Morgunblaðið - 12.09.1981, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
Fundur Thatchers og Mitterrands:
Athugun á byggingu gangna
undir Ermarsund fari fram
Unglingar í Þórshöín í mótmælasetu.
Óspektir unglinga í Þórshöfn:
Viljum félagsmiðstöðvar
færri lögreglumenn
ÓSPEKTIR unKlinKa hala veriö
mikiö í sviðsljósinu í Fa‘reyjum í
sumar ok var svo enn um helgina í
Þórshöfn. Margar rúður voru
hrotnar í ráðhúsbyKKÍnKunni í
Þórshofn ok Kamii hæjarKarðurinn
var lokaður fyrir umferð allan
sunnudaKÍnn. Ve^na óspektanna
handtók loKreKÍan fimm unKlinKa
en þeir voru fljótlcKa látnir lausir.
A hádegi á laugardag fóru ung-
menni í mótmælagöngu í miðbæ
Þórshafnar. Þau ætluðu að efna til
mótmælasetu á gatnamótunum við
R.C. Effersoesgötu. Gangan var ekki
fjölmennari en svo, að þau hættu við
það og fóru að gatnamótunum við N.
Finsensgötu og efndu til mótmæla-
setu þar. „Við viljum félagsmið-
stöðvar, færri lögreglumenn," hróp-
uðu ungmennin.
Ungmennin gengu síðan til heim-
ilis Poul Michelsen, bæjarstjóra
Þórshafnar, og kröfðust úrbóta í
málefnum unglinga. Lögreglan
sagði, að ungmennin sem fóru í
mótmælagönguna á laugardaginn
hefðu ekki verið hin sömu og tóku
þátt í óspektunum á sunnudeginum.
Heimild: Dimmalætting.
Eldur í bílaskipi
San Francisc-o. 11. soptombcr. AP.
ELDUR kom upp í 171 metra longu
japonsku flutningaskipi hliiðnu bif-
reiðum i dag og 15 menn af 22
manna áhöfn skipsins neyddust til
að yfirgefa skipið.
Rannsóknaskipið „Cayuse" var
nærstatt og viðbúið því að taka alla
áhöfnina um borð. Eldurinn kom
upp í japanska skipinu, „Blue
Hawk“, þegar það var um 1.120 km
suðvestur af San Francisco.
Flugvél bandarísku strandgæzl-
unnar af gerðinni C-130 hringsólaði
yfir skipinu. Önnur skip voru á leið á
slysstað. Strandgæzluskipið „Morg-
enthau" fór frá San Francisco á
slysstað, en það er 28 tíma sigling.
„Blue Hawk“ er 13.667 lestir og
hafði meðferðis 538 bíla. Þótt mikill
halli væri kominn á skipið héldu sjö
menn af áhöfninni áfram að berjast
við eldinn.
I.undúnum. 11. scptomhcr. AP.
TVEGGJA daga fundum Mar-
grétar Thatchcrs, forsætisráð-
herra Bretlands, og Francois
Mitterrands, Frakklandsforseta,
lauk í Lundúnum í dag. Á fundi
með fréttamönnum lýstu leiðtog-
arnir yfir samstöðu um, að athug-
anir færu fram á byggingu
gangna undir Ermarsund. Þeir
sögðu, að athuganir hæfust innan
mánaðar.
„Eg hef mikinn áhuga á að
athuganir fari fram,“ sagði Mar-
grét Thatcher við fréttamenn.
Hugmyndin um göng undir Erm-
arsund var fyrst sett fram árið
1802 af franska verkfræðingnum
Albert Mathieu, sem viðraði hug-
myndina við Napoleon. Hugmynd-
inni um göng hefur síðan oftsinnis
verið haldið á lofti. Frakkar lýstu
miklum áhuga á göngum undir
Ermarsund árið 1975 en
Verkamannaflokksstjórn Harold
Wilsons féll frá byggingu gangna
vegna gífurlegs kostnaðar. Svo
virðist sem hugmyndin um göng
undir Ermarsund hafi fengið byr
undir báða vængi á nýjan leik.
Leiðtogarnir lýstu yfir ein-
dregnum stuðningi við Samstöðu,
hin óháðu verkalýðsfélög í Pól-
landi, og að Pólverjar fái sjálfir að
ráða örlögum sínum. „Til íhlutun-
ar má alls ekki korna," sagði
Mitterrand. Leiðtogarnir lýstu yf-
ir áhyggjum sínum af innflutningi
japanskra bíla til ríkja Efnahags-
bandalags Evrópu. Thatcher
sagði, að ef ekki verði komizt að
samkomulagi við Japani muni
afleiðingarnar verða „skelfilegar".
Sex af hverjum tíu bílum, sem
seldir voru á Bretlandseyjum í
síðastliðnum mánuði, voru jap-
anskir.
Mitterrand ítrekaði stuðning
sinn við staðsetningu meðal-
drægra Pershing 2-eldflauga í
Evrópu og lagði áherzlu á að
jafnvægis gætti milli austurs og
vesturs. Þá ítrekaði hann stuðning
við afvopnunarviðræður. Mitter-
rand sagðist reiðubúinn að ræða
við Breta um kröfur þeirra um
lækkað framlag til EBE: „Við
munum aldrei skella hurðinni á
Breta," sagði Mitterrand.
Vel þótti fara á með leiðtogun-
um. Thatcher sagði að viðræðurn-
ar hefðu verið „vingjarnlegar og
uppbyggilegar" og Mitterrand
sagði þær „árangursríkar".
Stöðugt fjölgar flokkum í Danmörku:
Þrettándi flokkurinn
boðar f ramboð sitt
Frá Ib Björnhak. frcttaritara Mbl.
í Kaupmannahöfn. 11. scptcmbor.
ÞRETTÁNDI flokkurinn hefur
boðað framboð sitt til sveita- og
bæjarstjórnarkosninganna í Dan-
mörku. sem fram fara þann 17.
nóvember næstkomandi. Sósíal-
íski verkamannaflokkurinn hef-
ur fengið tilskilinn fjölda með-
mælenda og hefur boðað framboð
sitt. Jafnvel er hugsanlegt að
fjórtándi flokkurinn bætist í hóp-
inn, lífeyrisþegar kunna að bjóða
sérstaklega fram. Danir eru því
nálægt að setja Evrópumet i
fjölda flokka.
Jafnaðarmenn mynduðu minni-
hlutastjórn eftir síðustu þing-
kosningar með hlutleysi þriggja
borgaralegra miðflokka. Jafnað-
armenn eiga á hættu að missa
fylgi í kosningunum þann 17.
nóvember. Síðustu bæjar- og
sveitastjórnakosningar fóru fram
Alda réttarhalda í Eistlandi
eftir Andres Kiing
FLOKKSLEIÐTOGAR Eystra-
saltslandanna lofuðu á fundi
sovéska kommúnistaflokksins i
vor að taka harðar á trúuðum
og þjóðræknum andstæðingum
Sovétstjórnar. Þeir vilja koma í
veg fyrir að pólska „veikin“
breiðist út. Loforðið hefur leitt
til fjölda réttarhalda yfir lýð-
raðissinnum að undanförnu.
þar á meðal i Eistlandi.
Hinn vel þekkti Eistlendingur,
Mart Niklus, var dæmdur í 10
ára þrælkunarvinnu í fangabúð-
um og 5 ára útskúfun innan
Sovétríkjanna 8. janúar 1981.
Hann hefur áður verið dæmdur í
10 ára þrælkunarvinnu fyrir að
smygla úr landi myndum af
hversdagslegum óþægindum í
heimalandi sínu. í þetta sinn var
hann meðal annars ákærður
fyrir að hafa lánað bók sem ég
skrifaði, fyrir að hafa hlustað á
útsendingar Voice of America í
Eistlandi og fyrir að hafa gagn-
rýnt kosningafyrirkomulagið í
Sovétríkjunum. Hann hafði
einnig ritað nafn sitt undir
fjölda yfirlýsinga lýðræðissinn-
aðra íbúa í Eystrasaltslöndum,
allt frá gagnrýni á samkomulag
einræðisherranna Hitlers og
Stalíns um skiptingu Eystra-
saltslandanna og mótmæli vegna
innrásar Sovétmanna í Afgan-
istan. Hin þunga refsing getur
reynst lífstíðarfangelsi fyrir
Niklus þar sem hann þjáist af
bakveiki og er illa farinn af
hungurverkfalli sem hefur stað-
ið í tæpt ár. Hann er ókvæntur.
Faðir hans lést fyrir skömmu en
móðir hans heldur áfram að
biðja sovésk yfirvöld vægðar
fyrir hönd sonar síns. Niklus
hefur óskað eftir að fá að flytja
til frænku sinnar í Norrköping í
Svíþjóð.
Efnafræðiprofessorinn Juri
Kukk var dæmdur í 2ja ára
þrælkunarvinnu í fangabúðum 8.
janúar 1981. Hann var ákærður
fyrir að hafa talað við fréttarit-
ara frá Vesturlöndum í Moskvu,
fyrir að hafa skrifað undir
mótmælabréf í tilefni 40 ára
afmælis Hitler-Stalin-sam-
komulagsins og fyrir að hafa
mótmælt að siglingakeppni
Ólympíuleikanna yrði haldin í
hans heimalandi. Kukk lést 27.
mars í sovéskum fangabúðum
eftir 4 mánaða hungurverkfall.
Ýmsar dánarorsakir hafa verið
gefnar upp opinberlega en sam-
kvæmt heimildum í Eistlandi
kafnaði hann þegar verið var að
þröngva í hann mat. Kona
Kukks, 13 ára sonur og 9 ára
dóttir lifa hann.
Byggingaverkfræðingurinn
Veljo Kalep sem er 46 ára var
dæmdur í 4 ára þrælkunarvinnu
í fangabúðum 17. mars 1981.
Hann hafði lengi óskað eftir
brottflutningsleyfi til Svíþjóðar
eða til bróður síns í Kanada.
Hann hafði einnig lýst áhuga á
að stofna flokk sósíaldemókrata.
Hann sendi ásamt 40 öðrum
lýðræðissinnuðum íbúum
Eystrasaltslandanna heillaóska-
skeyti til Lech Walesa, leiðtoga
Samstöðu, þegar verkföllin byrj-
uðu í Póllandi. Við húsleit hjá
Kalep fann öryggislögreglan
m.a. efni um týnda diplómatinn
Raoul Wallenberg. Samkvæmt
upplýsingum frá Eistlandi hafði
Kalep komist á snoðir um eitt-
hvað nýtt í sambandi við dvalar-
stað Wallenbergs. Nú er hann
sjálfur í sovéskum fangabúðum i
Perm-héraði. Hann er kvæntur
og á þrjú börn sem eru 12, 11, og
9 ára.
Viktor Niitsoo sem er 29 ára
og stundar nám í arkitektúr var
dæmdur í 2ja ára þrælkunar-
vinnu í fangabúðum og 2ja ára
útskúfun í Sovétríkjunum 24.
apríl 1981. Hann var ákærður
fyrir að hafa ætlað að útbúa
sovéska bílinn Pobeda vopnum
sem hann gæti notað til að
ráðast á opinberar byggingar í
Tallin, höfuðborg Eistlands,
fyrir að hafa átt „andsovéskar"
bækur eins og The Russians eftir
Hedrick Smith, fyrir að hafa
dreift eistlenskum neðanjarðar-
bókmenntum og fyrir að hafa
látið andsovésk orð falla í veislu
ungkommúnista. Dómstóllinn
tók fyrstu ákæruna ekki alvar-
lega og þá síðustu tókst ákær-
anda ekki að sanna. Veislugestir
höfðu verið svo kófdrukknir að
þeir mundu ekki hvað sagt var í
veislunni. Niitsoo var fyrst og
fremst dæmdur fyrir að hafa
skrifað undir fjölda mótmæla-
bréfa og áskorana frá hreyfingu
lýðræðissinna í Eistlandi.
Tiit Madisson sem er 31 árs
var dæmdur í 4 ára þrælkunar-
vinnu í fangabúðum og 2ja ára
útskúfun í Sovétríkjunum 15.
maí 1981. Hann var ákærður
Andres Ktlng
fyrir að hafa skrifað andsovéskt
bréf um ástandið í Eistlandi til
vestur-þýsku útvarpsstöðvarinn-
ar Deutsche Welle, um að hafa
dreift eistlenskum neðanjarð-
arritum og fyrir að hafa mót-
mælt innrás sovéska hersins í
Afganistan. Madisson er kvænt-
ur og á 16 ára son.
Lúterska Evrópusambandið
hélt mikinn fund í höfuðborg
Eistlands í september 1980.
Margir trúaðir Eistlendingar
voru handteknir eftir að erlendu
gestirnir voru farnir.
Tiit Padam sem stundar nám í
arkitektúr var handtekinn fyrir
starfsemi sína í ungmennadeild
lúterska þingsins.
Villu Jurjo sem er vinsæll
prestur missti atvinnuleyfi sitt
af því að öryggislögreglan telur
hann of opinskáan í ræðum
sinum.
Vello Salum sem nýtur einnig
vinsælda hvarf eftir að hann
hélt ræðu um „kirkjuna og
fólkið" sem var síðar dreift í
neðanjarðarhefti í Eistlandi.
Hann er nú lokaður inni á
geðveikrahæli í Eistlandi. Salum
er kvæntur.
Dmitrij Minjakov sem er 60
ára er enn einn presturinn sem
var óheppinn. Hann starfar nú í
borginni Valga nærri landamær-
um Eistlands og Lettlands.
Hann var handtekinn í janúar
1981 og fór í 6 vikna hungurverk-
fall í vor.
Þeir sem vilja styðja eða vita
meira um fanga í Eistlandi geta
snúið sér til Hjálpcentralen för
politiska fángar i Estland, Box
34-018, 100 26 Stockholm. Það
eru samtök útlaga sem eru vel
þekkt fyrir áreiðanlega upplýs-
ingaþjónusfu. Þau starfa líkt og
Amnesty og vilja hjálpa fólki
sem er ofsótt vegna trúarlegra
eða pólitískra skoðana sinna í
Eistlandi.
árið 1978 og síðan þá hefur
kosningaaldur verið lækkaður í 18
ár. Því eru 443 þúsund nýir
kjósendur á kjörskrá og skoðana-
kannanir benda til, að fjölmargir
þeirra muni ekki neyta atkvæðis-
réttar síns. Því er búist við að
kjörsókn verði minni en áður og
menn eru sammála um, að Jafnað-
armenn muni bíða mest tjón.
Skoðanakannanir benda til, að
jafnaðarmenn hafi tapað fylgi frá
síðustu þingkosningum. Ef kosið
yrði nú, myndu þeir missa 2—3
þingsæti.
Nú eiga 10 flokkar sæti á
danska þinginu en þeim fækkaði
um einn í síðustu kosningum
þegar kommúnistar misstu þing-
sæti sín. Mikil barátta um hylli
kjósenda er milli smáflokkanna til
vinstri við jafnaðarmenn. Nú eiga
tveir smáflokkar til vinstri við
krata menn á þingi, sósíalíski
þjóðarflokkurinn og vinstri-sósí-
alistar. Samkvæmt skoðanakönn-
unum virðast þeir halda sínu fylgi.
Kommúnistar bjóða að sjálfsögðu
fram og einnig Kommúníski
verkamannaflokkurinn, sem kenn-
ir sig við marx-leninisma og nú
hefur enn eitt vinstrabrotið stigið
fram á vígvöllinn, sósíalíski
verkamannaflokkurinn, sem á
föstudag skilaði inn tilskildum
fjölda meðmælenda, 24.000 tals-
Andófsmenn
í Prag teknir
Vín. 11. Hcptcnbcr. AP.
SEX tékkneskir andófsmcnn
voru handteknir á fundi i ibúð i
Prag í gærkvöldi.
Upphaflega voru átta handtekn-
ir, en tveir voru seinna látnir
lausir. Fundurinn fór fram í íbúð
Martin Húblers úr nefnd á vegum
mannréttindahreyfingarinnar er
fer með mál fólks sem er lögsótt
að ástæðulausu.
Hert hefur verið á baráttu
stjórnvalda gegn stjórnarand-
stæðingum og haldið hefur verið
uppi harðri gagnrýni á óháðu
verkalýðshreyfinguna í Póllandi.
Meðal þeirra sem voru handtek-
in í íbúð Húblers voru talsmaöur
mannréttindahreyfingarinnar,
séra Vaclav Maly, og Jaromila
Bielikova, vinkona handtekins
baráttumanns samtakanna, Jiri
Dienstbier.