Morgunblaðið - 04.10.1981, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981
Vetrarstarf Stjórnunarfélagsins hafið:
Boðið verður upp á 34 inn-
lend námskeið og 5 erlend
STARFSEMI StjórnunarfélaKs
íslands er að hefjast um þessar
mundir. cn starfió lÍKKiir að
miklu leyti niðri á sumrin. A
vetraráa-tlun fclagsins eru fjöl-
þætt verkcfni. Ilörður Si>?ur-
Kestsson. formaður félaKsins,
sagði á biaðamannafundi, að
boðnar yrðu 34 teKundir inn-
lendra námskciða og síðan fimm
erlend.
Erlendu námskeiðin eru: Nýjar
léiðir í stjórnun, Tímaskipulagn-
ing, Einkaritaranámskeið, Konur í
stjórnstörfum og Leiðbeinenda-
námskeið, sem ætlað er leiðbein-
endum á stjórnunarnámskeiðum.
Þá efnir félagið til námsstefnu
um skrifstofu framtíðarinnar og
sýningar á skrifstofutækjum
framtíðarinnar, sem haldin verður
að Hótel Loftleiðum dagana 1.—4.
október nk.
Efnt verður til spástefnu um
þróun efnahagsmála á árinu 1982
og verður hún haldin 10. desember
nk. Slík spástefna var haldin í
fyrsta sinn í desember á sl. ári og
þótti hún takast mjög vel.
Stjórnunarfélagið hefur ákveðið
að efna til rekstrartafls ’82 og
verður það haldið í samvinnu við
IBM í febrúar. Rekstrartafl var
fyrst haldið á liðnum vetri og þá
einnig í samvinnu við IBM.
I haust veitir félagið viðurkenn-
ingu fyrir beztu ársskýrsluna, sem
barst í samkeppni sem félagið
efndi til um ársskýrslu íslenzkra
fyrirtækja og stofnana.
I blaðinu Stjórnunarfræðslan,
sem nýkomið er út, er listi yfir
þau félög, fyrirtæki og stofnanir,
sem eiga aðild að Stjórnunarfélag-
inu, 'en það eru alls 318 aðilar. Til
viðbótar því eru liðlega 250 ein-
staklingar félagar.
Viðamesti þátturinn í starfsemi
félagsins eru innlend námskeið
um stjórnun og rekstur og verða á
komandi vetri boðnar 34 tegundir
slíkra námskeiða, en af þeim eru 9
haldin í fyrsta skipti í vetur. Þórð-
ur. Sverrisson, framkvæmdastjóri
félagsins, sagði að í heildina yrðu
haldin á bilinu 45—50 innlend
námskeið, því sum væru tvítekin.
Á nýju námskeiðunum verður
fjallað um afgreiðslu- og þjón-
ustustörf, framkomu í sjónvarpi,
framleiðsluskipulagningu í málm-
iðnaði, gæðastýringu í frystihús-
um, mótun starfsferilsbreytingar
á starfi, sölu á erlendum mörkuð-
um, skrifstofuhald og skrifstofu-
hagræðingu, tilboðsgerð í málm-
iðnaði og tilboðsgerð í prentiðnaði.
Nokkur þessara námskeiða eru
haldin í samvinnu við önnur sam-
tök svo sem Samband málm- og
skipasmiðja, Útflutningsmiðstöð
iðnaðarins og Félag íslenzka
prentiðnaðarins.
Erlend námskeið eru orðin fast-
ur þáttur í starfi félagsins og hef-
ur þegar verið tekin ákvörðun um
að efna til 6 erlendra námskeiða í
vetur og er eitt þeirra reyndar af-
staðið, en það var haldið um miðj-
an mánuðinn og fjallaði um
núllgrunnsáætlanagerð.
Á námskeiði, sem haldið verður
dagana 7.-8. október nk., mun
Þátttakendur í rekstrartafli Stjórnunarfélagsins á liðnum vetri.
Yðar
eigin
stór-
markaður
Dönsk gæðavara.
/
\mnai Stfógeiióóön h.f.
Suöurlandsbraiit 16, sími 91-35200.
W FlaaUL
•. -.Si-gr
brezkur ráðgjafi leiðbeina á nám-
skeiði, sem ætlað er leiðbeinend-
um á námskeiðum og mun hann
skýra frá ýmsum atriðum við
skipulagningu og kennslu á
stjórnunarnámskeiðum. Um miðj-
an október verður efnt til nám-
skeiðs sem nefnist Nýjar leiðir í
stjórnun og er leiðbeinandi þar
prófessor Jack Hautaluoma, en
hann er prófessor í stjórnunar-
fræðum við Colorado State-há-
skólann í Bandaríkjunum. Fjórða
erlenda námskeiðið er einkarit-
aranámskeið, sem haldið hefur
verið hér á landi tvívegis áður og
hafa 50 einkaritarar sótt það.
Leiðbeinandi á því námskeiði er
frú Eiwor Bohm-Petersen, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins Merc-
uri Sekretarar Institut.
Námskeið um tímaskipulagn-
ingu verður haldið dagana 26.-—27.
nóvember og er það námskeið
fengið frá Danmörku. Námskeið
þetta er eitt hið vandaðasta sem
völ er á um þetta efni og hefur
verið haldið í flestum Evrópulönd-
um, auk Ameríku og hafa yfir 50
þúsund þátttakendur sótt þau.
I febrúarmánuði verður efnt til
nokkuð sérstæðs námskeiðs, en
það er eingöngu ætlað konum í
stjórnunarstörfum. Námskeið
þetta er fengið frá Bandaríkjun-
um og verður leiðbeinandi á því
frú Leila Wendelken, en hún er
framkvæmdastjóri eigin ráðgjafa-
fyrirtækis í Kaliforníu. Til þessa
námskeiðs er efnt í þvi skyni að
gefa konum, sem á seinni árum
hafa í vaxandi mæli tekið að sér
stjórnunarstörf, kost á því að
kynnast hvernig kynsystur þeirra
í nágrannalöndunum hafa aflað
sér þekkingar og viðurkenningar
sem fyrsta flokks stjórnendur.
Að síðustu má geta þess, að á
vegum Stjórnunarfélags íslands
eru starfandi klúbbar um ýmis
málefni og má þar nefna starfs-
mannastjóraklúbb og bókaklúbb,
sem starfað hefur í nokkur ár og
klúbb fjármálastjóra og klúbb rit-
ara, sem báðir voru stofnsettir á
liðnum vetri.
Stokkhólmur:
Rit um
íslenska
tónlist
EINS og fram hefur komið í frétt-
um verður íslensk tónlist í háveg-
um höfð á yfirstandandi starfsári
tónlistarfélagsins í Stokkhólmi
(Stockholms Konserthusstiftelse).
I tengslum við þennan „íslenska"
vetur í tónleikahöllinni í Stokk-
hólmi hefur félagið gefið út bækl-
ing eftir Göran Bergendal, þar
sem hann skrifar um íslenska
tónlist og tónlistarmenn. Þetta
mun í fyrsta sinn sem gefið er út
yfirlitsrit af þessu tagi um ís-
lenska tónlist. Bæklingurinn nefn-
ist: „Musiken paa Island" og er 55
bls. að stærð.