Morgunblaðið - 12.09.1981, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
21
Forsætisráðherra, dr. Gunnar Thoroddsen, og frú, forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir og Jóhannes
Nordal, stjórnarformaður Landsvirkjunar, meðal gesta er hornsteinn var lagður að stöðvarhúsi
Landsvirkjunar við Hrauneyjafoss.
Mikið fjölmenni var við athöfnina að Hrauneyjafossi í gær. Hér sézt hluti gestanna.
Vigdís Finnbogadóttir sagði í
ávarpi, að frá upphafi byggðar í
landinu hefði íslenzka þjóðin háð
baráttu við náttúruöflin, er skap-
að hefðu og mótað landið. Hún
hefði um langan aldur verið
ofurseld þeim öflum og máttar-
völdum, sem hafa gefið landinu
sinn stórskorna og rúnum rista
svip. Eldar, ís og beljandi vatns-
föll hefðu spunnið þjóðinni örlög,
sem fáir hefðu getað spornað við.
Hugvit og þekking hefðu hins
vegar leitt áður harðbýlt land og
lítt gjöfult til samvinnu í lífsbar-
áttunni. Land, sem áður hefði
fekki verið talið búa yfir neinum
auði, væri nú í vitund allra
þegnanna mikil auðlind.
Forseti sagði, að með Hraun-
eyjafossvirkjun væri verið að
búa í haginn fyrir íbúa landsins,
þá sem nú lifa og þá sem síðar
ættu eftir að erfa það. Orkuverið
ætti eftir að færa góð föng í
þjóðarbúið, föng sem hver og
einn vonaðist til að nýtast mættu
þjóðinni allri á skynsamlegan
hátt til aukinnar hagsældar og
betri lífskjara.
Eiríkur Briem framkvæmda-
stjóri Landsvirkjunar sagði í
ávarpi að Hrauneyjafossi, að
virkjunin væri verk íslenzkra
handa, því allir framkvæmda-
þættir að Hrauneyjafossi væru
unnir af innlendum verktökum.
Eiríkur s.agði, að ásamt raf-
magnslínu að spennistöðinni á
Brennimel í Hvalfirði, væri áætl-
að að Hrauneyjafossvirkjun
kostaði eitt þúsund milljónir
króna að vöxtum á byggingar-
tíma frátöldum.
Ljósm. Mbl. Kristján.
Vigdís Finnbogadóttir leggur hylki það i hornstein orkuversins
að Hrauneyjafossi, sem saga virkjunarverksins hefur verið
skráð á til varðveiziu um ókomin ár.
Fyrstá verkefni LA í
ár „Jómfrú Ragnheiður“
LA HÓF starfsemi sína þann
25. ágúst sl. í „leiksmiðjtT
(námskeið) undir stjórn Kára
Halldórs. Þátttakendur voru
fastráðnir starfsmenn leik-
hússins ásamt leikurum og
öðrum, sem ráðnir hafa verið
við verkefni, sem koma upp
seinna á leikárinu.
Hafnar eru æfingar á fyrsta
verkefni leikársins „Jómfrú
Ragnheiði", sem er ný leikgerð
af Skálholti Guðmundar
Kambans, gerð af Bríeti Héð-
insdóttur, sem jafnframt leik-
stýrir. Leikmynd hannar Sig-
urjón Jóhannsson, og tónlist
er samin af Jóni Þórarinssyni.
David Walter sér um lýsingu.
Barnaleikritið „Hlynur og
svanurinn á Heljarfljóti" í
leikstjórn Þórunnar Sigurðar-
dóttur verður annað verkefnið.
Leikmynd gerir Guðrún Auð-
unsdóttir. David Walter sér
um lýsinguna. Frumsýning er
áætluð um miðjan nóvember.
Þriðja verkefnið fer í æf-
ingu í byrjun desember og er
„Þrjár systur" eftir Tsékhóv.
Leikstjóri verður Kári Halldór
Þórsson. Leikmynd annast
Jenný Guðmundsdóttir og lýs-
ingu Ingvar Björnsson. Frum-
sýning er fyrirhuguð í byrjun
febrúar.
Seinasta verkefni leikársins
verður gamanleikur í leik-
stjórn Andrésar Sigurvinsson-
ar.
Fastráðnir starfsmenn við
LA næsta leikár eru Sunna
Borg, Theodór Júlíusson, Gest-
ur E. Jónasson, Marinó Þor-
steinsson, Freygerður Magn-
úsdóttir, Þórey Aðalsteins-
dóttir, Guðbjörg Thoroddsen
og Andrés Sigurvinsson. Tvö
síðast töldu starfa nú í fyrsta
sinn hjá LA. Marinó Þor-
steinsson, sem starfað hefur
með LA um árabil er nú í
fyrsta sinn fastráðinn starfs-
maður. Auk þessa kemur Þrá-
inn Karlsson nú aftur til
starfa hjá LA.
Yfirstjórn leikhússins er í
höndum Leikhússráðs, sem
skipað er stjórn LA ásamt
fulltrúa Akureyrarbæjar og
fulltrúa starfsmanna leik-
hússins.
LA hyggst standa fyrir
námskeiðshaldi á leikárinu.
Formaður er Guðmundur
Magnússon.
Bríet Héðinsdóttir og hluti starfsmanna LA Ljósmynd Þengill.
'WÍS EKKI Vtófl SfM fli OE títt. Wffl HIN flKMNÍ''