Morgunblaðið - 04.10.1981, Page 28

Morgunblaðið - 04.10.1981, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981 Kvenfélagið Hvöt í Hnífsdal byggir f yrsta leikskólann á ísafirði ísafirði. 27. september. KVENFÉLAGIÐ Hvöt í Hnífsdal afhenti sl. fimmtudag bæjarsjóði ísafjarðar fullbyggt leikskólahús sem það hefur staðið íyrir byggingu á við Skólaveg í Hnífsdal. Bygg- ingarframkvæmdir hófust í maí 1979. Til þessa hafa verið greiddar vegna byggingarinnar 650.000,- nýkrónur, þar af helmingurinn á þessu ári. Féð hefur skipst þannig að frá ríkissjóði hafa komið 286 þúsund, Bæjarsjóður ísafjarð- ar hefur lagt til 211 þúsund en 153 þúsund hafa komið frá kvenfélaginu sem aftur hefur sótt mest af þeim peningum til áhugasamra aðila sem hafa látið fé af hendi rakna. Var þar sérstaklega getið stórframlaga frá Hraðfrystihúsinu hf. í Hnífsdal og Mjölvinnslunni hf., einnig Lionsklúbbs ísafjarðar. Arkitekt hússins er Guðmund- JNNLEN-T ur Kr. Guðmundsson, bygg- ingarmeistari Kristján Jónas- son og eftirlitsmaður með byggingunni var Snorri Her- mannsson. Finnbogi Jósefsson smiður hefur að mestu unnið að byggingu skólans, sem smið- ur, múrari, blikksmiður, mál- ari og nú við jarðvegsvinnu og girðingasmíði. Voru honum fluttar sérstakar þakkir við af- hendinguna af formanni bygg- ingarnefndar. Dagheimilið mun hefja starfsemi einhvern næstu daga. Þar er rúm fyrir 40 born hálfan daginn. Bygg- ingarnefnd kvenfélagsins skip- uðu: Jóna Valgerður Krist- jánsdóttir, formaður, Hrafn- hildur Samúelsdóttir og Emma Rafnsdóttir. Formaður Kven- félagsins Hvatar er Hansína Einarsdóttir. Úlfar LjÓKm. Mbl. Úlíar ÁaústsHon. Leikskólinn, sem Hvöt hefur bygKt i Ilnifsdal. Á myndinni eru frá vinstri: Marvin Martines frá Nicaragua, Jonathan Layugan frá Filipseyjum, túlkur frá kinverska sendiráðinu, Roberto Maciel frá Mexikó, Ren hitaveitustjór frá Tianjin i Kin, Hjalti Franzs- on settur forstöðumaður Jarðhitaskólans, Wang hitaveitustjóri frá Beijing, Derek Freeston gestafyrirlesari frá Geothermal Institute, Auckland University á Nýja Sjálandi, Sun frá Kínverska alþýðulýð- veldinu. Kínverskir hitaveitustjór- ar að kynna sér hitaveitu- framkvæmdir á íslandi NÝLEGA komu hingað til lands tveir kinverskir hitaveitustjórar. þcir Ren Quing-fu og Wang Shao-ting einn af framkvæmda- stjórum fjarvarmaveitu Peking- borgar, i boði jarðhitaskólans. Hitavcitustjórarnir munu dvelja hér i tvær vikur og kynna sér hitaveitur og starfsemi þeirra hér á landi. Meðal þeirra staða sem þeir heimsækja eru Hvera- gerði, Kröfluvirkjun, Akureyri og Mývatn. Á fundi með blaðamönnum skýrðu þeir Ren og Wang frá því að hitaveituframkvæmdir væru á byrjunarstigi í Kína. Þar er þó töluverður jarðhiti, sem er að finna í setlögum og því nokkuð annars eðlis en hér á landi. Jarð- hitasaga Kínverja er ekki nema um 10 ára gömul, og hafa enn ekki verið gerðar neinar áætlanir um nýtingu jarðvarmans, því gert er ráð fyrir að niðurstöður rann- sókna liggi ekki fyrir fyrr en á árinu 1985. Kínverjar hafa þó mikinn hug á að nota jarðvarm- ann til húshitunar og þar sem saga jarðhitanýtingar á íslandi er um“50 ára, má búast við að Kín- verjar geti ýmislegt lært af reynslu okkar Islendinga. 8 námsbrautir í jaröhitaskólanum Eins og áður sagði eru Kínverj- arnir hér í boði Jarðhitaskólans, en hann hefur starfað hér á landi í 3 ár. Á þessu starfsári skólans hafa sjö nemendur verið í sér- hæfðri þálfun í 6 námsbrautum, en alls hefur skólinn boðið upp á 8 námsbrautir frá stofnun hans. Jarðhitadeild Orkustofnunar fær sérstaka fjárveitingu til rekstrar jarðhitaskólans og er litið á þá upphæð sem framlag íslands til þróunarhjálpar. Að auki styrkir Háskóli Sameinuðu þjóðanna í Tokyo skólastarfið. Að þessu sinni hafa þrír nem- endur skólans komið frá Kína, tveir frá Filippseyjum, einn frá Mexíkó og einn frá Nicaragua. Þeir Ren og Wang eru yfirmenn verkfræðinganna tveggja sem stundað hafa nám við skólann í vetur. Er vonast til að kynni þeirra af íslenskum hitaveitum geri þeim betur kleift að vera málsvarar fyrir uppbyggingu slíkra fyrirtækja í Kína. • • Fundur um laun og réttindi kvenna að Olfusborgum: Hærri laun - aukna hlut- deild í stjómum og samninga gerð - atvinnutryggingu FUNDUR var haidinn i ölfus- borgum dagana 26. og 27. septem- ber síðastliðinn þar sem einkum var rætt um Iaun og réttindi kvenna innan verkalýðshreyf- ingarinnar. Þar voru samþykktar þrjár eftirfarandi ályktanir. I fyrsta lagi kom fram, að konur eru að verða helmingur af vinnu- afli þjóðarinnar og mun nú stærsti hópurinn, sem vinnur að verð- mætasköpun þjóðarbúsins. Þær eru orðnar meira en helmingur Verka- mannasambandsins. I sambandi Iðnverkafólks eru konur næstum þrisvar sinnum fleiri en karlar. í sambandi Verslunarmanna nær helmingi fleiri að ótöldu þjónustu- liðinu við sjúka, aldraða og börn, en konur vinna nær eingöngu þau störf. Allar þessar konur eru láglauna- hópur innan þjóðfélagsins, rétt- indaminnstar og í sumum tilfellum er litið á þær sem varavinnuafl. Yfir konur í fiskiðnaði ná ekki landslög um uppsagnarfrest, þann- ig að næstum fyrirvaralaust er hægt að láta þær hætta störfum svo mánuðum skiptir. Þrátt fyrir þessa miklu atvinnu- þátttöku kvenna þá hafa áhrif þeirra á kjara- og réttindamál ekki aukist að sama skapi og konur hafa lítil áhrif í forystu verkalýðshreyf- ingarinnar. Síðasta samingagerð Alþýðusambandsins hefur orðið til Jæss að auka launamismun þar sem lægstu hóparnir, konumar, fengu einnig lægstu prósentuhækkun þrátt fyrir yfirlýsingar og loforð úm hið gagnstæða. Konur eru nú að átta sig á því, hvað skeð hefur í málefnum þeirra og margt bendir til að stefnt muni að hinu sama í framtíðinni. Konur koma því saman til að móta kröfugerð sína og ræða stöðu kvenna innan verkalýðshreyfingar- innar og á hvern hátt þær geta beitt áhrifum sínum í réttu hlut- falli við þátttöku í atvinnulífinu og hvað varðar störf í stjórnum og við samning verkalýðshreyfingarinnar þar sem ákvarðanir eru teknar um laun og réttindamál. í öðru lagi þá samþykkti fundur- inn, að verkakonur myndu ekki standa upp frá næstu samningum fyrr en kauptryggingarsamningur- inn væri færður í það horf, að kon- ur hafi raunverulega atvinnutrygg- ingu eins og annað fólk í landinu. I þriðja lagi þá gerði fundurinn þá kröfu, að konur fengju meiri hlutdeild í samningagerð og ákvörðunum í kjaramálum en þær hafa haft fram að þessu. Um leið mótmælir fundurinn því að í 54 manna nefndinni, sem talin er vera samninganefnd séu aðeins 10 konur og krefst þess að þær verði helm- ingur nefndarinnar. I viðtali við Bjarnfríði Leósdótt- ur, varaformann Verkalýðsfélags- ins á Akranesi, sem sat fundinn, kom fram að mikill einhugur hefði ríkt á fundinum og konur væru orðnar fullsaddar á því að láta karlmennina fara með sín mál. Sagði hún jafnframt að karlar sætu fyrir konum í valdastoðum en nú væri búið að kasta boltanum til karlmannanna og þá væri eftir að sjá hvernig þeir bregðast við. Borgarráð: Samþykkt að þiggja Suðurgötu 7 að gjöf BORGARRÁÐ samþykkti i gær með þremur samhljóða atkvæð- um að þiggja að gjöf húsið að Suðurgötu 7. Við atkvæðagreiðsl- una sátu hjá þau Albert Guð- mundsson og Sjöfn Sigurbjörns- dóttir. Samkvæmt skilmálum um gjöf þessa verður húsið fjarlægt af lóð- inni eigendum að kostnaðarlausu og flutt í Árbæ til framtíðarvarð- veislu. Því verki á að vera lokið fyrir lok júnímánaðar næstkom- andi. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá Gunnari Eydal, skrifstofustjóra borgar- stjórnar, kom erindi þetta fyrst til borgarráðs árið 1980, en þá kom upp ágreiningur á milli erfingja hússins um hvort formleg heimild hefði verið fyrir gjöfinni. Borgar- ráð hefði hins vegar samþykkt þá að þiggja húsið, en síðan hefði málinu verið frestað. Nú hefði þetta hins vegar verið afgreitt og húsið yrði væntanlega komið upp í Árbæ fyrir tilsettan tíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.