Morgunblaðið - 12.09.1981, Qupperneq 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
202. tbl. 68. árg.
LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sovéskir fallhlífahermenn við skotæfingar í norðvesturhluta Sovétríkjanna
Sovéskt landgöngulið gengur
á land norðan við Pólland
Kaupmannahofn. Varsjá. Moskvu. 11. september. AP.
SOVESKT landKöngulið gekk á land í Sovétríkjunum norðan við
pólsku borgina Gdansk i dag en heræfingarnar gengu ekki alveg eins
og til var ætlast vegna slæmra veðurskilyrða. 70 til 80 herskip tóku
þátt i æfingunum, þar á meðal beitiskip, tundurspillar, flugmóðurskip
og tundurduflaslæðarar. Ekki var tilgreint hversu marga landgöngu-
liða var um að ræða en eitt skipanna, landgönguliðaskipið Ivan
Rogov, getur flutt um 800 manns auk hergagna.
Erkiklerkur
ferst í íran
Beirút. 11. september. AP.
HANDSPRENGJA sem hermd-
arverkamaður hafði bundna
við úlnliðinn sprakk í mikilli
mannþröng, sem var komin
saman á aðaltorgi borgarinnar
Tabriz í Norðvestur-Iran til
bænahalds í dag. Einn af helstu
kierkum írönsku stjórnarinn-
ar, Assadollah Madani erki-
klerkur, lést af völdum
sprengjunnar. Ilermdarverka-
maðurinn lést samstundis.
Sex aðrir létust og 12 slösuðust.
Pars-fréttastofan sagði að Madani
hefði látist á sjúkrahúsi þegar
verið var að gera að sárum hans.
Khomeini erkiklerkur kallaði
Madani „píslarvott islömsku bylt-
ingarinnar" og skipaði Meshkini
erkiklerk í bænastarf Madanis í
Tabriz.
Borgarstjóri Tabriz bað borgar-
búa að sýna stillingu og sagði að
jarðarför Madanis færi fram í
Tabriz á laugardag.
Veiðarnar
við Jan Mayen
ólöglegar
Frá íróttaritara Mbl. í Osló,
II. soptrmhrr.
NORSKA sjávarútvegsráðu-
neytið svaraði í kvöld fyrir-
spurn íslensku ríkisstjórnar-
innar um veiðar Dana og
Færeyinga á hafsvæðinu í
kringum Jan Mayen. Ráðu-
neytið endurtekur að veiðarn-
ar séu ólöglegar og bendir á að
Norðmenn hafi reynt að koma
í veg fyrir veiðarnar með
mótmælaaðgerðum.
Krúsjeffs
ekki minnst
Moskvu. 11. september. AP.
TÍU ár voru liðin á föstudag síðan
Nikita Krúsjeff, valdamesti mað-
ur Sovétríkjanna 1953 til 1964,
lést. Ekki var minnst einu orði á
Krúsjeff eða valdaferil hans í
sovéskum blöðum þann dag.
Grafreitur hans í Novidevichy-
kirkjugarðinum var lokaður al-
menningi.
Skipin lönduðu nærri Baltiysk
sem er yst á tanga sem liggur í
vestur frá Sovétríkjunum inn í
Danzigflóann.
Borgin Danzig er
nú nefnd Gdansk en Samstaða,
samtök óháðra verkalýðsfélaga í
Póllandi, var stofnuð þar fyrir ári
síðan. Fyrsta landsþingi Samstöðu
lauk í borginni á fimmtudag.
Marian Jurczyk, leiðtogi Szcze-
cin-deildar Samstöðu, lét í það
skína í dag að Samstaða væri
tilbúin að „tilnefna fulltrúa í
ríkisstjórn". Hann sagði í viðtali
við fréttablað samtakanna að þau
hefðu ekki haft „réttu fólki" á að
skipa í marsmánuði þegar alls-
herjarverkföllum var hótað. Hann
sagðist álíta að það fólk væri nú
innan samtakanna.
Opinberir fjölmiðlar í Póllandi
brugðust illa við yfirlýsingum sem
komu frá landsþingi Samstöðu í
dag. Morgunblaðið Zycie Warsz-
awy lýsti undrun yfir baráttu-
kveðju Samstöðu til annarra
„frjálsra" verkalýðshreyfinga í
öðrum austantjaldslöndum. „Við
teljum að við eigum að leysa okkar
vandamál sjálf," sagði í blaðinu.
„En það þýðir að við megum ekki
og ættum ekki að skipta okkur af
málum annarra þjóða."
Andrzej Gwiazda, varaleiðtogi
Samstöðu, sagði að baráttukveðj-
an hefði verið umdeild á þinginu.
„Við sjáum hver viðbrögðin
verða," sagði hann. „Þetta er
kveðja sem kom beint frá hjart-
anu og höfuðið hafði ekkert með
að gera.“
Gagnrýni á hendur Samstöðu
jókst enn í Sovétríkjunum í dag.
Fréttastofan Tass sendi frá sér
þrjár fréttir sem allar sýndu ljóst
óánægju Kremlverja með baráttu-
kveðju Samstöðu til íbúa annarra
landa Austur-Evrópu.
Kekkonen í
veikindafrí
llelsinki. 11. september. AP.
UIIRO Kekkonen. forseti Finn-
lands sem er 81 árs, mun taka
sér fri frá störfum í einn mánuð
vegna veikinda, sagði í frétta-
tilkynningu frá forsetaembætti
Finnlands i dag. Ekki var
greint frá hvað amar að forset-
anum.
Mauno Koivisto, forsætisráð-
herra, mun gegna embætti for-
seta til 10. október. Koivisto
þurfti af þeim sökum að fresta
opinberri heimsókn til Austur-
ríkis sem átti að hefjast á
mánudag.
Þetta er í fyrsta sinn sem
Kekkonen tekur sér veikindafrí
síðan hann tók við embætti 1956.
TUC hótar að lama
brezkt efnahagslíf
BlarkptNil. 11. septcmber. AP.
ÞING brezku verkalýðshreyfingarinnar. TUC, hafði í dag í hótunum
við stjórn Margrétar Thatchers. Ef stjórnvöld hætta ekki við
fyrirhugaðar sölur á ríkisiðníyrirtækjum. þá „lamast brezkt efna-
hagslíf". Þá samþykkti þingið að fela framkvæmdaráði TUC að leggja
drög að heildaráætlun um andstöðu við rikisstjórn Thatchers, þar með
talin verkföll. Samþykkt þessi fékk yfirgnæfandi meirirhluta atkvæða
á siðasta degi þingsins.
Sid Weighall, leiðtogi járn-
brautarstarfsmanna, sagði að fé-
lag sitt væri reiðubúið ásamt
félögum kolanámumanna og stál-
iðnaðarmanna að láta sverfa til
stáls gegn áætlunum Thatchers
um sölu ríkisfyrirtækja. „Ef ein-
hver efast um að við getum ekki
lamað brezkt þjóðlíf, þá hann um
það,“ sagði Weighall. Þing TUC
lýsti yfir fullum stuðningi við
hugsanlegar aðgerðir samband-
anna þriggja.
Stjórn Margrétar Thatchers
hefur á frjálsum markaði selt
hlutabréf í ríkisfyrirtækjum og
hyggst m.a. selja hótel brezku
járnbrautanna og ferjufyrirtæki í
eigu ríkisins.
Þeir Tony Benn, Denis Healey
og John Silkin, sem berjast um
varaformannsembætti Verka-
mannaflokksins á, næsta þingi
hans, mættu á þing TUC í Black-
pool til að afla stuðnings. Ken
Thomas, leiðtogi opinberra starfs-
manna, lýsti vanþóknun sinni á
komu þremenninganna. „Ég vona
að í framtíðinni verði TUC-þing
ekki vígvöllur manna, sem eiga í
valdabaráttu í Verkamanna-
flokknum,“ sagði Thomas.