Morgunblaðið - 12.09.1981, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 12.09.1981, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981 Fjölskyldufundur. Jói er víða Spjall við Kjartan Ragnarsson Júi — nýtt leikrit Kjartans RaKnarssonar — vcrður frum- sýnt í Iðnó í kvöld. Jói er hornreka i þjóðfélaKÍnu. af þvi hann er „dálitið undarleKur“, eins ok hann sejfir sjálfur, ok þegar Jói vex úr grasi <>k mamma deyr. munar minnstu að Jóa takist að lejíKja heila fjölskyldu i rúst með því einu að vera til. Hann vill skiljanlega ekki á hæli. karlauminKÍnn. o« hann er hreint ekki svo slæmur þeKar allt kemur til alls, ok Kóðu fólki þykir vænt um Jóa. Kjartan Ragnarsson, hvaða maður er Jói? Þetta er svo hátíðleg spurning, segir Kjartan, að ég verð að gefa hátíðlegt svar: Jói er einhver sem krefst þess að honum sé sinnt. Við skulum kalla það hann sé samnefnari fyrir hina veikari í þjóðfélaginu. Stofnanir kunna að vera góðar, en þær leysa ekki vandamál, heldur fela þau. Það er líka þessi tilhneiging í nútíma þjóðfélögum að skipa fólki niður í hólf og það eru búin til mörg vandamálahólfin, svo hinn puðandi maður fái að vera í friði við sitt puð. Mannleg sam- skipti eru að verða lúxus; kók er ekki lengur lúxus, sjónvarp er ekki lengur lúxus, en kvöidstund með fólki, sem þú þekkir, er orðinn munaður. Annars kæri ég mig ekki um að tala langt mál um mín leikrit. Ef ég hefði einhverju við þau að bæta, myndi ég reyna að koma því inn, eða skrifa nýtt leikrit. Jói er skrifaður í tveimur atrennum, vorið 1979 og ’80. Ég var hálfnaður með verkið, þegar „Súperman" sló niður í huga mér. Einræður Jóa við Súper- mann, eigi að sýna hans innri mann og bágindi. Tónlistin? Hana samdi út- lenskur maður, sem Brian Eno heitir, eða eitthvað í þá veru. Ég vissi hvaða tónlist ég vildi, lýríska, fallega og um leið óhuggulega og hann Ásmundur vinur minn hjálpaði mér að finna þennan útlenska mann. Já, það má vera leikritið sé líflegt, þó það fjalli um alvarlegt efni. Það á heldur ekki að vera nein vandamálaumræða. Ég skrifa það í þessum dúr, svo fólk eigi hægar með að meðtaka þær spurningar sem varpað er fram. Ég hef skrifað ein sjö leikrit um ævina sem öll eru mjög ólík að uppbyggingu og efni, en mér finnst samt ég hafi ekki haslað mér nógu víðan völl. Kannski á ég það eftir að skrifa vanda- málaumræðu. Jú, Jói hefur breyst nokkuð í leikstjórn, en svo hefur yfirleitt ekki verið um mín verk. Ég tók þann kúrs í upphafi að leggja línurnar og klára gott uppkast, með það í huga að fullklára það og endurbæta, tvær síðustu vik- urnar á æfingum. Og það gerði ég. Það fylgja því bæði kostir og ókostir að leikstýra eigin verki, þú veist hvað þú vilt og ætlar að gera, en hitt er að snjallir leikstjórar koma iöulega auga á skemmtiieg áhersluatriði sem höfundi hafa yfirsést, etc. Þó leikhús sé stór maskína, þá er starfið þar samhangandi heiid og hún háir mér ekki, held ég, þessi skipting milli leikara, leik- stjóra og höfundar. Ég hef oft lesið um það á bókum, að leikhússtarf sé erfitt, og það má svo sem vel vera, en í leikhúsi kann ég best við mig og þar á ég heima. Þú minntist á að þér hafi fundist lokasenan fyrir hlé hæfi- Fermingarmynd af Kjartani. legur endir, og ég er svo sem ekki að setja mig upp á móti því, ef þetta hefði verið klukkustundar sjónvarpsmynd. En heilt leik- húskvöld er annar handleggur. Þá getum við leyft okkur ýmis- legt og snúið hugmyndum uppá alla enda og kanta, ef því er að skipta. Nei, mér finnst það sé ekki happy-end — vegna spurn- inganna sem varpað er fram í lokin, en fólki er frjálst að skilja það eins og þvi sýnist. Og nú? Nú fer ég á mánudagsmorgun austur til Finnlands, þar sem konan mín bíður. Borgar Garð- arsson þýddi Blessað barnalán með sænskum manni og nú erum við að vinna að uppfærslunni, en verkið verður frumsýnt um miðjan október. Þá förum við hjón í Evrópureisu og skoðum leikhús. Það er nóg komið af mínu pródúkti í bili. Sjö leikrit á fimm árum. Nei, ég er ekki þreyttur, en það getur verið að einhverjir aðrir séu orðnir þreyttir á mér. J.F.Á. Jói í samræðu við vin sinn, Súpermann. Fyrsta sildin til Vopnaíjaröar: Búið að salta í 470 tunnur VopnaHrAf. ii. september. dag. Lönduðu þá Lyngey og VOPNFIRÐINGAR fengu Reynir frá Hornafirði og voru fyrstu síldina á land í fyrra- saltaðar úr þeim 135 tunnur. í gær komu hingað fjórir bátar og var saltað úr þeim 335 tunnur. Alls hefur því verið saltað í 470 tunnur. Síldin er sæmileg. Bræla er nú á miðun- um og bátar inni. Fréttaritari SÁÁ sækir um lóð fyrir sjúkrastöð „VIÐ HÖFUM reynt að fá lóð hjá Reykjavíkurborg i tæp tvö ár. en við ætlum að reisa nýja sjúkra- stöð. í stað stöðvarinnar sem við erum með uppi á Silungapolli," sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, íramkvæmdastjóri SÁÁ, í samtali við Morgunhlaðið, en SÁÁ hefur sótt um lóð til Reykja- víkurborgar og er umsóknin nú til athugunar hjá Borgarskipu- laKÍ. „Við höfum reynt að fá lóðir á ■ Rauðavatnssvæðinu, á Selássvæð- inu og við Grafarvog, en síðan var okkur bent á að reyna að fá lóð uppi á Ártúnsholti. Við sendum erindi til borgarráðs varðandi þetta, sem síðan sendi það til lóðanefndar, sem mælti með því að við fengjum lóð á Ártúnsholti. Borgarráð fjallaöi síðan aftur um málið og sendi það til Borgar- skipulags. Við erum mjög bjartsýn á að fá stóra og góða lóð uppi á Ártúnsholti og ætlum að reisa þar nýja sjúkrastöð, sem á að leysa stöðina að Silungapolli af hólmi," sagði Vilhjálmur. „Þessi stöð þarf að vera að minnsta kosti 1000—1200 fermetr- ar að stærð og landrýmið þarf að vera einn hektari. Þar yrði bæði útivistarsvæði og möguleiki til framtíðaruppbyggingar. Við erum orðnir mjög óþreyjufullir og vilj- um hefja framkvæmdir strax næsta vor, því við höfum ekki hug á því að vera uppi á Silungapolli í óþökk borgaryfirvalda," sagði Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson. Staða dagskrár- gerðarmanns: Útvarpsráð mælir með Maríönnu Á FUNDI útvarpsráðs i gær voru greidd atkvæði um stöðu dag- skrárgerðarmanns I frétta- og fræðsludeild sjónvarps. Flest at- kvæði hlaut Maríanna Friðjóns- dóttir. Þrír umsækjendur voru um stöðuna. Maríanna hlaut fimm atkvæði, Baldur Hrafnkell Jóns- son hlaut tvö. Fréttastjóri sjón- varps hafði mælt með Maríönnu til starfans. Kröfluvirkjun: Unnið við hreinsanir og upptöku á vélum NÚ ER unnið við árlega upp- töku véla ok hreinsanir i Kröfluvirkjun ok því hefur enK- in raforkuframleiðsla verið þar um mánaðartíma. En annars hefur orkuframleiðsla virkjun- arinnar numið 12 meKawöttum frá því í fyrrahaust. Nú er jarðborinn Jötunn langt kominn með síðustu holuna af þremur, sem boraðar hafa verið að undanförnu. Boranir hafa gengið vel og er reiknað með því að þeim ljúki eftir 10 til 15 daga. að sögn Gunnars Inga Gunn- arssonar, staðartæknifræðings við Kröflu. Hann sagði ennfrem- ur, að fyrsta holan af þessum þremur blési nú og reiknað væri með því að hún gæfi 2 til 3 megawött, önnur holan væri að hitna og ekki hægt að spá um útkomu hennar enn sem komið væri. Þá sagði hann að byrjað væri á því að huga að tengingum holanna og að búast mætti við því að fyrsta holan yrði tengd fyrripartinn í nóvember. íslenzkir rally-crossökumenn leggja land undir fót: Keppa í fyrsta sinn í keppni erlendis TVEIR fslendingar. þeir Jón S. Halldórsson <>k Þórður Valdimars- son, héldu til Svíþjóðar í morKun, en þar munu þeir keppa fyrir íslands hónd í Norðurlandameist- aramótinu í Rally-cross-akstri. Þetta er i fyrsta sinn sem íslend- ingar eru meðal þátttakcnda i keppni á erlendri grund og söKðu þeir félagarnir, að varla væri von á verðlaunasæti. þar sem þessi keppnisgrein sé á alKjöru byrjun- arstigi hér á landi. Jón S. Halldórsson keppir á BMW-bíl, en Þórður Valdimarsson á Volkswagen, en báðir bílarnir eru smíðaðir upp frá grunni fyrir svona keppni. Bílar þeirra eru 150—200 hestöfl, en flestir keppinautanna aka á bílum sem eru knúnir 250— 300 hestafla vélum. Það verða sem sagt tveir keppend- ur frá íslandi, en auk þess verða fimm keppendur frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Auk þess munu svo nokkrir bílar keppa um þau átta sæti sem enn eru óskipuð, en gert er ráð fyrir 30 keppendum. Meðal keppenda eru nokkrir fremstu ökumenn heims. Pi Valfrid- son, sem er núverandi Norðurlanda- meistari, keppir á Volvo 343 Turbo, en sá bíll hefur verið nær ósigrandi í þessum keppnum. Keppnin fer fram 20. september nk. og munu nokkrir stuðningsmenn fylgja köppunum. Landssamband íslenzkra akstursíþrótta sér um öll gögn og greiðir götu Jóns og Þórðar. Þórður Valdimarsson t.v. og Jón S. Halldórsson eftir eina rally-cross- keppnina hér heima.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.