Morgunblaðið - 30.07.1981, Side 17
.Lsj.
17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981
Hirti Jóns-
synisvarað
eftir Gunnar Snorra-
son, formann Kaup-
mannasamtakanna
Hjörtur Jónsson, fyrrverandi
formaður Kaupmannasamtaka ís-
lands ritar grein í Morgunblaðið
16. júlí, þar sem hann slær sig til
riddara sem leiðsögumann um
verslunarhætti á íslandi.
Arfur frá fyrri tíð
Hann gagnrýnir í greininni
ákvæði kjarasamnings Verslun-
armannafélags Reykjavíkur og
Kaupmannasamtaka Islands um
afgreiðslutíma verslana. Ég ætla
ekki að rökræða við Hjört um
kjarasamninginn, en segja má að
lokunartímaákvæðið hafi verið
rótfest í kjarasamningunum á
formannstímabili hans í K.í.
Hann samþykkti það í öllum þeim
samningum sem gerðir voru undir
hans handleiðslu sem formanns
K.í.
Lokunartímaákvæðið er þannig
arfur frá fyrri tíð, sem stjórn K.I.
hefur og mun leitast við, að fá
afnumið úr kjarasamningunum.
Það er því gegn betri vitund að
Hjörtur reynir að kenna núver-
andi stjórn K.í. um lokunartíma-
ákvæðið. Honum ferst illa að bíta
nú í bakið á þeim sem tóku það í
arf.
K.í. óskuðu ekki
eftir endurskoðun
Hjörtur Jónsson virðist vera illa
úti á þekju þegar hann segir
vafalaust að K.I og V.R. hafi óskað
eftir endurskoðun á reglugerðinni
frá 1971. Það var að frumkvæði
borgarfulltrúa að umrædd reglu-
gerðarendurskoðun fór fram, enda
setti borgarstjórn reglugerðina og
afgreiddi hana samhljóða á fundi
sínum. Skilt er að taka fram að
leitað var samstöðu þeirra sem
málið sérstaklega varðar. Skipuð
var vinnunefnd til undirbúnings
málinu, og í henni átti sæti m.a.
þáverandi formaður Félags mat-
vörukaupmanna.
Nefndin varð sammála um
niðurstöður. Hins vegar hefur
margkomið fram hjá mér í um-
ræðum að undanförnu að K.í.
reyndi ítrekað að fá laugardags-
morgna frá kl. 8.00—14.00 sem
afgreiðslutíma verslana allt árið.
Sá málflutningur fékk ekki nægi-
legan hljómgrunn.
Reglugerðin framför
Hjörtur ber, nú orðið, matvöru-
kaupmenn mjög fyrir brjósti. Þess
vegna er rétt að undirstrika það
að K.I. skipaði einmitt formann
Félags matvörukaupmanna í
nefndina, svo haldið yrði á mál-
efnum þeirra sem kostur væri, því
vitað var af fyrri reynslu að þar
myndi eldurinn heitast brenna
þegar upp væri staðið.
Um reglugerðina annars er það
svo að segja að hún er framför frá
þeirri reglugerð sem sett var í
formannstíð Hjartar Jónssonar.
Nægir í því sambandi að nefna
valtímann, sem skapar möguleika
á því að verslanir séu opnar til
klukkan 22.00 frá mánudegi til
föstudags.
Burtfallnir
ekki boðaðir
Hjörtur telur að enginn al-
mennur kaupmannafundur hafi
verið haldinn frá því að hann
hætti sem formaður K.í. Að
sjálfsögðu er hér um fölsun að
ræða sem ekki er svara verð.
Ilins vegar er það svo að þeir
sem falla af félagaskrá, af ein-
hverjum ástæðum, fá ekki fund-
arboð eins og eðlilegt er.
Varðskip og hafrannsóknaskip i Reykjavíkurhöfn, en um þessar
mundir eru aöeins tvö varðskip við gæzlustörf.
Fjöldi sovézkra fiskiskipa
milli Islands og Jan Mayen
Aðeins tvö varð-
skip í rekstri
UM ÞAÐ bil 90 erlend skip, flest
sovézk, eru nú að veiðum rétt við
200 mílna mörkin milli fslands og
Jan Mayen. en þau hafa að undan-
förnu verið sunnarlega á þessu
svæði og eru nú að þokast norður
eftir, að því er Pétur Sigurðsson
forstjóri Landhelgisgæzlunnar
tjáði Mbl.
Pétur Sigurðsson sagði þoku gera
nokkuð erfitt um vik, en úr gæzlu-
flugvéi mætti sjá skip í ratsjá.
Fylgst er með ferðum skipanna, en
varðskip hefur ekki verið á þessum
slóðum og sagði Pétur ekki hafa
komið til brota.
Landhelgisgæzlan hefur nú tvö
varðskip í rekstri og sagði Pétur
Sigurðsson það þriðja að líkindum
tekið i rekstur nú þegar menn færu
að koma úr sumarleyfum, en rekstr-
arfé sagði hann skammtað mánaðar-
lega og kvað hann þar engan afgang,
vart væri hægt að sinna nauðsyn-
legasta viðhaldi skipanna og þar sem
engin fjárveiting væri til rekstrar
Árvakurs væri honum nú skilað til
Vita- og hafnamálaskrifstofunnar.
Gunnar Snorrason
Vill söluturna feiga
Hjörtur talar mikið í grein sinni
um verslunarfrelsi, enda yfirskrift
greinarinnar. Hann hefur þó sér-
stakt horn í síðu þeirra sem reka
söluturna sem veita neytendum
þjónustu á kvöldin og um helgar.
Fyrirtæki þeirra kallar hann
„menningarfyrirbæri" að því er
virðist í háðungarskyni. Hvers
eiga þessir aðilar að gjalda?
I grein sinni vill hann veita
aðilum í verslun olnbogarými og
neytendum sem besta þjónustu.
Það er þess vegna erfitt að henda
reiður á hvers vegna hann leggst
gegn söluturnum og vill skera þá
niður við trog að hluta til.
Tilgangurinn augljós
Ég trúi ekki öðru en að mat-
vörukaupmenn sjái tilgang Hjart-
ar Jónssonar með skrifum þessar-
ar greinar sem virðist augljós, það
er, að ala á óánægju þeirra sem
telja sig hafa farið halloka við
setningu hinnar nýju reglugerðar
um afgreiðslutíma verslana í
Reykjavík. Því miður létu þeir
kaupmenn ekki til sín heyra þegar
reglugerðin var til umfjöllunar í
félögunum og samtökunum á síð-
astliðnum vetri.
Ósæmileg ummæli
Ég er undrandi á ummælum
Hjartar um formann og aðra
forystumenn Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur í umræddri
grein. Enda þótt fulltrúar V.R. og
K.í. sitji sitt hvoru megin við
samningaborðið og oft sé mikill
meiningarmunur á afstöðu, tel ég
illkvittnisleg frýjunarorð Hjartar
í greininni um viðsemjendur
okkar, honum sem fyrrverandi
formanni K.Í., ósæmandi.
Lokaorð
Hjörtur Jónsson reynir ítrekað í
grein sinni að gera starfsemi og
raunar félagslega uppbyggingu
Kaupmannasamtaka íslands tor-
tryggilega. Lögum Kaupmanna-
samtakanna hefur þó ekki verið
breytt í grundvallaratriðum síðan
Hjörtur Jónsson var formaður
þeirra. Ég minnist þess ekki að
hann hafi gert tillögu um slíkar
breytingar í sinni formannstíð.
Gagnrýni sú sem hann hefur
uppi um stjórnun og félagslega
uppbyggingu K.í. er þess vegna
ekki marktæk. Hvaða kaupmaður
heldur Hjörtur Jónsson að trúi því
að sú starfsemi, sem fer fram hjá
K.Í., beinist að því að torvelda
kaupmönnum og rækja störf sín,
sem eru eins og hann tekur
réttilega fram í grein sinni, mik-
ilvæg og varða svo til hvern
einasta þegn þjóðfélagsins.
Ég skal alveg segja Hirti Jóns-
syni það að síðan að hann hætti
formennsku í K.í. hefur mikil
uppbygging átt sér stað, þannig að
nú standa Kaupmannasamtök ís-
lands betur undir nafni en var i
hans tið.
Innan vébanda K.í. starfa nú
fleiri kaupmenn og kaupmannafé-
lög, en nokkru sinni fyrr og það
hefur verið mér uppörvun og
ánægja, í langri formannstíð
minni, að finna áhuga kaupmanna
um land allt á velgengni samtaka
sinna. Sá strengur sem Hjörtur
Jónsson slær er í mikilli mótsögn
við eindrægni kaupmanna um hag
og velferð K.í. Hann hljómar þess
vegna illa í mínum eyrum — er
ramfalskur.
Einu sinni
var hægt að gista
á góðu hóteh í London
fyrír £12
ásólahring
Þaðerhægtennþá!
Þaö eru ótrúlega margir hlutir, sem
breytast alls ekki í London, þrátt fyrir
veröbólgu og gengisbreytingar.
APEX fargjaldiö til London meö
Flugleiðum kostar aðeins kr. 2.465.-
og þú getur valið um gistingu á fyrir-
taks hótelum, sem kosta £ 12.-
sterlingspundum á mann, sé miðaö
við tvo í herbergi.
London Penta er eitt þeirra, - frábært
hótel í miðju Knightsbridge verslun-
arhverfinu, spölkorn frá Harrodds og
Harvey Nicols verslunarhúsunum,
á stutt frá Hyde Park. Neðanjarðarlest-
in frá flugvellinum stansar rétt hjá og
heldur beint áfram niður í miðborg.
London International er annað.
Ágætt hótel á Cromwell Street í
Kensington. Stratford court er líka
gott, en aðeins dýrara, enda stendur
það við Oxford Street í hjarta
verslunar- og skemmtanahverfisins.
Eitt geturðu bókað. Gamla, góða
London breytist stöðugt með tíman-
um, en hún heldur samt áfram að
vera töfrandi borg, sem býður upp á
góð hótel á hagstæðu verði.
FLUGLEIÐIR
Traust totk hja gódu felagi