Morgunblaðið - 30.07.1981, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981
27
Reykhólaskip kaupir flutninga-
skip fyrir Þörungavinnsluna |
Þörungavinnslan á Reyk-
hólum hefur nú ákveðið að
ganga inn í hlutafélagið
Reykhólaskip og kaupa nýtt
flutningaskip í stað Karlseyj-
ar, sem Þörungavinnslan hef-
ur átt og notað til þessa. Á
tímabili stóð til að Þörunga-
vinnsian leigði Árvakur til
flutninga sinna en ekki varð
af því. Skipið er norskt,
smíðað í Austur-Þýzkalandi
og mun kosta um 4 milljónir
króna. Það er væntanlegt til
landsins um miðjan ágúst.
Að sögn Ólafs Vignis Sigurðs-
sonar, framkvæmdastjóra Reyk-
hólaskips h.f. var hlutafélagið
upphaflega stofnað af áhöfn
Karlseyjar og skipið leigt af Þör-
ungavinnslunni þegar það var ekki
i notkun hjá henni. Nú er ætlunin
að hlutafélagið reki skipið, það
verði notað í flutningum fyrir
Þörungavinnsiuna þá 4 mánuði á
ári, sem hún þarf á því að halda,
en til flutninga innan lands og
utan annan tíma ársins. Gkki er
Umhverfismálaráð:
Styður ekki andmæli við
íbúðabyggð í Laugardal
Á FUNDI umhverfismálaráðs
lögðu fulltrúar sjálfstæðismanna
fram eftirfarandi tillögu, sem
ekki hlaut stuðning:
„Með tilvísun til álits sam-
starfsnefndar umhverfismálaráðs,
íþróttaráðs og æskulýðsráðs, sem
lagt hefur verið fram í umhverf-
ismálaráði, þess efnis að þörf sé
fyrir Laugardalinn allan fyrir
íþrótta- og útivistariðkanir í
framtíðinni, svo og með tilliti til
áframhaldandi samþykkta í borg-
arráði um að setja niður íbúða-
byggð í dalinn, samþykkir um-
hverfismálaráð að skora á borgar-
stjórn að falla alfarið frá slíkum
hugmyndum um íbúðarbyggð í
Laugardal." Tillagan sem var frá
Elínu Pálmadóttur, Magnúsi L.
Sveinssyni og Sverri Sch. Thor-
steinsson fékk ekki önnur atkvæði
og því ekki stuðning.
Álfheiður Ingadóttir, Hjörleifur
Stefánsson og Ornólfur Thorlacius
lögðu fram eftirfarandi bókun:
„Með því að borgarráð hefur vísað
tillögu Ingimundar Sveinssonar
að Laugardalnum til skipulags-
nefndar að nýju, m.a. í þeim
tilgangi að dregið verði úr íbúðar-
byggð og svæði TBR afmarkað að
nýju, sér umhverfismálaráð ekki
ástæðu til að taka afstöðu til
tillögu I.Sv. sem slíkrar. Mun
ráðið bíða nýrra tillagna frá
skipulagi og taka þá afstöðu til
þeirra. Við sitjum því hjá við
atkvæðagreiðslu um tillögu full-
trúa sjálfstæðismanna."
Bílferjan Smyrill kom í 100. sinn til Seyðisfjarðar al. þriðjudag og var
skipstjóranum færð að gjöf að því tilcfni ljósmynd af Seyðisfjarðar-
höfn. Smyriil hefur flutt alls 23 þúsund farþega á þeim 7 árum, sem
hann heíur siglt milli íslands og Evrópu. Þetta var tiunda ferð
skipsins i sumar. Þorvaldur Jóhannsson, formaður hafnarnefndar,
afhenti Hansum Larsen myndina og var Jónas Ilallgrimsson,
bæjarstjóri, einnig viðstaddur. Ljósm. g.b.
Herjólfur með full-
f ermi tvisvar á dag
Vestmannaeyjaskipið Herjólf-
ur hefur nýlega tekið i notkun i
sölum skipsins myndsegulbönd
þar sem sýndar eru kvikmyndir
og þættir i ferðum skipsins
ókeypis fyrir farþega Herjólfs.
Myndir eru sýndar á tveimur
stöðum i skipinu, i borðsal og
farþegasal á efri þiljum. Ein til
tvær myndir eru sýndar á leið
skipsins i hverri ferð og að sögn
ólafs Runólfssonar
framkvæmdastjóra Herjólfs heí-
ur þessi nýbreytni mælzt mjög
vel fyrir.
Þá gat Ólafur þess að búið væri
að setja upp í Herjólfi til aukins
öryggis hinn nýja Sigmundsgálga
umfram öll önnur björgunartæki í
skipinu og eru tveir gálgar um
borð.
Miklar annir hafa verið hjá
Herjólfi í allt sumar og sem dæmi
má nefna að 27 daga júlímánaðar
er 20% aukning á farþegum miðað
við sama tíma í fyrra og 29%
aukning í bifreiðaflutningi. í
kringum þjóðhátíð Vestmanna-
eyja er mikið annríki í flutningum
og má segja að skipið sé fullt tvær
ferðir a dag.
Ólafur kvaðst vilja leggja sér-
staka áherzlu á það að öll neyzla
áfengis er stranglega bönnuð í
skipinu. Frá og með morgundegin-
um og fram yfir þjóðhátíð verða
þrír menn frá Hjálparsveit skáta í
Eyjum um borð í skipinu til gæzlu
og aðstoðar meðan mesta þjóðhá-
tíðarumferðin stendur yfir. ólafur
kvaðst vilja benda á að síðasta
ferð Herjólfs á föstudag er full-
skipuð en pláss er í ferðum á
undan.
enn ljóst hver örlög Karlseyjar-
innar verða, en líklegt er að hún
verði seld til niðurrifs þar sem
fyrir dyrum stendur viðamikil
klössun á skipinu eigi að nota það
til siglinga áfram.
Skipið, sem er væntanlegt til
landsins um miðjan ágúst, er
tæplega 50 metra langt, rúmlega
10 metra breitt, ristir 2,80 metra
og getur borið um 650 lestir.
Skipið er búið Mannheim vél og 20
lesta bómu. Skipstjóri verður
Guðmundur S. Jónsson, Guð-
mundur Þórðarson verður 1. stýri-
maður og Sigurvin Hannibalsson
verður 1. vélstjóri. Reykhólaskip
er skráð á Reykhólum og fram-
kvæmdastjóri er Ólafur Vignir
Sigurðsson.
Skipið, sem Reykhólaskip er að kaupa tii landsins.
JÍWSOQ
GOMLCJ GQÐU
BUXUKNAR!