Morgunblaðið - 12.09.1981, Side 14
X 4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
Hrauneyjafossvirkjun
Eftir Birgi Isl. Gunn-
arsson, alþm.
Hrauneyjafossvirkjun
Hornsteinn hefur nú verið
lagður að Hrauneyjafossvirkjun
og allt bendir til að vélar
virkjunarinnar fari að snúast þ.
1. nóvember, eins og ráðgert
hafði verið. Með þeirri fram-
kvæmd er lokið þeim virkjunar-
áformum, sem viðreisnarstjórn-
in lagði grundvöll að á árunum
1960—’70. Þá voru á Alþingi
samþykkt lög um þrjár stór-
virkjanir á Þjórsársvæðinu.
Búrfellsvirkjun var fyrst, síðan
kom Sigölduvirkjun og nú
Hrauneyjafossvirkjun. Frum-
kvöðlar og forystumenn þessara
virkjunarframkvæmda voru þeir
Bjarni Benediktsson, Jóhann
Hafstein og Ingólfur Jónsson, en
ljóst er að þessar virkjanir hefðu
ekki verið byggðar með þem
hraða, sem raun hefur orðið á, ef
ekki hefði komið til átak til
nýtingar þessarar orku með
byggingu þeirra stóriðjufyrir-
tækja, sem nú starfa hér á landi.
Framsýni
og stórhujfur
Landsvirkjun er sameignar-
fyrirtæki ríkisins og Reykjavík-
urborgar. Ljóst er því, að auk
áðurgreindra forystumanna um
löggjöf á þessu sviði hafa þessar
framkvæmdir notið þess stór-
hugs, sem ríkti hjá meirihluta
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Reykjavíkur í orkumálum. Mikl-
ar framkvæmdir í raforkumál-
um og stófellt átak til að stækka
og efla Hitaveitu Reykjavíkur á
sama tíma bera vott um fram-
sýni borgaryfirvalda í þessum
málum.
Það hefur komið í hlut Lands-
virkjunar að annast undirbúning
og bera veg og vanda af fram-
kvæmdunum. I þau 16 ár sem
fyrirtækið hefur starfað, hefur
það notið farsællar forystu
þeirra Jóhannesar Nordal, form-
anns stjórnar, og Eiríks Briem,
framkvæmdastjóra. Aðrir hafa
að sjálfsögðu einnig komið þar
við sögu, þótt ekki séu þeir
tilgreindir sérstaklega hér.
Landsvirkjun hefur haft á að
skipa frábæru starfsfólki og þar
hefur safnast saman dýrmæt
reynsla, sem áður þurfti að
kaupa frá útlöndum í stórum
stíl. Nú eru það íslenskir tækni-
menn Landsvirkjunar og verk-
fræðistofa og íslenskir stjórn-
endur, sem bera veg og vanda af
nánast öllum undirbúningi og
framkvæmdum.
íslenskir
verktakar
Framkvæmdir við Hrauneyja-
fossvirkjun eru einnig að því
leyti ólíkar fyrri stórvirkjunum,
að nú voru framkvæmdir ein-
göngu boðnar út á íslenskum
verktakamarkaði. Áður var boð-
ið út á alþjóðlegum markaði og
erlend verktakafyrirtæki voru
hér að störfum. Hrauneyjafoss-
virkjun er hinsvegar byggð af
íslenskum verktökum, sem
skiptu milli sín einstökum verk-
þáttum að undangengnu útboði,
en starfsmenn Landsvirkjunar
unnu að samræmingu og eftir-
liti.
Nú þegar þessir miklu áfangar
eru að baki hljóta menn að
spyrja hvað sé framundan í
orkumálum þjóðarinnar. Því
miður verður að segja eins og er,
að þar er allt í óvissu. Forysta
þessara mála er nú í höndum
úrtölumanna, sem ekki vita í
„Nú þegar þessir
miklu áfangar eru
að baki, hljóta menn
að spyrja, hvað sé
framundan í orku-
málum þjóðarinnar.
Því miður verður að
segja eins og er, að
þar er allt í óvissu.
Forysta þessara
mála er nú í höndum
úrtölumanna, sem
ekki vita í hvorn
fótinn þeir eiga að
stíga.“
hvorn fótinn þeir eiga að stíga.
Þrjár stórvirkjanir eru nú langt
komnar í undirbúningi, þ.e. Sult-
artangavirkjun á Þjórsársvæð-
inu, Blönduvirkjun á Norður-
landi og Fljótsdalsvirkjun á
Austuriandi. Enginn veit enn
hvar á að byrja og hvar á að
enda. Málamyndalög voru sett
um þessar virkjanir á Alþingi sl.
vor, en ljóst er þó að Alþingi
þarf að taka allt málið upp til
afgreiðslu að nýju og allt er á
huldu um hvenær það verður
gert.
Dökkt framundan
Alvarlegast í þessu er þó að
enginn veit hvað á að gera við þá
orku, sem úr þessum virkjunum
mun fást. Þýðingarlaust er að
byggja nýjar virkjanir, ef enginn
markaður er fyrir orkuna. Sýnt
hefur verið frám á, að með
tiltölulega ódýrum vatnaveitu-
aðgerðum ofan orkuveranna í
Þjórsá og Tungnaá má auka
framleiðslu kerfisins nægilega
mikið til að fullnægja fyrir-
sjáanlegri orkuþörf án nýrrar
stóriðju eitthvað framyfir 1990.
Ef hægt er að auka orkufram-
leiðslu Kröfluvirkjunar eins og
hún er hönnuð fyrir, höfum við
næga orku fram yfir miðjan
næsta áratug.
Það er því ljóst að engin þörf
er á nýrri virkjun næstu 15 ár, ef
ekki kemur jafnframt til orku-
frekur iðnaður. Þar eigum við
ónotaða mikla möguleika og get-
um hæglega fjórfaldað orkuöfl-
un til stóriðja á næstu 20 árum.
Orkunýtingarþátturinn er hins-
vegar alveg óleystur og það sem
af þeim þætti fréttist er tómt
kák. Allar líkur benda til að
engar ákvarðanir verði unnt að
taka um þennan grundvallarþátt
málsins meðan iðriaðarráðuneyt-
ið er setið úrtölumönnum og
skýrslusöfnurum.
Undirbúningur og bygging
orkufrekra iðnfyrirtækja tekur
ekki skemmri tíma en undirbún-
ingur og framkvæmdir stór-
virkjana.
Við fögnum því Hrauneyja-
fossvirkjun með nokkuð blendn-
um huga. Gleðjumst yfir stór-
huga áfanga, sem unninn hefur
verið, en óttumst það ráðleysi,
sem tefur fyrir því að áfram sé
haldið á þessari braut.
Auðvitað viljum við sættir
í Sjálfstæðisflokknum
— Eftir Halldór
Blöndcd, alþingismann
Góður vinur minn hefur oft sagt
við mig: „Halldór, ég held að þú
hafir ekki verið i góðu skapi síðan
ríkisstjórnin var mynduð." — Það
er rétt, að mér hefur gengið
erfiðlega að sætta mig við að 4—5
þingmenn úr okkar hópi sjálf-
stæðismanna skuli hafa valið sér
það hlutskipti að leiða framsókn-
armenn og kommúnista til önd-
vegis í íslenskum stjórnmálum í
trássi við félaga sína. Þess vegna
spurði ég Gunnar Thoroddsen,
þegar hann tilkynnti okkur stjórn-
armyndunina, hvort hann væri
ekki til viðtals um að Sjálfstæðis-
flokkurinn sem heild kæmi inn í
viðræðurnar með fullum þing-
styrk. Hann svaraði stutt og
laggott: Það stóð aldrei til að
Sjálfstæðisflokkurinn myndaði
þessa ríkisstjórn. Það þýddi nýjar
stjórnarmyndunarviðræður.
Á minni hlutinn
allan rétt?
Mér er minnisstætt að á flokks-
ráðsfundinum eftir stjórnarmynd-
unina, réttlætti Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra og raun-
ar varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins gerðir sínar með þessum
ummælum: Meiri hluti þingflokks
er bundinn af samþykktum flokks-
ráðs, en minni hlutinn ekki. Ekki
efast ég um að þankagang af
þessum toga megi í þrætubókar-
list verja lengi dags, ef málsnjall
maður á í hlut. Framhjá hinu
verður þó ekki gengið, að í skipu-
lagsreglum Sjálfstæðisflokksins
hefur verið reynt að setja þing-
mönnum leikreglur. Fyrir síðustu
kosningar lá ekki annað fyrir en
að allir frambjóðendurnir sættu
sig við þær. Þá datt engum manni
í hug að til þess gæti komið, að
fimmtungur þingmanna segði sig
úr lögum við hina 17 fyrirvara-
laust. Viðbáran að öðruvísi yrði
ekki mynduð ríkisstjórn í landinu
hlýtur að skoðast í því ljósi, að
heill og óskiptur Sjálfstæðisflokk-
ur sé til trafala. — Bróðir eins af
þingmönnum Framsóknarflokks-
ins sagði raunar við mig eftir
stjórnarmyndunina og brosti í
kampinn: Þið gátuð ekki boðið
jafn vel og Gunnar. Þið gátuð ekki
boðið fram klofinn Sjálfstæðis-
flokk.
í endaðan ágúst var þing ungra
sjálfstæðismanna haldið á ísa-
firði. Það kom engum á óvart, að
hinum ungu mönnum hitnaði í
hamsi þegar að því kom, að þeir
ræddu þá stöðu, sem nú er komin
upp í þjóðfélaginu og þá kreppu,
sem ríkir á Alþingi vegna klofn-
ings Sjálfstæðisflokksins. Þess
vegna ályktuðu ungu mennirnir og
lái þeim hver sem vill: „Gert verði
ótvírætt, að þingmenn flokksins
séu bundnir af samþykktum þing-
flokks og flokksráðs um samstarf
við aðra flokka við myndun eða
setu í ríkisstjórn. Litið verði á
brot á þssum reglum sem úrsögn
viðkomandi þingmanns úr Sjálf-
stæðisflokknum."
Fór Pétur Ottesen
eins að?
I Tímanum 10. september sl.
segir Gunnar Thoroddsen forsæt-
isráðherra um þessa ályktun
ungra sjálfstæðismanna m.a.:
„... þegar Ólafur Thors mynd-
aði Nýsköpunarstjórnina á sínum
tíma, þá hefðu þeir verið reknir úr
flokknum á einu bretti, þeir: Pétur
Ottesen, Ingólfur á Hellu, Gísli
Sveinsson, Jón á Reynisstað og
Þorsteinn sýslumaður, þar sem
„Auðvitað viljum við
frjálshyggjumenn
sættir í Sjálfstæðis-
flokknum. Að Sjálf-
stæðisflokkurinn
hafi þau áhrif og
völd, sem fylgið með-
al þjóðarinnar segir
til um. Ekki stendur
á mér að leggja mig
fram um það að sam-
ræma sjónarmið og
gleyma orðnum hlut,
ef hin stríðandi öfl í
Sjálfstæðisflokknum
vilja mætast á þeim
punkti, að þau séu
reiðubúin til eins
átaks, þannig að
störf okkar á Al-
þingi mótist af því
að við séum samherj-
ar og keppum að
sama marki.“
þeir neituðu að hlíta flokkssam-
þykkt og voru stjórnarandstæð-
ingar.“
Með sínum ummælum reynir
Gunnar Thoroddsen að sannfæra
menn um það, að enginn eðlismun-
ur sé á sinni breytni og Péturs
Ottesens og þeirra félaga. Þó dylst
engum sanngjörnum manni, að
saga Sjálfstæðisflokksins hefði
orðið önnur, ef Pétur Ottesen
hefði myndað ríkisstjórnina í
trássi við Ólaf Thors og Sjálfstæð-
isflokkinn.
Þegar Nýskopunarstjórnin var
Söngfólk
Blandaöur kór í Reykjavík óskar eftir aö fjölga fólki í
öllum röddum, vegna söngferöar til útlanda næsta
vor. Upplýsingar í símum 30807 og 45330.
mynduð var farið að vilja meiri
hluta þingflokks og Sjálfstæðis-
flokksins. Pétur Ottesen og þeir
félagar hlupu ekki til á elleftu
stundu og mynduðu ríkisstjórn
framhjá Sjálfstæðisflokknum.
SjálfstæÓismenn vilja
vera samherjar
Okkur, sem viljum frelsi ein-
staklingsins sem mest til orðs og
æðis, dylst ekki, að þróun þjóðfé-
lagsins hefur verið okkur og hug-
sjónum okkar öndverð siðustu
misseri. Á tímum aukinna ríkis-
afskipta þurfa einstaklingarnir á
öllu sínu að halda til þess að halda
sínum hlut. Þegar gerð er tilraun
til þess að stjórna þjóðfélaginu
með þeim hætti að atvinnuvegirn-
ir eru ýmist reknir með halla eða
fá ekki að skila tekjuafgangi,
rennur sjálfkrafa upp blómaskeið
bæjarfyrirtækja, ríkisrekstrar og
samvinnurekstrar. Einstakl-
ingarnir hafa ekki sama bolmagn
til að standa undir langvarandi
halla. Við sjáum það glöggt á
Súgandafirði hvað er að gerast og
sömu þróunar verður vart annars
staðar. Við lifum í versnandi
þjóðfélagi með daprari lífskjör en
áður og staðnað atvinnulíf. Unga
bóndann dreymir ekki lengur að
verða stórbóndi og ungi skipstjór-
inn veltir því fyrir sér, hvernig
hann getur auðveldlega komist
yfir aldarfjórðungs gamla fleytu.
Innflutningur notaðra bíla vex en
þeir einstaklingar, sem eru frjáls-
ir vegna menntunar sinnar fljúga
eins og farfuglar til annarra landa
þegar vetur sverfur að.
Auðvitað viljum við frjáls-
hyggjumenn sættir í Sjálfstæðis-
flokknum. Að Sjálfstæðisflokkur-
inn hafi þau áhrif og völd sem
fylgið meðal þjóðarinnar segir til
um. Ekki stendur á mér að leggja
mig fram um það að samræma
sjónarmið og gleyma orðnum hlut,
ef hin stríðandi öfl í Sjálfstæðis-
flokknum vilja mætast í þeim
punkti að þau séu reiðubúin til
eins átaks þannig að störf qkkar á
alþingi mótast af því. Á hinn
bóginn er ekki við því að búast, að
það létti geðið að búa við sundrað-
an Sjálfstæðisflokk. Ungu menn-
irnir á ísafirði skildu að mál er að
linni innbyrðis erjum og frama-
poti. Sameinaðir stöndum við, en
sunduðir föllum við.