Morgunblaðið - 12.09.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
27
íslendingar vestanhafs
mótmæla flugvallarskatti
- Undirskriftir 2.242 manna hafa bor-
izt formanni fjárhagsnefndar Alþingis
MIKIL óána'Kja ríkir nú meðal
Islendinga o»í islenzkættaAs íólks
í Bandaríkjunum og Kanada
venna hækkana á fluKvallar-
skatti ok hófðu Ilalldóri Ás-
Krímssyni, formanni fjárhajfs-
nefndar Alþinjfis, borizt mótmæli
2.242 manna, sem i þessum lönd-
um búa, áður en síðasta hækkun
skattsins tók gildi.
Að sögn Þorsteins Þorsteinsson-
ar, fulltrúa íslendinga í Norður-
Ameríku, hefur undirskriftasöfn-
un farið friðsamlega fram og verið
fullkomlega ópólitísk, enda hai
undirtektir verið góðar. Var ha:
samband við alla Islendinga, sei
til náðist, en vafalaust eru en
margir, sem ekki hefur náðst ti
en hafa áhuga á þessu máli, og a
sögn Þorsteins þykja mönnum þs
vestra það einkennileg viðbrög
hjá ríkisstjórninni að hækk
skattinn þrátt fyrir þessi mó1
mæli. Með því sé verið að leggj
stein í götu þeirra, sem áhug
hafa á því að koma hingað t
lands.
Strokufanginn kominn
á bak við lás og slá
„Vil ekki þurfa að setja mál-
verkin mín niður í kjallara44
- segir Helga Weisshappel Foster, sem nú
heldur málverkasýningu í Hamragörðum
Rækjumið-
in könnuð
- Likur á þvi að
Axarfjörður verði
friðaður
KRYSTYNA Cortes hcfur nú
verið ráðin stjórnandi kórsins.
Ilún er fædd í Englandi og cr af
ensk-pólskum ættum. Um tíu ára
skeið stundaði hún nám við Wat-
ford School of Music með John
Merlow sem aðalkennara. Eftir
að hafa unnið til námsstyrks við
Konunglegu akadcmíuna i Lon-
don stundaði hún þar nám hjá
Max Pirani og lauk þaðan
einleikaraprófi með hæsta vitnis-
hurði.
Undirleikari kórsins í vetur
verður Tom Gligoroff, Banda-
ríkjamaður, sem nam tónmenntir
við Michigan-háskóla. Vestanhafs
starfaði hann við New York City
Opera og San Francisco Opera.
Síðar vann hann um skeið með
Benjamin Britten og einnig við‘
The English National Opera.
Félagar í Söngsveitinni Fíl-
harmóníu eru um 120 en flest
hefur verið í kórnum 160 manns.
Alltaf er vöntun á nýjum kórfé-
lögum og vantar sérstaklega kór-
félaga í karlaraddir núna, eins og
oft vill verða. Stjórn Söngsveitar-
innar Fílharmóníu skipa: Valde-
mar Pálsson, formaður, Jóhanna
Ögmundsdóttir, gjaldkeri, Anna
María Þórisdóttir, ritari, og Elín
Möller, meðstjórnandi.
Söngsveitin Fílharmónía hefur
22. starfsár sitt hinn 16. sept. nk.
Verða verkefni Söngsveitarinnar
þrjú í vetur. Óperan „Aida“ eftir
G. Verdi, verður flutt á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands 18.
febrúar 1982. Á tónleikum þann
20. maí nk. verða síðan flutt tvö
verk, „Te Deum“ eftir A. Bruckner
og Messa í c-dúr eftir L. van
Beethoven. Stjórnandi á tónleik-
um verður Jean-Pierre Jacquillat.
„Aida“ er ein mesta ópera Verd-
is og jafnframt ein sú vinsælasta.
Hún var samin í tilefni opnunar
Suezskurðarins árið 1871 og frum-
flutt á Teatro alla Scala í Milano
1872. „Aida“ hefur ekki áður verið
flutt á íslandi. Beethoven samdi
Messu í c-dúr 1807 og var hún
frumflutt að Esterhaz sama ár.
Söngsveitin Fílharmónía hefur
áður flutt verkið — árið 1975
undir stjórn Karsten Andersen.
„Te Deum“ er vinsælasta andleg
tónsmíð Bruckners. Verkið var
samið árið 1883. Árið 1972 flutti
Söngsveitin verkið, þá undir
stjórn dr. Róberts A. Ottóssonar.
Söngsveitin Fílharmónía var
stofnuð í apríl 1959 af nokkrum
áhugamönnum um kórsöng. Var
dr. Róbert A. Ottósson ráðinn
stjórnandi, kom Söngsveitin fyrst
fram með Þjóðleikhússkórnum og
söng verkið Carmina Búrana eftir
C. Orff. Eftir fráfall dr. Róberts
hafði kórinn ýmsa stjórnendur,
m.a. stjórnaði Martein Hunger
Friðriksson honum um nokkurt
skeið.
Krystyna Cortes,
Söngsveitarinnar.
stjórnandi
Leiðrétting
í tilkynningu um útvarpssöng
Önnu Þórhallsdóttur þ. 10. sept. sl.
var einnig sagt frá starfi hennar í
þágu fatlaðra. Skýrt var frá þvi að
hún væri upphafsmaður að skipu-
lögðu hjálparstarfi fyrir lamaða
og fatlaða á íslandi . Misritast
hafði: á ísafirði
„Málaralistin er eins og sjúk-
dómur, sem ekki er hægt að
losna við. begar ég er búin að
vinna að málverki. vil ég ekki
þurfa að setja það niður i
kjallara. þar sem það rykfellur.
þess vegna held ég sýningu,“
segir Helga Weisshappel Foster,
sem nú heldur málverkasýningu
að Hamragörðum. þar sem hún
sýnir 40 verk.
„Þegar ég mála nenni ég ekki
að fást við þessi stöðnuðu óhagg-
anlegu form naturalismans, held-
ur reyni að laða fram eitthvað
nýtt. En ég er eins og Jónas
Guðmundsson málari og skáld, að
ég verð að vera ein og í algjöru
næði við mitt verk, aftur á móti
segist Jónas geta skrifað skáld-
sögu niður á Lækjartorgi, þá
trufli hávaðinn hann ekki!“
Helga hefur efnt til fjölmargra
sýninga hér á landi og erlendis,
en hún hefur búið á erlendri
grund hluta úr ævi sinni.
„Eg var að reyna að telja það
saman hvað ég hef átt myndir á
mörgum sýningum, líklegast eru
þær orðnar 48 talsins. Annars er
ég orðin svo gömul að ég man
þetta ekki lengur," segir Helga og
hlær.
„Þegar ég mála, gríp ég í þetta
Ilafrannsóknaskipið Dröfn er nú
við athuganir á ra'kjumiðunum
við landið og að þeim ioknum má
húast við því að ákvarðanir um
aflakvóta verði tcknar. en ra'kju-
veiðar hefjast venjulega í október
og standa fram í marz eða apríl.
Helztu rækjumiðin við landið
eru á Arnarfirði, ísafjarðardjúpi
og Húnaflóa. Einnig hefur rækja
verið veidd á Axarfirði, en þær
veiðar brugðust nær alveg í fyrra.
Kvótinn á Arnarfirði hefur und-
anfarin ár verið 500 til 700 lestir, í
ísafjarðardjúpi allt að 2.700 lest-
um og á Húnaflóa um 2.000. Á
Axarfirði veiddust í fyrra 280
lestir og er nú líklegt að miðin þar
verði friðuð, að sögn Jóns B.
Jónassonar, skrifstofustjóra í
sj á varú tvegsráðu ney ti n u.
í ákveðinn tíma, en læt svo listina
eiga sig þess á milli. Eg hef svo
mikið að gera, því ég er húsmóðir,
móðir og amma, svo í nógu er að
snúast."
„Það er eins með málaralistina
og músikina að allt er þetta
tilfinningu háð. Hvað málaralist-
inni viðkemur, þá er það tilfinn-
ingin fyrir litunum, sem gildir.
Kennarinn minn í Austurríki var
vanur að segja „ég get kennt
ykkur allt nema að fara með liti,
sú kunnátta verður að koma
innanfrá."
Helga Weisshappel Foster við eitt verka sinna, sem eru til sýnis að
Hamragörðum.
Söngsveitin Filharmónía flytur býzka sálumessu eftir Brahms á hátíðartónleikum 1980. Stjórnandi er Sir Charles Groves en
meðstjórnandi Marteinn Ilunger Friðriksson.
Söngsveitín Fílharmónía:
I»rjú verk flutt á
komandi starfsári
Urskurðaður í gæsluvarðhald
FANGINN sem strauk frá Litla-
Hrauni á dogunum. fannst i húsi
skammt fyrir utan Reykjavik í
gær. Lögreglan í Reykjavik hafði
hendur i hári hans og flutti hann
síðan austur ú Litla-IIraun, sam-
kvamt upplýsingum sem Morg-
unblaðið fékk hjá Helga Gunn-
arssyni yfirfangaverði á Litla-
Ilrauni i gær.
Helgi sagði að strokufanginn
hefði ekki veitt neina mótspyrnu
þegar hann var handtekinn, en
ekki hefði hann gefið sig sjálfur
fram við lögregluna. Helgi sagði
að fanginn hefði leikið lausum
hala í fjóra daga og hefðu menn
frétt af honum í Reykjavík á þeim
tíma. Sagði Helgi að fanginn væri
nú á bak við lás og slá og yrði
hann settur í einangrun á næst-
unni, í refsingarskyni fyrir tiltæk-
ið.
MAÐUR VAR í gær úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald til 18.
nóvember, vegna gruns um
fjársvik og skjalafals.
Hjörtur Aðalsteinsson saka-
dómari kvað upp úrskurðinn,
sem hefur verið kærður til
Hæstaréttar. Búist er við að
Hæstiréttur taki afstöðu í mál-
inu í næstu viku.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér
hefur maður þessi stundað bíla-
viðskipti og notað til þess víxla.
Mál þetta mun hafa verið til
meðferðar hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins að undanförnu.
Maðurinn mun hafa orðið upp-
vís að mörgum afbrotum.