Morgunblaðið - 12.09.1981, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
41
fclk í
fréttum
fíaust- o&
vetrartís/can
/rá J*arís, Afiianó
o& JVeu? Yóric
Hér má sjá nokkur sýnishorn af haust- og vetrartískunni frá
París, Milano og New York. Ullarefni er mjög áberandi í
öllum fatnaði í vetur, hvort sem um er að ræða pils, buxur,
kápur eða jakka, svo ekki sé talað um þykku stórmunstr-
uöu ullarpeysurnar. Síddin virðist fara nokkuö eftir dyntum
hvers tískufrömuðar, þó virðast síð pils, sem ná niöur á
kálfa, vera mest áberandi. Annars tala myndirnar sínu máli.
0*%
Erfiðleikar í
flugr^kstri víðar
en á Islandi
Eftir Guöjón
F. Teitsson
Pan American
í dagblaðinu Lloyd’s List, sem
tengt er hinum heimsþekkta
brezka vátryggingamarkaði, er frá
því skýrt hinn 11. ágúst sl., að
rekstrarhalli Pan American
World Airways á fyrstu 6 mánuð-
um þessa árs hafi numið 217,6
millj. $, og hafi stjórn félagsins í
þessu sambandi farið fram á það
við 33.100 starfsmenn sína að þeir
féllust á 10% launalækkun, en
fregnir hafa enn ekki borizt af
viðbrögðum starfsfólksins.
British Airways
Þá er í nefndu blaði dagana
6.-8. ágúst rætt um rekstrarerf-
iðleika British Airways, sem sagt
er hafa tapað 141 milljón £ á
reikningsárinu, sem endaði 31.
marz sl., en næsta ár á undan
hafði félagið 20 milljóna £ hagnað
til skattlagningar.
Sagt er, að félagið (BA) hafi á
síðastliðnu ári fækkað starfsfólki
um 4.288, og sé búizt við frekari
fækkun um allt að 9.000 á þessu
ári. Mun þá tala starfsfólks verða
í kringum 43.000.
Rekstrargjöld BA á sl. ári eru
sögð hafa numið 2.156 milljónum
£, þar af olíuvörur 501 millj. £ og
laun 473 millj. $. Vaxtagjöld námu
70 millj. £ og nýjar fjárfestingar
271 millj. £, þar af 75% vegna
nýrra flugvéla.
Fluttar voru tæplega 16 milljón-
ir farþega á sl. ári, og var um að
ræða 8% samdrátt miðað við
næsta ár á undan.
Að duga eða drepast
Fyrir einu eða tveimur árum
var frá því greint, að æðstu
stjórnendur BA hefðu valið sér
kjörorðin “Compete or die” („að
duga eða drepast"), og virðist enn,
þrátt fyrir rekstrarhalla á sl. ári,
haldið stefnu nefndra kjörorða.
Er í þessu sambandi skýrt frá
ýmsum róttækum aðgerðum til að
bæta rekstrarafkomuna.
Yfirstjórnarkostnaður er talinn
allt of hár og lögð mikil áherzla á
að lækka hann, m.a. í áður
greindri fækkun starfsmanna.
Ráðgerð er sala afgreiðslustöðvar-
innar “Victoria” og að breyta
þeirri, sem nefnd er “West Lon-
don”, í stórmarkaði o.s.frv. —
Hins vegar er tekið fram, að ekki
skuli fresta eða draga úr áður
ráðgerðri endurnýjun flugvéla, t.d.
varðandi þegar pantaðar Boeing
757, því að þetta sé hið þýðingar-
mesta fyrir félagið í framtíðinni.
Sagði formaður stjórnar BA, sir
John King, nýlega í ræðu, að von
væri um rekstrarhagnað félagsins
á þessu- ári, þótt verkfallsaðgerðir,
t.d. í flugumferðarstjórn, hefðu
vissulega þegar sett strik í reikn-
inginn og valdið BA tekjumissi
svo næmi 60 millj. £
Námsstyrk úthlutað úr minn-
ingarsjóði Sigríðar Jónsdóttur
SKIPULAGSSKRÁ fyrir minn-
ingarsjóð Sigríðar Jónsdóttur frá
Drangshlíðardal var staðfest i
vor, en sjóðurinn var stofnaður
samkvæmt ákvæðum i erfða-
skrám Lilju Hjartardóttur, dótt-
ur hennar, en hún lést 11. mai
1978.
skólastjóri Skógaskóla, Sverrir
Magnússon, og hreppstjóri Aust-
ur-Eyjafjallahrepps, Kolbeinn
Gissurarson.
Leiðrétting
Fyrsta úthlutunin úr sjóðnum
fór fram nýlega en þá var systkin-
unum Guðrúnu Þóreyu Ingólfs-
dóttur og Guðna Úlfari Ingólfs-
syni frá Drangshlíðardal veitt 10
þúsund krónur hvoru í námsstyrk.
Stofnfé sjóðsins var 4.675.000
gamlar krónur og skulu % hlutar
vaxtatekna fara til styrktar efni-
legu námsfólki í Austur-Eyja-
fjallahreppi er leggur stund á nám
að skyldunámi loknu.
Við afhendingarathöfnina, sem
fram fór að Skógum, minntist
Þórður Tómasson í Skógum þeirra
mæðgna, Sigríðar og Lilju og
ættfólks frá Drangshlíðardal. Þá
flutti Hafsteinn Hjartarson
kveðju fyrir hönd systkina og
vandamanna Lilju Hjartardóttur
heitinnar. Síðan voru ávörp og
hamingjuóskir fluttar systkinun-
um í Drangshlíðardal og foreldr-
um þeirra.
Stjórn sjóðsins skipa sóknar-
prestur Eyvindarhólasóknar, sr.
Halldór Gunnarsson, formaður,
í MBL. sl. fimmtudag varð meinleg
villa í samtali við Guðmund Bene-
diktsson á Egilsstöðum. Haft var
eftir Guðmundi að yfirfullt væri að
gera á Egilsstöðum og það er rétt,
en svo slæddist með sá fróðleikur að
yfirfullt væri að gera „í fiski".
Guðmundi, sem öðrum á Egils-
stöðum, þóttu það vitanlega tíðindi
— þar sem engin er fiskvinnslan í
bænum.
Kaffisala
til styrktar
kristniboði
Kristniboðsfélag karla stendur
fyrir kaffisölu í Betaníu að Lauf-
ásvegi 13 milli kl. 14.30 til 22.30 á
morgun, sunnudag. Allur ágóði af
kaffisölunni mun renna til
kristniboðsstarfs íslenskra
kristniboða í Eþíópíu og Kenía.
Ungir Eþiópíumenn sem tekið hafa kristna trú.