Morgunblaðið - 04.10.1981, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981
47
Guðfinna Þórarim-
dóttir - Minning
Á morgun, mánudaginn 5. októ-
ber, verður systir mín Guðfinna
Þórarinsdóttir, til moldar borin.
Hún andaðist miðvikudaginn 23.
september.
Þegar móðir min dó var ég á
sjötta ári og fjögur af systkinum
mínum enn innan við fermingar-
aldur. Þá tók Guðfinna okkur öll
að sér með hjálp hinna eldri, en
það var stór barnahópur og allt
drengir nema við Margrét systir
mín sem þá hefur verið 15 ára.
Þessvegna var það að Guðfinna
var mér meira en systir. Hún gekk
okkur yngri börnunum í móður
stað eins og henni var unnt og hef
ég og fjölskylda mín litið á hana
sem slíka. Eftir að ég giftist
manni mínum, sem er enskur, þá
fluttist ég út og stofnaði mitt
heimili í Bretlandi, en þegar við
komum til Islands í sumarfrí var
alltaf pláss fyrir okkur hjá Guð-
finnu og Ingvari manni hennar og
tekið á móti okkur og fjölskyldu
okkar opnum örmum.
Ég vil þakka Guðfinnu systur
minni fyrir allt sem hún hefur
gert fyrir okkur. Hún var góð kona
og mátti aldrei neitt aumt sjá.
Hún þurfti sjálf að horfa á bak
mörgum ástvinum. Hún var elst af
okkur systkinunum en bræður
okkar sumir dóu ungir og faðir
okkar drukknaði, sem fékk mikið á
hana og veit ég að hún leið mikið
fyrir það. Bæði ég og maðurinn
minn eigum eftir að sakna hennar
mjög. Hún var óvenjulega minnug
og fróð um allt sem tilheyrði
gamla vesturbænum og fólkið sem
þar hefur búið og var alltaf gaman
að hlusta á hana þegar hún sagði
frá ýmsu sem var fyrir löngu liðið.
Nú þegar hún er horfin er svo
margs að minnast að hér er hvorki
tímL né tækifæri til að skrifa um
allt.
Manni hennar vottum við sam-
úð og samhryggð.
Blessuð sé minning hennar.
Áslaug Þórarinsdóttir
Heimili þeirra hjóna Guðfinnu
og Ingvars var fyrsta íslenska
heimilið sem ég kynntist þegar ég
kom til íslands á stríðsárunum
síðari og átti það tvímælalaust
sinn þátt í ákvörðun minni seinna
að flytja hingað til lands. Guð-
finna og Ingvar fnnst mér vera
dæmigerð fyrir allt það besta sem
þjóðin hefur að bjóða, venjulegt
fólk með fastri trú á mannlegum
verðmætum sem hafa lítinn
hljómgrunn í kapphlaupi nútím-
ans, án þjóðernisdrambs eða
hleypidóma, en samt sannir ís-
lendingar sem tóku á móti mér,
útlendingnum, fyrirvaralaust sem
einum í fjölskyldu sinni. Hvar sem
við hjónin höfum búið hér á landi,
hefur húsið á Vesturgötu verið
okkur fastur punktur og miðdepill
og þangað höfum við, börnin
okkar og barnabörn oft snúið.
Guðfinna hefur gefið okkur meira
en hún hefði sjálf gert ráð fyrir og
vil ég þakka henni það fyrir hönd
okkar allra. Við munum sakna
hennar mikið.
Megi guð gefa henni frið og
manni hennar huggun í missi sín-
um.
Alan Boucher
VOLVO'82
Fórnaði
hendinni fyr-
ir stúlku
Kuala Lumpur. 2. októhor. AP.
ÁSTRALSKUR skipstjóri
skemmtisnekkju særðist al-
varlega þegar hann hjargaði
danskri stúlku úr klóm
Thaiienskra sjóræningja á
föstudag. Læknar þurftu að
sauma á hann hægri hönd-
ina eftir átökin en of
snemmt var að segja hvcrnig
aðgerðin tókst.
Sjóræningjar réðust að
snekkju skipstjórans þegar
hann var á skemmtisiglingu
með fjóra sænska og danska
ferðamenn. Farþegunum var
skipað að leggjast flötum á
meðan sjóræningjarnir
rændu og rupluðu. Ræningj-
arnir réðust síðan á danska
stúlku en skipstjórinn særð-
ist þegar hann kom henni til
hjálpar.
Sjóræningjarnir flúðu í átt
að Thailandi en þyrla frá
Malasíu flutti ferðalangana í
land.
Sýna tölvu-
bækur
DAGANA 5.-8. október heldur
Bóksala stúdenta sýningu á nýj-
um og nýlegum bókum um tölvur
og tölvunarfræði frá handariska
forlaginu Prentice-Iiall Inc. og
dótturfyrirta'kjum þess í hliðar-
sal Félagsstofnunar stúdcnta.
Fulltrúi Prentice-Hall, Frank
O’Donel, verður viðstaddur sýn-
inguna og mun veita allar upplýs-
ingar um þessar og aðrar útgáfu-
bækur forlagsins.
Sýningin verður opin frá kl.
11.00 til kl. 17.00 og til kl. 21.00
síðasta daginn, þann 8. október.
Allir eru boðnir velkomnir á
sýningu þessa.
Áraenð 1982venðursýnd í Volvosalnum,
Suóurlandsbmut 16, laugandaginn 3.10. kl.14-19
og sunnudaginn4.10. kl.10-19
VOLVO
...svíinn semsvíloirengan!