Morgunblaðið - 30.07.1981, Page 13

Morgunblaðið - 30.07.1981, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981 13 ið og það sem því fylgir. Rimbaud tók af skarið með því að yfirgefa þetta allt, en hin skáldin gera sína uppreisn með orðinu, þeirra ævintýramennska nær ekki út fyrir ljóðið. Að komast burt held- ur áfram að vera dýpsta hvöt lífsins, en annað ekki. Sigfús Daðason birtir í bók sinni sem áður var getið þýðingu á Jacquemand og Júlíu eftir René Char. Þar stendur m.a.: „... í leit að því lífi sem ekki er enn hægt að ímynda sér, eru titrandi þrár, hvísl sem bráðlega munu mætast og börn sem eru heil á húfi og uppgötva“. Ég minnist þess ekki að fleiri ljóð hafi verið þýdd eftir René Char á íslensku en Jacquemand og Júlía, en óneitanlega er skáldið vel kynnt í bók Sigfúsar Daðasonar. Char er af mörgum talinn fremst- ur franskra samtímaskálda. Vinur hans, Albert ■ Camus, var ekki í vafa um mikilleik hans og kallaði hann skáld endurfæðingarinnar. Char gerir strangar kröfur til ljóðsins, ekkert er tilviljunarkennt í skáldskap hans. Annað sem þykir einkenna hann sem skáld er siðræn afstaða, en hún íþyngir ekki hinu ljóðræna. Char starfaði með súrrealistum, gaf út ljóðabók í samvinnu við þá Paul Eluard og André Breton og er enn trúr ýmsum súrrealískum aðferðum. Á stríðsárunum ortu skáld eins og Eluard og Aragon hvatningarljóð til frönsku þjóðarinnar. Char var ekki virkur i skáldskap á þessum tímum heldur gerðist foringi and- spyrnumanna í fjöllum Provence, gekk undir nafninu Alexander kafteinn. Stríðsdagbók hans lýsir daglegu lífi andspyrnumanna og viðurstyggð stríðsins. Char bjó um tíma í París, en kunni ekki við sig þar og hélt aftur til Provence þar sem hann er fæddur og uppalinn. Um Provence og fólkið þar eru tvær ljóðabækur skáldsins: Les Matinaux (1950) og Commune présence (1964). Char er lýst sem hlédrægum manni og jafnvel feimnum. Hann virðist una sér best í sveitum Provence í sterkum tengslum við jörðina. í smáljóði, mörg ljóða Chars eru aðeins fáeinar línur, kveður hann: Hlýðið ykkar svínum sem þið hafið fyrir augunum. Ég lýt guðum mínum sem ekki eru til. GLÆSILEGIR - STERKIR ■ HAGKVÆMIR Lítum bara á hurðlna: Færanleg fyrlr hægri eða vlnstrl opnun, frauðfyllt og níðsterk - og í stað fastra hillna og hólfa, brothættra stoða og loka eru færanlegar fernu- og flöskuhillur úr málmi og laus box fyrlr smjör, ost, egg, álegg og afganga, sem bera má beint Dönsk gæði með VAREFAKTA, vottorði dönsku neytendastofnunarinnar DVN um rúmmál, einangrunargildi, kæli- svið, frystigetu, orkunotkun og aðra eiginleika. GRAM BÝÐUR EINNIG 10 GERÐIR AF FRYSTISKÁPUM OG FRYSTIKISTUM /FDniX HÁTÚNI 6A • SIMI 24420 KARNABÆR OG EINKAUMBOÐSMENN UM LAND ALLT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.