Morgunblaðið - 12.09.1981, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
HLAÐVARPINN
Skólamál:
Kennslubók í lestri unn
in í samvinnu við börn
Rætt við Guð-
björgu Þórisdótt-
ur, Jóhönnu Ein-
arsdóttur og
Kristján Inga
Einarsson
anna lesmáli barna.
Með þessari bók viljum við
reyna að spyrna við fótum, bjóða
börnum upp á lesefni og myndir
úr íslenzku umhverfi, íslenzkum
veruleika.
Olæsir krakkar hafa gaman af
bókinni. Þau geta skoðað mynd-
irnar, rætt um þær við foreldra og
kennara, gefið ímyndunaraflinu
lausan tauminn. Þau sem eru að
Mynd Mbl. Kristján.
Kristján Ingi, sem tekið hefur Ijósmyndir í „Krakkar. krakk-
ar“, Jóhanna Einarsdóttir og Guðbjörg Þórisdóttir.
„Það var þörf fyrir bók handa
börnum, sem eru að hefja lestr-
arnám — brýn þörf, raunar fyrir
margar bækur," sögðu þau Guð-
björg Þórisdóttir, Jóhanna Ein-
arsdóttir og Kristján Ingi Ein-
arsson, kennarar. Þau hafa samið
nýstárlega kennslubók í lestri.
Útgefandi er bókaútgáfan Bjallan
og nefnist bókin „Krakkar, krakk-
ar“.
„Þessi bók er ekki byggð með
eina lestraraðferð í huga. Það er
ekki ætlast til að hún komi í stað
annarra kennslubóka í lestri held-
ur miklu fremur að hún notist
með öðrum bókum.
Hér er um tilraunabók að ræða
— „Krakkar, krakkar" er fyrsta
lestrarbókin hér á landi sem,
jafnframt að hafa texta, er byggð
upp á Ijósmyndum. í bókinni eru
raunsæjar myndir úr hversdags-
leikanum. Þema bókarinnar má
segja að sé frá vöggu til grafar;
fæðing, æska, unglingsárin, at-
vinnulífiö, elli. Almennt talað, þá
eru í bókinni textar og myndir
sem vekja eiga spurningar og
raunar enda margir textar á
spurningu. Svo vonumst við til að
bókin örvi ímyndunarafl barna.
Börn læra að lesa tákn; læra að
þekkja stafina en myndlestur er
að okkar mati mikilvægur. Það er
mikilvægt að „lesa“ með börnum
áður en lestrarnám þeirra hefst.
Hann örvar málþroska þeirra,
eykur orðaforða og hugtakamynd-
un, sem er viðurkennt að geti skipt
sköpum við lestrarnám. Ætlast er
til, að fullorðnir ræði myndirnar
með börnum, örvi ímyndunarafl
þeirra, veki upp spurningar um
lífið almennt. Á video-öld er
ákaflega mikilvægt að börnum sé
sinnt, að rætt sé við þau en þeim
ekki bara kastað fyrir framan
sjónvarpið þar sem þau glápa á
teiknimyndahetjur og ailur texti
er á útlendu máli. Þá tröllríður
„skríplamál" fjölþjóðabókmennt-
stíga sín fyrstu skref í lestri hafa
ekki síður not af bókinni.
Texti er stuttur, letur stórt og
reynt er að hvetja börnin með
spurningum og áhugavekjandi
texta. Þegar við sömdum bókina,
þá fengum við börn til aðstoðar
við okkur. Við lögðum myndirnar
fyrir börn og létum þau velja.
Margar hugmyndir vöknuðu við
þetta samstarf."
— Hverjir eru helztu gallar
bókarinnar?
„Þeir eiga vafalítið eftir að
koma í ljós, eins og öll mannanna
verk hefur bókin sína galla. Við
gerum okkur ljósa grein fyrir því.
Við vonumst eftir gagnrýni,
ábendingum, hvað megi betur
gera og þannig bæta úr. Okkur
langaði að gera svo margt en
erfiðast var að takmarka sig.
Þessi bók var samin af hugsjón.
Hver árangur verður á eftir að
koma á daginn en hingað til
höfum við fengið jákvæðar undir-
tektir og það hefur verið okkur
mikils virði," sögðu þremenn-
ingarnir.
Hvað er i pokanum?
Pokinn er fullur af
tómum gosflóskum.
Sumir skilja tómar flóskur
eftir á götum og gangatétturr.
og jafnvel úti • móa.
Pessi maöur safnar
tómum flöskum,
selur óaer í búóum
og faer pening fyrir þaer
Þaó safnast þegar saman kemur
Fimm ættliðir í kvenlegg
Soffía Árnadótt-
ir, ættm('»ðir, 95
ára að aldri,
fyrrum húsfrú á
Efri Ilrisum.
Fróðárhreppi,
Snæfellsnesi,
heldur á Eddu
Sif Guðbrands-
dóttur. Edda Sif
er dóttir Dóru
Kristinsdóttur.
sem er búsett á
Siglufirði og sit-
ur að baki
Soffiu. Þá eru
þær mæðgur
Halldóra Krist-
leifsdóttir og
Ester Friðþjófs-
dóttir frá Rifi á
myndinni.
SMYGLARAR í FÆREYJUM:
Smuglarasakin ver-
ið fyri í rættinum
Stórtækir smyglarar í Færeyjum
sæta nú yfirheyrslum ákæruvalds-
ins þar í landi og eru ákærðir fyrir
að hafa reynt að smygla 222
ákavítisflöskum í gámi með heyi.
Þeir eru ákærðir fyrir að hafa
smyglað alls 1025 flöskum síðan í
febrúar í fyrra og fyrir að hafa selt
803 þeirra með hagnaði upp á
250.000 krónur.
Þeir sem ákærðir hafa verið eru
41 árs leigubílstjóri (hýruvognsför-
ari) og kona hans og 34 ára gamall
Dani. Hjónin eru einnig ákærð
fyrir að hafa flutt inn áfengi
(rúsdrekkar) á nafni þriðja aðila og
selt helming þess með hagnaði upp
á 130.000 krónur. Yfir leigubílstjór-
anum, sem ákæruvaldið álítur höf-
uðpaurinn, er krafizt 8 mánaða
fangelsis, heldur minna fyrir Dan-
ann og enn minna fyrir konuna.
Smyglið fór þannig fram, að
Daninn, sem búið hafði í Færeyjum
í nokkur ár, en var fluttur aftur til
Danmerkur, sá um að kaupa hey
þar og senda í gámum til Færeyja
ásamt áfenginu og kom fyrsta
sendingin þangað í febrúar í fyrra.
Iæigubílstjórinn segir sig saklaus-
an, Daninn viðurkennir að hafa
selt smávegis (eitt sindur), sem
hann hefði haft með sér frá
Ilanmörku, en konan segist ekki
hafa haft hugmynd um neina
vínsölu.
Ákæruvaldið krefst þess að lagt
verði hald á óseldar áfengisbirgðir
fólksins og að það auk fangelsis-
vistarinnar greiði 305.000 krónur í
sekt á hvorn manninn, sem talið er
nema hagnaði af sölunni auk tolla.
(Cr Dimmalætting.)
Þrir góðir saman. Frá vinstri: Guðjón Magnússon. en hann setti
íslandsmet 1944, stökk 3,53. Fyrir miðju er Sigurður T. Sigurðsson,
núverandi íslandsmethafi, 5,20, og til hægri er Friðrik Jesson en hann
varð íslandsmeistari á stöng árið 1923.
—i
íleiðinni
Hollusta kaldra baða
verður varla oflofuð
Jón Pétursson ma-lti mjög með
sjóvatnsböðum í Lækningabók
fyrir almúga, sem gefin var út i
Kaupmannahöfn á þvi hcrrans
ári 1834 eða fyrir 148 árum.
Eftirfarandi klausu fundum við i
„IIeilbrigðismálum“, riti Krahha-
meinsfélags fslands. hvar vitnað
er i fyrrnefnda bók:
„Hollusta kaldra baða, einkum í
sjóvatni, verður varla oflofuð ...
og varla mun svo kveifarlegur né
viðkvæmur maður til ... að ekki
geti vanið sig á þau og haft gott af.
Maður skal — hvar engin orðuleg
baðhús eru til — vaða allsnakinn,
nema í hempu, ef svo vill, utan um
sig, úti sjóinn, smáausa yfir höfuð
sér vatninu, og þegar komið er vel
í mitti, fleygja sér flötum, busia
stundarkorn, ekki lengur en þang-
að til hætt er að súpa hveljur,
flýta sér þá á þurrt, þurrka sig í
hasti og fara í hreint næst sér,
ganga síðan spölkorn á eftir, undir
það maður svitni, velja til þess
logn og hlýtt verður á sumardag,
og hafa ekki nýborðað."
Fermingar-
vottorð
Gamall maður á Siglufirði fann
til þess að fermingarbörnin fá
ekki í hendur neitt skjalfest að
þau hafi fermst, eins og hann fékk
fyrir rúmlega hálfri öld.
Hann lét því endurprenta slíkt
skjal með viðeigandi breytingum '
og gaf Siglufjarðarsöfnuði nokk-
urt upplag.
Hafa fermingarbörnin fagnað
þessu fallega vottorði, enda vill
svo til að „ömmustílP er tízkuútlit
á flestu þessa dagana, og mörg
hafa hengt það upp í herbergi
sínu. Lífið gengur í hringi, sagði
skáldið.
Hítinni
allt -
eða skattaþula
Þó að stjórnvöld viti yfirleitt
ekki sitt rjúkandi ráð þegar
harðnar á dalnum hjá einstakling-
um og fyrirtækjum, þá bregst
þeim sjaídan hogalistin þegar
finna þarf upp nýja skatta. Með-
fylgjandi skattaþula frá bæjarfóg-
etanum í Kópavogi birtist i bloð-
unum fyrir nokkru, og er
mönnum þar lofað lögtaki ef þeir
standa ekki sína pligt i öllum
greinum. Nú er bara að byrja að
lesa.
LöRtaksúrskurður
Hér með úrskurðast lögtak fyrir
gjaldföllnum og ógreiddum þing-
gjöldum ársins 1981 álögðum í
Kópavogskaupstað, en þau eru:
Tekjuskattur, eignaskattur, sókn-
argjald, slysatryggingagjald
v/heimilisstarfa, iðnaðarmálagjald,
slysatryggingagjald atvinnurek-
enda, lífeyristryggingagjald, at-
vinnuleysistryggingagjald, almenn-
ur og sérstakur launaskattur,
kirkjugarðsgjald, iðnlánasjóðs-
gjald, sjúkratryggingagjald, gjald í
framkvæmdasjóð aldraðra og
vinnuskattur af verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði. Ennfremur fyrir
skipaskoðunargjaldi, lestargjaldi
og vitagjaldi, bifreiðaskatti, skoð-
unargjaldi bifreiða og slysatrygg-
ingagjaldi ökumanna 1981, áfölln-
um og ógreiddum skemmtanaskatti
og miðagjaldi, söluskatti af
skemmtunum, vörugjaldi af innl.
framl. sbr. I. 65/1975, gjöldum af
innlendum tollvörutegundum, mat-
vælaeftirlitsgjaldi og gjaldi til
styrktarsjóðs fatlaðra, skipulags-
gjaldi af nýbyggingum, söluskatti,
sem í eindaga er fallinn svo og fyrir
viðbótar og aukaálagningum sölu-
skatts vegna fyrri tímabila. Verða
lögtökin látin fara fram án frekari
fyrirvara á kostnað gjaldenda en
ábyrgð ríkissjóðs, að 8 dögum
liðnum frá birtingu úrskurðar
þessa, ef full skil hafa ekki verið
gerð. Bæjarfógetinn í Kópavogi.
11. ágúst 1981.
„Englar
Arngríms“
BISKUPSKJÖR var mikið í frétt-
um á lokaspretti þeirrar athafnar
og eins og gengur í kosningum
voru skoðanir manna skiptar.
Séra Heimir Steins3on, Skálholts-
rektor á að hafa haft á orði í hópi
manna, að heilagur andi starfaði
oft á annan hátt en mannskepn-
unni þætti liggja beinast við og
veldi aðrar leiðir sem kæmu m.a.
fram í því hvernig séra Pétur
vígslubiskup varð biskup. Hagyrð-
ingi í hópnum varð þá að orði:
Helgum anda er um það kennt
að eigi er kirkjan betri.
Nú hafa englar Arngríms lent
í eina sæng með Pétri.
i