Morgunblaðið - 30.07.1981, Page 45

Morgunblaðið - 30.07.1981, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ1981 45 Hugleiðing um peningamál og islenzka þjóðfélagið: „Minn friður er á flótta“ Árni Helgason skrifar: Hvernig á að stjórna þessu blessaða þjóðfélagi, sagði vinur minn einn við mig. Er það bar'- hægt? Það má ekkert hækka cg þó verður allt að hækka bara eftir því hver á í hlut. Stjórnin er skömmuð fyrir að leyfa hækk- anir á þessu og þessu og líka skömmuð fyrir að leyfa ekki hækkanir. Svo koma þrýstihóp- arnir. Félagasamtök með álykt- anir. Hækkun leyfð þá er hróp- að. Þarna sjáið þið. Allt hækkar. Þetta er meiri ríkisstjórnin. Svo ætlar ríkisstjórnin að sporna við hækkunum næst. Annar tónn. Enginn rekstrargrundvöllur, tap og allt að fara á hausinn. Svo byrja kauphækkunarkröfur. Vottorð frá félagasamtökunum eins og skæðadrífa. Jafnvel þeir hæstlaunuðu veina og koma með samanburð við fátæka fólkið, allt í prósentvís, en tölur eru góðar til allra hluta og með þeim má gera svo margt. Enginn fær nóg. Friðarvinafélagið jafnvel vaknar úr dvala og samþykkir vítur á stjórnina með því að greiða ekki háskólaborgurunum meira. Og allt er notað í neyð- inni til að fá meiri peninga út úr þjóðfélaginu. Þá koma launþeg- arnir, þeir lægst launuðu sýna fórnarlund og gefa eftir. Þá er hrópað um samningana í gildi. Og þarna er tækifæri fyrir aðra að koma inn í dæmið og ná þessu sem hinir hafa gefið eftir. Svo þarf varan að hækka. Þjónustan þarf að hækka. Stjórnarvöldin spyrna við. Þá bara grenjað hærra. Það er ekki hægt að gera út. Fiskverðið verður að hækka, segja sjómenn og útgerðarmenn. Nei, það þarf að lækka segja þeir, sem verka fiskinn. Árni Helgason. Og svo komu skattarnir. Margir sjómenn telja ekki borga sig að vinna nema hluta ársins á sjónum, kaupið fari allt í skatta og þarf ekki sjómenn til. Fisk- vinnslan á hvolf og svo ber togaraútgerðin sig ekki, vantar 20% til eða meira allt eftir því hvaða tökur eru notaðar, en þó vilja allir fá togara þeir hafa sjálfsagt ægilega gaman af að reka með tapi. Fleiri skip inn í landið, er eitt kjörorðið. Og þó er alltaf verið að binda skipin við bryggjur því afli sem veiða má er takmarkaður. Svo er sagt. Atvinnuleysi yfirvofandi, og svo er líka sagt alltof lengi og alltof mikið unnið. Talað um þrældóm þrátt fyrir alla véltækni. I opinberum rekstri er alltaf heimtað að bætt sé við starfs- mönnum. Það kemst enginn yfir þetta sem er að gera. Allir á spani og erfitt samt að hitta menn á venjulegum tíma að máli, allir á fundi, eða ekki á fundi og blekiðjubáknið eykst og ráðuneytunum hlýtur að fjölga. Opinberir starfsmenn orðnir fleiri en iðnaðarmenn, bændur og sjómenn allt til samans og vantar ennþá fleiri. Kaup verður að hækka jafnvel fóstrur, sem þekktust ekki þegar ég var barn vilja hækkun, heim- ilin taka undir því venjuleg húsmóðir í dag hefir engan tíma til að ala upp börnin, og svo verður að semja því ekki geta mæðurnar komið með börnin grenjandi í vinnuna. í dag verða að vera allt í allt 4—5 lögreglu- menn í friðsömu plássi. Minn friður er á flótta. Eng- inn má vera að því að líta inn til nábúans. Fyrirtækin tapa og vilja koma tapinu yfir á ríkið, jafnvel Sambandið getur ekki rekið skóverslun og svo þarf það að koma upp stórmarkaði til að tapa ennþá meiru. Og svona er þessi hringavit- leysa að hún er ekki einu sinni tölvutæk og maður spyr mann: Hvar endar þetta? Árni Helgason. Gúanorokk — skallapopp: Nei, ekki skallapoppið strákar Kæri Velvakandi. Ég vil hér í upphafi taka fram að ég er ekki neinn sérstakur aðdáandi Bubba eða þeirra Utangarðsmanna. Uppáhalds- hljómsveitin mín er Þursaflokk- urinn en samt er ég ferlega ánægður yfir hvað Bubbi og Utangarðsmenn eru búnir að gera mikið gott fyrir poppmús- íkina hér á Islandi — alveg burtséð frá því hvað mér finnst um gúanórokkið þeirra. Útaf þessu stend ég alveg hiklaust með Utangarðs- mönnum þegar verið er að skammast út í þá af gömlum skallapoppurum — eins og þeg- ar Brimkló segir í viðtalinu: „Nú er það skallapoppið strákar" í síðasta helgarblaði Tímans, að núorðið gæfu allir skít í Utan- garðsmenn þó þeim hafi verið hampað í byrjun. Ferlega hljóta þeir í Brimkló að vera afbrýðisamir og spældir út í Utangarðsmenn — því eins og allir vita eru Utangarðsmenn langvinsælasta hljómsveitin á íslandi og þeir hafa aldrei verið vinsælli en einmitt núna. Og þó að menn eins og til dæmis ég séu ekkert ægilega spenntir fyrir gúanórokki þá er gúanó- rokkið a.m.k. hundrað sinnum skárra en skallapoppið. Þess vegna hafa þeir í Brimkló engin efni á að rífa sig út í Utan- garðsmenn. Haraldur Sigurðsson myndsegulband Leiga Leigjum út SHARP myndsegulbönd ásamt tökuvélum HVERFISGOTU 103 SIMI 25725 SUMARBUXUR .... úr léttum bómullarefnum (canvas). Ljósir og dökkir litir. Belti í stíl. BANKASTRÆTI 7 • AÐALSTRÆTI4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.