Morgunblaðið - 13.12.1981, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.12.1981, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981 i Fyrir hálfum mánuði fór ég nokkrum orðum um Willard Fiske og Grímsey hér í Vísnaleik og birti þá m.a. Grímseyjar- ljóð eftir Reinhardt Reinhardtsson, sem ég kvaðst engin deili vita á. Hann hefur nú verið svo vinsamlegur að senda mér línu og bók sína Ljóð án lags, sem út kom í fyrra. Þar segir m.a. að Reinhardt hafi fæðst á Norðfirði 14. ágúst 1909. Hann vandist ungur hvers konar bústörfum og síðar sjómennsku og hefur ort af því til- efni þessa braghendu: Vinur, ég hef verk í hönd mér víöa tekið; mokaö flór og rollur rekið, róiö kænu og færi skekið. Reinhardt hefur verið mjög listelskur og m.a. lagt stund á fiðluleik hjá Þórarni heitnum Guðmundssyni, Nestor ís- lenzkra fiðluleikara. Hann rak um skeið Efnalaug Austurbæjar. Ljóð hans bera með sér, að hann elur í brjósti ást til fósturjarðarinnar og tónninn í þeim er góður. Ég tilfæri hér eitt erindi úr minn- ingarljóði um Vilhjálm skáld frá Ská- holti: Hann var barn þessa bæjar. Blik af hans draumi og þrá. Hann ólst upp í Austurstræti, úti viö sundin blá. Blæinn og blómailminn, brimgný og stormsins hljóö, daganna önn og yndi, hann óf í sín dýru Ijóð. Pósturinn hefur verið óvenju fjöl- skrúðugur og kærkominn að þessu sinni. Meðal annars hefur Sófus Bertelsen í Hafnarfirði skrifað mér gott bréf, þar sem segir m.a.: „Ég hef lengi verið aðdáandi bundins máls, reyndar fengizt nokkuð við það sjálfur í frístundum og jafnvel í vinnu. Eflaust er það, sem ég hef barið saman, afar lélegt, því að ég hef aldrei séð eða komizt yfir bók um bragfræði, samt finnst mér, að ég hafi eyra og auga fyrir stuðlum og rími, en mér finnst lítið til koma Ijóða þar sem stuðlar og rím eru ekki til staðar. Hins vegar get ég vel viðurkennt óstuðlað og órímað ljóð sem skáldskap þótt mér falli það ekki í geð rétt eins og mér geðjast vel málaðar landslagsmyndir eða annað, þar sem augaö fylgir línum, sem eru fyrir í sjálf- settu formi heldur en abstrakt myndir, sem ég get ekki fundið neitt út úr, — en nóg um það. Ég hef stundum verið að hnýsast í visnaþætti í hinum ýmsu blöðum dagsins og ég segi bara það sem mér býr í brjósti, að oft finnst mér Vísnaleikur Morgun- blaðsins ansi lélegur, þó hef ég gaman af honum, kannske mest vegna þess að ég gagnrýni hann öðrum fremur." Og að þessum orðum sögðum er kannske bezt að snúa sér að efninu. Fyrri hlutinn var á þess leið: Skyndilega um laun var samið lítið þurftu menn aö vaka. Botn Sófusar er á þessa leið: Prósentur látnar passa í kramið. Pínulítiö af bónus taka. Örn botnar svo: ASÍ var lurkum lamiö, lágt er ris á Gvendi jaka. F.K.S. botnar: Launafólkið Ijúft og tamiö látiö gjalda falskra raka. Seinni fyrri hlutinn var svona: Allt fær núna annan blæ, óðum nálgast jólin. Reinhardt botnar: Hýrna fer um hlíð og sæ, hækka tekur sólin. Jón Erlendsson botnar: Kvikna Ijós í byggö og bæ bráöum hækkar sólin. Sófus botnar: Eftirvænting í borg og bæ bráöum hækkar sólin. Þannig voru þeir keimlíkir, botnarnir við þennan fyrri hluta, enda má segja, að rímorðin og efnið hafi í rauninni boðið upp á það. En F.K.S. bætir svo við í öðru samhengi. Stjórnargengi falla fer, fiskileysi á öllum miðum. Og niöurtalning oröin er upptalning á flestum sviöum. Eins og málin eru vaxin er skynsam- legt að skjóta hér inn í limru eftir Sófus, sem honum flaug í hug þegar nýgerðir kjarasamningar voru útskýrðir í hans verkalýðsfélagi: Þaö er Ijóst sé á samninga litiö aö lítið var foringja vitiö. Þaö kom þó í part þrjú prósent og kvart, sem var reyndar af bónusnum bitiö. Ég hef í síðustu Vísnaleikjum að gamni mínu látið fylgja með gátu í þýð- ingu Sigfúsar Blöndals og hér kemur ein til viðbótar: Kynlegir eru klerkar þeir er í krókum fara á stjá, læðast fram um leynda stigu Ijótt er þaö aö sjá, aldrei halda hreint og beint, en halda æ á ská, dularráö í brjósti búa, bezt er að varast þá. Lausn gátu í síðasta Vísnaleik var manntaflið, en í þeirri næstsíðustu ridd- ari manntaflsins. F.K.S hefur sent fyrri hluta, sem mér finnst vel við hæfi að enda þennan þátt með: Sem þyrnirós nú þjóöin sefur, því er komma blómatíö. Ekki verður meira kveðið að sinni. Halldór Blöndal . deulwhe t tbKimmvpnvti -TriEruK-KCNOffXA- SCHAUPlAnEN GMBm HEFUR ÞU AHUGA Á KLASSÍSKRITÓNLIST Við höfum fyrir þessi jól meira og fjölbreyttara úr- val klassískra hljómplatna en nokkru sinni áöur. Vörumerki i itc/i Það er því ekki eftir neinu að bíða, því eintakafjöldi fyrir hvern titil er ekki í öll- um tilfellum mikill. nm ii Klassiskar hljomplötur eru á boöstólum í verslunum okkar á Laugavegi 26 og á Suöurlandsbraut 8. TELDEC FALKIN N Hljomplötudeild &OSi MYNOAeOKAOTOAFAN. Rf.YK lAVÍK ' Fjórar litlar bækur um Gosa ÚT ERU komnar fjórar smábækur um Gosa, en um margra ára skeið hefur Gosi stytt börnunum stundir. Bækurnar heita Tónlistarmað- urinn, Brúðuleikstjórinn, Pen- ingatréð og Spákvisturinn. Það er Myndabókaútgáfan í Reykjavík, sem gefur bækurnar út, en Her- steinn Pálsson þýddi þær. Öldin sextánda Minnisverð tíðindi 1551-1600 „Öldin sextánda“ UT er komið hjá Iðunni seinna bindi Aldarinnar sextándu, minnisverð tíð- indi 1551 —1600. Jón Helgason rit- stjóri tók saman. Lauk hann hand- riti bókarinnar fáum vikum áður en hann lést á síðasta sumri, og varð það síðasta ritverk hans. Jón Helga- son tók saman fimm bindi í bóka- flokknum „Aldirnar", um sautjándu og átjándu öld, auk hinnar sextándu. Bindi í flokknum eru nú orðin ellefu talsins og tók Gils Guðmundsson að mestu saman efni í þau bindi sem gera skil nítjándu öld og hinni tutt- ugustu. „Aldirnar" rekja í formi fréttablaðs sögu þjóðarinnar í sam- fellt 470 ár, 1501-1970.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.