Morgunblaðið - 04.10.1981, Síða 32

Morgunblaðið - 04.10.1981, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981 MHMBMM ■MHSMi Hjartasjúkdómar Skiptir mataræði sáralitlu eftir allt saman1! Vísindamenn gerðu athyglis- verða uppgötvun á árunum eftir stríð. Þeir sáu að dauðsföllum af völdum hjartasjúkdóma hafði fækkað verulega í Norður- Evrópu á stríðsárunum þegar matur var af skornum skammti. Þegar stríðinu iauk og matur var aftur nægur fjölgaði hjartasjúk- dómum á nýjan leik. Ekki var hægt að sanna hvort dauðsfallatíðnin var í beinu sambandi við mataræði — sér- staklega minni neyslu kjöts, smjörs og annarra fæðutegunda með háu fitumagni eða kólester- oli — eða hvort um tilviljun var að ræða. Tilraunir á dýrum höfðu áður bent til að mataræði skipti miklu máii en reynsla stríðsáranna vakti í fyrsta sinn von um að breytt mataræði gæti unnið bug á sífjölgandi tilfellum hjartasjúkdóma og dauðsfalla af þeirra völdum á 20. öldinni. Vísindamenn velta þessu enn fyrir sér og sitt sýnist hverjum. Sumir fullyrða að hægt sé að fækka hjartatilfellum verulega með því einu að breyta mataræði og þá sérstaklega með minni neyslu kjöts, eggja og mjólkuraf- urða. Aðrir fullyrða að allar kenningar um samband matar- æðis og hjartasjúkdóma séu tómt kjaftæði. Margir fara með- alveginn og vilja fara að öllu með gát og ekki ráðleggja fólki neitt fyrr en vitað er með vissu hvert sambandið er. Takmark ráðlegginga um mat- aræði er að minnka líkur á æða- kölkun sem dregur úr blóð- rennsli og getur haft alvarleg áhrif á starfsemi mikilvægra líffæra. Æðakölkun í kransæð- um getur haft áhrif á starfsemi hjartans og leitt til hjartaslags. Skilningur vísindamanna á æða- kölkun er enn takmarkaður en þeir leita skýringar á henni út um allan heim. Allir eru þó sam- mála um að kólesterol hefur bein áhrif á æðakölkun. Flestir vísindamenn álíta að aukið kólesterol í blóði karl- manna auki hættuna á hjarta- sjúkdómum. Ekki er vitað hvaða áhrif það hefur á konur eða börn. En þar sem mataræði get- ur haft áhrif á kólesterolmagn í blóði þá ráðleggja margir Iækn- ar þeim sem hafa hátt kólester- olmagn, reykja, eru með háan blóðþrýsting, eru sykursjúkir, of þungir eða eiga skyldmenni með hjartasjúkdóma að breyta mat- aræði sínu. Læknana greinir hins vegar á um hvað ráðleggja skal alheilbrigðu fólki. Margir hafa tekið ráðlegg- ingar Hjartaverndarsamtaka Bandaríkjanna, AHA, hátíðlega og aukið við sig fjölmettaða fitu á kostnað mettaðrar fitu. Þeir neyta heldur grænmetis, korn- vara, fisks og kjúklinga en kjöts, eggja og mjólkurafurða. Það vakti því furðu margra þegar Fæðu- og næringarnefnd rann- sóknarstofnunar ríkisins sagðist ekki hafa fundið neitt í rann- sóknum sínum sem benti til þess að það væri heilbrigðu fólki til góðs að draga úr kólesterol- neyslu. Niðurstöður rannsókna nefndarinnar bentu til þess að .'Uít/ím.’ ■■■■•■ v\‘r- ,n iHHHMHMHHHHMHHHHHHHHHHi minni fituneysla losaði fólk við nokkur kíló en sönnuðu ekki að hún minnkaði líkurnar á hjarta- sjúkdómum. Samanburður á heilum þjóð- um hefur helst bent til þess að beint samband sé milli fitu- magns í mat, kólesterols í blóði og hjartasjúkdóma. En beint samband hefur einnig verið fundið milli reykinga, þjóðar- tekna, áfengisnotkunar og bíla- eignar og tíðni hjartatilfella. Munurinn á þjóðunum hverfur þegar einstaklingar eru bornir saman. Ákveðnir hópar innan þjóðfélaga geta þó skorið sig úr. T.d. eru hjartatilfelli fágætari meðal aðventista í Bandaríkjun- um en gerist og gengur. Þeir eru grænmetisætur, en þeir reykja líka og drekka minna en venja er meðal almennings. Dauðsföllum af völdum hjartasjúkdóma fækkaði jafnt og þétt í Bandaríkjunum á síð- asta áratug eða eftir að þjóðin byrjaði að velta mataræði al- varlega fyrir sér. En fleira en mataræði breyttist. Læknisþjón- usta er nú mun betri en áður var, reykingamönnum, 20 ára og eldri, hefur fækkað um 13% og reykingakonum um 28% og fylgst er betur með blóðþrýst- ingi. Það er því erfitt að sanna að mataræði ráði þarna miklu um. í Sviss hefur neysla dýrafitu aukist um 20% en dauðsföllum af völdum hjartasjúkdóma fækkað stórlega og þakka vís- indamenn það auknum hagvexti. Og í Japan hefur neysla mett- aðrar fitu aukist um 200% en hjartatilfellum fækkað á undan- förnum árum. Vísindamenn eru þó ekki til- búnir að fallast á að mataræði hafi ekkert með hjartasjúkdóma að gera. Þeir halda rannsóknum sínum áfram og vonast til að varpa bjartara ljósi á samband kólesterols og hjartatilfella í framtíðinni. Blað neytendasam- taka Bandaríkjanna, Consumer Report, kaus þann kostinn eftir að hafa kynnt sér rannsóknir og kenningar um samband matar- æðis og hjartasjúkdóma að ráð- leggja lesendum sínum að hætta að reykja, varast stress og syk- ursýki, hreyfa sig og halda í við sig, ef þeir vildu minnka líkurn- ar á hjartaveilu. Endursagt úr Consumer Report.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.