Morgunblaðið - 12.09.1981, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
Ályktanir 26. þings
Sambands ungra sjálfstæðismanna
Á þingi Sambands ungra sjálfstædismanna, sem haldið var á ísafirði
28.—30. ágúst var ályktaö um ýmsa málaflokka fyrir utan almenna
stjórnmálaályktun, sem þegar hefur birst hér í blaöinu. Fara ályktanir
þingsins um einstök mál hér á eftir.
Um orkumál:
Þrjár virkjanir innan 10 ára
Um sveitarstjórnarmál:
Sjálfstæði
sveitarfélaga
Á þessum áratug þarf að tvö-
falda orkuframleiðslu lands-
manna. Nýting þessara auðlinda
er forsenda iðnvæðingar og auk-
innar framleiðslu þjóðarinnar. Til
þess að geta keppt við aðrar þjóðir
þurfa íslendingar að leggja
Ungir sjálfstæðismenn vekja at-
hygli á þeirri miklu hættu, sem er
samfara fíkniefnaneyzlu. Neyzla
fíkniefna og misnotkun lyfja er
verulegt vandamál í nágranna-
löndum okkar. Þrátt fyrir herta
tollgæzlu og lögreglueftirlit hefur
notkun fíkniefna vaxið geigvæn-
lega á Islandi undanfarin ár,
einkum meðal ungs fólks. Reyna
Samband ungra sjálfstæð-
ismanna vill vekja athygli lands-
manna á nauðsyn náttúruverndar
og eðlilegrar skipulagningar á
ferðamálum. Samkvæfht innlendri
spá er gert ráð fyrir að árið 1985
komi hingað til lands 93.500 út-
lendir ferðamenn en í dag eru þeir
ekki nema rétt rúmlega 76.000 á
ári. Um leið og ungir sjálfstæð-
ismenn fagna þeim árangri, sem
náðst hefur í landkynningarstarfi
erlendis, þá vara þeir sterklega við
stjórnlausum innflutningi ferða-
manna og skipulagslausri þjón-
ustu við ferðamenn.
Ungir sjálfstæðismenn benda á
eftirfarandi:
1. Náttúra landsins er viðkvæm
og sumarið er stutt. Ljóst er að
ágangur ferðamanna, útlendra
sem innlendra, er víða allt of
mikill og á mörgum stöðum er
lítil sem engin gæsla eins og
vcra skyldi.
2. Fugla- og dýralíf er mjög sér-
stakt hér á landi. Einnig er hér
að finna margvíslegar náttúru-
minjar sem í heild sinni hafa
mikið gildi. Þjófnaður á sjald-
gæfum fuglum og eggjum
þeirra og ýmiss konar náttúru-
minjum er áð verða alvarlegt
vandamál hér á landi eins og
fram hefur komið í fréttum
fjölmiðla á þessu sumri sem nú
er að líða.
3. Enn er langt í land með að hér
séu nægilega góðar aðstæður til
móttöku ferðamanna, s.s. hótel
áherslu á uppbyggingu þeirra at-
vinnugreina, sem hér á landi gefa
ódýrari eða betri vöru en gerist
annars staðar. Hagkvæmt virkj-
aniegt vatnsafl til raforkufram-
leiðslu á íslandi er talið vera um
28 Twh á ári. Af þessu vatnsafli
þarf með öllum tiltækum ráðum
að koma í veg fyrir fíkniefna-
neyzlu. Til þess að svo geti orðið
þarf samstillt átak opinberra að-
ila og almennings, bæði aukna
fræðslu og sterkt almenningsálit, í
baráttunni gegn þessum vágesti.
Þá ber að herða verulega viðurlög
við dreifingu fíkniefna.
og tjaldsvæði.Frumstæð ferða-
mannaþjónusta hefur neikvæð
áhrif erlendis.
Ungir sjálfstæðismenn leggja
áherslu á eftirfarandi atriði til
úrbóta í náttúruverndarmálum og
ferðamálum, en þessir tveir mála-
flokkar eru óaðskiljanlegir í allri
umfjöllun.
Náttúruverndarmál
Umhverfismál er einn sá mála-
flokkur sem hefur æ meira gildi í
nútíma þjóðfélagi. Nauðsynlegt er
að gefa þeim málum meiri gaum í
stjórnsýslu landsins.
Fjárveitingar til Náttúruvernd-
arráðs hafa dregist mjög saman á
undanförnum árum og liggur við
að vandræðaástand sé í starfsemi
ráðsins af þeim sökum. Gera
verður ráðinu kleift að vinna að
þeim verkefnum sem lög og reglur
leggja því á herðar. Þyngja ber
verulega viðurlög við brotum á
náttúruverndarlögum. Enn þarf
að auka allan viðbúnað til vernd-
unar náttúru landsins og væn-
legasta ráðið til árangurs er
skipulögð upplýsingadreifing til
innlendra og útlendra ferða-
manna.
F'crðamál
Til vandræða horfir nú með
móttöku ferðamanna víða um
land. Því miður hefur aukningu á
landkynningu erlendis ekki verið
höfðu árið 1979 einungis verið
virkjaðar um 3 Twh, eða tæp 11%.
Önnur eins orka, eða jafnvel
meiri, býr í virkjanlegum jarð-
varma. Ljóst er að möguleikar
íslendinga til framleiðslu á raf-
orku eru langt umfram beinar
innlendar þarfir á næstu áratug-
um.
Aðgangur að ódýrri og óþrjót-
andi orku er sá grundvöllur, sem á
má byggja. Þrjár nýjar stórvirkj-
anir eru á undirbúningsstigi en
þegar hefur dregist alltof lengi að
tekin verði ákvörðun um röðun
byggingarframkvæmda við þessar
virkjanir. Þær þurfa allar að taka
til starfa innan tíu ára. Samhliða
byggingu þessara virkjana þarf að
reisa ný stóriðjuver eða stækka
þau mjög, sem fyrir eru. Mögu-
leikar eru til stækkunar álversins
og járnblendiverksmiðjunnar en
bygging nýs stóriðjuvers er for-
senda þess, að unnt verði að virkja
með hagkvæmu móti á Austur-
landi.
Uppbygging stóriðju verður að
miðast við íslenskt forræði en
meirihlutaaðild Islendinga er ekki
ófrávíkjanlegt skilyrði.
mætt með auknum viðbúnaði hér-
lendis. Ungir sjálfstæðismenn
benda á að gera þurfi nákvæma
könnun á því, hversu mörgum
útlendum ferðamönnum sé hægt
að taka á móti án þess að náttúru
landsins og menningu þjóðarinnar
stafi hætta af. í framhaldi af
þeirri könnun er brýnt að jafna
straumi ferðafólks um byggðir
landsins, auka gistirými í jafnt
dreifbýli sem þéttbýli.
Ungir sjálfstæðismenn minna á
að fjárfestingar í ferðamannaiðn-
aði eru með því minnsta sem um
getur í nokkurri atvinnugrein en
hagnaður skilar sér mun fyrr og
er hlutfallslega meiri en víða
annars staðar ef rétt er á málum
haldið. Þess vegna er um að gera
að auka lánafyrirgreiðslur til
þeirra sem vilja hasla sér völl á
sviði ferðamannaþjónustu. Ferða-
mannaþjónusta við útlendinga er
gjaldeyrisskapandi og því útflutn-
ingsiðnaður í sjálfu sér. AUar
iðngreinar geta haft gagn af
blómlegum ferðamannaiðnaði hér
á landi.
Ungir sjálfstæðismenn vilja þó
minna á að áhugi íslendinga á
ferðalögum um eigið land hefur
stóraukist á síðustu árum og í
ferðamálum má ekki miða ein-
göngu við útlendinga. Minnt skal á
að ferðalög Islendinga um eigið
land geta verið gjaldeyrisspar-
andi. Ungir sjálfstæðismenn
hvetja landa sína til þess að
kynnast eigin landi.
Samband ungra sjálfstæð-
ismanna vekur athygli á mikil-
vægi sveitarstjórnarmála í póli-
tískri umræðu. Sveitarstjórnar-
kosningar eru á næsta leiti og þótt
aðstæður og verkefni séu misjöfn í
einstökum sveitarfélögum þá eru
nokkrir þættir sem þau eiga sam-
eiginlega og tengjast almennt
þeirri stefnumótun sem felst í
sjálfstæðisstefnunni og hugsjón-
um sjálfstæðismanna.
Ungir sjálfstæðismenn leggja
áherslu á sjálfstæði sveitarfélag-
anna og víðtækt forræði þeirra í
eigin málum. Með því er tryggð
viss valddreifing í þjóðfélaginu og
að þeir sem gerst mega vita um
staðhætti og landkosti ráði mestu
við töku ákvarðana og mörkun
stefnu.
Sveita>-félögin þurfa ríkari
heimildir til að fara með tekjuöfl-
un sína og meðferð gjaldskrár-
mála og hafa ákvörðunarvald um í
hve ríkum mæli þau nýta þá
gjaldstofna sem í þeirra hlut
koma. Áréttuð er sú skoðun sjálf-
stæðismanna að ríkið falli frá
beinum sköttum og þeim verði
einvörðungu beitt í þágu sveitar-
félaganna. Létta þarf hinni
óhagkvæmu miðstýringu ríkis-
valdsins, sem nú ríkir í þessum
efnum. En með slíkar heimildir
verður að fara með gát og sjálf-
stæðismenn hljóta að gera þá
kröfu til fulltrúa sinna hvar sem
þeir kunna að sitja í sveitarstjórn
í umboði kjósenda flokksins, að
þeir gangi ekki um of á ráðstöfun-
arrétt borgaranna en reki sveit-
arsjóðina og fyrirtækin, sem þeim
tengjast, af hagkvæmni og þar
sem því verði við komið verði
þjónustan seld á kostnaðarverði.
Ungir sjálfstæðismenn telja
nauðsynlegt að verkaskipting ríkis
og sveitarfélaga sé glögg og ákveð-
in þannig að þess sé jafnan gætt
að saman fari vald og ábyrgð. Það
flókna samkrull sem nú er í
þessum efnum hefur bæði reynst
dýrt og óþjált í stjórnun og
uppbyggingu.
Sveitarfélögin eiga að greiða
götu atvinnufyrirtækjanna hvert
á sínu svæði og þeim á að koma
fyrir þar sem hagkvæmast og
arðbærast er. Ungir sjálfstæðis-
menn fordæma þá stefnu vinstri-
flokkanna, sem birtist hvarvetna í
sveitarstjórnum landsins og miðar
að því að þrengja kost atvinnu-
fyrirtækjanna í smáu og stóru,
ekki síst með óhóflegri skatt-
heimtu, sem kemur m.a. í veg fyrir
uppbyggingu og þróun margra
þeirra. Sveitarfélögin eiga ekki að
taka beinan þátt í atvinnurekstri
á þeim sviðum sem einstaklings-
framtakið myndi nýtast betur. Er
t.d. vakin athygli á því að óeðlilegt
er að sveitarfélögin skuli ekki gefa
íbúum sínum kost á að hafa
XXVI. þing SUS skorar á Al-
þingi íslendinga að aflétta einok-
un ríkisins af rekstri hljóðvarps
og sjónvarps. Með tilkomu nýrrar
tækni á þessu sviði er ógerlegt að
framfylgja núgildandi lögum. Um
langt skeið hefur mönnum verið
ljós vilji almennings til að breyta í
þessa átt þar sem slík skömmtun-
arstefna samræmist ekki óskum
og áhugamálum almennings.
fasteignir sínar í frjálsri trygg-
ingu. Einokun á þessu sviði á ekki
neinn rétt á sér. Þróttmikið frjálst
atvinnulíf er megin forsendan
fyrir blómlegu byggðarlagi. Þann
mikla kraft sem í því felst má
beisla en aldrei binda.
Ungir sjálfstæðismenn leggja
ríka áherslu á húsnæðismálin í
komandi sveitarstjórnarkosning-
um. Þeir telja að sérhverri sveit-
arstjórn beri að gera allt sem í
hennar valdi stendur til þess að
búa í haginn fyrir húsbyggjendur.
Stefna á markvisst að því að allir
sem það kjósa geti komið sér upp
eigin þaki yfir höfuðið. Lóða- og
skipulagsmálum ber að haga
þannig að þau þjóni þessum mark-
miðum en standi ekki gegn þeim
eins og víða hefur gerst þar sem
vinstrimenn fara með völd í sveit-
arstjórnum. Sá þungi sem lagður
hefur verið á svokallað félagslegt
húsnæði á síðustu árum hefur
orðið til þess að draga stórkost-
lega úr möguleikum einstakl-
inganna til að komast yfir hús-
næði sem þeir eigi kvaða- og
íyrirvaralaust. Þessari þróun
verður að snúa við áður en það er
orðið um seinan.
Félagsmál hafa frá öndverðu
verið eitt meginverkefni sérhverr-
ar sveitarstjórnar. Svo hlýtur
áfram að verða. Ungir sjálfstæð-
ismenn telja að meginstefnan í
þessum málaflokki hljóti að felast
í því að hjálpa því fólki, sem undir
hefur orðið, um lengri eða
skemmri tíma til sjálfshjálpar.
Oft þarf næsta lítið til að koma, til
þess að starfsvilji þeirra, sem við
líkamlega hömlun búa, fái að
njóta sín, þeim sjálfum og þjóðfé-
laginu til mikils ávinnings. Forð-
ast verður að koma upp kerfi sem
til þess er fallið að draga úr
sjálfsbjargarþrótti einstakl-
inganna, kerfi sem býr til vanda-
mál en leysir þau ekki. Meðferð
félagsmála verður að vera í sí-
felldri endurskoðun svo komist
verði hjá spillingu og sóun sem er
þvi miður víða eitt megineinkenni
á meðferð þessara mála viða í
nálægum löndum og kemur óorði á
mikilvæga starfsemi, sem ekki er
hægt að vera án.
Ungir sjálfstæðismenn telja að
sveitarfélögunum beri að ýta und-
ir og styðja frjálsa félagastarf-
semi en varast að hefta hana í
fjötra forsjár hins opinbera.
Þróttmikið frjálst menningar-
íþrótta- og félagslíf er einn óræk-
asti vitnisburður sem fáanlegur er
um blómlegt og rismikið sveitarfé-
lag. Opinberir aðilar eiga að forð-
ast að hafa þessa þætti að féþúfu,
eins og nú er gert í flestum
tilvikum.
SUS telur mikilvægt að ungt
fólk sé áberandi og virkir þátttak-
endur í sveitarstjórnarmálefnum
fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.
Afturhaidssemi valdhafa má
ekki öllu lengur standa eðlilegri
þróun þessara mála fyrir þrifum.
Reynsla ýmissa nágranna-þjóða
okkar (t.d. Breta) af frjálsum
hljóðvarps- og sjónvarpsrekstri
hefur sýnt að til mikils er að
vinna. Gerum ekki austantjalds-
ríkin að fyrirmynd okkar á þessu
sviði.
Um fíkniefnamál:
Hert viðurlög
gegn fíkniefnum
Um náttúruverndar-pg ferðamál:
Efla ber náttúruvernd og
bæta ferðamannaaðstöðu
Um frjálsan útvarpsrekstur:
Af létt verði
ríkiseinokun