Morgunblaðið - 30.07.1981, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.07.1981, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981 Minning: Ingþór J. Guðlaugs- son lögregluþjónn Þótt við dauðleg séum að jafn- aði alin upp við margháttaðar áminningar um að „innsigli öngvir fengu upp á lífsstunda bið“ kemur okkur jafnan á óvart þegar okkur berast sannanir þess að „dauðinn má svo með sanni / samlíkjast þykir mér / slyngum þeim sláttu- manni / er slær allt hvað fyrir er“. Þannig stöndum við vinir Ingþórs Guðlaugssonar orðvana við and- látsfregn hans. Og okkur hlýtur að verða fyrst að spyrja: Hver eru þau ógnar máttarvöld sem geta séð ástæöu til að láta sláttumann- inn mikla bera þar niður með ljá sinn bitran sem okkur sýndist vaxa „rósir vænar"? Hvar eru rök til þess að skilja þrjú stúlkubörn eftir föðurlaus, svifta ástvini burt frá eiginkonu — og það í blóma lífsins? Hvers eigum við að gjalda sem áttum okkur traustan vin og trygglyndan að hann skuli tekinn frá okkur? . Svörin hljóta að fara mjög eftir eðli og trú hvers og eins og hér verður ekki tæpt á neinu þeirra enda erindi þessarar greinar það eitt að þakka liðið. Ingþór Guðlaugsson fæddist í Vík í Mýrdal 9. október árið 1945, sonur hjónanna Maríu Guðmunds- dóttur og Guðlaugs Jónssonar í Vík. Hann stundaði nám við Iðn- skólann á Selfossi og lauk þaðan sveinsprófi í trésmíðum árið 1967. Hann hafði þá þegar stofnað heimili með eftirlifandi konu sinni, Kristjönu Sigmundsdóttur frá Reykjakoti í Ölfusi og gengu þau í hjónaband sama ár. Fyrstu árin áttu þau heimili í húsi Kirstjáns Hannessonar og Maríu Guðmundsdóttur á Selfossi en reistu sér brátt eigið hús að Vallholti 39. Ingþór vann ýmis störf, fyrst við trésmíðar en stundaði einnig vörubílaakstur og var til sjós þar til hann hóf störf í lögreglu Selfoss þar sem hann vann til dauðadags. Hann lést af völdum slyss sem varð er hann var að vinna við bílaviðgerðir. Ingþór var verklaginn maður að hverju sem hann gekk og alls staðar vann hann sér gott orð fyrir greiðvikni og hjálpsemi. Hann var að vísu fálátur, en eins og oft er um slíka menn trygg- lyndur með afbrigðum og einn t Maöurinn minn, faöir okkar og tengdafaðir, GÍSLI GUOMUNDSSON, skipstjóri frá Súgandafiröi, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaglnn 31. júlí kl. 13.30. Þorbjörg Friöbertsdóttir, Sesselja Gísladóttir, Viggó Vilbogason, Jóhannes Gíslason, Guörún Skúladóttir, Erla Kristjónsdóttir, Lilja Eiríksdóttir. t Hjartans þakkir til allra sem á einn eöa annan hétt velttu okkur ómetanlega aöstoö og sýndu okkur samúö og hlýhug við andlát og útför GEIRLAUGS KRISTJÁNS ÁRNASONAR deildarstjóra, Bláskógum 10, Reykjavík, og heiöraö hafa minningu hans. Guö blessi ykkur öll. Sveinbjörg H. Arnmundsdóttir, Inga Þóra Geirlaugsdóttir, Jón Dalbú Hróbjartsson, Kárí Geirlaugsson, Anna Jóhanna Guömundsdóttir, Höröur Geírlaugsson, Sigrún Gísladóttir, Þuríður Erna Geirlaugsd., Laufey Guöríöur Geirlaugsd., Geirlaug Björg Geirlaugsd. og barnabörnin. Viktoria Markúsdóttir og systkini hins látna. t Viö þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu við fráfall systur okkar, SIGRÚNAR ÖNNU MAGNÚSDÓTTUR, Sólgötu 1, ísafiröi. Kristín, Tómas, Arnþrúóur, Halldór, Ólafur, Jónas. t Hugheilar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug vlö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, HILDAR JÓNSDÓTTUR, fv. Ijósmóöur frá Þykkvabasjarklaustri. Sigríóur S. Sveinsdóttir, Signý Sveinsdóttir, Sigurður Sveinsson, Jón Sveinsson, Einar S.M. Sveinsson, Steinunn G. Sveinsdóttir, barnabörn og bi Karl Ó. Guömundsson, Margrát Einarsdóttir, Sigríöur Magnúsdóttir, Guörún Jónsdóttir, Ingveldur Óskarsdóttir, Siguróur Jónsson, rnabarnabörn. þeirra manna sem gera okkur kleift að skilja hvað átt er við í fornsögum með orðunum „drengur góður“. Þannig reyndist hann mér frá fyrstu kynnum og gott hafði ég hugsað til þess að flytja að Selfossi og eiga hann að til halds og trausts. Nú verða mörg hand- tökin erfiðari en þá hefðu orðið. Við atburð sem þennan verða öll orð marklaus; „sár harmur" kemst ekki nærri því að lýsa tilfinning- um okkar vina Ingþórs, að ekki sé talað um ekkju hans og dætur, foreldra og systkin, eða Mössu ömmu sem hann reyndist betur en besti sonur. Maður getur ekkert annað en þakkað fyrir samveruna og tekið undir með Sólarljóða- skáldinu: „Drottinn minn Kef þú daudum ró, hinum likn Hem Heimir Pálsson „Þeir sem guðirnir elska, deyja ungir." Mér hafði aldrei til hugar kom- ið, fyrr en ég heyrði andlátsfregn Ingþórs Guðlaugssonar þann 23. júlí sl., hversu nátengdur hann í raun og veru var mér og mínum. Ég hafði einfaldlega ekki hugs- að svo langt, að það kæmi í minn hlut að kveðja á þennan hátt. En Drottinn gaf og Drottinn tók, við þessu megum við víst öll búast, og sem betur fer vitum við slíkt ekki fyrir. Ingþór var okkur hugkær, eins og hvert af okkur, og það sýndi hann líka okkur öllum eins og best kom í ljós síðastliðið vor, en hverjum hefði þá dottið í hug að hann yrði næstur úr okkar fjöl- skyldu? Ég segi fjölskyldu vegna þess, að þegar Ingþór fæddist 9. okt. 1945, þá átti móðir hans við veikindi að stríða, og var þá ákveðið að við hjónin tækjum hann til okkar, þar til úr rættist. Ingþór var hjá okkur um nokk- urra mánaða skeið, og æ síðan hefur hann verið okkur hjartfólg- inn sem sonur, og gagnkvæmt var það frá hans hendi. Hann kom alltaf fram við okkur öll sem einn úr fjölskyldunni, og þó að honum auðnaðist ekki að vera við kveðju- athöfn eiginmanns míns, nú í vor, sem hann heitir að hálfu eftir, þá var söknuður okkar ekki síðri, að hann skyldi ekki geta komið. Honum var ætlað eins og sonun- um að bera til grafar, en það gerði Ingþór á vissan hátt samt, því að á sjúkrabíl frá Selfossi flutti hann kistu Þórðar til Víkur. í hugum okkar var Ingþór einn af fjölskyldunni. Hann var hýr og hjartahreinn, og nutum við þess oft gömlu hjónin þegar hann kom í heimsókn eða hringdi. I þessum fátæklegu orðum mín- um get ég ekki sagt allt, sem mig langar að segja, en hugsa því meira og við Kristjönu langar mig að segja, að hún er eftir sem áður ein af okkur. Hún átti mann, sem tókst að koma sér upp fallegu einbýlishúsi með fallegum garði. Það er líka góð minning. Ég sendi henni og dætrum mínar fyllstu samúðarkveðjur, svo og foreldrum Maríu og Guðlaugi, og óska þeim öllum blessunar Guðs. Ingibjörg Sigurðardóttir og fjöiskylda. í dag er til moldar borinn Ingþór Jóhann Guðlaugsson, lög- regluþjónn á Selfossi. Bilið er stutt milli feigðar og fjörs, það þekkjum við lögreglu- menn ýmsum betur. En þegar góður vinur og félagi er í burtu kallaður á svo sviplegan hátt í blóma lífsins, verður manni orða vant. Ingþór fæddist í Vík í Mýrdal hinn 9. október 1945, og var hann því 35 ára er hann lést hinn 23. júlí sl. af völdum slyss. Hann var yngstur fimm barna hjónanna Maríu Guðmundsdóttur og Guð- laugs Jónssonar. Vegna veikinda móður hans varð það að ráði að honum var kornungum komið í fóstur um nokkurt skeið til hjón- anna Ingibjargar Sigurðardóttur og Þórðar Stefánssonar í Vík, og bar hann nafn þeirra beggja. Hann bar mikinn kærleik til Jakobína Thoraren- sen - Minningarorð Fædd 25. janúar 1905. Dáin 23. júli 1981. Jakobína Thorarensen, föður- systir okkar, fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Thorarensen bæj- arfógetaskrifari og kona hans, Elín Elísabet Thorarensen. Hún gekk í Menntaskólann í Reykjavík og tók þaðan gagnfræðapróf. Síð- an hóf hún nám hjá Guðrúnu Benónýsdóttur, sem hafði skóla hér í borg, bæði í saumaskap, listsaumi og baldýringu. Hún varð svo hjartfólgin Guðrúnu, að hún tók hana alveg eins og dóttur sína og reyndist henni vel t alla staði og bjuggu þær saman meðan Guðrún lifði, en eftir lát Guðrúnar fluttist Jakobína aftur til móður sinnar og bjuggu þær saman upp frá því uns Elín lézt 1956. Jakobína varð þekkt fyrir sínar fögru baldýringar. Hún var talin ein fremsta konan hér á landi í því starfi. Þar fór saman hárnákvæm vandvirkni, afburða smekkleg vinna og listrænt yfirbragð. Hún var því afar eftirsótt með þetta starf og vann að því meðan kraftar entust. Listsaumur henn- ar prýðir margar konur hér í landinu. Þegar við systurnar fór- um fyrst að heimsækja frænku okkar, eftir að við fluttum til Reykjavíkur, þótti okkur gaman að skoða hinar ýmsu gerðir af upphlutsborðum, og hvað vinnan var fín og yfirborðið slétt og fallegt með þessum vandasama gullþræði, sem festur var niður með tvinna sitt hvoru megin, því ekki mátti draga hann í gegnum efnið. Og hinar margvíslegu teikn- ingar á pergamentspappír, hvað okkur þótti gaman að skoða þetta og athuga, hvort ekki hefðu nú nýjar teikningar bætzt við síðan síðast. Listsaumur og baldýring reyna mjög á augun, þegar um svo hárnákvæma vinnu er að ræða, en samt gat Bína frænka lesið gler- augnalaust allt til hins síðasta og hafði góða heyrn. Hún var mjög elsk að börnum og oft vorum við að leik í stóra garðinum að Baldursgötu 32 með hópi af krökk- um og frænda okkar Lárusi. Og ekki var nú amalegt að koma inn og fá að drekka hjá ömmu eftir öll hlaupin. Um tíma dvaldist Jakobína í Kaupmannahöfn og hafði þar nokkra dvöl og naut þar verunnar í ríkum mæli. Meðan hún var ung og hraust hafði hún mjög gaman af leikfimi. Áhugamál hennar voru andleg mál, músik og skáld- skapur, og sjálf gat hún gert vísur. Eftir lát móður sinnar einangr- aðist hún meir frá umheiminum, foreldra sinna og fósturforeldra og ég heyrði hann oft minnast þeirra með sérstakri virðingu. Þegar fóstri hans var jarðsettur sl. vor vildi svo til að Ingþór veiktist og lá rúmfastur, og harm- aði hann mjög að geta ekki verið þar viðstaddur. Árið 1967 steig hann heillaspor, er hann gekk að eiga heitmey sína, Kristjönu Sigmundsdóttur úr Hveragerði. Þau eignuðust þrjár dætur, Margréti sem er 14 ára, íris 9 ára og Evu Maríu 6 ára. Þau hjónin voru samhent og dugleg og eignuðust glæsilegt heimili í húsi sem þau byggðu að Vallholti 39. Ég kynntist Ingþóri fljótlega eftir að við fluttumst að Selfossi um svipað leyti árið 1963. Hann kom frá æskustöðvum sínum í Vík til að læra trésmíði hjá Kaupfé- lagi Árnesinga. Hann lauk iðn- skólaprófi árið 1967 og vann síðan við smíðar hér á Selfossi þar til hann gerðist lögreglumaður í Ár- nessýslu í ársbyrjun 1973. Það féll í minn hlut að leiða hann fyrstu sporin í vandasömu starfi lögreglumannsins. Síðan höfum við ætíð verið saman á vakt, þótt breytingar hafi orðið í lögregluliðinu á ýmsan hátt. Ég á því margar og kærar minningar um hann sem vin og félaga í blíðu og stríðu, og held ég að þar hafi aldrei fallið skuggi á. Hann var farsæll lögreglumaður og ætíð reiðubúinn að gera hverjum manni greiða. Sem betur fer er mikið af starfi okkar lögregiu- manna aðstoð við borgarana í einhverri mynd, þótt oft verði að hefta gjörðir þeirra. Það fór ekki á milli mála að Ingþóri féll betur aðstoðar- og líknarstarfið. En það var gott að hafa hann sér við hlið er til harðari aðgerða dró. Það er tæpast að maður trúi því að hann Ingþór eigi ekki eftir að mæta á vaktina sína eins og vanalega. Rólegur kom hann, al- varlegur en hlýr. Myndarlegur maður, handlaginn og traustur. En Ingþór átti sínar unaðs- stundir í faðmi samhentrar fjöl- skyldu. Um það vitna húsið þeirra og garðurinn blómlegi. Hann var sjaldan aðgerðarlaus. Hann var mjög góður iðnaðarmaður og eft- irsóttur til smíðastarfa í frítíma frá lögreglustarfinu. Hann var fjölhæfur og lagtækur við hvert það verk, er hann tók sér fyrir hendur, enda var hann að vinna við viðgerð á bíl er kallið kom. Þá hafði hann hrifist af fluginu, nýlega búinn að taka flugpróf og eignast hlut í flugvél. Og sem félagi í Flugklúbbi Selfoss átti en hún var lítið fyrir að fara á mannamót, og bar nú meira á þessu eftir því sem árin liðu. Nú bjó hún ein en hafði góða heilsu þar til seinni árin, en þó sá hún alltaf um sig sjálf til þess síðasta, að heilsa hennar bilaði snögglega og lézt hún á Landspítalanum 23. júlí sl. Við, ættingjar hennar, þökkum starfsfólki á 3D Landspít- alans alla umönnun og hjúkrun þann tíma, sem hún dvaldi þar, svo og góðum nágrönnum. Frænku okkar þökkum við allt, sem hún gjörði okkur gott, fyrir allar gjafirnar meðan við vorum litlir óvitar og fyrir alla hennar umhyggju fyrir okkur. Guð blessi Jakobínu og varð- veiti. Elin og Hildur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.