Morgunblaðið - 04.10.1981, Side 44

Morgunblaðið - 04.10.1981, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981 Jón Magnússon, lögfræðingur, sem lét af for- mennsku í Sambandi ungra sjálfstæðismanna á þingi samtakanna á ísafirði í lok ágústmánaðar, á að baki langt og mikið starf á vettvangi ungra sjálfstæð- ismanna. Hann tók fyrst sæti í stjórn Heimdallar FUS á árinu 1962, þá 16 ára gamall, og hefur gegnt trúnaðarstörfum í hópi ungra sjálfstæðismanna sam- fellt síðan eða í um 19 ár. A þessu tímabili hefur Jón Magnússon gegnt formennsku bæði í SUS og Heim- dalli, átti sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, setu- rétt á þingflokksfundum, auk þess að vera forystu- maður Vökumanna í stúdentapólitíkinni um skeið og formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands. Jón Magn- ússon, þekkir því starf ungra sjálfstæðismanna bæði á Viðreisnarárunum, þegar vegur Sjálfstæðisflokks- ins var hvað mestur og einnig síðasta áratug, þegar margvíslegir erfiðleikar og áföll hafa steðjað að. Morgunblaðið hefur átt viðtal við Jón Magnússon um störf hans í þágu ungra sjálfstæðismanna og fyrsta spurningin var sú hvaða augum hann liti starf ungra sjálfstæðismanna í þessa nær tvo áratugi og hvaða breytingar hefðu helst orðið í þessu tímabili að hans mati. almenningsálitið á þessum árum hvað snertir lýðræðisleg vinnu- brög og innra flokksstarf. Við börðumst gegn flokksræði og mið- stjórnarvaldi, en fyrir opnari og lýðræðislegri stjórnmálaflokkum og þá sérstaklega okkar eigin flokks. Hvatinn að þessum um- ræðum voru skrif og skelegg bar- átta vinar míns, Ármanns heitins Sveinssonar, eftir kosningarnar 1967 og síðar. Ungir sjálfstæðis- menn voru tvímælalaust langt á undan ungu fólki í öðrum flokkum með þau sjónarmið. — Voru þetta ekki hugmyndir vinstri sinnaðrar uppreisnar- æsku i Evrópu? — Nei, við mótuðum okkar stefnu án tillits til þess sem þá var að gerast í Evrópu. Hugmyndir stúdentauppreisnanna voru ekki farnar að berast hingað á þeim tíma. Þó að um væri að ræða aukið frjálslyndi í stefnumörkun ungra sjálfstæðismanna um og eftir 1968, þá er rangt að tengja það hugmyndum vinstri manna. Við vildum auka lýðræðið, valfrelsi óhjákvæmilega kom eftir fráfall foringja eins og Bjarna Bene- diktssonar. — ... en í þjóðfélaginu al- mennt? Við fengum ómögulega ríkis- stjorn 1971 og upplausn í efna- hagsmálum. — Hvaða árangri telur þú, að ungir sjálfstæðismenn hafi náð með baráttu sinni á þessum ár- um? — Okkur tókst að opna flokkinn. Prófkjörin 1971, þegar flokkurinn var í lægð, hjálpuðu til, og þau buðu upp á ákveðið frumkvæði, sem kom Sjálfstæðisflokknum vel. Þetta var byrjunin á endurmati á stefnu flokksins, sem hefur skilað sér í ýmsum hugmyndum um aukna valddreifingu, breytta efna- hagsstjórn, samdrátt í ríkisút- gjöldum sbr. „Báknið burt“. Þá má nefna baráttu fyrir frelsi einstakl- ingsins og réttindum hans og bar- áttu í atvinnumálum undir kjör- orðinu: „Stöðvum landflóttann." Ef litið er yfir þetta tímabil er kjarni þess sem ungir sjálfstæð- meiri fótfestu. Þetta er líka spurn- ing um það, hvað menn starfa vel saman. Á miðjum síðasta áratug náðu ungir sjálfstæðismenn þokkalega vel saman og meiri sam- staða ríkti en áður. Stefnan var djörf og menn hlífðUst ekki við að gagnrýna eigin flokk. Við urðum á þessum tíma sterkari en bæði áð- ur og eftir. Á þeim árum ,sem ég var for- maður Heimdallar, náðum við inn í skólana, sem við höfðum ekki haft nægilega gott samband við um skeið. Félög ungra sjálfstæð- ismanna störfuðu af krafti og ný voru stofnuð. Ég held hins vegar, að ungir sjálfstæðismenn hafi ekki getað hamlað gegn þeirri þróun, sem síðan varð í Sjálfstæð- isflokknum, þeirri upplausn, sem var að koma, vegna togstreitu eldri manna í flokknum, sem því miður hefur haft allt of mikil áhrif í röðum ungra sjálfstæð- ismanna. Tíminn eftir kosn- ingarnar 1978 hefur verið erfiður, Við töpuðum kosningum 1979, þvert ofan í það sem við höfðum Tímabil endurnýjun- ar er að renna upp í Sjálfstæðisflokknum — Ég held, að það megi skipta þessum áratugum í tvö tímabil, hið fyrra var á árunum fyrir 1968—1969, hið síðara fram á þennan dag, segir Jón Magnússon. Aukaþingið, sem ungir sjálfstæð- ismenn efndu til 1968 var annars konar þing en samtökin höfðu áð- ur haldið, þar kom fram mun rót- tækari gagnrýni á stefnu flokksins og flokksstarfið en áður. Þó varð töluverð uppstokkun í þingi SUS á Blönduósi 1969. Fyrra tímabilið einkenndist hins vegar af því, að ungir sjálfstæðismenn unnu meira innan flokksins í fullu samráði við forystumenn flokksins ... — ... telur þú að það hafi vcr- ið neikvætt? — Nei, alls ekki, en viðfangsefni hvers tímabils eru mismunandi og allar aðstæður. Pólitíkin á þessum tíma var öðru vísi en síðar varð. Það var ekki bara Sjálfstæðis- flokkurinn, heldur aðrir flokkar líka, sem voru í fastari skorðum þá en nú. Það má segja, að það geti verið skýring á öðrum vinnu- brögðum, að ungir sjálfstæðis- menn mótuðu störf sín á fyrra tímabilinu í samræmi við þá festu, sem ríkti í stjórnmálunum, en töldu sig ekki ná nógu góðum árangri og því talið rétt að beita nýjum vinnubrögðum. — Ilvað veldur þeim þáttaskil- um. sem vcrða 1968—1969? — Fyrst nefni ég forsetakosn- ingarnar 1968. Ungir sjálfstæð- ismenn stóðu báðum megin við borðið í þeim kosningum. Eftir þær, þurftu menn að læra að vinna saman aftur og gerðu það með ágætum. Eftir kosningarnar 1967, sem urðu sjálfstæðis- mönnum vonbrigði, töldu margir þörf á uppstokkun í Viðreisnar- stjórninni bæði hvað snerti menn og skiptingu ráðuneyta milli stjórnarflokkanna, Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks. Menn töldu krata ráða of miklu og að Veiðreisnarstjórnin hefði ekki gert þjóðinni nægilega grein fyrir því hvernig málin stóðu. Erfiðleik- arnir í efnahagsmálum, sem komu upp 1967 og 1968 voru hinir mestu frá stríðslokum og ýttu undir kröfurnar um breytingu, þótt ég telji að Viðreisnarstjórnin hafi staðið sig ákaflega vel og það hafi sennilega verið hennar besti tími miðað við þær erfiðu aðstæður sem þá var um að ræða. Þá var veruleg ólga meðal æskufólks í Evrópu og Bandaríkjunum á þessu tímabili. Ungum sjálfstæðis- mönnum fannst flokkurinn seinn að tileinka sér nýjar hugmyndir í utanríkismálum, umhverfismál- um og fleiri málum. Líklega hafa ungir sjálfstæðismenn sjaldan verið jafn frjalslyndir og á þessu tímabili. Þá voru menn óánægðir með skipulag og stefnu flokksins og hinn eilífa tröppugang í flokkn- um og skort á endurnýjun í hópi trúnaðarmanna flokksins á þingi og annars staðar. — Var þetta ckki einfaldlega tilhneiging til þess að hlaupa á eftir almenningsálitinu á þessum árum? — Þvert á móti. Ungir sjálf- stæðismenn höfðu veruleg áhrif á fólksins og réttindi innan ramma þjóðfélagskerfisins, en vorum al- gerlega andvígir upplausn og stjórnleysi eins og vinstri menn raunar boðuðu þá í samræmi við kenningar helsta hugmyndafræð- ings síns á þeim tíma „Marcuse". — En má ekki segja, að stjórn- leysi hafi fylgt í kjölfarið á þcss- ari haráttu ykkar. bæði hjá flokki og þjóð? — Hugmyndir okkar komust ekki til framkvæmda nema að takmörkuðu leyti. Þeim fylgdi ekki stjórnleysi. Sjálfstæðisflokk- urinn varð lýðræðislegri flokkur, en það var ekki um að ræða stjórnleysi innan hans. Manna- breytingar höfðu i för með sér vissar breytingar á flokksstarfinu. Það kom mikið rót á flokkinn við lát Bjarna Benediktssonar. Hann var orðinn óumdeildur og virtur Ieiðtogi. Ég get ekki samkþykkt, að það hafi komið tímabil stjórn- leysis í flokknum eftir fráfall Bjarna enda tók við forysta Jó- hanns Hafsteins, sem var tví- mælalaust besti maðurninn sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði þá á að skipa til að stýra flokknum í gegnum það erfiðleikatímabil, sem ismenn eru að segja þetta: Aukið lýðræði, valddreifing, minni skattheimta, minni ríkisútgjöld, tekist verði á við verðbólguna, róttæk atvinnustefna frelsis mörkuð. Þetta eru stefnumál, sem krefjast festu í stað stjórnleysis og upplausnar. Við vorum að krefjast meiri festu og umfram allt aðgerða í stað aðgerðarleysis, sem einkennt hefur síðasta áratug og valdið landflótta þúsunda ís- lendinga. — Margir eru þeirrar skoðun- ar. að á þessu tímahili, sem þú lýsir sem tíma baráttu fyrir hreytingum hafi samtök ungra sjálfstæðismanna verið i mikilli lægð og dauft yfir starfsemi þeirra. — Það er ekki hægt að setja strik á milli þessara tveggja tíma- bila, sem ég hef gert að umtalsefni hér með þessum hætti. Segja má, að á árunum 1963 fram til 1967 hafi samtökin verið hvað sterkust, eftir það hallar undan fæti á sama hátt og hjá Sjálfstæðisflokknum sem slíkum og þannig standa mál- in fram til 1973—1974. En þegar við komum fram til ársins 1975 kemur fjörkippur í starf ungra sjálfstæðismanna og við náum haldið, stjórnarmyndunin varð til þess að menn töpuðu áttum og flokksstarfið lagðist í dvala um nokkurt skeið. Það má spyrja, hvaða tilgangi flokksstarf þjóni, þegar málin eru í slikri kyrrstöðu. Fólk sagði að það vildi ekki starfa innan flokksins við þessar aðstæð- ur og starf ungra sjálfstæð- ismanna bar keim af þessu eins og raunar allra félaga sjálfstæð- ismanna hvar sem er á landinu. Stjornarmyndun dr. Gunnars Thoroddsen varð til þess að magna deilurnar í flokknum, en var alls ekki orsök þeirra, miklu frekar afleiðing. — Á árunum upp úr 1968 gckk vinstri bylgja yfir landið, sem tal- in var eiga upptök sin út i lönd- um. Hvernig telur þú, að ungum sjálfstæðismönnum hafi gengið að ráða við hana? — Við réðum ekki við hana fyrst í stað. Við misstum tökin meðal ungs fólks. Við réðum ekki við hana fremur en borgaralegir flokkar í nálægum löndum. Staða borgaralega sinnaðs fólks, sem var í andstöðu við þessa vinstri bylgju var þó nokkuð sterk fram til árs- ins 1971 hér á landi. Á þessum tíma eru mjög róttækir menn í Karlakór Rvíkur í söngferð um Banda- ríkin og Kanada KARLAKÓR Reykjavíkur heldur hinn 9. október nk. í enn eina utanferð sína og nú til Bandaríkj- anna og Kanada. Syngur kórinn þar á 17 hljómleikum á þremur vikum og eru miðar á hljómleik- ana allir seldir fyrirfram. Þetta er í fimmta sinn, sem Karlakór Reykjavíkur heldur hljómleika í þessum löndum og að ferðinni lokinni hefur kórinn sung- ið samtals um 125 sinnum á sam- komum í Bandaríkjunum og Kan- ada. Söngstjóri er Páll Pampichler Pálsson; píanóleikari Guðrún A. Kristinsdóttir, en einsöngvarar eru þau Sieglinde Kahman og Sig- urður Björnsson, óperusöngvarar, og einnig syngja fjórir kórfélagar einsöng, þeir Hilmar Þorleifsson; Hjálmar Kjartansson; Hreiðar Pálmason og Snorri Þórðarson. Þetta er tólfta söngferð kórsins í fjórum heimsálfum, en síðasta ferðin var til Kína fyrir nær tveimur árum. Á mánudag og þriðjudag næst- komandi, 5. og 6. október, heldur kórinn hljómleika fyrir styrktarfé- laga sína í Háskólabíói og hefjast þeir kl. 19 báða dagana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.