Morgunblaðið - 04.10.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.10.1981, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981 Hann er fæddur vesturbæingur, lauk stúdentsprófi frá MR tók BA-próf í tung- umálum í Háskóla íslands, hélt síðar út til Bandaríkjanna og lauk þar Master Sci- ence-prófi í heyrnarfræði með talmeina- fræði sem aukagrein. Sneri aftur heim til íslands ’66 og starfaði sem forstöðumaður heyrnardeildar Heilsuverndarstöðvarinn- ar í Reykjavík í ein 10 ár. Þá hélt hann utan aftur 76 í þetta sinn til Nova Scotia í Kanada, nánar tiltekið til Halifax sem er 200.000 manna borg. Þar var hann ráðinn yfirmaður heyrnardeildar Nova Scotia Hearing and Speech Clinic, eða Heyrnar- og talmeinastöðvar fylkisins. Starfaði hann þar í fimm og hálft ár en er nú rétt nýkominn til landsins aftur, sennilega til frambúðar. Hann heitir Gylfi Baldursson, og fer allra sinna ferða í hjólastól. Gylfi Baldursson heyrnar- og talmeinafræðingur: „Var farinn að mygla svolítið Blaðamaður Mbl. hitti Gylfa að máli stuttu eftir heimkomuna, þar sem hann býr í Fossvoginum. Hann var að því spurður fyrst hvað hafði valdið því að hann tók að sér stjórnun þessarar heyrn- arstöðvar í Kanada. Heljarmikil reynsla Vinur minn og skólabróðir fró Bandaríkjunum er forstjóri Nova Scotia Hearing and Speech Clinic og bauð hann mér þessa stöðu yf- irmanns heyrnardeildar stofnun- arinnar. Það býr ein milljón manna í fylkinu og í borginni einni er ein meginstöð ásamt fjór- um minni en auk þess eru litlar stöðvar í borgum víða um fylkið. Hvernig var að stunda þetta úti í Kanada? Þetta var heljarmikil reynsla. Eg er menntaður í þessum fræð- um í Bandaríkjunum og í Kanada nota þeir sama kerfið og þar og því féll ég tiltölulega fljótt inn í myndina. Hér hef ég alltaf verið hálfgerður utanveltugemlingur í kerfinu. Hér á landi eru „heyrnar- fræðingar" háls-, nef og eyrna- læknar sem hafa sérhæft sig í heyrnarfræði. í Bandaríkjunum er þetta fag algerlega sérhæft frá byrjun. Úti var farið eftir mjög ströngu prógrammi við allar barnamæl- ingar. Ég held ég megi segja að þarna hafi farið fram einar yfir- gripsmestu smábarnamælingar í Norður-Ameríku. Við mældum krakkana á fyrstu tveim, þrem dögum æfinnar. Á nokkrum vikum var oftast búið að greina próblem þeirra sem afbrigðilegir voru. Það hefur gengið svo langt að útvega heyrnartæki fyrir tveggja mánaða gamalt barn. Það skiptir nefnilega svo geysilega miklu að greina þetta frá byrjun svo barnið geti þroskast eðlilega. Stofnunin var viðurkennd fyrir þessar fullkomnu og árangursríku mælingar. Ég man þegar ég kom heim frá námi ’64, þá dundi yfir okkur allur þessi hópur krakka, sem hafði misst heyrnina vegna þess að móðirin fékk rauða hunda á meðgöngutímanum. Þetta voru um 40 krakkar og mörg af þeim uppgötvuðust ekki fyrr en á öðru eða þriðja ári og hafði því geysi- legur tími farið til spillis á þeirra þroskaferli, en með þessum mæl- ingum er verið að reyna að koma í veg fyrir að það gerist. Hvernig er þetta mælt í börnun- um svona ungum? Það er gert með allskonar sér- prófum. Meðal annars eru mæld rafboð til heilans með nýrri tækni sem á vafalaust eftir að gjör- breyta heyrnarprófunaraðferðum í náinni framtíð. Mælinguna á rafboðum til heilans er hægt að framkvæma á háls-, nef- og eyrna- deild Borgarspítalans. Mæl- ingarnar eru til mikilla hagsbóta fyrir ungbörn og vangefna og aðra þá sem ekki geta eða vilja gefa svörun til kynna, m.a. þá sem gera sér upp heyrnartap í gróðaskyni. Annars eru yfirleitt svo sem engar byltingar í heyrnarfræðinni síðustu ár, frekar hægfara þróun. Öll prinsipp eru gömul. Oftast vill vanta upp á alla eftirmeðferð. Það er ekki nóg að stinga heyrnartæki í eyrað á einhverjum. Flestir þurfa á frekari handleiðslu að halda. Vantar fólk og peninga Annað sem var mjög stór þáttur í starfseminni þarna úti var að skipuleggja heyrnarvernd, fyrst og fremst á vinnustöðum og í um- hverfinu yfirleitt. Ég hélt nám- skeið fyrir fjölda fólks á vinnu- stöðum auk þess sem ég kenndi kúrsa við einn háskólann í Hali- fax. Þetta hefur allt verið gjörólíkt því sem er hér á landi? Hér á landi vantar fólk og pen- inga. Það þarf bæði mannskap og tækjabúnað til að fylgja svona starfsemi vel eftir. Þó held ég að málin séu að mjakast í rétta átt. Vitanlega er þetta dýrt fyrirtæki og kannski er þess vegna fjárveit- ing til heyrnar- og talmeinastöðva ekki nægileg. Þetta er alls ekki meint sem vanþakklæti að neinu leyti, þvert á móti, það sem búið er að gera í þessum efnum hér á landi er mjög virðingarvert. Mað- ur er bara orðinn svo fordekraður eftir þessa dvöl þarna úti og mikið vill alltaf meira. En svo snerir þú aftur til lands- ins? Já, það var fyrst og fremst fjöl- Víkingur til veiða á ný Akrancsi. 29. sept. VÍKINGUR AK kom til Akra- ness sl. laugardag. frá Frede- rikshavn í Danmörku. en þar er skipið búið að vera í fjóra mánuði. vegna vélaskipta og ýmissa hreytinga. Víkingur er 1000 lesta skip, eitt af stærstu loónuskipum okkar fslendinga. Ég náði tali af Valdimar Ind- riðasyni framkvæmdastj. Síld- ar- og fiskimjölsverksmiðju Akraness hf. sem er eigandi skipsins og bað hann að lýsa nánar hvað gert hafði verið, og hvernig honum hefði líkað sam- skiptin við Danina. Valdimar sagði að ákveðið hefði verið sl. vor að skipta um aðalvél skipsins sem orðin var rúmlega 20 ára gömul og orðin viðhaldsfrek og erfitt að fá í hana ýmis smærri stykki nema sérsmíðuð, sama gilti um raf- magnskerfi skipsins, sem var jafnstraumskerfi. Ákveðið var að taka tilboði frá Alpha-Diesel-verksmiðjun- um um 3000 H.K. aðalvél. Einn- ig tóku þeir að sér niðursetningu vélarinnar og nýrrar ljósavélar, svo og endurnýjun á rafkerfi skipsins og breytingar yfir í riðstraum. Sett voru ný og afl- meiri skip í skipið og skrokkur skipsins sandblásinn og galv- Víkingur AK 100 anhúðaður ofan sjólínu. Auk þess voru ýmis smærri atriði í búnaði skipsins lagfærð og endurnýjuð. Samskipti öll við forráða- menn og aðra starfsmenn Alpha- Diesel voru mjög góð. Þeir lögðu auðsjáanlega áherslu á að leysa verkið sem best af hendi og ljúka því á tilsettum tíma eins og samningur hljóðaði upp á og það stóðst upp á dag, og það er stórt atriði fyrir alla og ekki hvað síst fyrir útgerðar- menn og skipshafnir. Víkingur mun halda til loðnu- veiða nú í vikunni. — JÚlÍUK.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.