Morgunblaðið - 04.10.1981, Side 38

Morgunblaðið - 04.10.1981, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981 c o * ^ J *föi Brdr. Hansen 'rr».vr \ferktojsmaskiner Strandskadevej 14 Dk 2650 Hvioövre Denmaik komu til Reykjavíkur í dag. Búa á Hótel Loftleiöum alla næstu viku. Höfum fastan viötalstíma milli 4—7 alla daga. Svaraö veröur á íslensku ef óskaö er. Heimsækjum fyrirtæki eftir nánara samkomulagi. Aö vanda eru á boöstólum notaöar og nýjar járnsmíöavélar á ævintýralega hagstæöu veröi, svo sem: RENNIBEKKIR FRÆSIVÉLAR SAGIR SÖX BEYGJUVÉLAR KANTPRESSUR O.FL. O.FL. iSrV < O i Brdr. Hansen ■rtlvr \ferktojsmaskiner StrandskadevejM Dk 2650 Hvkfovre Denmaik VÉLALAGERINN Smiðjuvegi 54, símar 77740 og 73880, veitir nánari upplýsingar um heimsóknina. VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK tP ÞL’ ALGLYSIR LM AI.LT LAND ÞEGAR ÞL ALG- LÝSIR I MORGLNBLAÐINL Jón Arason, verk- stjóri - Minning Fa-ddur 8. febrúar 1916. Dáinn 28. september 1981. Á morgun, mánudan, verður jarðsunginn frá Fossvogskapell- unni samstarfsmaður minn og vinur Jón Arason verkstjóri. Jón andaðist á Grensásdeild Borg- arspítalans á mánudaginn var eft- ir 16 mánaða löng og erfið veik- indi. Jón fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð og voru foreldrar hans Ari Jónsson, verkamaður, og Þórdís Magnúsdóttir. Jón ólst upp á Suðureyri við Súgandafjörð og stundaði sjósókn þaðan. Árið 1935 flutti hann til Akra- ness þar sem hann stundaði sjó- mennsku. Vafalaust hefur Jón ekki dregið af sér við að sækja gull i greipar Ægis við sjómennsku- störfin frá Akranesi. En til Akra- ness sótti hann einnig annað, sem var gulli dýrmætara, en þar kynntist Jón stúlkunni, sem síðar varð eiginkona hans, Jórunni Eyj- ólfsdóttur. Jórunn er fædd á Akranesi 18. mars 1921 og voru foreldrar henn- ar þau Eyjólfur Jónsson, skip- stjóri á Akranesi, og kona hans, Guðrún Guðnadóttir. Þau Jón og Jórunn gengu í hjónaband 12. október 1940 á Akranesi og reistu sér þar heimili. í janúar 1949 fluttu þau síðan til Reykjavíkur og hafa búið þar síðan. Börn þeirra Jóns og Jórunnar eru þrjú. Elsta barnið er Eyjólfur Jónsson, fæddur á Akranesi 1941, hann starfar sem verkstjóri hjá Hraðfrystistöðinni í Reykjavík, eiginkona hans er Sigríður Sigurð- ardóttir. Börn þeirra eru Hjördís, Jón og Anna. ^ Dóttir Jóns og Jórunnar er Arndís, lyfjatæknir, fædd 1945 á Akranesi, gift Valdemar Jörgens- syni, afgreiðslumanni. Börn þeirra eru Jörgen, Jórunn og Gunnar. Yngst barna þeirra Jóns og Jór- unnar er Gunnar, deildarstjóri hjá Mjólkursamsölunni, og er hann kvæntur Ernu Sigtryggsdóttur, hjúkrunarkonu og eiga þau tvær dætur: Hörpu Hrönn og Heiði Björk. Nokkrum mánuðum eftir að Jón fluttist til Reykjavíkur 1949, hóf hann störf hjá Harðfisksölunni í Reykjavík. Eigendur þess fyrir- tækis stofnuðu síðar heildsölufyr- irtækið Skipholt hf. í Reykjavík og starfaði Jón hjá því fyrirtæki allt til dauðadags. SVEFNHERBERGISHUSGOGN í geysimiklu úrvali Einnig geysigott úrval af alls konar húsgögn- um af ýmsum geröum. husgögn, Langholtsvegi 111, sími 37010 — 37144. ■ '■ :'r' . >'■: Eftir að faðir minn gerðist aðili að og síðar aðaleigandi Skipholts hf. lágu leiðir okkar Jóns saman meðan ég var ungur drengur. Nokkur sumur vann ég undir verkstjórn Jóns og var það að mörgu leyti mjög lærdómsríkur tími. Jón gerði miklar kröfur til vinnusemi og dugnaðar þeirra sem með honum unnu, enda fórst hon- um að gera slíkar kröfur. Jón var einstakur dugnaðarforkur og at- orkusamur starfsmaður, að hverju sem hann gekk. Ósérhlífni hans, trygglyndi og trúmennska við vinnuveitendur sína og samstarfs- menn var miklu meiri en almennt gengur og gerist. Manni og mannkostum af þessari gerð var heppilegt fyrir ungan dreng að kynnast. Jón var hvorki margmáll maður né þaulsætinn á manna- mótum, en þeir sem náðu vináttu hans áttu að einlægan og fölskva- lausan vin, sem ávallt mátti treysta á. Samhliða því að kynnast Jóni heitnum kynntist ég einnig Jór- unni eiginkonu hans, sem hefur nú í ein 20 ár unnið við sama fyrir- tæki og eiginmaður hennar. Mér hafa ávallt fundist þau Jón og Jór- unn sérstaklega samhent og sam- valin hjón. Engin erum við full- komin og þau bættu hvort annað vel og skemmtilega upp, mynduðu í sameiningu sterka og samhenta einingu. Allt far þeirra bar ávallt vott um sterkar tilfinningar og gagnkvæma virðingu. Þau störf- uðu saman bæði á vinnustað og heimili, þannig að í raun reyndi enn meir á samheldni þeirra og samhug en gengur og gerist í flestum hjónaböndum. BÍörn þeirra þrjú bera foreldrum sínum líka gott og fagurt vitni. Ég hef kynnst þeim öllum nokkuð, mis- mikið, en þó öllum nóg til þess að geta fullyrt að barnalán þeirra Jóns og Jórunnar hefur verið mik- ið og börn þeirra eru öll sómakært manndómsfólk. Börn þeirra Jóns og tengdabörn hafa ávallt verið tengd þeim Jóni og Jórunni sterk- um böndum svo ekki sé nú minnst á barnabörnin níu, sem ávallt áttu a.m.k. annað heimili sitt hjá afa sínum og ömmu. Ég held að það sé því á engan hátt ofmælt þótt sagt sé að Jón Arason hafi verið gæfumaður bæði í starfi og einkalífi. Hann vann mikinn meirihluta starfsævi sinnar á sama vinnustað og naut þar trausts og virðingar starfsfélaga sinna og rækti störf sín óaðfinnanlega. Hann eignaðst úrvalskonu og með henni heimili og fjölskyldu sem umvafði hann hlýju og ástúð allt til síðustu stundar. Þau veik- indi Jóns, er drógu hann til dauða á rúmu ári, bar brátt að og voru ekki fyrir séð. Ég efast ekki um að veikindi hans voru honum mikil andleg og líkamleg raun og oft án efa illbærileg, en ástúð og um- hyggja eiginkonu og fjölskyldu létti honum byrðina. Við sem höf- um fylgst með högum Jóns þessa síðustu mánuði höfum sérstaklega veitt athygli og dáðst að styrk og einlægri ást Jórunnar, eftirlifandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.