Morgunblaðið - 12.09.1981, Page 31

Morgunblaðið - 12.09.1981, Page 31
HVAÐ ER AD GERAST UM HELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981 3 \ Árni Arinbjarnarson Orgeltónleikar Laugardaginn 12. september kl. 17.00 verða haldnir orgeltónleikar í kirkju Fíladelfíusafnaðarins að Hátúni 2. Árni Arinbjarnarson orgelleikari mun leika orgelverk eftir J.S. Bach. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heimill. Myndlistarsýning í safna- húsi Skagfirðinga í SAFNAHÚSI Skagfirðinga á Sauðárkróki stendur nú yfir sýning Páls Sigurðssonar á 46 olíu- og akrýlmyndum. Páll er fæddur á Sauðárkróki 1944 en er nú kennari við lagadeild Háskóla íslands. Þetta er önnur einkasýning hans. Hin fyrri var í Reykjavík 1968. í norðursal safnahússins eru til sýnis 18 teikningar af gömlum húsum á Sauðárkróki sem Páll gerði og gaf Héraðsskjalasafni Skagfirðinga 1967 til minningar um afa sinn, Stefán Vagnsson, frá Hjaltastöðum. Sýningu Páls lýkur næstkomandi sunnudag, 13. sept. Hún verður opin á laugardag og sunnudag kl. 14 til 22. Hjólreiðarall fjölskyldu- fólks í Hafnarfirði HJÓLREIÐARALL þar sem öllum almenningi gefst kostur á þátttöku verður haldið í Hafnarfirði nk. laugardag. Keppt verður í þrem aldursflokkum, frá niu og uppúr. Vegalengdin, sem hjóluð verður, er sjö til þrettán kílómetrar, mislangar vegalengdir eftir aldursflokkum. Skilyrði fyrir þátttöku er það eitt, að reiðhjól þátttakandans sé í lagi. Þátttökugjald er 10 krónur. Músik og sport, Fálkinn og Superia-umboðið veita verðlaunagripi, og allir munu þátttakendurnir í hjólreiðarallinu fá viðurkenningarskjöld fyrir þátttökuna. Það er JC Hafnarfjörður, sem stendur að þessu hjólreiðaralli og JC-félagar hvetja fjölskyldufólk til að taka þátt í gamninu. Lagt verður af stað frá Engidal, þ.e. mótum Reykjavíkurvegar og Álftanesvegar, kl. 2 eftir hádegi á laugardag. Þátttöku þarf að tilkynna í versluninni Parma, Reykjavíkurvegi 64, fyrir föstudagskvöld. Jeppakeppni Björgunar- sveitarinnar Stakks SUNNUDAGINN 13. sept. nk. verður jeppakeppni á vegum Hjörgunarsveitarinnar Stakks í Keflavík-Njarðvík og fer hún fram á svipuðum sh'tðum og undanfarin ár. Þetta er 11. árið, sem þessi keppni er haldin og hafa þeir sem fylgst hafa reglulega með henni orðið vitni að miklum framförum á tækjakosti og leikni keppenda. Sigurvegari keppninnar fær 4000 kr. í verðlaun ásamt bikar, annað sætið fær 2500 kr. og þriðja 1500 kr. Þá verða einnig aukaverðlaun fyrir bestan tíma á Tímabrautinni, þar sem kemur fyrir drullu- gryfja, vegasait o.fl. Keppnin hefst klukkan 14 og er rétt fyrir utan Grindavík. Veitingar verða seldar á staðn- um en aðgangseyrir er kr. 50.- fyrir fullorðna en frítt fyrir 12 ára og yngri. Sgning í Rauða húsinu Magnús V. Guðlaugsson opnar sýningu í Rauða húsinu á Akureyri laugardaginn 5. septembér kl. 16. Sýningin verður opin kl. 16—20 dagana 5,—13. september. „Sorglaus konungssott“ í Lindarbæ Nemendaleikhúsið verður með í Lindarbæ kl. 3 á sunnu- daginn síðustu sýningu á barnaleikritinu „Sorglaus konungsson". Þetta er sænskt leikrit gert af þeim Suzanne Osten og Per Lysander. Leik- stjóri er Þórunn Sigurðar- dóttir. Það fjallar um konungsson, en faðir hans heldur honum inni í höllinni svo hann megi ekki kynnast lífinu og sorg- inni. Svo gerist það einn dag- inn að konungurinn deyr og konungsson fer út í heim og kynnist þar öllum þeim ósköp- um sem lífið er. Miðasala verður í Lindarbæ klukkan 3—5 á laugardaginn og frá 1—3 á sunnudaginn. Aðgangseyrir er 20 kr. Þrír meistar- ar í List- munahúsinu Sýning á verkum meistar- anna þriggja Tove Olafsson. Þorvalds Skúlasonar og Kristjáns Davíðssonar í List- munahúsinu. Lækjargötu 2. verður opin til 20. september. Opið er þriðjudaga til föstu- daga frá 10 til 6 og laugardaga frá 2 til 6. Þess má geta að verkin á sýningunni eru öll til sölu. Þórskabarett á Akureyri, Borgarnesi og Selfossi Þórskabarett verður á föstudagskvöld í Borgarnesi og sýnir þar í samkomuhúsinu á staðnum. Skemmtunin hefst klukkan niu og leika síðan Galdrakarlar undir dansi á eftir. Á laugardagskvöld verður svo Þórskabarett í Sjallanum á Akureyri og hefst þar skemmtunin kl. 10 og dansiball á eftir. Þá verður kabarettinn á Selfossi á sunnudaginn og verður með fjölskylduskemmtun í Selfossbíói sem hefst kl. 9. Sovéskir dagarí Listaskála ASI Aðsókn hefur verið góð að listsýningunni i Listaskála ASÍ, Grensásvegi 16, sem opnuð var miðvikudaginn 2. sept. Þar eru sýnd 2 olíumálverk, 11 málmmyndir (drifin verk) og 37 listmunir úr keramik, tré og horni eftir marga af fremstu myndlistar- mönnum Sovétlýðveldisins Georgíu (Grúsíu) í Kákasus. Sýningin verður opin til sunnudagskvölds 13. sept., á virkum dögum, kl. 14—19, en á laugardögum og sunnudögum kl. 14—22. Aðgangur er ókeypis. Sýning Valgerðar Hafstað í Ásmundarsal opnar i dag málverkasýningu Valgerður Hafstað. Sýnir hún þar um 30 myndir málaðar með vatnslitum, akrýl, pastel og olíulitum á pappír, og notar blandaða tækni. Valgerður hefur verið búsett í Frakklandi og síðustu árin í New York og hefur sýnt á þessum stöðum við góðar viðtökur, en þetta er hennar fimmta einkasýning á íslandi. Sýningin er opin kl. 14—22 um helgina og kl. 16—22 virka daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.