing, en lítið hefur verið fjallað um
mál mitt í frönskum fjölmiðlum
hingað til,“ sagði Gervasoni.
Alþýðublaðið kemur ekki út:
Deilur milli ritstjóra
og blaðst jórnarinnar
formanns Alþýðuflokksins,
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráð-
herra að þeir Geir Hallgrímsson
hefðu rætt saman í nær klukkustund
og hefðu þeir farið yfir málin, bæði
svar þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins, og það sem gerst hefði að
undanförnu. „Við skiptumst á upp-
lýsingum og ræddum um hugsanlega
áframhaldandi málsmeðferð og sam-
ráð við stjórnarandstöðu um málið,“
sagði Hjörleifur. Þá sagði Hjörleifur
að hann myndi ræða við Kjartan
Jóhannsson formann Alþýðuflokks-
ins um þetta mál í dag, fimmtudag,
en í framhaldi af þeim viðræðum
myndi hann ræða við Geir Hall-
grímsson á ný.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ kom ekki út í
gær og eftir þeim heimildum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér mun
það stafa af þvi að blaðstjórn taldi
að efni, sem Vilmundur Gylfason
afleysingaritstjóri hafði ætlað til
birtingar i biaðinu i gær, væri
óbirtingarhæft. Þrátt fyrir að blað-
ið kæmi ekki út í gær, var i
gærmorgun lesið úr leiðara blaðs-
ins, þeim sama og daginn áður,
með eftirfarandi inngangi: „Innan
Alþýðuflokksins fara um þessar
mundir fram flóknar umræður um
það, hvort að rétt sé að taka
afstöðu með eða á móti fátæka
fólkinu, sem er i Verzlunarmanna-
félagi Reykjavíkur og oðrum
ámóta verkalýðsfélögum. Af þess-
um sokum gefst ekki tóm til þess
að rita leiðara i dag. Við endurtök-
um því leiðarann frá í gær.“
Morgunblaðið hafði af þessum
sökum samband við ritstjóra Al-
þýðublaðsins, formann Alþýðu-
flokksins, fulltrúa blaðstjórnar og
Jóhönnu Sigurðardóttur, alþing-
ismann. Hvorki Jóhanna né Kjartan
Jóhannsson, formaður Alþýðu-
flokksins vildu tjá sig um málið, en
svar Vilmundar var á þessa leið, er
blaðamaður spurði hann hvers
vegna blaðið hefði ekki komið út: „Á
þessu stigi málsins er afstaða
flokksforystunnar í Alþýðuflokkn-
um svo óljós og óskýr, að ég hef
ekkert um málið að segja á þessu
stigi.“
Stafar þetta af skrifum þínum um
verzlunarmenn, sem vera áttu í
þessu blaði?
„Ég hef ekkert um það mál frekar
að segja á þessu stigi.“
Þá hafði Mbl. samband við Hörð
Vilhjálmsson, settan útvarpsstjóra
og sagði hann að venjan væri að
leiðarar blaðanna þyrftu að hafa
borizt Útvarpinu klukkan 7 að
kvöldi daginn áður en þeir væru
lesnir. Leiðari Alþýðublaðsins hefði
borizt á tilsettum tíma með áður-
nefndum formála. Starfsmönnum
Útvarpsins datt ekki annað í hug en
að blað stæði að baki þessa leiðara
og því fékk hann sömu meðferð og
aðrir leiðarar sem bárust. Starfs-
menn Útvarpsins skiptu sér ekkert
af því þó leiðarahöfundur Alþýðu-
blaðsins væri sömu skoðunar dag
eftir dag, en teldu að ritstjóri
blaðsins hefði átt að gera viðvart
um það að ekkert blað stæði að baki
leiðaranum, því ekki væri venjan að
lesa leiðara þeirra blaða, sem ekki
kæmu út.
Ölgerðin:
Viljum ekki
einokun
MORGUNBLAÐINU Hefur borizt
eftirfarandi athuga.semd frá ölgerð-
inni Agli SkallaKrimssyni:
„Vegna þeirra fullyrðinga Sanitas-
manna, um að Ölgerðin hafi ekki
haft áhuga á því að senda Þjóðhátíð-
arnefnd Týs tilboð um gosdrykkja-
sölu, og birtist í Morgunblaðinu þann
29. þessa mánaðar, viljum við taka
eftirfarandi fram: Ölgerðinni var
boðið að senda Þjóðhátíðarnefndinni
einokunartilboð, en þar sem við lítum
á slíka viðskiptahætti sem ólöglega,
var að sjálfsögðu ekkert tilboð sent,
þar sem við kærum okkur ekki um að
taka þátt í slíku.
Ölgerðin Egill Skalla-
-Grimsson hf.“
Gunnar Bergsteinsson for-
stjóri Landhelgisgæslunnar
HANDHAFAR forsetavalds skip-
uðu i gær, að tillögu Friðjóns
Þórðarsonar dómsmálaráðherra,
Gunnar Bergsteinsson i starf for-
stjóra Landhelgisgæslunnar frá 1.
september að telja. Gunnar hefur
verið forstöðumaður Sjómælinga
rikisins frá árinu 1970. en hann er
menntaður sem sjóliðsforingi og var
hann í sjóhernum norska árin
1945—1950. Gunnar hefur starfað á
varðskipum og strandferðaskipum,
og hóf síðar störf hjá Sjómælingum
og Landhelgisgæslu. Gunnar
Bergsteinsson tekur við starfi for-
stjóra Landhelgisgæslunnar
„Ég hef lítið um þetta að segja eins
og er,“ sagði Gunnar í samtali við
Morgunblaðið í gær, „nema það að ég
er ósköp þakklátur ráðherra fyrir
það að veita mér þetta traust. Ég
vona að ég sé þessa trausts verður og
ég mun reyna að standa mig í þessu
starfi, eins og öðru,“ sagði Gunnar Gunnar Bergsteinsson