Morgunblaðið - 13.12.1981, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981
Eggert Haukdal, alþingismaður:
Styð ekki frumvarpið
um virkjunarröðun
„ÉG tel alveg forkastanlegt að Fljótsdalsvirkjun sé sett fram fyrir
Sultartangavirkjun. l>ó reynt sé með loðnu orðalagi að fela þá staðreynd
í þriðja lið tillógunnar, þá eru öil tvímæli af tekin í sjötta lið. Að
sjálfsögðu tel ég sjötta lið ekki koma til greina, en hann fjallar um það
að verði ekki samkomulag um Blönduvirkjun, þá verði nú þegar ráðist í
Fljótsdalsvirkjun. Ég mun ekki samþykkja þessa þingsályktunartillögu
iðnaðarráðherra,“ sagði Eggert Haukdal alþingismaður í samtali við
Morgunblaðið er hann var spurður álits á fram kominni þingsályktun-
artillögu Hjörleifs Guttormssonar iðnaðarráðherra um röðun næstu
stóru vatnsaflsvirkjana landsmanna.
Þá sagði Eggert einnig: „Megin-
atriðið að mínu mati í þessu máli
er að farið verði í verulega orku-
nýtingu, og reist orkufrek iðnver.
Síðan getum við hafist handa við
b'yggingu Blönduvirkjunar, sam-
hliða vatnaveitum á Þjórsár —
Tungnaársvæðinu, og haldið svo
áfram á því svæði með Sultar-
tangavirkjun, samhliða Blöndu-
virkjun."
— Ákvörðun um staðsetningu
stóriðju er einvörðungu hvað
varðar kísilmálmverksmiðju á
Reyðarfirði. Hvað viltu segja um
það?
„Ef kísilmálmverksmiðja á
Reyðarfirði telst hagkvæmur
kostur tel ég sjálfsagt að ráðast í
þá framkvæmd, en á sama tíma
geri ég kröfu um að orkufrekur
iðnaður rísi víðar á landinu, ekki
síst á Suðurlandi. Þar vantar til-
finnanlega stóraukin atvinnu-
tækifæri."
— Var ekki búið að kynna þess-
ar tillögur fyrir þér, sem fyrir öðr-
um stjórnarliðum áður en málið
var kynnt á blaðamannafundi?
„Ég lýsti ekki yfir samþykki við
tillögurnar, þegar þær voru til
umfjöllunar. Ég mun bera fram
breytingartillögu í sameinuðu
þingi sem meðal annars felur í sér
að Sultartangavirkjun sé færð
fram fyrir Fljótsdalsvirkjun, og
niður falli áðurnefndur sjötti lið-
ur. Að öðrum kosti samþykki ég
ekki tillöguna."
— Muntu hætta stuðningi þín-
um við ríkisstjórnina, náir þú
þessu ekki fram?
— Það kemur í ljós" sagði Egg-
ert að lokum.
1982 — 20. útqáfuárið
Nú er tækifærið
aö senda vinum og viöskiptamönnum gjafaáskrift. Láttu lceland
Review flytja kveöju þína meö hverju hefti.
Viö höldum sérstaklega upp á 20. áriö og gefum út tvö blöö,
stærri og fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr. Hvort um sig veröur
eins og heil bók um ísland og segir meira frá landi og þjóö en
~ margra ára bréfaskriftir.
Fyrirhöfnin er engin, kostnaöurinn sáralítill — og þú getur fengiö
heilan árgang í kaupbæti.
★ Nýrri áskrift 1982 fylgir
allur árgangur 1981 í
kaupbæti, ef óskaö er.
Gefandi greiöir aöeins
sendingarkostnað.
□ Undirritaöur kaupir ......gjafaáskrift(ir) að lceland Review
1982 og greiðir áskriftargjald kr. 80 pr. áskrift aö viöbættum
sendingarkostnaöi kr. 40 pr. áskrift. Samt. kr. 120.
□ Árgangur 1981 veröi sendur ókeypis til viðtakanda(enda) gegn
greiöslu sendingarkostnaöar, kr. 40 pr. áskrift.
Ofangreind gjöld eru í gildi til ársloka 1981.
★ Útgáfan sendir viötak-
anda jólakveöju í nafni
gefanda, honum aö
kostnaöarlausu.
★ Hvert nýtt hefti af lceland
Review styrkir tengslin viö
vini í fjarlægð.
Nafn áskrifanda
Síml Heimilisfang
Nafn móttakanda
Heimilisfang "
Nöfn annarra móttakenda fylgja með á ööru blaöi. Sendið til
lceland Review, pósthólf 93, Reykjavík, eöa hringiö í síma 27622.
Ljósm.: Sverrir 1'áls.son.
Útfor Halldóru Bjarnadóttur var gerð frá Ákureyrarkirkju í síðustu viku,
en hún var á 109. aldursári er hún lést, elsti íslendingurinn. Kvenfélags-
konur stóðu við kistu hinnar látnu, og séra Birgir Snsbjörnsson jarðsöng.
Síðdegisblað í
burðarliðnum
ÚTGÁFA nýs síðdegisblaðs er nú á
döfinni og samkvæmt þeim hcimild-
um, sem Morgunblaðið hefur aflað
sér mun undirbúningur þess korninn
langt á leið. Ef af útgáfu verður á að
gefa blaðið út af Alþýðuflokknum og
öðrum aðilum, en þó ekki bera nafn
flokksins eða Alþýðublaðsins.
Flokknum mun þó ætiað ákveðið
pláss í blaðinu. Útgáfufyrirtæki
Eiríkur Bjarnason
frá Bóli látinn
llveragerði, 12. deNember.
EIRÍKUR Bjarnason frá Bóli, hótel-
stjóri í Hveragerði, lést að heimili
sínu í gær, fóstudaginn 11. desem-
ber. Hann var 72 ára að aldri, fædd-
ur 7. desember 1909.
Eiríkur var landskunnur fyrir
störf sín að félagsmálum og sem
hótelstjóri. Hann hefur rekið Hót-
el Hveragerði í rúm 30 ár, enn-
fremur átti hann Nýja ferðabíóið,
sem hann ferðaðist með um Suð-
urland ásamt konu sinni, frú Sig-
ríði Björnsdóttur. Þótti það á sín-
um tíma mikil nýbreytni. Eiríkur
var vel þekktur harmonikuleikari
og samdi fjölda laga, sem hafa
notið vinsælda.
Sjálfstæðisflokkurinn átti
traustan liðsmann þar sem Eirík-
ur var og vann hann mikið og
óeigingjarnt starf fyrir flokk sinn
og félag.
— Sigrún
blaðsins á að heita Síðdegisblaðið
hf.
Enn hefur ekki verið gengið
endanlega frá ráðningu ritstjóra
eða annars starfsfólks, en ákveðið
er að blaðið verði prentað í Blaða-
prenti. Verði af útkomu þessa síð-
degisblaðs mun Alþýðublaðið lagt
niður, en endanleg ákvörðun verð-
ur væntanlega tekin nú um helg-
ina.
Ólafur Thors
hefur selzt
í um 5.000
eintökum
frriðja prentun ákveðin
„Það er fyrirsjáanlegt að önn-
ur prentun af Olafi Thors eftir
Matthías Johannessen mun selj-
ast upp, og því hefur verið ákveð-
in þriðja prentun vcrksins" sagði
Brynjólfur Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Almenna bókafé-
lagsins í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Brynjólfur sagði að bókinni,
sem raunar er í tveimur bind-
um, hefði verið afar vel tekið
allt frá því hún kom út, og
væri enn ekki lát á eftirspurn
og pöntunum. „Bókin hefði
selst upp fyrir jól, og því var
ákveðin þessi þriðja prentun,
sem komin verður helgina
fyrir jól“ sagði Brynjólfur.
Brynjólfur kvaðst telja að
nú væru um 5 þúsund eintök
seld af Ólafi Thors. Fyrsta
prentun hafi verið 3.500 ein-
tök, önnur prentun 1.500 ein-
tök og sú þriðja, sem nú væri
verið að prenta væri einnig
1.500 eintök. Samtals verða því
prentuð 6.500 eintök af bókinni
um Ólaf Thors, nú fyrir jól.