Morgunblaðið - 13.12.1981, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 100 kr. á mánuði innanlands. f lausasölu 6 kr. eintakiö.
Léleg
fjármálastjórn
Að hætti vinstri stjórna
hefur sú ríkisstjórn, sem
nú situr, tæmt alla sjóði
landsmanna. Stjórnarherr-
arnir ætla nú að herða tökin
á lífeyrissjóðunum í því
skyni að neyða þá til að
verja hærri fjárhæðum en
áður til kaupa á skuldabréf-
um til ráðstöfunar fyrir hið
opinbera miðstýringarkerfi
á fjármagni. Beitir fjár-
málaráðherra þeirri rök-
semd fyrir sig, að stofnlána-
sjóði atvinnuveganna vanti
fé og einnig hina opinberu
byggingasjóði, þess vegna sé
sjálfsagt að heimta meira af
lífeyrissjóðunum. Ragnar
Arnalds, fjármálaráðherra,
lætur þess hins vegar ógetið,
að ríkissjóður stundar sam-
keppni við atvinnuvega- og
byggingasjóðina í skulda-
bréfakaupum af lífeyrissjóð-
unum. Hvað sem umhyggju
fjármálaráðherra fyrir upp-
byggingarsjóðunum líður á
tyllidögum, þegar hann býð-
ur lífeyrissjóðastjórnendum
í veislu til að milda þá, áður
en tekið er til við að hóta
þeim, þá gleymist hún, þegar
ráðherrann hugar að stöðu
ríkissjóðs. Eins og jafnan
misnotar ríkið aðstöðu sína í
þessu efni og reynir að lokka
lífeyrissjóðina til að selja
sér fyrst, áður en þeir gera
viðskipti við Framkvæmda-
stofnun og Húsnæðismála-
stofnun.
Þanníg seilist ríkið sjálft
sí og æ eftir stærri hluta af
hinu innlenda sparifé og
frægt er orðið, að kommún-
istar sjá þá leið helsta núna
að tæma bæði bankana og
gjaldeyrisvarasjóðinn, svo
að ríkisstjórnin geti lengt líf
sitt fram yfir næsta vísitölu-
og gengisfellingardag. En
stjórnarherrarnir eru ekki
aðeins aðsópsmiklir í fjár-
öflun á innlendum vett-
vangi, þeir láta ekki minna
til sín taka erlendis. Þrátt
fyrir allt njóta íslendingar
góðs lánstrausts erlendis og
íslenska ríkið hefur staðið
vel í skilum gagnvart lána-
drottnum í útlöndum. Það er
auðvelt að fá lán í útlöndum.
Veiklundaðir stjórnarherrar
og lélegar ríkisstjórnir velja
að jafnaði auðveldustu leið-
ina og átakaminnstu án til-
lits til þess, hvort hún er
skynsamleg eða ekki. í tíð
núverandi ríkisstjórnar hafa
erlendar skuldir íslendinga
hækkað óðfluga.
Hugsanlegt er, að ekki
takist að afgreiða lánsfjár-
áætlun fyrir árið 1982 nú
fyrir áramót, meginástæða
þess er mikil fjárvöntun á
þessu ári og ásókn í erlent
lánsfé nú síðustu mánuði
ársins. Eru sviptingarnar
svo miklar, að ekki gefst
ráðrúm til að komast að
niðurstöðu um skynsamleg-
ar forsendur fyrir næsta ár.
Jafnframt sækir á marga efi
um, að til nokkurs sé að gera
slíka lánsfjár- og fjárfest-
ingaráætlun, ef hún er svo
höfð að engu af sjálfri ríkis-
stjórninni, eins og gerst hef-
ur í ár. Til marks um þróun-
ina síðustu vikur má nefna,
að nú stefnir erlend lántaka
í 40% af þjóðarframleiðslu á
næsta ári, en fyrir rúmum
tveimur mánuðum var talið,
að þetta hlutfall yrði 37%.
Þá er greiðslubyrði vegna
afborgana og vaxta af löng-
um erlendum lánum að kom-
ast í 18% sem hlutfall af út-
flutningstekjum, sem svarar
næstum til þess, að allar út-
flutningstekjur af iðnaðar-
framleiðslu renni til þess
Nú sýnist ekkert því til
fyrirstöðu að loknum
utanríkisráðherrafundi Atl-
antshafsbandalagsins, að
Spánn verði sextánda aðild-
arríki bandalagsins. Sú
ákvörðun stangast á við þær
hrakspár, sem orðið hefur
vart undanfarna mánuði, að
Atlantshafsbandalagið sé að
liðast í sundur. Raunar
ganga allar ákvarðanir á
ráðherrafundinum, sem lauk
nú í vikunni, þvert á þá spá-
dóma. Ráðherrarnir voru
einhuga um meginstefnuna
og afstöðuna til sjónarmiða
svonefndra friðarhreyfinga í
Evrópu. Vara ráðherrarnir
við kröfunni um einhliða af-
vopnun Vesturlanda, sem er
í raun uppgjöf fyrir sovésku
hervélinni.
Skoðanakannanir í öllum
evrópskum aðildarlöndum
bandalagsins sýna, að al-
menningur hefur síður en
svo misst trúna á gildi sam-
eiginlegra varna Vestur-
landa. Meira að segja stjórn
vinstri manna í Grikklandi
eins að borga af erlendum
lánum.
Erlend lán eru ekki endi-
lega af hinu illa. Höfuðmáli
skiptir, að þeim sé skyn-
samlega varið og þá einkum
til framkvæmda, sem spara
gjaldeyri eða stuðla að öflun
gjaldeyris. Þau erlendu lán,
sem nú er verið að taka,
stafa af því, að við lifum um
efni fram. Þau eru einkenni
lélegrar fjármálastjórnar
eins og tómu sjóðirnir.
leitar nú leiða til að komast
hjá því að þurfa að standa
við öll stóru orðin, sem höfð
voru uppi um aðild landsins
að NATO í kosningabarátt-
unni þar í landi fyrir nokkr-
um vikum.
Hér á landi fer minna
fyrir þeim í opinberum um-
ræðum en nokkru sinni fyrr,
er segjast enn berjast fyrir
úrsögn Islands úr Atlants-
hafsbandalaginu. Það er
raunar skýrt dæmi um, hve
ríkisstjórn íslands er að
fjarlægjast viðhorf almenn-
ings til utanríkismála, að
þar rembast menn við að
þóknast annarlegum skoð-
unum Alþýðubandalagsins á
alþjóðamálum og varnar-
samvinnunni við Vestur-
lönd. Þetta sannaðist nú í
vikunni, þegar rætt var um
aðild íslands að Alþjóða-
orkumálastofnuninni á Al-
þingi, og kemur fram hvað
eftir annað, þegar rætt er
um nýja flugstöð á Kefla-
víkurflugvelli.
Spánn í NATO
Spástefna
Stjórnunarfélag íslands efndi á
fimmtudaginn í annað sinn til
svonefndrar spástefnu. Á þeirri
samkomu hittast sérfróðir menn
um efnahagsmál og hagfróðir
menn í fyrirtækjum og leitast við
að spá fyrir um þróun efnahags-
mála á næsta ári og skýra frá því,
hvaða efnahagsforsendur í þjóðar-
búinu fyrirtæki miði við í
áætlanagerð. Á fundinum á
fimmtudaginn, sem Tryggvi Páls-
son, hagfræðingur hjá Lands-
banka íslands, stjórnaði, töluðu
fyrst Olafur Davíðsson, hagrann-
sóknastjóri, Bjarni Bragi Jónsson,
hagfræðingur Seðlabanka íslands,
Valur Valsson, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra iðnrekenda og
Björn Björnsson, hagfræðingur
Alþýðusambands íslands. Síðan
gerðu fulltrúar fimm stórfyrir-
tækja grein fyrir efnahagslegum
forsendum við gerð fjárhagsáætl-
unar árið 1982, en þeir voru: Pétur
Eiríksson, forstjóri Álafoss hf.,
Eggert Ágúst Sverrisson, fulltrúi
SIS, Þórður Magnússon, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Eim-
skipafélags íslands hf., Valgerður
Bjarnadóttir, forstöðumaður hag-
deildar FLugleiða hf., og Björn
Friðfinnsson, framkvæmdastjóri
fjármáladeildar Reykjavíkurborg-
ar, en í þessu samhengi er fylli-
lega réttmætt að líkja starfsemi
borgarinnar við rekstur stórfyr-
irtækis.
Það var fróðlegt að hlusta á
rökræður manna á spástefnunni
og svo sannarlega voru þeir, sem
þar tóku til máls, í meira jarðsam-
bandi en til dæmis fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í sjónvarpsum-
ræðunum á miðvikudagskvöldið.
Hitt kom þó skýrt fram í máli
þeirra, sem verða að spá í gjörðir
stjórnmálamanna, þegar þeir
meta efnahagslegar forsendur til
áætlanagerðar, að þeir voru van-
trúaðir á, að sú ríkisstjórn, sem nú
situr næði frekari árangri í efna-
hagsmálum. Allt myndi að líkind-
um sitja í sama farinu á næsta ári
og verðbólgan vaxa í stað þess að
minnka.
Bréfritara datt það í hug, á
meðan hann sat og hlustaði á mál
manna á spástefnunni, að Stjórn-
unarfélagið hefði átt að fá ein-
hvern utan raða stjórnmálamann-
anna til að spá fyrir um pólitíska
þróun í landinu. Með vísan til
þeirrar spár hefðu spástefnugestir
ef til vill haft dálítið fastara land
undir fótum. Líklega hefðu þó
flestir verið tregir til að taka að
sér slíka pólitíska spá, stjórn-
málaumræður eru því miður enn á
því stigi hér, að leyfi einhver sér
að setja fram rökstudda og
ígrundaða skoðun um þróun
stjórnmálanna og stöðu ríkis-
stjórnar og stjórnarandstöðu,
lendir hann fljótlega í kjaftamyllu
atvinnu-stjórnmálamannanna og
skriffinna þeirra, sem leitast við
að gera skoðanir hans og viðhorf
sem tortryggilegust, séu þau ekki
þeim að skapi.
Hreinskilnar
umrædur
Að sögn forráðamanna Stjórn-
unarfélagsins gætti þess nokkuð á
síðasta ári, þegar fyrst var efnt til
spástefnunnar, að menn væru
tregir til að taka þar til máls.
Töldu þeir sig vera að ljóstra upp
um einkamál fyrirtækja sinna, ef
þeir færu að óskum Stjórnunarfé-
lagsins. Reynslan af fyrstu spá-
stefnunni varð á þann veg, að
miklu auðveldara var að fá menn
til þátttöku í þeirri, sem nú var
haldin. Kom það greinilega fram í
máli manna, að þeim finnst af því
styrkur að geta borið saman bæk-
ur sínar með þessum hætti. Þá
vakti það athygli, þegar litið var
yfir þátttakendur, að flestir virt-
ust þeir á svipuðu reki, um og yfir
þrítugt, sem sé af annarri kynslóð
en þeir, er nú setja mestan svip á
stjórnmálalífið. Hreinskilnar um-
ræður jafn áhrifamikils hóps í at-
vinnulífi landsmanna, þar sem
ekki er verið að karpa um einskis-
verða hluti, heldur leitast við að
miðla upplýsingum, sem byggðar
eru á viðurkenndum þó ekki ætíð
ótvíræðum forsendum, ættu að
hafa áhrif langt út fyrir veggi
fundarsalarins.
Líklega leiðist almenningi nú
orðið ekkert meira í fari stjórn-
málamanna en sú árátta hinna
málglöðustu í þeirra hópi, að segja
helst ekki neitt af skynsemi, þegar
þeir kveðja sér hljóðs. Það væri til
dæmis fróðlegt viðfangsefni fyrir
stjórnmálafræðinga að fara ofan í
málflutning formanns þingflokks
Alþýðubandalagsins, Ólafs R.
Grímssonar, í sjónvarpinu á mið-
vikudagskvöldið og kanna, hvernig
hann brást við spurningum um
næstu verkefni í landstjórninni,
en um það efni snerist þátturinn.
Það er ekki aðeins efnahagslífið,
sem er orðið bólgið af verðminni
seðlum, heldur er stjórnmálalífið
einnig orðið bólgið af marklausu
hjali þeirra, sem segjast hafa ráð
við öllu, bara að þeir haldi í völd-
in. Glöggur maður lýsti orsökum
vandans á stjórnarheimilinu með
þessum orðum: Það er ekki nema
von, að lítið hafi verið gert í land-
stjórninni, forsætisráðherra hefur
ekki talað um annað en sjálfan sig
síðustu mánuði.
Slæmar horfur
Sé í stuttu máli vikið að því, sem
fram kom í máli manna á spá-
stefnunni, má segja, að þaðan hafi
menn ekki gengið bjartsýnir um
afkomu þjóðarbúsins á næsta ári.
Horfur hafa versnað síðan Þjóð-
hagsstofnun lauk við gerð þjóð-
hagsáætlunar fyrir árið 1982, en
hún kom út í byrjun október. Ein
af forsendum áætlunarinnar var,
að sjávarafli héldist óbreyttur á
næsta ári. Síðan sú forsenda var
lögð til grundvallar, hafa ótíðind-
in um loðnuna borist og nú má
reikna með því, að loðnuaflinn
verði mun minni á næsta ári en í
ár. Þá er kreppa í áliðnaði og
framleiðslu á kísiljárni, sem mun
hafa áhrif bæði á afkomu álvers-
ins og járnblendiverksmiðjunnar.
I þjóðhagsáætluninni var búist við
4% aukningu í þjóðarframleiðsl-
unni á næsta ári, en nú má reikna
með því að þjóðarframleiðslan
minnki á milli ára og hefur það
ekki gerst um langt árabil.
Tvær meginorsakir eru fyrir
því, að verðbólgan hefur minnkað
á þessu ári. í fyrsta lagi 7% launa-
Frá spástefnu Stjórnunarfélags fsland:
skerðingin 1. mars síðastliðinn og
í öðru lagi hækkunin á gengi doll-
arans. Fyrri ástæðan á rætur að
rekja til ráðstafana rikisstjórnar
Gunnars Thoroddsens og hin síð-
ari til stjórnarathafna Ronald Re-
agans. Nú er það svo, að Ronald
Reagan er ekkert sérstakt kapps-
mál, að dollarinn styrkist enn