Morgunblaðið - 12.09.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.09.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981 3 Karf aveiðar gætu orðið óarðbærar um langt árabil - Verði ekki dregið úr sókninni í karfastofn- inn, segir Jakob Magnússon fiskifræðingur „VIÐ HÖFUM áhyKKjur af því að sóknin í karfastofninn sé allt of mikil. og þessi mikla veiði getur hæKlega orðið til þess að gera karfaveiðar með öllu óarðbærar um langan tíma,“ sagði Jakob Magnússon fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnuninni í samtali við Morgunblaðið í gær, er hann var inntur eftir áliti fiskifræðinga á veiðiþoli karfastofnsins i Norður-Atlantshafi. En sem kunnugt er hafa íslensk fiskiskip sífellt farið meira og meira á karfaveiðar síðari ár, vegna takmarkana á þorskveiðum. Til að beina fiskiskipaflotanum á karfaveiðar er meðal annars greidd 25% verðuppbót á karfaafla hérlendis. Jakob Magnússon fiskifræðing- ur sagði í gær, að veitt væri mun meira af karfa en fiskifræðingar hefðu lagt til. Sem dæmi um það sagði hann, að Alþjóða hafrann- sóknastofnunin hefði lagt til að á árinu 1980 yrðu veidd um 70 þúsund tonn af karfa við ísland, Austur-Grænland og Færeyjar. Reyndin varð þó sú, aö alls voru veidd 114 þúsund tonn. Þar af voru veidd 68J)úsund tonn af Islending- um við Island, og auk þess komu útlendingar hér við sögu, þannig að við Island voru dregin úr sjó um 71 þúsund tonn af karfa. Fyrir árið 1980 höfðu íslenskir fiski- fræðingar á hinn bóginn lagt til að við ísland yrðu aðeins veidd 50 til 60 þúsund tonn. I ár sagði Jakob að lagt hefði verið til að veidd yrðu 65 þúsund tonn af karfa við ísland, en ljóst væri að aflamagn færi langt fram úr þeirri tölu. Þegar í lok júlí hefði verið búið að veiða um 60 þúsund tonn, og ef aðeins væri miðað við árið í fyrra, þegar um 40 þúsund tonn höfðu veiðst í lok júlí, yrði aflinn 80 til 90 þúsund tonn í ár, og ekki ósennilegt að sú tala hækki talsvert. í ár hefðu fiski- fræðingar lagt til að aflinn á öllu svæðinu, það er við ísland, Fær- eyjar og Austur-Grænland, yrði 85 þúsund tonn, en útlit væri sem sagt fyrir að íslendingar einir veiddu það magn. Að sögn Jakobs er ekki ástæða til að vera með neinar hrakspár um karfastofninn, og varla væri hætta á að stofninn hryndi, eins og gæti gerst með uppsjávarfiska. Hömlur á þorskveiðum hefðu það hins vegar í för með sér að sóknin í karfann væri meiri en góðu hófi gegnd'. og yrði í því sambandi að hafa í huga, að karfinn væri fyrst kominn í veiði 12 til 13 ára gamall, og kynþroska yrði hann fyrst 14 til 16 ára. Langan tíma tæki því fyrir stofninn að jafna sig á ný af ofveiði. Þótt ekki væri talin hætta á útrýmingu stofnsins, væri á hinn bóginn sú hætta fyrir hendi að ofveiði gerði karfaveiðar með öllu óarðbærar um langt árabil. Sannleikurinn væri sá, sagði Jak- ob, að of mikið hefði verið veitt af karfa síðastliðinn hálfan annan áratug, og fiskifræðingar hefðu áhyggjur af þróuninni. Sagði hann fiskifræðinga hafa kynnt stjórn- völdum þessi mál, en ekki hefði verið tekið tillit til þeirra. „Við höfum bent á þessa hættu," sagði Jakob Magnússon fiskifræðingur að lokum, „og einnig það, að hættan er enn meiri vegna þess að við vitum ekki hvað aðrir munu veiða á þessu hafsvæði. Við verð- um að gæta okkar í þessu efni, eigi ekki illa að fara, en það gerir það með sama áframhaldi." Mynd eftir Asgrím slegin á 30.000- - á listmunauppboði á Hótel Sögu í fyrrakvöld VATNSLITAMYND eítir Ásgrím Jónsson, sem heitir Or Vatnagörðum var í fyrrakvöld slegin á 30.000- krónur á listmunauppboði, sem haldið var að Hótel Sögu, en uppboðs- haldari var Kagnar Borg. Að sögn Guðmundar Axelssonar sem stóð að upp- boðinu var þetta langdýrasta myndin á uppboðinu, sem ann- ars var fremur dræmt. Lit- hographía eftir Salvador Dali var slegin á 5.000- krónur. Vatnslitamyndin Hlöðutún frá árinu 1920 eftir Snorra Arin- bjarnar fór á 16.000.- krónur. Svartkrítarmynd eftir Guð- mund Thorsteinsson eða Mugg var slegin á 9.000.-, heitir verkið Tveir trúðar. Mynd- verkið Herðubreið frá 1942 eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal fór einnig á 9.000.-. Hér er um að ræða verk, sem unnið er á olíu og striga. Lítil mynd eftir Jóhannes Kjarval, sem er blýantsteikning og heitir Skip fór á 8.500.-. Mynd- in er frá 1906. Önnur mynd eftir Kjarval sem heitir Frá Seyðisfirði og er vatnslita- mynd fór á 6.500.-. Mynd eftir Kára Eiríksson, sem unnin er á olíu og striga, frá 1974, og heitir Litur lífsins fór á 7.000.-. Á uppboðinu voru seld- ar 8 myndir eftir Pétur Frið- rik og fóru þær á frá 1.700.- 7.000.-. Sú sem var dýrust heitir Hrafnabjörg og er mál- uð á olíu og striga. Rauðkrít- armynd eftir Alfreð Flóka, sem heitir Kona, fór á 6.000.-. Vatnslitamynd eftir Eirík Smith, sem heitir Hrafna- björg, fór á 2.600.-. Stuggað við fuglum á Reykjavikurflugvelli. Fuglarnir hefja slökkviliðsmanna, sem sjást neðarlega og til hægri á myndinni. Ljósm. Mhl. Kristján. sig til flugs eftir púðurskot Stuggaö við mglum á Reykjavíkurflugvelli FUGLAR eru oft til vandræða við flugvelli. því það getur haft alvarlegar afleiðingar ef þeir verða fyrir flugvélum i flugtaki eða lendingu. eða ef þeir sogast inn í hreyfla. Af þessum sökum verður oft að stugga við fuglum á flugbrautum eða i grennd þeirra. Morgunblaðsmenn fylgdust með í gær er slökkviliðsmenn af Reykjavíkurflugvelli voru að stugga við gríðarmiklu fuglageri er sat á norðurenda flugbrautar 02, er liggur frá suðri til norðurs. Hundruð fugla sátu á brautar- endanum og kipptu þeir sér vart upp þótt kennsluflugvélar væru í lendingaræfingum, en hætta var alltaf fyrir hendi að þeir færu af stað og flygju í veg fyrir flugvél- ar sem færu um völlinn. Slökkviliðsmenn óku að fugla- gerinu, og hleyptu af púðurskoti. Lyfti fuglagerið sér af brautinni, fór þó ekki langt, settist að vörmu spori innar á brautinni. Var annaö púðurskot látið dynja og dugði það, í bili a.m.k., því fuglarnir tvístruðust í ýmsar áttir. „Það gerist oft að við þurfum að hafa afskipti af fuglum á flugbrautunum. Þeir eru til mik- illa vandræða og stórhættulegir allri flugumferð. Það kemur fyrir á ári hverju að þeir fljúga á fbigvélar einkum í myrkri og fara í hreyflana. Það getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Það er mjög mikið um að fuglar setjist á brautarendana, hvers vegna vitum við ekki, en þetta vandamál hefur verið við- loðandi í áratugi, og er ástandið hvorki betra né verra nú,“ sagði talsmaður slökkviliðsins á Reykjavíkurflugvelli. Hann sagði, að slökkviliðs- menn beittu öllum ráðum til að stugga við fuglunum, m.a. væru notaðar ýmiss konar vælur, en púðurskotin reyndust einna bezt. Skothvellurinn fældi fuglana helzt. ||Wf Ljóvsm. Mbl. Kristján. Fuglager hefur sig til flugs af einni flugbraut Reykjavikurflugvallar. Hér er aðeins hluti fuglanna. sem sátu á brautarendanum í þetta skiptið. ísafjörður: Óvenjulangur harðindakafli ísafirði. 11. september. ÓVENJULANGUR harðindakafli hefur gengið yfir Vestfirðinga þessa viku. Engar flugsamgöngur voru á sunnudegi til föstudags. Engin dagblöð og enginn póstur nema hvað lítilsháttar bögglapóst- ur kom með m/s Vela í gær, fimmtudag. Veðrabrigðin voru mjög snögg Síðan hefur verið stöðugur storm- hér á ísafirði. Isfirskir knatt- spyrnumenn innsigluðu inngöngu sína í fyrstu deild með sigri yfir Haukum í síðasta heimaleik sín- um í sumar í ágætisveðri sl. laugardag. En klukkustund síðar var komið norðaustan hvassviðri með mikilli úrkomu, slyddu í byggð og snjókomu til fjalla. ur og slagviðri. Landmenn á línubátunum Orra og Víkingi III beittu fyrstu setn- inguna sl. mánudag en þær lóðir hafa enn ekki komist í sjó. Þorskafjarðarheiði lokaðist en var opnuð aftur á föstudag. Breið- dalsheiði lokaðist einnig, en í gær var bílalest úr Reykjavík hjálpað yfir heiðina sem lokaðist strax aftur. í dag, föstudag, er verið að opna heiðina á ný. Vegurinn um Súðavíkurhlíð tepptist vegna aurskriðna og sömu sögu er að segja um veginn um Óshlíð, en báðar leiðirnar voru opnaðar aftur í dag, föstudag. Djúpbáturinn Fagranes hafði auglýst berjaferð í Veiðileysufjörð sl. sunnudag, en nóttina áður snjóaði þar svo ekkert varð af ferðinni. Ekki er vitað um skemmdir á mannvirkjum svo teljandi séu, þó hefur einhvers staðar komist vatn í kjallara húsa. Vatn komst í símastrenginn inn á flugvöll og hefur verið símasambandslaust við flugvöllinn í allan dag. Síma- þjónusta Flugleiða við farþega hefur farið fram um bráðabirgða- síma á símstöðinni á Isafirði. í dag er áætlað að fljúga fjórar ferðir milli Isafjarðar og Reykja- víkur og verður þá væntanlega fluttir um 350 farþegar. Allur póstur og öll blöð hafa verið flutt hingað, þegar þetta er skrifað, en von er á síðustu flugvélinnni um kvöldmatarleytið. Úlfar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.