Morgunblaðið - 13.12.1981, Side 1
96 síður
274. tbl. 68. árg.
SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
OPEC styður
ekki Líbýu
Abu Dhabi, Washington. 12. desember. AP.
OLÍURÁÐHERRA Líbýu gagnrýndi
Samtök olíusöluríkja í dag fyrir ad
þverskallast við beiðni Lfbýu um sam*
eiginlegar aðgerðir gegn bandarískum
olíufyrirtækjum og sagði fund samtak-
anna hafa verið „algjörlega mislukk-
aðan", en fundarmenn töldu ágreining
Líbýu og Bandaríkjanna pólitískan
ágreining er leysa yrði eftir diplómat-
ískum leiðum.
Ráðherrann kvartaði undan því
að Líbýumenn væru ofsóttir af stór-
veldi og hefndaraðgerðir þess
myndu koma illa við efnahag Líbýu.
Af þeim sökum hefði það verið
skylda Araba að standa með Líbýu-
mönnum og bar ráðherrann Yamani
olíuráðherra Saudi-Araba þungum
sökum fyrir að vera í forystu fyrir
þeim er ekki vildu verða við beiðni
Líbýu.
Bandarísk olíufyrirtæki í Líbýu
hafa kynnt starfsmönnum sínum af-
stöðu Reagans forseta sem í gær
hvatti 1500 Bandaríkjamenn í Líbýu
til að fara þaðan þar sem þeir væru
í „yfirvofandi hættu“. Af hálfu
fyrirtækjanna verður þess ekki
óskað af starfsmönnum að þeir
hverfi á brott, en þó boðist til að sjá
um flutninga þeirra.
Haig utanríkisráðherra fékk ekki
stuðning við þær hugmyndir Banda-
ríkjamanna að bandarískir þegnar í
Líbýu væru í bráðri hættu er hann
ræddi við utanríkisráðherra Atl-
antshafsbandalagsríkjanna í gær.
Enginn Evrópuleiðtogi gekk fram
fyrir skjöldu til að leggja blessun
yfir heimkvaðninguna, en Frakkar
tilkynntu hins vegar að þeir hygðust
taka aftur upp eðlilegt samband við
stjórn Khadafys þar eð þeir teldu
ekki að Líbýa væri lengur undirróð-
ursafl í heiminum.
Ljósm. RAX.
Nú styttist í svartasta skammdegið, aðeins níu dagar í vetrarsólstöður er sól hættir að lækka á lofti og byrjar að hækka á ný. Léttskýjað hefur verið á
höfuðborgarsvæðinu alla síðustu viku og íbúar syðra því getað fylgst með tunglinu rísa upp á himinhvolfið úr norðvestri til suðausturs. Ragnar Axelsson
Ijósmyndari Mbl. var snemma á fótum dag einn í vikunni og tók þessa mynd yfir borgina meðan tunglið var enn lágt á norðvesturloftinu.
„Nú er nóg komið og ætli
ég gerist ekki prestur“
sagði Muhammed Ali eftir ósigur í hnefaleikakeppni i gær
Nassau, 12. desember. AP.
„NÚ ER nóg komið. Ég hélt innst
inni að ég mundi ganga með sigur
af hólmi úr þessari viðureign, en ég
er greinilega orðinn of gamall,
hefði þó sigrað ef Berbick væri 39
ára eins og ég. Það er kominn tími
til að ég dragi mig í hlé og ætli ég
gerist ekki prestur," sagði Mu-
hammad Ali hnefaleikakappi eftir
að hann beið ósigur í keppni í nótt
og varð þar með af möguleikum á
því að berjast um heimsmeistaratit-
ilinn í hnefaleikum, sem hann
hugðist reyna að endurheimta
fjórða sinni.
Dómararnir voru sammála um
hvorum bæri sigur er Ali og
Trevor Berbick höfðu lokið tíu
lotum í annars jafnri viðureign.
Berbick er 28 ára gamall Banda-
ríkjamaður, en fæddur á Jama-
ica, og var því sjö ára er Ali varð
Ólympíumeistari í hnefaleikum.
Augljóst var í upphafi viður-
eignarinnar að Ali hefur misst
fyrri snerpu og fita farin að safn-
ast í fyrrum stæltum líkama, því
höggin voru bæði ónákvæm og
máttlaus oft á tíðum, og hreyf-
ingar hans allar voru silalegar
miðað við fyrri keppnir þar sem
hann dansaði um í hringnum lotu
eftir lotu. Ali hefur aldrei verið
þyngri en nú, 107 kg.
Að vísu kom Ali þungum og
markvissum höggum á Berbick í
fimmtu lotu og framan af sjöttu
og sótti þá stíft, en er á leið tók
Berbick völdin í hringnum í sínar
hendur.
Óljóst er hvað kapparnir fengu
í sinn hlut fyrir þessa viðureign,
en talið að líklegast hefði Ali
fengið eina milljón dollara og
Berbick milli 250 og 500 þúsund
dollara.
Mesta vetrarríki
í manna minnum
London, 12. descmbcr. AP.
FARÞEGALEST ók í gær á fullri ferð aftan á aðra lest með þeim afleiðingum.að
fimm manns létust »g fimmlán slösuðust. Blindbylur var þegar áreksturinn
átti sér stað en nú er fannfergi og vetrarríki meira í Bretlandi en verið hefur
um áratugaskeið.
Járnbrautarslysið varð í litlu
þorpi um 50 km fyrir norðan
London og hafði fyrri lestin verið
stöðvuð meðan áhöfnin ruddi burt
tré, sem fallið hafði á teinana. Að
sögn lögreglunnar létust fimm
manns og fimmtán slösuðust. Það
tók björgunarmenn allt að fjórum
klukkustundum að ná sumum far-
þeganna úr brakinu.
Á Bretlandi, frá Suður-
Englandi, Wales og til Skotlands,
er nú eitthvert mesta vetrarríki í
manna minnum. Að sögn Veður-
stofunnar hefur ekki snjóað jafn
mikið þar síðan 1950 og gífurlegt
öngþveiti ríkir víða á vegum, sem
eru ýmist ófærir vegna hálku eða
fannfergis, og flugsamgöngur og
járnbrautaferðir eru í lamasessi.
Síðastliðna nótt var 23 stiga frost
í Mið-Englandi og 13 stiga frost í
Glasgow og hefur ekki verið meira
síðan mælingar hófust árið 1888.
1 Bristol í Vestur-Englandi
sagði talsmaður bifreiðaeigenda-
félagsins þar í borg, að engu væri
líkara en umsátursástand ríkti í
miðborginni. „Allir helstu vegirn-
ir eru tepptir af bílum, sem hafa
lent í árekstri, jafnt vörubílar,
strætisvagnar sem fólksbílar, og
landið allt er raunar eins og ein-
hver frostköld hringavitleysa og
engum fært nema jólasveininum,“
sagði hann.
Veðurstofan í London spáir
áframhaldandi frosti og meiri
snjókomu á sunnudag og mánudag
og standa nú veðmálin þannig, að
3 á móti 1 veðja á hvít jól að þessu
sinni. Það hefur ekki gerst í Lond-
on síðan 1938 og vanalega eru töl-
urnar 20—1 hvítum jólum í óhag.
Þá gerðist sá einstæði atburður
skömmu eftir hádegi í gær, að Big
Ben, frægasta klukka í heimi,
sagði stopp og er veðurhamnum
kennt um.
Arfleiddi Jesú að eigum sínum
l>ondon, 12. deaember. AP.
TRÚAÐUR sérvitringur, Digweed
að nafni, sem hafði áhyggjur af
efnahagsástandinu og cinkum því,
að Jesús Kristur myndi kannski
eiga dálítið erfitt uppdráttar fjár
hagslega ef hann sneri aftur, eftir
lét honum 30.000 pund, um
480.000 ísl. kr., í erfðaskrá sinni
þegar hann féll frá. /Ettingjar
Iligweeds heitins segjast hins veg-
ar ekki nenna að bíða eftir degi
dómsins og hafa nú höfðað mál til
ógildingar erfðaskránni.
„Hr. Digweed heitinn lét eftir
sig fremur óvenjulega erfða-
skrá,“ sagði skiptaráðandinn og
þótti þá ekki taka of mikið upp í
sig fremur en enskra er háttur.
Digweed var viss um, að Kristur
kæmi aftur til jarðarinnar innan
21 árs en ákvað þó að ættingj-
arnir fengju reiturnar ef hann
væri ekki kominn eftir 80 ár.
Talið er víst að ættingjar
Digweeds vinni málið fyrir rétti
en það getur tekið nokkurn tíma.
Þess vegna hefur verið stungið
upp á því, að tryggingarfélagið
Lloyds of London greiði þeim féð
nú þegar, gegn vissri þóknun, og
taki þá áhættu, að málið vinnist
og að Kristur komi ekki aftur
innan þess tíma. Fulltrúi Lloyds
þvertekur hins vegar fyrir það
og segir ýmislegt vera því til
fyrirstöðu. Hann sagði, að Jesús
Kristur gæti t.d. átt erfitt með
að sanna hver hann væri og
benti í því sambandi á, að nú
þegar hefðu tveir menn gefið sig
fram og sagst vera Kristur
endurborinn en hvorugur hefði
haft pappirana í lagi.