Morgunblaðið - 04.10.1981, Side 18

Morgunblaðið - 04.10.1981, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981 Vestur-Þýskaland: Hryðjuverkasamtökin Rauðu herdeildirnar í Vestur-Þýskalandi hafa nú aftur skotið upp kollinum eftir nærri fjöKurra ára hlé. Ilér eru þó ekki á ferð- inni nýir liðsmenn og yn>;ri, heldur sami gamli kjarn- inn, þ.e. þeir úr honum, sem hafa sloppið við að lenda í höndum löKreglunnar. Miðaldra menn, sem finnst komin tími til að hefjast handa á nýjan leik og í þetta sinn Ki'Kn Bandaríkjamönnum. Þetta eru fullyrðingar háttsetts foringja í vestur-þýsku öryggis- lögreglunni og hann var ekki í neinum vafa þegar hann svaraði því til hverjir hefðu staðið á bak við banatilræðið við Frederick J. Kroesen, hershöfðingja, yfirmann Bandaríkjahers í Evrópu, og fimm árásir á aðsetur Bandaríkjamanna á síðustu vikum. Að hans sögn eru þessir menn „skriffinnar, ósveigj- anlegir kreddutrúarmenn, sem 'gera sér næstum sjúklegt far um að standa við gerðar áætlanir" og, bætti hann við: „Jafnvel þótt þeir hafi fulla ástæðu til að halda, að við vitum hvað þeir hyggjast fyrir. hópsins væru „andstæðar fólkinu" og hvaða áhrif flugrán og sprengjutilræði hefðu á hug- myndafræðina og almenningsálit- ið. Inn í þessa umræðu hafa einnig blandast ásakanir tveggja eða fleiri tiltölulega sjálfstæðra hryðjuverkahópa, sem segja Rauðu herdeildirnar vera söfnuð yfir- stéttarfólks og úr öllu sambandi við raunveruleikann. í skjölum frá Rauðu herdeildun- um, sem lögreglan komst yfir í fyrra, var m.a. talað um fyrirhug- aða árás á háttsettan, bandarískan herforingja í Heidelberg og — jNeUr|Iork©hne0 Svona var umhorfs fyrir utan höfuðstöðvar flughers Bandarikjanna og NATO í Mið-Evrópu, i Ramstein i V-Þýskalandi, eftir að sprengja hafði sprungið þar undir bil 31. ágúst sl. 15 manns slösuðust. Andstaðan við nifteindasprengjuna hefur blásið nýju iífi í Rauðu herdeildirnar, sem einbeita sér nú að árásum á Banda- rikjamenn. Rauðu herdeildirnar láta til skarar skríða að nýju þá láta þeir slag standa. Þetta er allt gamalkunnugt." A listanum yfir eftirlýsta hryðjuverkamenn eru 30 nöfn, en talið er, að aðeins 12—15 myndi hinn raunverulega kjarna, „ólög- lega arminn" svokallaða, sem stjórnar öllum aðgerðum hópsins. Þessir menn fara huldu höfði, eru í einum felustaðnum í dag og öðrum á morgun, en sér til aðstoðar hafa þeir allt að 150 „löglega" félags- menn, sem stunda sína vinnu eða nám og vinna ýmis verk fyrir kjarnann. Síðustu meiriháttar aðgerðir vestur-þýskra hryðjuverkamanna voru árið 1977, þegar Siegfried Bu- back, ríkissaksóknari, Júrgen Ponto, bankastjóri Dresdner- banka, og Hans-Martin Schleyer, formaður vinnuveitendasambands- ins, voru myrtir. Því skeiði lauk með misheppnaðri gíslatöku um borð í Lufthansa-flugvél og dauða fanganna í Stammheim-fangelsi, Andreas Baader, foringja hópsins, Guðrunar Ensslin og Jan-Karls Raspe. Samkvæmt framburði hryðju- verkamanna, sem handteknir hafa verið frá því á árinu 1977, virðist sem hópurinn hafi notað þennan tíma, sem síðan er liðinn, til að endurmeta baráttuaðferðirnar og komast að því hvar þeim hefur mistekist. Umræðurnar hafa eink- um snúist um það hvort aðferðir Hafa nú fundið sér „baráttuvettvang“ í andstöðunni við nift- eindasprengjuna sjálfum sér samkvæmir — þar reyndu þeir einmitt nú fyrir skömmu að ráða af dögum Kroesen hershöfðingja, yfirmanna banda- ríska hersins í Evrópu. Að áliti vestur-þýskra öryggislögreglu- manna sýna siðustu aðgerðir Rauðu herdeildanna, að þær hafa verið að leita að nýjum baráttu- vettvangi, einhverju málefni, sem er meira i takt við tímana en venja hefur verið með „hugsjónir" hreyf- ingarinnar. Þess vegna er ráðist á Bandaríkjamenn í þeirri von, að andstaðan við nifteindasprengjuna geti gefið þeim byr undir bða vængi og kallað nýtt fólk til liðs við samtökin. Í bréfi, sem Rauðu herdeildirnar sendu frá sér nýlega veður allt upp í slagorðum og stöðluðum frösum (Þriðji heimurinn, ofsóknir á hendur vinstrimönnum í V-Þýska- landi, yfirvofandi heimsbyltin o.s.frv.) en jafnframt er gripið til ýmissa orða og yfirlýsinga, sem stjórnmálamenn hafa látið frá sér fara. Þar er Vestur-Þýskalandi t.d. lýst sem nýlendu Bandaríkjanna og þó að orðalagsmunur sé nokkur er þar um að ræða alveg sömu um- mælin og vikublaðið Der Spiegel eignar Willy Brandt, formanni v-þýska jafnaðarmannaflokksins, og Heinrich Alberts, presti og miklum andstæðingi kjarnorku- vopna. Og ekki nóg með það, Egon Bahr, sérfræðingu jafnaðar- mannaflokksins í afvopnunarmál- um, er nú farinn að nefna Banda- ríkin aðeins „fyrverandi hernáms- veldi" og segir, að í stríði sé hlut- verk Þjóðverja aðeins eitt, „að hlýða og deyja ef nauðsyn krefur". í þessari þróun eygja hryðju- verkamenn Rauðu herdeildanna dálitla vonarglætu, að þeir geti áunnið sér nokkra samúð og jáfn- vel stuöning með því að ráðast á Bandaríkjamenn. Nú er líka búist við því, að brátt verði aftur látið til skarar skriða gegn því, sem í bréf- inu er nefnt „miðstöðvar, herstöðv- ar og stjórnendur bandarísku hernaðarvélarinnar", og árásir á vestur-þýska stjórnmálamenn eru heldur ekki útilokaðar. Það eina sem mönnum hefur þótt nokkuð góðs viti, er að ekkert hefur verið um mikil bankarán, sem jafnan hafa verið fylgifiskur hryðjuverka Rauðu herdeildanna. Þar með er líka allt upptalið, sem gott þykir. Fyrir þremur vikum var stolið úr námu nokkuri rúmum 800 kílóum af dýnamiti, 800 metr- um af sprengiþræði og 86 hvell- hettum. SV- Fjórir liðsmenn Rauðu herdeildanna: Sieglindc Gudrun Hoffmann, 36 ára, Birgitte Monhaupt, 31 árs, Peter Boork. 29 ára, og Rolf Clcmens Wagner. 36 ára. Þau voru handtekin i Júgóslaviu 1978 og siðan hafa ýmsir aðrir fallið i hendur lögreglunni. Þeir, sem cftir eru úr gamla kjarnanum, eru nú miðaldra fólk, en jafn ósveigjanlegt og áður i herferð sinni á hendur vestur-þýsku þjóðfélagi. Hátíð Samhygðar í dag: „Að vera hamingjusamur er eins og að vera ástfanginnu í TILEFNI af hátíð Samhygðar i Háskólahíói í dag. sunnudag kl. 14. hafði Morgunhlaðið tal af Ingibjörgu Guðmundsdóttur, en hún er einn meðlima Samhygðar. „Ingihjörg. hvaða félagsskapur er Samhygð?" „Samhygð er félagsskapur sem er upprunninn í Argentínu og hcfur starfað hér á landi í tæp tvö ár. Félagið vinnur að jafnvægi og þróun mannsins. og má segja að félagið sé nokkurs konar mann- ra'ktarfélag. Félagsskapurinn er hvorki stjórnmálalegs né trúar- legs cðlis og cr ckki rekinn í ágéslaskyni." „Yfirskrift hátíðarinnar er „Ger- um Jörðina mennska", hvað eigið þér við með því?“ „Jú, í stuttu máli má segja að við viljum vinna að því að yfirstíga sársauka og þjáningu, læra án nokkurra takmarkana og fylgja lögmálum lífsins. Þegar ég tala um ákveðin lífslögmál, þá vitum við að ákveðin lögmál ríkja í allri náttúr- unni. Eitt af grundvallarlögmálun- um er að lífið þróast frá hinu ein- falda til hins fullkomna. Lífið gerir lífverurnar þannig úr garði að þær noti orku sína á sem hagkvæmast- an hátt. Maðurinn er fyrst og fremst lífvera og lýtur því ákveðn- um lögmálum sem slíkur. Þegar hann starfar rétt og vel notar mað- urinn orku sína á hagkvæman hátt og finnur til hamingjutilfinningar. Sú tilfinning er vísbending til mannsins að allt sé í góðu gengi.“ „Hvað eiga menn þá að gera til að vera hamingjusamir"? „Við höfum stundum spurt fólk hvort það muni eftir hamingju- samasta tímabili lífs síns, hvort það hafi t.d. verið ástfangið. Mik- ilvægasti þáttur þess að vera ham- ingjusamur er að geta gefið, án hugsunar um endurgjald. Þjóðfé- lag okkar í dag byggir að verulegu leyti á því að menn eru sífellt að taka við. Menn eru í æ stærra mæli neytendur ákveðins efnis svo sem í gegn um sjónvarp, fjölmiðla og nú síðast myndbönd sem komin eru á markaðinn og mikið notuð. Við leggjum áherslu á að fólk rækti sinn innri mann, og í því samhandi erum við með fundi einu sinni í viku, klukkutíma í senn, þar sem farið er yfir ýmsar hugaræf- ingar. Einn flokkur æfinganna er miðaður við fortíð einstaklingsins, þ.e. farið er yfir ákveðin atriði í fortíðinni og mönnum gerð grein fyrir þeim hlutum sem þeir eru e.t.v. ekki sáttir við sjálfir en verð- ur ekki breytt. Eins og við vitum er það allt of algengt að menn lifi bókstaflega í fortíð sinni. Hinar æfingarnar eru miðaðar við nútíð og framtíð, meðlimirnir reyna að koma skipulagi á líf sitt og gera raunhæfar kröfur til sjálfra sín og annarra, sem alla jafna tekst ekki nema með töluverðri sjálfsþekk- ingu. Samhygð leggur megin- áherslu á að bæta einstaklinginn Ingihjörg Guðmundsdóttir. og hans nánasta umhverfi, þannig gerum við ráð fyrir að bestur árangur náist.“ „Nú býr fólk við ákaflega mis- jafnar ytri aðstæður, sumir eru fá- tækari en aðrir og heilu þjóðirnar svelta eins og menn vita, skapa þessi skilyrði ekki óhamingju af sjálfu sér?“ „Vitaskuld, ekki er hægt að gera ráð fyrir að menn eyði tíma í að rækta sinn innri mann þegar menn eru annað hvort að deyja úr hungri eða nota allan sinn tíma í brauðstrit. En eins og við vitum verða menn ekki sjálfgefið ham- ingjusamir þó ytri skilyrðum sé fullnægt. Með auknum frítíma flestra í nútímaþjóðfélögum, gefst hins vegar tækifæri til að staldra við og huga að þeim grundvallar- lögmálum sem við leggjum áherslu á, þ.e. að menn verði hamingju- samir, og með breyttu viðhorfi teljum við að hægt sé að bæta heiminn. Þess má til gamans geta að Síló álítur okkur Islendinga enn nokkuð „heilbrigða" þjóð, minna er hér af ýmsum ofbeldisverkum sem farin eru að setja mark sitt á ná- grannaþjóðirnar. Því er mjög mik- ilvægt að við sjáum að okkur í tíma og látum sömu þróun ekki verða hér eins og víðast annarstað- ar.“ „Að lokum Ingibjörg, er einhver ákveðinn hópur fjölmennastur inn- an samtaka ykkar?“ „Nei, þó má segja að konur séu fleiri en karlmenn enn sem komið er, og tel ég það m.a. stafa af því að konur er ekki jafn hræddar og karlmenn að taka þátt í félagsskap sem þessum. Annars mundi ég segja að innan samtakanna sé hresst fólk á öllum aldri, sem vill leggja eitthvað af mörkum til að búa í betra heimi og hvet ég sem flesta til að kynnast samtökum okkar,“ segir Ingibjörg að lokum og við þökkum henni spjallið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.